Morgunblaðið - 26.05.2007, Page 8
8 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Formaður sjálf-
stæðiskvenna
LANDSÞING
Landssambands
sjálfstæðis-
kvenna var hald-
ið mánudaginn
21. maí sl. Þar lét
Ásta Möller af
formennsku og
við tók Drífa
Hjartardóttir.
Drífa átti sæti á
Alþingi 1999-2007 og er nú vara-
þingmaður flokksins
Aðrar í aðalstjórn eru: Katrín
Helga Hallgrímsdóttir (varafor-
maður), Rúna Malmquist (gjald-
keri), Margrét Kristín Sigurð-
ardóttir (ritari), Herdís Hólmfríður
Þórðardóttir, Soffía Lárusdóttir,
Áslaug María Friðriksdóttir, Sig-
ríður Hallgrímsdóttir, Elísabet Val-
geirsdóttir, Áslaug Jóhanna Jens-
dóttir, Brynhildur K. Andersen,
Jóhanna Hlín Ragnarsdóttir, Mar-
grét Björnsdóttir, Þóra Þórarins-
dóttir og Ríkey Ríkarðsdóttir.
Drífa Hjartardóttir
Virkjanavefur
LANDSVIRKJUN hefur nú opnað
sérstakan vef með upplýsingum um
áform um virkjanir í neðri hluta
Þjórsár. Vefslóðin er www.thjorsa-
.is en einnig er hægt að tengjast
vefnum af heimasíðu Landsvirkj-
unar. Á vefnum munu koma fram
allar nýjar upplýsingar um und-
irbúning virkjana í Þjórsá neðan
Búrfells.
FJÁRVEITINGAR til Fornleifa-
sjóðs í ár voru 25 milljónir króna en
sjóðnum bárust alls 57 umsóknir að
upphæð
rúmar 88
milljónir
króna.
Stjórn
sjóðsins
ákvað að
úthluta að-
eins einu
sinni á
þessu ári og hefur lokið úthlutun.
Samtals var úthlutað 24,5 millj-
ónum til 12 verkefna.
Stærstu styrkirnir komu í hlut
rannsóknar á Hólum, 7 milljónir
króna, Náttúrustofa Vestfjarða og
Strandagaldur, Ragnar Edvards-
son og Magnús Rafnsson fá þrjár
milljónir til rannsóknar á hval-
veiðum útlendinga við Ísland og
loks voru veittar 2,4 milljónir vegna
uppgraftar á rústum Skriðuklaust-
urs í Fljótsdal.
Fornleifastyrkir
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
NEYSLA íslenskra ungmenna á
fíkniefnum er minni í Reykjavík en í
níu samanburðarborgum í Evrópu,
að því er fram kemur í niðurstöðum
evrópskrar rannsóknar í forvörnum,
Youth in Europe-A Drug Prevent-
ion Programme. Niðurstöðurnar
voru kynntar á fundi á Bessastöðum
sem Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands efndi til í gær. Þar var
einnig Forvarnardeginum sem hald-
inn var síðastliðið haust fylgt eftir.
Ólafur Ragnar ræddi á fundinum
um fíkniefnahættuna sem að ungu
fólki steðjaði. Á Íslandi hefði verið
unnið merkilegt starf sem kæmi að
miklum notum í baráttunni gegn
fíkniefnum og vísaði forsetinn m.a.
til rannsókna á vegum Háskóla Ís-
lands og Háskólans í Reykjavík.
„Við ákváðum fyrir nokkrum árum
að ýta úr vör því metnaðarfulla
markmiði að tengja saman borgir í
Evrópu í nýju forvarnarstarfi,“
sagði Ólafur Ragnar. Hátt á annan
tug borga tekur nú þátt í því, þar á
meðal Helsinki, Vilnius, Sofia og
Ósló.
9,9% í 10. bekk reykja
Inga Dóra Sigfúsdóttir, fræði-
maður við HR, kynnti fyrstu nið-
urstöður forvarnarverkefnisins. Það
stendur í fimm ár og er samstarfs-
verkefni evrópskra borga sem stýrt
er frá Íslandi. Samstarfsaðilar hér á
landi eru forseti Íslands, Actavis,
Reykjavíkurborg, HR, HÍ, Rann-
sóknir og greining og ECAD.
