Morgunblaðið - 21.05.2007, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 27
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuauglýsingar
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is - www.job.is
Skólahljómsveit
Kópavogs
Lausar stöður frá næsta hausti
• Slagverkskennsla 100% starf
• Klarinett- og saxófónkennsla
u.þ.b. 80 – 100% starf
Laun skv. kjarasamningum FT og FÍH.
Umsóknarfrestur er til 21. maí.
Upplýsingar veitir Össur Geirsson
í síma 864-6111.
Fundir/Mannfagnaðir
Opinn fundur fyrir íbúa á Njálsgötu
og nágrenni vegna heimilis fyrir
heimilislausa í sal Austurbæjarskóla
22. maí kl. 17:00-18:30
Fundarstjóri:
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn
Dagskrá:
17:00-17:05
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri setur fundinn
17:05-17:15
Jórunn Frímannsdóttir formaður velferðarráðs
17:15-17:30
Ellý A. Þorsteinsdóttir skrifstofustjóri á Velferðarsviði.
Heimilið á Njálsgötu, reynsla af sambærilegu heimili.
17:30-17:35
Björk Vilhelmsdóttir velferðarráði Reykjavíkurborgar
17:35-17:40
Þorleifur Gunnlaugsson velferðarráði
Reykjavíkurborgar
17:40-17:45
Helga B. Laxdal lögfræðingur skipulags- og
byggingarsviði Reykjavíkurborgar
17:45-17:50
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn lögreglu
höfuðborgarsvæðisins
17:50-18:20
Fyrirspurnir – umræður
18:20-18:30
Stella K. Víðisdóttir sviðsstjóri
Velferðarsviðs - samantek
Velferðarsvið
Ýmislegt
Nást nýir stjórnarhættir?
Tekst Sjálfstæðisflokknum, sem leitt hefur
ríkisstjórnir síðustu sextán ára, enn að móta
stjórnarhætti leyndar, blekkinga og mismunun-
ar, sbr. Kárahnjúka-, Byrgis- og kvótamál?
Verður íslensk náttúra áfram einskis metin og
borgað með orkusölu til stóriðju? Eða tekst
nýju Alþingi og stjórn að móta stjórnarhætti
staðreynda, gegnsæis og upplýsingar? Tekst að
jafna misrétti milli kvenna og karla, hætta að
mismuna fólki eftir búsetu og leggja af
kvótakerfi, sem er eyðileggjandi fyrir fiski-
stofna og byggðir? Er þjóðstjórn nauðsynleg?
Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti.
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
Elsku amma.
Nú ertu sofnuð svefninum langa
eftir erfið veikindi. Tilbúin og komin
aftur til afa Olla og sona þinna. Við
vitum að það hafa orðið fagnaðar-
fundir og þeir tekið vel á móti þér.
Nú þegar þið afi eruð bæði farin
frá okkur er margs að minnast og
margt að þakka. Alltaf var gott að
koma til ykkar heim í Skálabrekku,
sérstaklega er við sem krakkar
renndum okkur á skíðum beint úr
fjallinu. Afi tók þá hendur okkar í
lófa sér og nuddaði þar til þær voru
orðnar heitar meðan þú hitaðir
handa okkur kakó og ekki var verra
ef þú varst nýbúin að baka pönnsur
eða lummur.
Upp í hugann koma einnig minn-
ingar um bíltúra með þér. Rúntur í
sveitina eða ísrúntur var alltaf vin-
sæll. Þá var nú oft mikið hlegið því
þú varst nú ekki heimsins besti bíl-
stjóri og kom fyrir að bíllinn hikstaði
og drap á sér á miðri götu.
Heimilið ykkar í Skálabrekku var
oft eins og félagsmiðstöð og þar
komu margir, bæði fjölskyldumeð-
limir og aðrir. Enda þegar við kom-
um í heimsókn eftir að við fluttum
frá Húsavík var nóg að heimsækja
ykkur og stoppa í svolitla stund og
þá þurfti ekki að heimsækja fleiri því
svo margir kíktu við í kaffi. Svoleiðis
vilduð þið afi hafa það, því fleiri sem
komu því betra.
Við kveðjum þig amma með þess-
um ljóðlínum Matthíasar Jochums-
sonar:
Ég fel í forsjá þína
Guð faðir sálu mína
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
Björg, Örvar og Særún.
✝ RagnheiðurFriðrika Jón-
asdóttir fæddist í
Skálabrekku á
Húsavík 28. apríl
1924. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga á Húsa-
vík mánudaginn 9.
apríl síðastliðinn.
