Morgunblaðið - 26.05.2007, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.05.2007, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VALGERÐUR Sverrisdóttir, þing- maður Framsóknarflokksins, lýsti því yfir í gær að hún hygðist bjóða sig fram til embættis varaformanns flokksins á miðstjórnarfundi sem fram fer í næsta mánuði. „Framsóknarflokkurinn hefur frá upphafi verið frjálslyndur umbóta- flokkur eins og stefnuyfirlýsingar í gegnum tíðina bera með sér. En það er mjög athyglisvert að sú ríkis- stjórn sem tók við völdum í gær hafi þurft að sækja í smiðju Framsókn- arflokksins til að skilgreina sig og kalla sig frjálslynda umbótastjórn,“ sagði Valgerður og benti á að það væri mikill munur á frjálslyndi og frjálshyggju. Hún lagði sérstaka áherslu á að stefna Framsóknarflokksins væri hvorki til hægri né vinstri heldur beint áfram. Sú staða sem væri kom- in upp í íslenskum stjórnmálum skapaði ný tækifæri fyrir Framsókn- arflokkinn. „Þegar þrír flokkar á vinstri vængnum sameinuðust í Samfylkingu á sínum tíma var það megintilgangurinn að vera mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn. Þá var talað um tvo póla í íslenskum stjórnmál- um. En með samstarfi Sjálfstæðis- flokks og Samfylkingar heyrir þetta sögunni til. Segja má að Samfylking- in hafi gefist upp á að keppa við Sjálfstæðisflokkinn.“ Fram til varaformanns Morgunblaðið/G. Rúnar Framboð Valgerður Sverrisdóttir tilkynnti á blaðamannafundi í gær að hún sæktist eftir að verða varaformaður Framsóknarflokksins. Ný tækifæri fyrir Framsóknarflokk- inn í stöðunni H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 8 1 3 1 SVONA NOTAR ÞÚ GLITNISPUNKTANA • Útborgun í peningum • Ferðaávísun MasterCard • Vildarpunktar Icelandair • Innborgun á sparnað • Góðgerðamál og margt fleira ÞRETTÁN námsmenn tóku á fimmtudag við námsstyrkjum frá Landsbankanum. Yfir 350 umsókn- ir bárust um styrkina, sem eru á bilinu 150-350 þúsund krónur. Styrkirnir eru veittir í fjórum flokkum; til framhaldsskóla- og iðnnema, til háskólanema, til há- skólanema á framhaldsstigi og til listnema. Þetta er í átjánda sinn sem Landsbankinn veitir styrki af þessu tagi og hafa 150 námsmenn hlotið ríflega 29 milljónir króna frá upp- hafi. Í ár var tekin ákvörðun um að hækka styrkina til listnáms frá 300 þúsund upp í 350 þúsund hvern. Í heildina nema styrkirnir í ár 3.650.000 krónum. Dómnefndin var skipuð fólki í at- vinnu- og listalífi. Formaður dóm- nefndar var Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík. Auk hennar sátu í dómnefnd Halldór J. Krist- jánsson, bankastjóri Landsbankans, Atli Atlason, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbankans, Kristín Rafnar, forstöðumaður hjá Kauphöll Íslands, Runólfur Smári Steinþórsson, forstöðumaður MBA- námsins í HÍ, og Þorvaldur Þor- steinsson, rithöfundur og myndlist- armaður. „Dómnefndin leitaðist við að velja framúrskarandi námsmenn með mikinn metnað og framtíðarsýn sem nefndin taldi líklega til að auðga ís- lenskt samfélag í framtíðinni. Einnig var litið til annarra atriða við valið svo sem afreka í íþróttum, greinaskrifa, sjálfboðastarfa og þátttöku í fé- lagsmálum,“ segir í frétt frá bankan Eftirtaldir hlutu styrk: Styrkir til framhaldsskóla- og iðnnáms – 150.000 kr. hver Ólafur Páll Geirsson, Kvennaskól- anum í Reykjavík. Ragnar Harðarson, Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Svandís Rós Þuríðardóttir, Mennta- skólanum í Kópavogi. Styrkir til háskólanáms – 300.000 kr. hver Magnús Sigurðsson, stundar nám í bókmenntafræði við Háskóla Ís- lands. Hrafn Þorri Þórisson, stundar nám í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. Hildur