Í niðurstöðunum kemur meðal
annars fram að daglegar reykingar
unglinga í 9. bekk eru minnstar í
Ósló og Reykjavík. Á Íslandi reykja
um 9,9% nemenda í 10. bekk dag-
lega, en til samanburðar er hlut-
fallið 18,9% í Helsinki og 33% í Vil-
nius. Þá sögðust 4,8% íslenskra 10.
bekkinga hafa drukkið áfengi síð-
ustu 30 dagana, en hlutfallið er 3,4%
í Helsinki, 10,8% í Ósló og 12,1% í
Vilnius. „Okkar þróun er ánægju-
leg. Unglingar og foreldrar eru
greinilega farnir að eyða meiri tími
saman. Foreldrar hafa nánari gætur
á því hvar unglingarnir þeirra eru
og með hverjum. Neyslan hefur
dregist saman svo um munar. Í
samstarfsborgum okkar í Evrópu
ætlum við nú að leitast við að ná
sama árangri þar og við höfum náð
hér á undanförnum árum,“ sagði
Inga Dóra.
Meiri hlýja frá foreldrum
Inga Dóra sagði að á næstu mán-
uðum yrði rýnt í stöðu þeirra þátta
sem tengdust vímuefnaneyslu ung-
linganna. Sérstaklega yrði hugað að
stöðu jafningjahóps og foreldra.
Könnunin leiðir í ljós „að íslenskir
unglingar eiga auðveldara með að fá
hlýju og stuðning frá foreldrum sín-
um en unglingar í samstarfsborg-
unum“, sagði Inga Dóra.
Róbert Wessman, forstjóri Acta-
vis, sem er helsti bakhjarl forvarn-
arverkefnanna, sagði að það væri
áhugavert hversu miklum árangri
væri hægt að ná með einföldum að-
gerðum eins og að verja tíma með
börnunum sínum, hvetja þau til að
stunda íþróttir og reyna að fresta
því að unglingar byrjuðu að drekka
áfengi. Ljóst væri að glíman við
fíkniefni væri ekki eins dags verk.
Forvarnardagurinn hefði heppnast
mjög vel í fyrra og því hefði verið
ákveðið að Actavis myndi áfram
styðja slíkan dag á þessu ári.
Gaman að elda saman
Álfgeir Logi Kristjánsson hjá HR
rakti nokkrar af helstu niðurstöðum
spurninga sem lagðar voru fyrir
unglinga í 9. bekk á Forvarnardag-
inn í fyrra. Hann nefndi dæmi um
spurningu til ungmennanna um
hvað gæti hjálpað þeim að fresta
áfengisneyslu. Voru svörin meðal
annars á þá leið að áfengisneysla
væri „ein af mörgum leiðum til að
lenda í slysi“.
Álfgeir benti meðal annars á að í
könnuninni hefði komið í ljós að
flestir unglinganna hafi áhuga á að
eyða meiri tíma með fjölskyldu
sinni. Hefðbundnar samverustundir,
eins og að borða, elda mat, fara í bíl-
túr, horfa á sjónvarp og tala saman,
séu algengustu dæmin sem ungling-
arnir nefna um góðar sam-
verustundir. „Spurningin er því
hvernig við sem erum fullorðin get-
um stuðlað að fjölgun þessara
stunda,“ sagði Álfgeir Logi.
Jórunn Frímannsdóttir, formaður
velferðarráðs Reykjavíkurborgar,
sagði forvarnarstarf mikilvægt og
benti á að senn myndi annar hluti
hins evrópska verkefnis hefjast. Í
október í haust yrði haldin ráð-
stefna í Reykjavík en þar myndu
fulltrúar samstarfsborganna hittast
og læra hverjir af öðrum.
Minni fíkniefnaneysla ung-
linga í Reykjavík en í Evrópu
Samvera með fjöl-
skyldu, íþróttir og það
að fresta því sem lengst
að unglingar hefji
áfengisdrykkju eru
mikilvægar forvarnir,
að því er fram kom á
fundi um forvarnarmál.
!"
#$$%%
!" # $$
* +
*
, -
%#&#'&(
$
%'
%!
&'
&!
'
!
"'
"!
!
./0 ./# .// .!! .!" .! .!& .!% .!' .!$ .!0
1
Í HNOTSKURN
» „Ekki endalausar ræður,heldur venjuleg samtöl,“
segir unglingur um samskipti
við foreldra í forvarnarkönn-
uninni.
»Kaupa minni íbúð, þáþurfa foreldrar ekki að
vinna eins mikið og allir eru í
meira návígi og meira sam-
an,“ segir annar unglingur.
»Vinna minna og tala meiravið börnin sín,“ segir enn
annar.
Morgunblaðið/RAX
Forvarnir Ólafur Ragnar sagði gott
forvarnarstarf unnið á Íslandi.
