Morgunblaðið - 26.05.2007, Side 22

Morgunblaðið - 26.05.2007, Side 22
22 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI LEIKKLÚBBURINN Krafla í Hrís- ey fagnar um þessar mundir 30 ára starfsafmæli og í tilefni af því verð- ur í kvöld frumsýnt verk sem fé- lagar klúbbsins hafa samið sjálfir. Verkið ber heitið Hernám í Hrísey og fjallar, eins og titillinn ber með sér, um hernámsárin í Hrísey. Leik- ritið er ekki sannsögulegt á nokk- urn hátt en gæti þó endurspeglað á einhvern hátt hvernig lífið var á hernámsárunum. Verkið er því uppspuni frá upphafi til enda, að sögn aðstandenda sýningarinnar, en nöfn á stöðum og staðhættir eru hafðir nokkuð réttir. Frumsýning er í kvöld kl. 20.00 í Sæborg.  Leikhúsið á Möðruvöllum í Hörgárdal verður tekið í notkun í dag kl. 14.00 eftir glæsilega end- urbyggingu. Kórsöngur, ávörp og upplestur verður til skemmtunar og léttar veitingar á boðstólum. Leikhúsið var byggt árið 1881 og þjónaði sem leikfimishús Möðru- vallaskóla. Þar verður fund- araðstaða og safnaðarheimili kirkj- unnar og samkomustaður fyrir menningartengda viðburði, fræðslu og fyrirlestra. Hernámið í Hrísey ÞAÐ veldur formanni íþróttaráðs Akureyrar miklum vonbrigðum að Íþróttafélagið Þór skuli hafa hafnað tillögu bæjarins um uppbyggingu á svæði félagsins í Glerárhverfi. Hann segir málið aftur á byrjunarreit. „Þessi niðurstaða kemur mér á óvart og veldur mér vonbrigðum. Við erum á byrjunarreit aftur en ég lít svo á að boltinn sé hjá Þór. Við þurf- um bara að gefa okkur tíma til þess að setjast yfir þetta, bæjaryfirvöld, en ég er mjög svartsýnn á að fram- hald geti orðið á þessu,“ segir Ólafur Jónsson, formaður ÍRA. Völlurinn í Naustahverfi? „Við [í íþróttaráði] vorum svo sem farin að velta fyrir okkur til hvers við myndum grípa ef svona færi en ég átti samt sannarlega ekki von á þess- ari niðurstöðu eftir alla fundina og alla þá vinnu sem lögð hefur verið í málið,“ sagði Ólafur. Spurður nánar sagði formaður ÍRA: „Það er engin launung á því að við höfum velt fyrir okkur að koma frjálsíþróttavellinum upp á framtíð- arsvæði KA í Naustahverfi. Sá kost- ur er reyndar miklu lakari því [Þórs- svæðið] er í hjarta bæjarins og þar eru samlegðaráhrif meiri.“ Forráðamenn Þórs nefna tvær meginástæður fyrir því að félagið hafnar tillögum bæjarins. Annars vegar þá að áhorfendastúka hefur verið færð, frá fyrri hugmyndum, vestur fyrir fyrirhugaðan aðalknatt- spyrnuvöll, og hins vegar að bærinn er ekki reiðubúinn að greiða félaginu fébætur fyrir það land sem fer undir frjálsíþróttavöll. Landsmót UMFÍ verður á Akur- eyri 2009, þess vegna þarf að koma upp aðstöðu fyrir frjálsíþróttir, og viðræður um að hún yrði á Þórs- svæðinu hafa staðið lengi á milli fé- lagsins og bæjaryfirvalda. Ólafur segir það hafa komið fram strax í upphafi viðræðna við Þór að bæjarfélagið sé ekki til umræðu um að greiða bætur fyrir svæðið sem færi undir frjálsíþróttavöllinn. Aftur á móti hefði alla tíð legið ljóst fyrir að bærinn myndi láta Þór í té landsvæði í staðinn; félaginu var boðið svæði á milli verslunarmiðstöðvarinnar Sunnuhlíðar og félagsheimilisins Hamars. Þá lagði hann áherslu á að skv. tillögu bæjarins yrðu tveir gervigrasvellir á svæðinu frá og með vorinu 2009 