Morgunblaðið - 21.05.2007, Page 23

Morgunblaðið - 21.05.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 23 Kynntu þér málið á www.glitnir.is, í næsta útibúi eða hjá Þjónustuveri í síma 440 4000. GÓÐIR VIÐSKIPTAVINIR GÓÐIR PUNKTAR verulega, Frjálslyndir töpuðu fylgi. Sjálfstæðisflokkur jók hins vegar fylgi sitt en engan veginn eins mikið og VG. Vinstrihreyfingin grænt framboð jók fylgi sitt meira en nokk- ur annar flokkur og var í þeim skiln- ingi sigurvegari kosninganna. Hefði flokkurinn ef til vill þurft að þre- falda fylgi sitt til að formaður Vinstrihreyfingarinnar græns fram- boðs hlyti náð fyrir augum leið- arahöfunda Morgunblaðsins? Ekki svo að skilja að við séum að leita eftir slíkri náð, síður en svo. Það er nefnilega þannig að Vinstri- hreyfingin grænt framboð er eini stjórnmálaflokkurinn á Íslandi sem er líklegur til að halda til streitu fé- lagslegum vinstri áherslum. Er þetta hið raunverulega áhyggjuefni Morgunblaðsins? Morgunblaðið virðist ekki mega til þess hugsa að yfirleitt sé til slíkur flokkur. Leiðarahöfundur vill að VG losi sig við allar vinstri áherslur með því að „taka skrefið til fulls og verða grænn flokkur án þess að skilgreina sig til vinstri sem slíkur. Með slíkri breytingu og nýrri forystu mundi græni flokkurinn skapa sér sterka vígstöðu í íslenzkum stjórnmálum“. Nú er það svo að VG hefur sér- stöðu í íslenskum stjórnmálum sem grænn umhverfisverndarflokkur og erum við stolt af því mikilvæga hlut- verki. En ef leiðarahöfundur Morg- unblaðsins ímyndar sér eitt and- artak að við munum leggja fyrir róða áherslur okkar á jöfnuð og fé- lagslegt réttlæti þá fer hann villur vegar. Hitt er svo óneitanlega svolít- ið spaugilegt að Morgunblaðið skuli einmitt nú tala fyrir skiptum í for- ystu VG. Það hljómar óneitanlega ankannalega, svo ekki sé sterkar að orði kveðið, að vilja skipti í brúnni á því pólitíska skipinu sem aflaði bet- ur en nokkurt annað í nýafstöðnum Alþingiskosningum! Er það ef til vill þess vegna sem Morgunblaðið vill skipta út? Höfundur er Þingmaður Vinstri- hreyfingarinnar græns framboðs unartöku, svo sem skrifanlegur geisladiskur eða iPod því að það er innifalið í verði. Eitt vandamál við DRM er að það hamlar ekki einungis ólöglegri notk- un heldur einnig löglegri notkun. Hver kannast ekki við DRM- auglýsingarnar á DVD-diskum sem keyptir eru löglega úti í búð? Þetta eru auglýsingar sem ekki er hægt að sleppa því að spila. Einnig eru tak- markanir á notkun tónlistar sem fólk kaupir löglega á Netinu; lögin má til dæmis bara afrita ákveðið oft eða spila í einu tæki svo lengi sem mán- aðarleg áskrift er greidd. DRM tak- markar sömuleiðis notkun á DVD- diski, gefur einungis rétt til þess að spila efnið og það eingöngu í DVD- spilara. Maður getur því ekki eign- ast efni sem varið er með DRM, heldur er einungis hægt að kaupa rétt til þess að nota það. Annað vandamál tengt DRM er samræming við íslensk lög. Lögin heimila rétt kaupanda til öryggis- afrits sem þó skal ekki nota nema frumrit skemmist. Í því tilviki býst eigandi við því að öryggisafritið sé af sama gæðastaðli og frumritið. DRM kemur hins vegar í veg fyrir að slíkt gæðaafrit sé tekið af frum- riti. Þetta er misræmi sem ekki er enn til viðunandi lausn á. Í aðalatriðum er DRM ákveðin tækni sem kemur í veg fyrir að hægt sé að taka fullkomið afrit og takmarkar notkun af frumeintaki. Þetta er ekki fullkominn vörn og er líklegri en ekki til þess að