Dreg
i› í
áskr
iftar
leikn
um
á lau
gard
agin
n
3 HÆSTIRÉTTUR hefur dæmtframkvæmdastjóra tveggja gjald-þrota verktakafyrirtækja til aðgreiða 83,5 milljónir króna í sekt eðasæta ella 12 mánaða fangelsi fyrirbrot gegn lögum um virðisaukaskattog lögum um staðgreiðslu opinberragjalda.
Fyrirtækin sem um ræðir heita
Kraftvaki og Kvarða-Afl og sam-
kvæmt hlutafélagaskrá var tilgang-
ur þeirra verktakastarfsemi auk
annars. Kraftvaki tók m.a. að sér
viðgerðir á Þjóðminjasafninu á sín-
um tíma en að sögn framkvæmda-
stjórans varð það verkefni til þess að
félagið fór í þrot. Fyrir dómi sagði
maðurinn að ástæða þess að fyrir-
tækið hefði ekki staðið skil á um-
ræddum gjöldum væri sú að Kraft-
vaki hefði orðið fyrir „fjárhagslegu
hruni“ á örskömmum tíma. Fyrir-
tækið hefði starfað að verktakaiðn-
aði í þrjú ár þegar það hefði tekið að
sér stórt verkefni fyrir Þjóðminja-
safnið en það verkefni hefði orðið
fyrirtækinu að falli. Gjaldþrot fyr-
irtækisins mætti einkum rekja til
verksamnings sem lá til grundvallar
og til slælegra vinnubragða Fram-
kvæmdasýslu ríkisins. Kvaðst hann
hafa haldið verkinu áfram, þrátt fyr-
ir slæma fjárhagsstöðu og hann
hefði í raun náð að takmarka fjár-
hagslegt tjón ríkissjóðs af málinu.
Eftir á að hyggja hefði hann séð að
hyggilegast hefði verið að rifta verk-
samningnum en þá hefði það leitt til
þess að tjónið hefði orðið margfalt
meira.
Aðspurður sagði maðurinn að
hann hefði ekki gert neinar ráðstaf-
anir til að fá leiðréttingu á því mis-
rétti sem hann taldi sig hafa orðið
fyrir og kvaðst hann ekki hafa fjár-
hagslegt bolmagn til að fylgja slíkri
kröfugerð eftir.
Maðurinn gerði ekki athugasemd
við þá heildarfjárhæð sem hann var
ákærður fyrir að standa ekki skil á,
rúmlega 46,5 milljónir króna, en
hann sagði að allt handbært fé fyr-
irtækjanna hefði á þessum tíma farið
í að halda rekstri þeirra gangandi.
Fram kom að hann greiddi um fjórar
milljónir króna inn á skuld sína við
skattayfirvöld áður en dómur féll í
málinu í héraði.
Varðandi Kvarða-Afl sagði maður-
inn að það fyrirtæki hefði verið
stofnað til að taka yfir raflagnaverk-
efni sem Kraftvaki hefði ekki haft
bolmagn til að ljúka.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Hrafn Bragason, Árni Kol-
beinsson og Ólafur Börkur Þorvalds-
son. Verjandi framkvæmdastjórans
fyrrverandi var Björn Ólafur Hall-
grímsson hrl. en Björn Þorvaldsson,
settur saksóknari, sótti málið.
Greiði 83,5
milljónir í sekt
LANDSVIRKJUN hefur formlega
tekið tilboði samstarfsaðilanna
VST hf., VGK-Hönnunar hf., og
Rafteikningar hf. í ráðgjafarþjón-
ustu undirbúnings Hvammsvirkj-
unar, Holtavirkjunar og Urriða-
fossvirkjunar í neðri hluta Þjórsár
en þessir aðilar áttu hagstæðasta
tilboðið sem barst í útboðið. Samn-
ingsfjárhæð vegna verksins sam-
kvæmt tilboði lægstbjóðenda er
rúmar 1.370 m.kr.
Verkið felst m.a. í svokallaðri út-
boðshönnun mannvirkja og gerð út-
boðsgagna ásamt nauðsynlegri
undirbúnings- og rannsóknarvinnu
fyrir hönnun mannvirkja. Þá er
annast um gerð yfirlitsáætlunar um
framkvæmdir og kostnað. Ráðgjaf-
inn annast lokahönnun virkjananna
og gerð vinnuteikninga ásamt til-
heyrandi aðstoð á byggingartíma.
Landsvirkjun Frá Árnesi þar sem
Holtavirkjun er fyrirhuguð.
1.370 milljónir
fyrir ráðgjöf