Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 33
DAGUR VONAR
Fim 24/5 kl. 20
Lau 2/6 kl. 20
Fös 8/6 kl. 20
Ekki er hleypt inní salinn eftir að sýning er hafin
SÖNGLEIKURINN GRETTIR
Fös 25/5 kl. 20
Fim 31/5 kl. 20
Sýningar hefjast að nýju í september
SÖNGLIST SUMARNÁMSKEIÐ
Skráning hafin á sumarnámskeið Sönglistar.
Mán 18/6 1. námskeið
Mán 25/6 2. námskeið
Mán 2/7 3. námskeið
Mán 9/7 4. námskeið
Mán 16/7 5. námskeið
Mán 23/7 6. námskeið
Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is
LÍK Í ÓSKILUM
Þri 5/6 kl. 20 FORS.
Fim 7/6 kl. 20 FORS.
Fös 8/6 kl. 20 FORS.
Lau 9/6 kl. 20 FORS.
Miðaverð 1.500
DANSLEIKHÚSSAMKEPPNIN
25 TÍMAR
Fim 7/6 FORS. Miðaverð 1.500
Fös 8/6 kl. 20
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
VILTU FINNA MILLJÓN?
Lau 26/5 AUKASÝNING Síðasta sýning
LADDI 6-TUGUR
Þri 29/5 kl. 20 UPPS.
Mið 30/5 kl. 20 UPPS.
Fös 1/6 kl. 20 UPPS.
Lau 2/6 kl. 20 UPPS.
Lau 2/6 kl. 22:30 UPPS.
Sun 3/6 kl. 14 UPPS.
Sun 3/6 kl. 20
Mán 4/6 kl. 20 UPPS.
Mið 20/6 kl. 20
Fim 21/6 kl. 20
SÖNGLEIKURINN ÁST
Í samstarfi við Vesturport
Fös 25/5 kl. 20 UPPS.
Lau 26/5 kl. 20 UPPS.
Fim 31/5 kl. 20 UPPS.
Fös 1/6 kl. 20
Sun 3/6 kl. 20
Fim 7/6 kl. 20
Lau 9/6 kl. 20
Fös 15/6 kl. 20
BELGÍSKA KONGÓ
Mið 30/5 kl. 20
Mið 6/6 kl. 20
Sun 10/6 kl. 20
Fim 14/6 kl. 20
Aðeins þessar 4 sýningar
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
1/6 Örfá sæti laus,
2/6 Nokkur sæti laus, 7/6 Nokkur sæti laus
Síðustu sýningar!
Allar sýningar hefjast kl. 20 nema annað sé tekið fram.
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA!!
Pabbinn – drepfyndinn einleikur Bjarna Hauks
Fim. 24/05 kl. 19 örfá sæti laus
Fös. 25/05 kl. 19 örfá sæti laus
Lau. 26/05 kl. 19 örfá sæti laus
Síðustu sýningar leikársins!
Sala áskriftarkorta fyrir nýtt og spennandi
leikár hefst í ágúst. Vertu með!
www.leikfelag.is
4 600 200
BANDARÍKJAMAÐURINN David
Fincher er einn af þessum leik-
stjórum sem starfa innan Hollywood
en tekst engu að síður að fara eigin
leiðir og ögra viðteknum viðmiðum
sem ríkja þar í bæ. Nýjasta mynd
hans, Zodiac, ber þess merki að
Fincher hafi ákveðið á láta viðteknar
frásagnarhefðir lönd og leið, en þar
tekst hann á við hina vinsældavænu
fjöldamorðingjahefð á óvenjulegan
og ekki síst sjálfsvísandi máta. Ólíkt
hefðbundnum raðmorðingjamyndum
fjallar Zodiac nefnilega um ráðgátu
sem leysist ekki, um illt afl sem rétt-
vísinni tekst ekki að hemja og áhrif
óhugnanlegra glæpa á stóran hóp
fólks, allt frá fórnarlömbunum til
ráðþrota rannsakenda og óttaslegins
almennings. Um er að ræða sann-
sögulegt mál raðmorðingja sem
kenndi sig við Stjörnumerkjamorð-
ingjann (the Zodiac killer) og athafn-
aði sig á svæðinu í kringum San
Francisco á 7. og 8. áratug síðustu
aldar en náðist aldrei. Morðinginn
komst í hámæli eftir að hann hóf að
senda bréf til dagblaða í San Franc-
isco með alls kyns dulkóðuðum vís-
bendingum um hver hann væri og
hvað hann hygðist fyrir. Sjálfur ólst
leikstjórinn Fincher upp við óttann
við þessa alltumlykjandi ógn sem
aldrei tókst að kveða niður. Fincher
fangar þessa þrúgandi ógn einkar vel
í kvikmyndinni, þar sem leitin að
svarinu við ráðgátunni verður að
þráhyggju og tekur yfir líf þriggja
sögupersóna, blaðamannsins Paul
Avery (Robert Downey Jr.), lög-
reglumannsins David Toschi (Mark
Ruffalo) og skopmyndateiknarans
Roberts Graysmiths (Jake Gyllen-
haal) sem skrifaði síðar tvær bækur
um mál Zodiac-morðingjans en á
þeim byggist myndin. Hér er ekkert
til sparað svo að útlit og umgjörð
verði eins og best verður á kosið, og
leikarar eru allir með ágætum, en
það sem stendur eftir í óhugnanlegri
frásögninni er hversu vandvirknis-
lega hún nálgast það sem næstum
aldrei er fjallað um í myndum af
þessu tagi: vonbrigði, merkingarþrot
og langvinn sálfræðileg áhrif glæpa.
