Morgunblaðið - 26.05.2007, Qupperneq 24
Ég er heillaður af hönnun áþessu tímabili tuttugustualdarinnar, öðrum ogþriðja áratugnum. Hún
er svo gullfalleg. Það sem einkenndi
þetta tímabil var fágun og glæsi-
leiki, hjá þeim sem áttu peninga,
auðvitað. Nokkuð sem mér finnst
aldrei hafa komið aftur. En svo kom
kreppan og lagði allt í rúst.“
Það var gamall draumur Þrastar
að kaupa Lincolninn, draumur sem
hann gerði að veruleika árið 2003.
„Ég vann aðeins á söfnum þegar ég
var yngri, m.a. Sjóminjasafninu í
Hafnarfirði og Samgöngutækjasafni
sem sett var upp á Egilsstöðum
1993. Þar komst ég í kynni við tíma-
bilið og erlenda ferðamenn sem
margir höfðu sögur að segja frá sín-
um löndum og eins hef ég lesið mik-
ið um það.
Ég hef lengi sankað að mér hlut-
um frá þessu tímabili, einkum fyrir
heimilið, bæði hér heima og erlend-
is. Ég flutti inn fornbíl árið 1989 og
það dró ekki úr áhuga mínum á
þeim.“
Þegar Þröstur hóf svo að vafra
um netheima um aldamótin síðustu
varð Lincoln, árgerð 1930, fljótlega
á vegi hans. Lincoln var bíllinn sem
hinir ríku, frægu og valdamiklu í
Bandaríkjunum á þessum tíma, eins
og uppfinningamaðurinn Thomas
Edison og forseti Bandaríkjanna,
Herbert Hoover, kusu.
„Ég sá þennan bíl árið 2000 á
e-bay, langaði að kaupa hann en
gerði það ekki. Árið 2003 sá ég að
hann var aftur til sölu og ákvað ég
þá að láta slag standa.“
– Hvers vegna tókstu þá ákvörð-
un?
„Ég var búinn að sjá svo eftir því
að hafa ekki keypt hann árið 2000,“
segir Þröstur og hlær. ,,Bílinn er
stórglæsilegur og alveg ökuhæfur.
Það er fín tilfinning að keyra hann.“
– Og ertu alltaf svona fínn í
tauinu við stýrið?
„Ja, kannski ekki alltaf en oft.
Mér finnst þessi klæðnaður vel við
hæfi. Þegar ég var á ferð í Edin-
borg rambaði ég þar inn í herra-
fataverslunina Slater. Þeir áttu
jakkaföt frá öllum tímabilum og
vissu nákvæmlega hvað ég var að
meina þegar ég sagði mig vanta föt
í stíl við bílinn. Ég er auðvitað í
„two-tone“-skóm við, þessum svart/
hvítu og svo setur hatturinn punkt-
inn yfir i-ið.“
Gamaldags matur
er næringarríkur
En Þröstur hefur áhuga á fleiru
góðu úr fortíðinni en góðri hönnun,
nefnilega góðum og næringarríkum
mat fyrir börnin. Hann er mat-
sveinn að mennt og sér um mötu-
neyti grunnskólabarna í Hagaskóla
og var ráðgefandi um þau mál í
nokkrum skólum Reykjavíkur.
„Jú, það má segja að ég leiti til
fortíðar í þeim efnum og sé dálítið
þjóðlegur en það er einfaldlega
vegna þess að sá matur er eldaður
frá grunni og er næringarríkur.
Kjöt í karríi, rófur og gulrætur,
hangikjöt og svið, svo ég tali nú
ekki um nætursaltaða ýsu er hollt
og gott fyrir börnin. Nútímabörn fá
oft ekki neitt almennilegt að borða,
það er bara staðreynd, og stundum
er það einfaldlega ástæða fyrir
skorti á einbeitingu og hegðunar-
erfiðleikum. Ég legg því áherslu á
heitan hádegismat í mötuneytinu.
Sumir telja að börnin fitni af því að
borða hádegismat en það er af og
frá. Það fitnar enginn af því að
borða hádegismat, börn og full-
orðnir fitna oftast af hreyfingar-
leysi. Börnunum finnst maturinn
góður, sum þurftu tíma til að venj-
ast honum en ég held að flest séu
nú ánægð,“ segir matsveinninn sem
talar ekki bara heldur framkvæmir
og bauð m.a. borgarstjóranum í
Reykjavík, Vilhjálmi Vilhjálmssyni,
í svið í Hagaskóla og að kynna hon-
um þessi mál.
„Ástríðan og aðdráttaraflið snýst
um það sem vel er gert í upphafi og
endist vel. Lincolninn er vel byggð-
ur bíll, minn hefur enst í 77 ár og
góðir matarsiðir í æsku auka lík-
urnar á betri heilsu.“
Morgunblaðið/Ómar
Morgunblaðið/Eyþór
Glæsileiki Þröstur er stoltur eigandi Lincoln 1930 og klæðir sig oft upp þegar han keyrir eðalvagninn.
Gamlir bílar og góð-
ir matarsiðir endast
Hann hefur engan áhuga á bílum nema sínum,
Lincoln, árgerð 1930. Þröstur Harðarson, kokkur
í Hagaskóla, upplýsti Unni H. Jóhannsdóttur um
tvennt, hvers vegna hann dáir bílinn og vill gefa
börnum almennilegan mat eins og tíðkaðist ekki
fyrir svo mörgum árum.
Tónlistarkokkur Þröstur heillar börnin í Hagaskóla ekki aðeins með
matnum heldur grípur hann stundum í smágítar í hádeginu.
Ferðaþjónustan er mikilvægur
hluti atvinnulífs í Stykkishólm-
inum og nú eru sumarferða-
langarnir farnir að sjást. » 27
bæjarlífið
Þau tóku fimmtíu ára gamla
blokkaríbúð og færðu hana í nú-
tímabúning þar sem naum-
hyggjan fær að njóta sín. » 26
lifun
daglegtlíf
|laugardagur|26. 5. 2007| mbl.is