Útför Ragnheiðar
var gerð frá Húsa-
víkurkirkju 20. apr-
íl sl.
Elsku amma Ragna.
Mig langar að þakka
þér fyrir allar þær
stundir sem þú áttir
með okkur og alltaf
virtist þú hafa tíma
fyrir okkur barna-
börnin þótt við værum
orðin það mörg að við
gátum mannað nokkur
fótboltalið. Þú varst
alltaf tilbúin að segja
manni „Smjörbitasög-
ur“, kenna manni að
spila, gefa manni kakó
og rist þegar maður
kom úr fjallinu eða lána Honduna í
skreppitúra með því skilyrði að hún
kæmi nýþrifin til baka. Einnig varst
þú einstaklega góð að „lauma“ spil-
um þegar við krakkarnir sáum ekki
til en þá stoppaði afi Olli jafnan spilið
og lét þig taka það til baka. „Nú var
þetta ekki tromp?“ var svarið oft og
svo brostirðu. Þegar ég stálpaðist
fór amma að ræða við mig um andleg
málefni og eyddum við ófáum
klukkustundum í að ræða um
drauma hennar og miðilsfundi sem
hún sótti og ekki vantaði alvarleik-
ann í samræðurnar, þótt húmorinn
hafi líka verið skammt undan. Jóna
systir og amma áttu sama áhugamál
en það var sjónvarpsþátturinn
„Leiðarljós“. Þegar amma skrapp
utan, sem hún gerði reglulega, tók
Jóna upp alla þættina á meðan. Þeg-
ar heim var komið settist sú gamla í
stólinn sinn heima í Skálabrekku og
horfði á hvern þáttinn á fætur öðrum
og skeggræddi við Jónu um hin og
þessi atriði í þáttunum. Amma mátti
hvergi aumt sjá hjá vinum og vanda-
mönnum og rétti fram hjálparhönd
fyrst allra, þótt stundum hefði hún
mátt hugsa aðeins um sína eigin
heilsu fyrst. „Sælla er að gefa en
þiggja,“ sagði amma stundum við
mig og held ég að þessi orð segi
margt um persónuleika ömmu
Rögnu. Guð veiti okkur öllum styrk í
sorginni.
F.h. barnabarna og fjölskyldna
þeirra á Laugarbakka 13.
Róbert Ragnar Skarphéðinsson.
Ragnheiður F.
Jónasdóttir
✝ Steinunn Tóm-asdóttir fæddist
á Læk í Leirársveit,
Borgarfjarðarsýslu,
þann 30. desember
1913. Hún lést 14.
maí sl.
Foreldrar Stein-
unnar voru Guðrún
Hallsteinsdóttir frá
Skorholti og Tómas
Ingimannsson frá
Akranesi. Systkini
Steinunnar voru
Guðný, fædd 11.11.
1912, maki Sig-
urþór Narfason, og Hallsteinn
fæddur í janúar 1915, maki Her-
dís Ebenesersdóttir.
Þann 12. júní 1937 giftist Stein-
unn Ármanni Guðnasyni. For-
eldrar hans voru
Sóldís Guðmunds-
dóttir og Guðni
Guðnason.
Steinunn og Ár-
mann eignuðust tvö
börn: Hugi Steinar,
f. 13.6.1940, kvænt-
ur Katrínu Briem
og eiga einn son,
Huga Baldvin. Guð-
rún, f. 8.4.1945, gift
Guðmundi Mag-
ússyni; börn þeirra
eru Hugrún Stein-
unn, Brynjúlfur, Ár-
mann, Ingveldur, Sóldís og Guð-
rún Erla. Langömmubörnin eru
tólf og eitt langalangömmubarn.
Steinunn verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Elskuleg tengdamóðir mín,
Steinunn Tómasdóttir er látin 93ja
ára að aldri. Steinunn var fædd á
Læk í Leirársveit og ólst upp við
almenn sveitastörf. Hún fluttist á
Akranes með móður sinni og systk-
inum eftir lát föður síns árið 1930.
Skólaganga Steinunnar var
barnaskóli eins og þá tíðkaðist.
Eftir það stundaði hún ýmis störf.