Æsa Oddsdóttir, stundar nám í vélaverkfræði og stærðfræði við Háskóla Íslands. Styrkir til háskólanáms á fram- haldsstigi – 350.000 kr. hver Ragnheiður Hulda Proppé, dokt- orsnemi í mannfræði við Univers- ity of Cambridge, Bretlandi. Martin Ingi Sigurðsson, stundar læknanám við Háskóla Íslands. Kristín Björnsdóttir, doktorsnemi í matvælafræði við North Carolina State. Hulda Sigríður Hreggviðsdóttir, stundar nám í ónæmisfræðum við læknadeild Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Styrkir til listnáms – 350.000 kr. hver Óskar Örn Arnórsson er í arkitekt- úr við Cooper Union í New York. Sæunn Þorsteinsdóttir er meist- aranemi í sellóleik við Juilliard í New York. Katrín Gunnarsdóttir er í dans- og kóreografíunámi í Hollandi. Ljósmynd/Árni Torfason Verðlaunaveiting Styrkþegar ásamt Björgólfi Guðmundssyni og þremur úr dómnefnd. Dómnefndarfólkið er lengst til vinstri, Runólfur Smári Steinþórsson, forstöðumaður MBA-náms í HÍ, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, sem var formaður dómnefndar, og Atli Atlason, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbankans. Landsbankinn styrkir þrettán framúrskarandi námsmenn LOKIÐ er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 2007 og þar með þrítugustu úthlutun úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til stofn- ana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hef- ur tekið í arf. Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verk- efna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau. Í stjórn sjóðsins sitja nú: Margrét Bóasdóttir, söngkona, formaður, skipuð af forsætisráðherra. Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, varaformaður, tilnefndur af Seðlabanka Íslands. Jónína Michaelsdóttir, rit- höfundur, Margrét K. Sverrisdóttir, varaborg- arfulltrúi og Björn Teitsson, magister, sem kjör- in eru af Alþingi. Ritari sjóðsstjórnar er Sigfús Gauti Þórðar- son, lögfræðingur. Alls bárust 150 umsóknir um styrki að fjárhæð um 168,3 millj. kr. Úthlutað var að þessu sinni 46 styrkjum að fjárhæð samtals kr. 20.600.000 og hlutu eftirtaldir aðilar hæstu styrkina, kr. 1.000.000 hver: 1. Sjómannasafnið á Hellissandi – vegna báta- húss og viðgerðar áttæringa. 2. Saga forlag ehf. – útgáfa Íslendingasagna á Norðurlandamálum. 3. Árnastofnun – gagnagrunnur um þjóðlög Bjarna Þorsteinssonar. 4. Námsefnisvefurinn Katla sf. – námsefni til að auka orðaforða ungra innflytjenda. 5. Háskólinn á Hólum – áframhald fornleifa- rannsókna við Kolkuós. Nánari upplýsingar um Þjóðhátíðarsjóð má m.a. sjá á vefslóðinni http://www.sedlabanki.is. Styrkir veittir úr Þjóðhátíðarsjóði Morgunblaðið/Sverrir Athöfn Styrkþegar og forsvarsmenn Þjóðhátíðarsjóðs. Úthlutað var að þessu sinni 46 styrkjum. KONA var flutt á sjúkrahús eftir að hún missti stjórn á bifreið sinni í Óshlíð í gær. Beita þurfti klippum til að ná konunni úr bílnum, sem er talinn ónýtur. Ekki er að sögn lög- reglu vitað nákvæmlega um meiðsl konunnar, sem var ein í bílnum, en þau voru ekki talin alvarleg. Bíllinn valt upp fyrir veg, sem verður að teljast lán í óláni enda hlíðin snar- brött fyrir neðan veginn. Á sjúkrahús eftir bílveltu NOKKUÐ var um slys á fólki á höf- uðborgarsvæðinu í fyrradag, að sögn lögreglu, en óhöppin voru flest minniháttar. Meðal þess sem gerðist var að kona á níræðisaldri datt í vesturhluta borgarinnar og var hún flutt undir læknishendur. Sama henti fertuga konu á svipuðum slóð- um en hún var að ganga niður tröpp- ur þegar hún datt. Konan hélt á barni sem slapp við meiðsli. Nokkuð um slys á fólki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.