Morðingi gengur laus
KVIKMYNDIR
Sambíóin Álfabakka og
Kringlunni
Leikstjórn: David Fincher. Aðalhlutverk:
Jake Gyllenhaal, Mark Ruffalo, Robert
Downey Jr., Anthony Edwards, Chloë
Sevigny. Bandaríkin, 158 mín.
Zodiac / Stjörnumerkjamorðinginn
Zodiac „Hér er engu til sparað svo að útlit og umgjörð verði eins og best
verður á kosið,“ segir m.a í dómnum.
Heiða Jóhannsdóttir
JAKOB Frímann Magnússon tónlistarmaður og Birna Rún Gísladóttir unn-
usta hans eignuðust sitt fyrsta barn saman á laugardaginn. Það var stúlka
sem kom í heiminn þann 19. maí, fæðingin gekk vel og öllum heilsast vel.
Þetta er fyrsta barn Birnu en fyrir á Jakob tvítuga dóttur, Bryndísi, með
Ragnhildi Gísladóttur tónlistarkonu.
Morgunblaðið/Eggert
Foreldrar Jakob Frímann Magnússon og Birna Rún Gísladóttir.
Önnur stelpa hjá Jakobi
BÍTILLINN
Paul McCartney
hefur tilkynnt að
hann ætli ekki í
hljómleikaferð
þrátt fyrir að ný
plata sé vænt-
anleg frá honum
snemma í næsta
mánuði. Ástæðan
er sú að hann vill
ekki leggjast í slík ferðalög fyrr en
hann hefur gengið frá skilnaði sínum
við fyrirsætuna Heather Mills.
Platan, sem ber titilinn Memory
Almost Full, kemur út þann 4. júní
og segist McCartney vissulega ætla
að kynna hana eitthvað. Engin
skipulögð tónleikaröð verður þó til-
kynnt fyrr en áðurnefndum kafla í
lífi bítilsins fyrrverandi er lokið, en
þess má varla vænta fyrr en á næsta
ári.
McCartney fór síðast á hljóm-
leikaferðalag um heiminn árið 2005.
Bíður með
hljómleikaferð
Paul McCartney
KVIKMYNDATÍMARITIÐ Screen
greinir frá því að fyrirtækið Fortiss-
imo Films hafi fengið allan rétt á
dreifingu á Sveitabrúðkaupi, nýrri
kvikmynd Valdísar Óskarsdóttur,
utan Skandinavíu.
Blaðið segir að myndin hafi verið
tekin á Snæfellsnesi og sé vegamynd
sem segi frá fólki sem sé á leiðinni í
brúðkaup í lítilli sveitakirkju.
Valdís er þekkt nafn sem klippari
í kvikmyndaheiminum og mun það
eflaust auðvelda henni dreifingu á
Sveitabrúðkaupi um heiminn.
Morgunblaðið/Jim Smart
Valdís Óskarsdóttir
Fengu dreifing-
arrétt á Sveita-
brúðkaupi
GRÆNI risinn Skrekkur og
vinir hans tóku flugið á ný
um helgina en þriðja teikni-
myndin um Skrekk aflaði
122 milljóna dala tekna í
norður-amerískum kvik-
myndahúsum, sem er
teiknimyndamet. Raunar
eru þetta þriðju bestu mót-
tökur sem kvikmynd hefur
fengið á frumsýningarhelgi
á eftir þriðju myndinni um
Köngulóarmanninn og ann-
arri myndinni um sjóræn-
ingjana á Karíbahafi.
Eins og í hinum mynd-
unum talar Mike Myers fyr-
ir Skrekk, Cameron Diaz talar fyrir
Fíónu prinsessu, Eddie Murphy er
asninn og Antonio Banderas stíg-
vélaði kötturinn. Justin Timberlake
bætist við í leikarahópinn en hann
leikur Arthúr konung, ungan að ár-
um.
Svo gæti farið að Skrekkur dvelji
ekki langan tíma í 1. sætinu því í
vikunni verður frumsýnd þriðja sjó-
ræningjamyndin þar sem Johnny
Depp leikur sjóræningjann Jack
Sparrow.
Listi yfir vinsælustu myndirnar
er eftirfarandi:
1. Shrek the Third
2. Spider-Man 3
3. 28 Weeks Later
4. Disturbia
5. Georgia Rule
6. Fracture
7. Delta Farce
8. The Invisible
9. Hot Fuzz
10. Waitress
Skrekkur vinsælastur í USA
Reuters
MAXÏMO Park
komu vel út úr
holskeflu breskra
gítarrokksveita
sem töldu sig eiga
eitthvað í Franz
Ferdinand með
frumraun sinni fyrir tveimur árum.
Á Our Earthly Pleasures fæst sveit-
in við fleiri tónliti en á síðustu skífu,
innan um beinskeytt gítarrokkið má
heyra poppaðri tóna þar sem píanó-
leikari sveitarinnar fær að spreyta
sig. Slíkar þreifingar eru að mestu
misráðnar, Maxïmo Park eru bestir
þegar þeir rokka eins og í upphafs-
laginu „Girls Who Play Guitars“ og
hinu stórgóða „Our Velocity.“ Það
kæmi mér ekki á óvart ef væntanleg
plata Jakobínurínu myndi hljóma
eitthvað í ætt við þau lög. Hins vegar
vantar jafnmarga flotta „hittara“
hér og var að finna á síðustu skífu
þótt tilraunir Maxïmo Park séu
vissulega í áttina. Í öllu falli er þetta
betra en nýja Bloc Party-platan.
Í áttina
Atli Bollason
TÓNLIST
Maxïmo Park –
Our Earthly Pleasure