því ekki mætti gleyma Boganum, og Þórsarar hefðu greiðari aðgang að húsinu þá en nú eftir að gervigrasvöllur yrði líka kominn í gagnið á KA-svæðinu. Ólafur segir að í tillögum bæjarins felist einnig að endurbæta núverandi keppnisvöll Þórs, þar sem gert er ráð fyrir frjálsíþróttaaðstöðunni, og að Þór og Ungmennafélag Akureyr- ar muni hafa samráð um nýtingu vallarins, en frjálsíþróttir eru stund- aðar á vegum UFA. Formaður ÍRA svart- sýnn á framhaldið Ekki hægt Hugmyndin sem hugnast formanni Þórs best; frjálsíþróttavöll- urinn á austurhluta svæðisins, knattspyrnuvöllur vestan megin og áhorf- endastúka í miðjunni. Illmögulegt að mati arkitekta, segir formaður ÍRA. Í HNOTSKURN »Ólafur Jónsson segir arki-tekta telja illmögulegt að koma áhorfendastúku fyrir á milli vallanna á Þórssvæðinu, nema frjálsíþróttavöllurinn verði á vesturhluta. NORÐURLANDSDEILD Heila- heilla var stofnuð formlega á fjölsótt- um fundi á Akureyri á mánudaginn. Heilaheill eru samtök um sjúkdóm- inn heilaslag (heilablóðfall) og ein- beitir sér einkum að velferðar- og hagsmunamálum þeirra sem hafa orðið fyrir heilaslagi og skaða af völdum þess. Heilaheill leggja einnig áherslu á að aðstoða aðstandendur einstaklinga sem orðið hafa fyrir heilaslagi. Fundinn sótti m.a. fólk sem orðið hefur fyrir heilaslagi, aðstandendur og hjúkrunarfólk. Ingvar Þóroddson læknir, einn þeirra sem skipulögðu stofnun deild- arinnar, ræddi almennt um heilaslag og svaraði fyrirspurnum. Þórir Steingrímsson, formaður Heila- heilla, og Ingólfur Margeirsson, fræðslufulltrúi samtakanna, sátu báðir fundinn og ávörpuðu fundar- gesti. Norðurlandsdeild Heilaheilla er fyrsta skref samtakanna í þá veru að efla fræðslu um heilablóðfall og vinna að forvörnum að því lútandi um allt land og efla tengsl milli sjúk- linga, aðstandenda og fagfólks varð- andi heilaslag sem er ört vaxandi sjúkdómur. Um 700 einstaklingar á Íslandi fá heilaslag árlega eða um tveir á dag. Samtökin starfa á breiðum grund- velli, m.a. með félagsstarfsemi og veita fræðslu og upplýsingu um heilaslag. Öllum sem vilja fræðast meira um samtökin eða heilaslag er bent á skrifstofu samtakanna í Nóatúni 12 í Reykjavík. Síminn þar er 561 2200. Farsími er 860 5585. Ný deild Heilaheilla stofnuð ÁRBORGARSVÆÐIÐ Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | „Það er auðvitað alltaf skemmtilegast að geta gert mönnum til hæfis og að sjá þá fara ánægða út úr búðinni,“ sagði Ágúst R. Morthens, veiðimaður og eigandi Veiðisports á Selfossi, sem hann hefur starfrækt síðan 2. maí 1987. Verslunin er til húsa við Eyraveg og er lax- og silungsveiðimönnum að góðu kunn en þeir eru margir sem ekki fara í veiðitúr án þess að koma við hjá Gústa. Margir hafa þá trú að heimsókn í Veiðisport fyrir veiðiferð geri veiðivonina enn meiri enda er af mörgu að taka í versluninni sem hefur nú verið stækkuð og svo er kaupmaðurinn ótæm- andi visku- og sagnabrunnur þegar veiði, veiði- tól og veiðiaðstæður eru annars vegar. Veiðimenn fullir bjartsýni „Já, ég hef eignast marga góða kunningja í gegnum tíðina og smám saman hefur reynslan safnast saman og margir láta mig vita af því hvernig tilsögnin virkaði í það og það skiptið en það er mjög gaman og kryddar tilveruna og svo