Morgunblaðið - 21.05.2007, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
OPNUÐ hefur verið að nýju
ljósmyndasýning Þórólfs Ant-
onssonar og Hrannar Vil-
helmsdóttur í turni Hallgríms-
kirkju. Ljósmyndirnar eru
teknar af Hallgrímskirkju frá
tveimur sjónarhornum, eldhús-
glugganum þeirra, yfir 16 ára
tímabil, og nýjar myndir frá
nýju heimili sem er beint fyrir
framan kirkjuna.
Myndirnar hafa fangað
margbreytileg blæbrigði birtu, veðurs og árstíða
en með kirkjuna ávallt í forgrunni.
Sýningin mun standa til 31. júlí og vera opin frá
kl. 9-20 alla daga, á sama tíma og turninn.
Ljósmyndasýning
Brigði birtu og
veðurs í turninum
Hallgríms-
kirkjuturn.
ÁGÚST Bjarnason opnaði um
helgina listsýningu í galleríinu
Art-Iceland á Skólavörðustíg
1a.
Ágúst stundaði nám í graf-
íkdeild Myndlistar- og hand-
íðaskólans og nam listasögu í
Stokkhólmi. Hann hefur unnið
að list sinni síðan 1980 og kom-
ið víða við, má þar nefna teikn-
ingar, vatnslitamálun, dúkrist-
ur og myndskreytt bækur.
Meginviðfangefni hans hefur verið Reykjavík-
urborg og umhverfi hennar, fólk og sjómennska.
Art-Iceland er opið frá kl. 12 til 18 virka daga
og 12 til 16 á laugardögum.
Myndlistarsýning
Viðfangsefnið er
fólk og sjómennska
Verk eftir Ágúst
Bjarnason.
DÝRÐARSÖNGUR í Háteigs-
kirkju nefnast vortónleikar
Stúlknakórs Reykjavíkur sem
fara fram annað kvöld, þriðju-
daginn 22. maí, kl. 20.
Kórinn, undir stjórn Mar-
grétar J. Pálmadóttur, mun
m.a flytja kafla úr verkinu
Gloría eftir Vivaldi ásamt öðr-
um kirkjulegum verkum.
Stúlknakórinn er á leiðinni í
æfinga- og tónleikferð til Ítalíu
í júní næstkomandi og mun m.a. halda tónleika í
menningarborginni Flórens.
Inn á Dýrðarsöng í Háteigskirkju kostar 1500
kr. Miðar seldir við innganginn.
Tónleikar
Dýrðarsöngur
stúlknakórs
Stúlknakór
Reykjavíkur.
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
ÓPERUDEIGLA Íslensku óp-
erunnar kynnti á föstudaginn var
þrjár nýjar íslenskar óperur sem eru í
smíðum og voru jafnframt sýnd brot
úr verkunum. Óperudeiglan var stofn-
uð fyrir um einu og hálfu ári síðan í
þeim tilgangi að skapa vettvang fyrir
tilraunastarf og nýsköpun á sviði óp-
erulistar og stuðla að því að samdar
verði nýjar óperur fyrir almenning.
„Þarna fá tónskáld, leikstjórar og
aðrir sem koma nálægt óperuuppsetn-
ingum tækifæri til að bera saman
bækur sínar, kynna hugmyndir og fá
viðbrögð við því sem þeir eru að gera á
miðri leið án þess að um endanlega af-
urð sé að ræða,“ útskýra þeir Daníel
Bjarnason tónskáld og Ingólfur Níels
Árnason, leikstjóri og fræðslustjóri Ís-
lensku óperunnar, en saman sjá þeir
um framkvæmd Óperudeiglunnar.
Fjölþætt listform
Verkin sem þarna voru kynnt eru
eftirfarandi; Söngvar haustsins eftir
Hróðmar I. Sigurbjörnsson og Hall-
grím H. Helgason, Klakahöllin eftir
Áskel Másson og Hel eftir Sigurð
Sævarsson og sviðslistahópinn Hr.
Níels en hann skipa auk Sigurðar, Ing-
ólfur Níels Árnason, Siguringi Sig-
urjónsson og Sigurður Eyberg Jó-
hannesson. Sagan er eftir Sigurð
Nordal. Eftir að verkin höfðu verið
kynnt fóru fram umræður þar sem
viðstaddir fengu tækifæri til að tjá sig
um þau varpa fram spurningum til að-
standenda þeirra. Á þennan hátt fá að-
standendur verkanna tækifæri til að fá
utanaðkomandi viðbrögð og, á sama
tíma, skýrari mynd af verkinu í miðju
framleiðsluferlinu. Og væntanlega rat-
ar eitthvert þeirra inn á svið Óp-
erunnar, ef ekki öll þrjú.
Útgangspunktur Óperudeiglunnar
er sá að kveikjan að nýrri óperu geti
komið úr ýmsum áttum og að gald-
urinn sem þarf til að semja góða óperu
sé sjaldan á valdi einnar manneskju.
„Óperan er fjölþætt listform og sem
slíkt þarf að huga vel að öllum þáttum
hennar,“ útskýrir Ingólfur.
Margar nýjar óperur
Kynning Óperudeiglunnar fór fram
í tengslum við Óperustjóraþing sem
haldið var á föstudaginn í Íslensku óp-
erunni en þar voru viðstaddir óp-
erustjórar frá Norðurlöndum og
Eystrasaltsríkjunum. Yfirskrift þings-
ins í ár var „Nýsmíði ópera“ en mikil
uppsveifla hefur verið í nýsmíði ópera
um alla Evrópu á undanförnum árum.