Hún var í vist á Akranesi og vann í
saltfiski en einnig fór hún í síld á
Ingólfsfjörð og Siglufjörð og var
kaupakona í Flóanum. Hún var
vandvirk og sterkbyggð, hlífði sér
ekki og var harðdugleg. Hún var
ákveðin, hafði létta lund, var glett-
in og spaugsöm. Steinunn kynntist
Ármanni Guðnasyni, sem þá var
sjómaður á Akranesi. Þau fluttust
til Reykjavíkur, giftu sig og hófu
búskap í Skerjafirðinum, fyrst á
Reykjavíkurvegi en síðan á Hörpu-
götu 36.
Steinunn og Ármann eignuðust
bæði börn sín, Huga Steinar og
Guðrúnu, áður en þau fluttu í það
hús sem var síðan heimili þeirra
þar eftir, að Hrísateigi 18.
Ármann stundaði ýmis störf, rak
meðal annars eigin kolaverslun,
Kolaverslun Guðna og Einars.
Seinna verslaði hann með brota-
málma og rak sitt eigið fyrirtæki
við Eldshöfða.
Þegar þau hjón fluttu í Laug-
arneshverfið var þar hafin mikil
uppbygging, þau tóku því þátt í
þeirri mótun sem þar átti sér stað.
Húsum fjölgaði og garðar greru.
Einnig fjölgaði afkomendum þeirra
hjóna og eru þeir nú tuttugu og
tveir talsins. Elsta dóttir Guðrún-
ar, Hugrún Steinunn, dvaldi hjá
afa sínum og ömmu á Hrísateign-
um um árabil.
Um tíma á áttunda áratugnum
vann Steinunn utan heimilis við
húshald og barnagæslu. Henni fór-
ust hlutirnir vel úr hendi og eig-
inleikar hennar, vandvirkni og
dugnaður, dugðu henni vel.
Ármann lést árið 1996 eftir
nokkurra ára veikindi. Steinunn
annaðist vel um Ármann í veik-
indum hans, sýndi honum um-
hyggju og alúð og bjó honum þau
bestu skilyrði sem hún var fær um.
Steinunn var áfram á Hrísat-
eignum meðan heilsan leyfði og
sýndi mikla þrautseigju. Eftir veik-
indi og sjúkrahúsvist fluttist hún á
Dvalarheimilið Grund í júlí síðast-
liðnum. Hún undi hag sínum þar
vel og hafði oft orð á því að þar
væri gott að vera enda var allt það
starfsfólk sem annaðist hana fram-
úrskarandi í vinnu sinni, þægilegt
og ljúft.
Blessuð sé minning hennar.
Katrín Briem.
Steinunn Tómasdóttir
Eftir rúmlega 20
ára vináttu á ég þús-
undir minningabrota
um Tobbu. Þó að síð-
ustu árin hafi verið
erfið og margar hraðahindranir á
lífsleið hennar vinkonu minnar sitja
eftir minningar um góða tíma,
glæsikonuna Tobbu, sanna vináttu,
hlátur, hrekki og heimspekilegar
vangaveltur um lífið og tilveruna
hér og heiminn fyrir handan.
Við vorum um margt mjög ólíkar
þegar við kynntumst sem vinnu-
félagar en náðum strax vel saman
og djúp vinátta þróaðist sem hélst
óbreytt þó að samverustundirnar
yrðu færri og breyttust mjög að
Þorbjörg
Rögnvaldsdóttir
✝ Þorbjörg Rögn-valdsdóttir var
fædd á Siglufirði 18.
maí 1959. Hún lést á
dvalarheimili Sjálfs-
bjargar 11. apríl sl.
Útför Þorbjargar
var gerð frá Digra-
neskirkju 23. apríl
sl.
umgjörð í gegnum tíð-
ina.
MS-sjúkdómurinn
hafði veruleg áhrif á
líf hennar og líkama
en sálin og húmorinn
hélst óbreyttur og til
síðustu stundar tókst
okkur að hlæja saman
þó að tjáskipti hafi
vissulega verið orðin
erfiðari undir lokin.
Tobba trúði á Guð
og heiminn fyrir
handan, átti sannfær-
ingu sem fleytti henni
áfram og ég oft öfundaði hana af.
Ég vona að hennar bíði betri heim-
ur og bíð þess að hún verði í sam-
bandi með einhvern góðlátlegan
hrekk eins og hún er vís til.
Ég votta móður hennar, Guð-
rúnu, systkinunum Dísu, Önnu og
Gunna sem og Svenna, Hólmfríði og
Kristínu, öðrum vinum og ættingj-
um Þorbjargar mína dýpstu samúð
og deili með þeim ljúfum minning-
um um góða konu gengna of fljótt.
Sigrún Björg Þorgrímsdóttir.