hamla hinum almenna notanda sem hyggst nýta efnið á löglegan hátt. Höfundur er nemi við tölvunarfræði í Háskóla Íslands. ÉG HEF verið starfandi sjúkraliði í 33 ár og í þau liðlega 25 ár sem ég hef fylgst og starfað með Kristínu Á. Guð- mundsdóttur formanni Sjúkraliðafélags Ís- lands, að félagsmálum sjúkraliða hef ég orðið vitni að ódrepandi áhuga hennar á framgangi stéttarinnar. Sem formaður hefur Kristín komið okkur á kortið sem fagstétt og getum við sjúkralið- ar verið stoltir af okk- ar starfi og því sem áorkað hefur verið í okkar baráttumálum undanfarin ár, þó bar- áttunni sé hvergi nærri lokið. Ég treysti Kristínu best fyrir formanns- embættinu og að vinna í þágu sjúkraliða. Kristín hefur mikla reynslu af fé- lagsmálum enda verið formaður Sjúkraliða- félagsins í 21 ár, en stöðugleiki í forystusveitinni er mikilvægur svo stefnumálin nái fram að ganga. Einnig er mjög mikilvæg sú sýn Kristínar að hjúkrunarstéttir hafi góða samvinnu. Kristín á auðvelt með að virkja félagsmenn og hrífa fólk með sér í baráttunni, og hún nýtur sín best þegar mest á reynir. Ég vona að fé- lagsmenn beri gæfu til þess að kjósa hana til áframhaldandi for- mannsstarfa hjá Sjúkraliðafélagi Íslands. Ég hvet alla félagsmenn til að kjósa en kjörgögn þurfa að hafa borist kjörstjórn félagsins fyrir kl. 17:00 föstudaginn 25. maí nk. Kjósum Kristínu Á. Guðmundsdóttur Sigríður Þórarins- dóttir skrifar í tilefni af formannskjöri sjúkraliða »Kristín hefur miklareynslu af fé- lagsmálum enda verið formaður Sjúkraliða- félagsins í 21 ár, en stöð- ugleiki í forystusveitinni er mikilvægur... Sigríður Þórarinsdóttir Höfundur er sjúkraliði. VIÐ sem erum í hjólastólum erum venjulegir Íslendingar. Við viljum að tekið sé mark á okkur, við borgum skatta, eigum okkar rétt og höfum okkar skyldur. En til að okkur séu tryggð borg- araleg réttindi þarf sérstök lög um okkur í öllu sambandi. Ef viðhorf al- mennings væri með okkur þá væri þessi laga-„frumskógur“ í formi laga-„runna“. Þá mundi engum detta í hug að opna þjónustu, ætlaða almenningi og staðsetja hana á 3. hæð í lyftulausu húsi. Ef „allur“ al- menningur væri hafður í huga, en ekki bara sumir, þá væri aðgengi tryggt fyrir alla og þætti sjálfsagt. Bílaleigur eru dæmi um fyrirtæki sem bjóða þjónustu fyrir suma. „Nei, því miður eigum við enga bíla fyrir fólk í hjólastólum“ er svarið þegar hringt er í þær! Nema í dag. Þá hefur ein bílaleiga sýnt þann kjark og það þor að bjóða innlendum og erlendum ferðamönnum bíla með búnaði fyrir hjólastólafólk. Hertz heitir þessi leiga sem hefur starfs- menn og eigendur með þá framtíð- arsýn að ekki skuli mismuna fólki sem bundið er hjólastól. Mín von er að almenningur láti heyra í sér ef að- gengi er ábótavant en beini líka sín- um viðskiptum til þeirra sem gera vel. Viðhorfið hjá Hertz er að mínu skapi. Þangað mun ég beina við- skiptum ef þess er nokkur kostur. Ég skora á alla sem veita þjónustu til almennings að líta í kringum sig þegar mætt er í vinnu næst. Kemst hjólastóll t.d. að inngangi þjónust- unar? Oft vantar auman fláa á gang- stéttina. Hvernig opnast dyrnar? Hve breiðar eru þær? Er þröskuldur sem enginn á hjólastól kemst um? Hvernig er rýmið inni? Allt eru þetta atriði sem koma ófötluðum vel að sé í lagi en er okkur í hjólastóla- genginu alger nauðsyn. GUÐJÓN SIGURÐSSON, formaður MND-félagsins. Lög eða skynsemi? Frá Guðjóni SigurðssyniBréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.