Morgunblaðið - 21.05.2007, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 39
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
FJÁRFESTINGARTÆKIFÆRI Í ÞRÓUNARLÖNDUM
RÁÐSTEFNA Á RADISSON SAS HÓTEL SÖGU, FIMMTUDAGINN 24. MAÍ 2007
09:00 SKRÁNING
10:15 SETNINGARÁVARP Utanríkisráðherra Íslands
10:25 ERU SAMSTARFSVERKEFNI Í ÞRÓUNARLÖNDUM TÆKIFÆRI EÐA TÁLSÝNIR?
Stefán Þórarinsson, framkvæmdastjóri Nýsis hf
10:45 SAMSTARF HINS OPINBERA OG EINKAGEIRANS
Ragna Sara Jónsdóttir, viðskiptafulltrúi utanríkisráðuneytisins
11:05 MENNINGARGILDRUR
Þorgeir Pálsson, framkvæmdastjóri Thorp ehf
11:25 INVESTMENT FROM ABROAD, NAMIBIAN PERSPECTIVE
Bernadette Artivor, framkvæmdastjóri fjárfestingarstofu Namibíu
12:00 HÁDEGISVERÐUR
13:00 WORLD BANK OPERATION, OPPORTUNITIES, JOINT EFFORT
Kieran Kelleher, Senior Fisheries Specialist
13:30 RÓIÐ Á NÝJUM MIÐUM. FRUMHERJASTARF Í SJÁVARÚTVEGI ÞRÓUNARLANDS
Sigurður G. Bogason, framkvæmdastjóri MarkMar ehf
13:50 FJÁRFESTINGAR OG LÁNVEITINGAR Í ÞRÓUNARLÖNDUM – AF SJÓNARHÓLI GLITNIS
Ásmundur Gíslason, sérfræðingur hjá Glitni
14:20 ÞAR SEM SMJÖRIÐ DRÝPUR AF HVERJU STRÁI
Guðlaugur Þór Pálsson, framkvæmdastjóri Frostmarks ehf
14:40 KAFFIHLÉ
15:00 STOFNUN OG REKSTUR FYRIRTÆKIS Í ÞRÓUNARLANDI - REYNSLA FRÁ ÚGANDA
Kristján Erlingsson, framkvæmdastjóri Icemark-Africa Ltd
15:20 ÞRÓUNARBANKI EVRÓPU, SAMSTARFSMÖGULEIKAR OG TÆKIFÆRI
Baldur Pétursson, aðstoðarframkvæmdastjóri Þróunarbanka Evrópu
15:50 PALLBORÐ: Stjórnandi Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri: Þátttakendur úr hópi fyrirlesara
16.20 SAMANTEKT Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri Fiskifélags Íslands
16:30 RÁÐSTEFNUSLIT Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri ÞSSÍ
Ráðstefnustjórar: Fyrir hádegi: Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri, eftir hádegi: Júlíus Hafstein, sendiherra.
RÁÐSTEFNAN ER ÖLLUM OPIN
Ráðstefnugjald er 5000 kr. (hádegisverður er innifalinn).
Skráningu ber að tilkynna til Fiskifélags Íslands í síma 551 0500
eða á netfangið fi@fiskifelag.is
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
ALLMUSIC.com er helsta upp-
flettirit tónlistaráhugamanna og
-fræðinga á vefnum nú um stundir.
Vefsetrið hefur verið starfrækt í
rúman áratug og vex sífellt ásmeg-
in en fimmtán ár eru síðan fyr-
irtækið var stofnað. Upphaflega
var fyrirtækið stofnað til að miðla
upplýsingum til neytenda í bók-
arformi. Fyrsta bókin kom út 1992,
en aðstandendur þess voru fljótir
að nýta sér nettækni og hrintu
fljótlega úr vör Gopher-setri.
Fyrsta vefútgáfa af All Music fór
svo í loftið 1995 og hefur tekið
stöðugum breytingum síðan.
Um 900 manns skrifa reglulega
umsagnir í All Music-gagnagrunn-
inn, AMG, og ritstýra ævisögum
tónlistarmanna sem þar er að
finna. Mikið af upplýsingum er að
finna í grunninum, til að mynda
eru skráðar upplýsingar um ríflega
milljón plötur og umsagnir um
rúmlega 300.000 þeirra. Þá eru um
70.000 myndir af listamönnum, ríf-
lega 700.000 myndir af plötu-
umslögum og um 17.000.000 nöfn
tínd til sem komið hafa nálægt
þeim milljón plötum sem skráðar
eru í grunninn.
All Music, All Movie
og All Game
Eins og getið er byrjaði fyr-
irtækið með All Music gagna-
grunn, en bætti síðan við All Movie
fyrir kvikmyndir og loks All Game
fyrir tölvuleiki. Mest er þó lagt í
tónlistargrunninn og hann er
helsta tekjulind fyrirtækisins, ann-
ars vegar sem auglýsingamiðill,
enda er síðan vinsæl, og svo hefur
fyrirtækið talsverðar tekjur af því
að selja aðgang að gagnagrunn-
inum, til að mynda til fyrirtækja
sem framleiða tónlistarspilara, í
verslanir og þar fram eftir göt-
unum.