fylgir oft veiðisaga með. Það er mikið veitt í Árnessýslu og austur um. Þetta er vaxandi sport og menn eru stöðugt á ferðinni til að huga að möguleikum í veiði. Ég er hérna alveg fram til klukkan sjö á kvöldin og fer ekki heim fyrr en sá síðasti hefur yfirgefið staðinn. Núna eru þær aðstæður uppi að netin eru að hverfa úr Ölfusá og þá vaknar meiri von um veiði þegar þau hundruð fiska sem farið hafa í netin koma á stangaveiðisvæðin. Ég finn það að veiðimenn eru strax fullir bjartsýni um að meiri fiskur verði á veiðisvæðunum á vatnasvæði Ölf- usár og Hvítár. Það er auðvitað alveg klárt að stangaveiði getur orðið stórútgerð hér á Suður- landi með því að menn hugsi vel um árnar og séu ekki of kröfuharðir um að hirða allan fisk sem bítur á. Svo er sjóstöngin vaxandi þáttur sem maður reynir líka að sinna enda eru sjó- stangveiðimót um allt sem menn eru að sækja. „Hann var gríðarlegur“ Það hefur verið vaxandi sala í veiðivörum, menn vilja koma hér og kaupa vörur og fá ör- litla tilsögn í leiðinni, menn vilja vita hvernig þetta virkar. Svo fá menn hvatningu og góðar óskir og auðvitað er skipst á góðum veiðisögum sem alltaf eru til. Ég hélt einu sinni að ég hefði fest túpuna í botni og reyndi að losa hana með lagni en þá allt í einu lagði stórfiskur af stað með línuna út í næsta hyl þar sem hann velti sér hring eftir hring og náði að losa úr sér en ég gerði þá vitleysu að halda ekki fast í hann eins og maður myndi gera í dag. En ég fæ örugglega aldrei svona stóran fisk á aftur, hann var gríð- arlegur,“ sagði Ágúst R. Morthens, veiðimaður og eigandi Veiðisports á Selfossi, og leggur áherslu á orðin en hann hefur staðið veiðivakt- ina í versluninni í 20 ár og lætur engan bilbug á sér finna. Ágúst R. Morthens í Veiðisporti á Selfossi hefur þjónað veiðimönnum í 20 ár Stangaveiði getur orðið stórútgerð á Suðurlandi Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Álitlegt agn Ágúst Morthens með fluguboxið og tvær flugur, Skrögg og hinn litríka Hróa hött. Selfoss | Bókamarkaður er haldinn um þessar mundir í Listagjánni á Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi. Markaður- inn er opinn á afgreiðslutíma bókasafnsins til laugardagsins 2. júní. Á markaðinum eru til sölu á sanngjörnu verði skáldsögur, ævisögur, fræðibækur, barnabækur, kiljur, ástarsögur, spennu- sögur, gamlar bækur og nýjar. Bækur á markaði Þorlákshöfn | Félagar úr unglingadeild- inni Strumpi sem er deild innan björg- unarsveitarinnar Mannbjargar í Þorláks- höfn fór í göngu á dögunum. Tilgangurinn var að safna áheitum vegna námskeiða fyrir upprennandi björgunarsveitarmenn og konur og er haldið á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Gangan hófst við björgunarskýlið í Þor- lákshöfn kl. 9.20 að morgni og lauk við Rauðavatn klukkan 19.15. Gangan tók 9 tíma og 40 mínútur. Í göngunni sást vel hvað Þorlákshafn- arbúar eiga öflugan hóp ungmenna sem tilbúinn var að leggja þetta á sig til að komast á námskeið fyrir unglingadeildir, segir í fréttatilkynningu. Áheitasöfnun er enn í gangi. Gangan til Reykjavíkur tók tíu klukkustundir Áhugi Ungt björgunarsveitarfólk gekk í heilan dag til að afla fjár fyrir námskeiði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.