„Eins og önnur list þá endurspeglar
óperan samtímann og fólk hefur
ákveðna þörf fyrir að nota þetta list-
form sem slíkt,“ segir Ingólfur. „Tón-
skáld eru í auknum mæli að uppgötva
þetta form upp á nýtt. Óperuformið
sjálft er svo fjölbreytt.“
„Óperuformið hefur þörf fyrir nýjar
óperur því annars á það á hættu að
verða gamaldags,“ útskýrir Daníel.
„Aðstæðurnar í Evrópu og í Banda-
ríkjunum hafa breyst mikið á síðustu
tuttugu árum. Margar nýjar óperur
hafa verið samdar og tónskáld eru orð-
in mun áhugasamari um óperusmíði.
Það kom vel í ljós á þessu þingi að
spurn eftir nýjum verkum hefur aukist
mjög mikið og það er mjög jákvætt.
Ég held að óperuhúsin finni fyrir
því að þótt það sé alls ekki öruggt að
nýjar óperur verði vinsælar, þá eru
þær nauðsynleg tenging við samtím-
ann.“
Óperudeiglan kynnti þrjár nýjar íslenskar óperur á föstudaginn
Nýsmíði ís-
lenskra ópera
Í HNOTSKURN
» Óperudeigla Íslensku óp-erunnar var stofnuð fyrir um
einu og hálfu ári síðan í þeim til-
gangi að skapa vettvang fyrir til-
raunastarf og nýsköpun á sviði
óperulistar og stuðla að því að
samdar verði nýjar óperur fyrir
almenning.
» Kynningin fór fram ítengslum við Óperustjóra-
þing sem haldið var í Íslensku
óperunni en þar voru viðstaddir
óperustjórar frá Norðurlöndum
og Eystrasaltsríkjunum.
Óperudeiglan kynnti þrjár nýjar óperur sem eru í smíðum á föstudaginn
og voru jafnframt sýnd brot úr verkunum sem eru; Söngvar haussins eftir
Hróðmar I. Sigurbjörnsson og Hallgrím H. Helgason, Klakahöllin eftir Ás-
kel Másson og Hel eftir Sigurð Sævarsson og sviðslistahópinn Hr. Níels.
Morgunblaðið/Kristinn
Óperur í smíðum
STÓRHÁTÍÐ til
heiðurs Bítilnum
John Lennon
verður haldin í
hálendisbænum
Durness í Skot-
landi í sept-
ember.
Skipuleggj-
andi hátíð-
arinnar, sem
mun standa í þrjá daga, segir
hana verða eina frábærustu hátíð
sem haldin hefur verið í Skotlandi.
Á dagskrá verða tónlistaratriði,
ljóðaupplestur, kvikmyndasýn-
ingar og dansatriði.
John Lennon dvaldi fimm sumur
hjá frænda sínum á þessu svæði
þegar hann var ungur. Sagt er að
landslagið þarna hafi verið inn-
blásturinn að lagi Lennons, „In My
Life“.
Skipuleggjendur hátíðarinnar
hafa tilkynnt að 1.100 miðar fyrir
hátíðina fari í sölu bráðlega en í
bænum sjálfum, Durness, búa um
350 manns.
Á dagskrá hátíðarinnar er m.a
Royal Academy of Music sem mun
flytja Bítlalög, dansatburður mun
eiga sér stað í stærsta helli Bret-
lands við sjávarsíðuna og ljóð-
skáldin Carol Ann Duffy og Mich-
ael Horovitz koma fram. Síðan
verður sýnd kvikmynd þar sem
hljómsveitarmeðlimir og fjöl-
skylduvinir Bítlana tala um líf
Johns Lennons.
Frændi Lennons, hinn 72 ára
Stan Parker, sagði að Lennon
hefði orðið hæstánægður og undr-
andi að hafa innblásið slíka hátíð
á stað sem honum þótti mjög vænt
um.
Hátíð til
heiðurs
Lennon
Íbúar Durness í Skot-
landi heiðra Lennon
John Lennon
„ÞETTA voru gjörsamlega frábær-
ir tónleikar,“ segir Egill Eðvarðs-
son dagskrárgerðarmaður sem fór
á tónleika Goran Bregovic ásamt
brúðkaups- og jarðarfara-
hljómsveit hans í Laugardalshöll á
laugardagskvöldið.
„Tónlistin og flutningur hennar
var til fyrirmyndar og svo var ég
svakalega ánægður með hljóm-
burðinn í höllinni. En ef eitthvað
var að þá voru það stóru tjöldin sem
sýndu Bregovic í nærmynd á svið-
inu, það var viðvaningsbragur á því
og illa gert. Ég hafði ekki séð hann
áður á tónleikum en þekki kvik-
myndatónlistina hans sem mér
finnst góð, dramað og takturinn í
slavneskri tónlist hefur alltaf heill-
að mig.“
Egill segir að almennt hafi verið
gerður góður rómur að tónleik-
unum sem voru það fyrsta sem
hann sá á vegum Listahátíðar í
Reykjavík í ár.
Hvernig var?
Egill Eðvarðsson fór á tónleika Goran
Bregovic á laugardagskvöldið
Egill Eðvarðsson
Í dag
Bryn Terfel – velski bassabarítón-
söngvarinn. Einsöngstónleikar. Píanóleikari
Malcolm Martineau. Í Háskólabíói kl. 20
Listahátíð í Reykjavík
TENGLAR
.......................................
www.listahatid.is
listir.blog.is
Nýtt „Útgangspunktur Óperudeiglunnar er sá að kveikjan að nýrri óperu geti komið úr ýmsum áttum og að gald-
urinn sem þarf til að semja góða óperu sé sjaldan á valdi einnar manneskju.“