Nískir á stjörnurnar
Það gefur auga leið að slíkur
grúi af upplýsingum er hvalreki á
fjörur tónlistaráhugamanna sem
geta dundað sér tímunum saman
við að fletta í grunninum, leita uppi
uppáhaldsplötur og máta dóma
fræðinganna við eigin skoðanir.
Gagnrýnendur þeir sem starfa hjá
AMG eru misjafnir, eins og gengur
og gerist, sumir óttalega yfirborðs-
kenndir, en aðrir nokkuð traustir
og sumir eiginlega óskeikulir. Þeir
eru líka mis-duglegir, en þess
greinilega gætt að ekki sé alltaf
sami maður að skrifa um plötur
sama listamanns.
Dóma í AMG á að lesa sem
dægradvöl, enda byggja þeir ekki á
traustum grunni vísindalegra stað-
reynda. Iðulega fýkur í lesendur
yfir sérkennilegri stjörnugjöf og
oftar en ekki hissa menn sig á því
hve stjörnugjöfin vill verða í litlu
samræmi við texta viðkomandi um-
sagnar. Sumir hafa líka bent á að
síðustu ár hefur engin rokkskífa
fengið fimm stjörnur, OK Compu-
ter er síðasta rokkplatan sem fékk
fullt hús, en á sama tíma hafa fjöl-
margar hiphopskífur hlotið þann
heiður. Gleymum því þó ekki að de
gustibus non est disputandum og
þar sem dómar hljóta að byggjast
að mestu leyti á smekk er ekki
meira um það að segja.
Nokkrar íslenskar plötur á AMG
og stjörnugjöfin: Björk - Volta
, Sigur Rós - Ágætis byrjun
1/2, múm - Yesterday Was
Dramatic - Today Is OK
1/2, Mezzoforte - No Limits
, Lokbrá - Army of Soundwa-
ves 1/2, Svala - The Real Me -
1/2.
Vefsíða vikunnar: allmusic.com
Uppflettivef-
urinn mikli
Vefsíða Helsta uppflettirit tónlistaráhugamanna og -fræðinga á vefnum.
KVIKMYNDIN Falin
ásýnd (The Painted Veil)
er byggð á skáldsögu eftir
W. Somerset Maugham,
en hún gerist á yf-
irráðasvæði Breta í Kína
á fyrri hluta 20. aldar og
lýsir erfiðleikum
hjónanna Kitty (Naomi
Watts) og Walter Fane
(Edward Norton). Kitty
giftist Walter vegna
þrýstings frá foreldrum
sínum og flyst með hon-
um til Sjanghæ þar sem hann er
læknir. Óhamingja beggja hjóna
leiðir þau í ógöngur sem verða til
þess að Walter býður sig fram sem
læknir á svæði þar sem kólerufar-
aldur geisar og neyðir Kitty til þess
að koma með sér. Þar fara þau að sjá
lífið og hjónabandið öðrum augum.
Falin ásýnd er vönduð kvikmynd og
prýdd mörgum undurfögrum atrið-
um sem tekin eru upp í fögru fjal-
lendi í Kína. Þá er myndin einkar vel
búin leikurum, og fara þau Edward
Norton og Naomi Watts frábærlega
með tilfinningalega krefjandi hlut-
verk sín, og sýnir Norton ekki síst á
sér nýjar hliðar í hlutverki hins stífa
breska læknis Walters. Þannig hlúa
þau Watts og Norton vel að tilfinn-
ingalegum kjarna sögunnar og halda
glóðinni lifandi út í gegnum þessa
hægu og fallegu ástarsögu.
Ást og kólera
KVIKMYNDIR
Regnboginn
Leikstjórn: John Curran. Að-
alhlutverk: Naomi Watts,
Edward Norton. Bandaríkin/
Kína, 125 mín.
Falin ásýnd (The Painted Veil)
Heiða Jóhannsdóttir
Góð „Þá er myndin einkar vel búin leikurum,
og fara þau Edward Norton og Naomi Watts
frábærlega með tilfinningalega krefjandi hlut-
verk sín,“ segir m.a í dómnum.
COLIN Newm-
an, sem leiddi
hina stórgóðu
síðpönksveit
Wire fyrir þrjá-
tíu árum, tók
höndum saman
við ýmsa tónlist-
armenn og stofnaði sveitina Git-
head í tilefni af tíu ára afmæli
plötuútgáfunnar Swim fyrir þrem-
ur árum. Sveitin hefur starfað
áfram og breiðskífan Art Pop kom
út fyrir skemmstu. Þar reyna
drengirnir sig við gítarrokk sem
minnir um margt á indírokk ní-
unda áratugarins. Pólitíkin og
heimsósómi er allsráðandi í texta-
gerðinni, t.d. í „Drive by“ þar sem
Newman hálfrappar og hálföskrar
textann með miður góðum ár-
angri. Það skín í fínt popp inn á
milli eins og í „These Days“ en
megnið gleymist samstundis. Ég
vil hafa mitt listapopp bæði list-
rænna og poppaðra en Githead
býður mér upp á.
Vont
listapopp
TÓNLIST
Githead – Art Pop
Atli Bollason
Githead Art Pop
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 563 5600