Morgunblaðið - 26.05.2007, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 45
Krossgáta
Lárétt | 1 hættulegt,
8 gamansemi, 9 harmar,
10 blóm, 11 miður,
13 ójafnan, 15 málms,
18 raka, 21 álít, 22 seint,
23 torveld, 24 ósléttur.
Lóðrétt | 2 kappsemi,
3 húsdýr, 4 girndar, 5 að-
sjált, 6 hræðslu, 7 fall,
12 reyfi, 14 sefa, 15 að-
komumann, 16 froða,
17 verk, 18 endaði,
19 hamingju, 20 tóma.
Lausn síðustu krossgátu
.
Lárétt: 1 fífil, 4 bolur, 7 liðnu, 8 reglu, 9 góa, 11 saug,
13 assa, 14 áfátt, 15 gust, 17 allt, 20 átt, 22 titts, 23 úlfar,
24 aurar, 25 iðrar.
Lóðrétt: 1 fólks, 2 fiðlu, 3 laug, 4 bara, 5 logns, 6 rausa,
10 ókátt, 12 gát, 13 ata, 15 gutla, 16 sútar, 18 lifur, 19 tór-
ir, 20 ásar, 21 túli.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Vanalega hefðirðu stokkið á það
tilboð sem þú færð í dag, en stjörnunar
leggja til að þú skoðir málin áður en þú
slærð til. Engin breyting gæti verið fram-
för.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Já, þú ert svo sannarlega hagsýnn.
En það er önnur hlið á þér líka. Þú ert
draumóramaður – þú sérð hlutina í þínu
einkaljósi. Ræktaðu vinina sem sýna hug-
myndum þínum áhuga.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Af hverju viltu viðhalda núver-
andi lífsstíl þegar þú getur blómstrað? Ef
peningar eru ástæðan er það gott mál,
þeim má redda. Viltu skipta um vinnu?
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þetta er notalegur dagur. Raul-
aðu lítið lag og vertu tilbúinn að njóta ein-
mitt þess sem kemur. Að elta hamingjuna
fær hana til að hlaupa í burtu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Stundum hentar að vera frumlegur
og stundum að nýta sameiginlega þekk-
ingu – það seinna á við í dag. Prófaðu það
– öðrum finnst það fínt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Geðshræringar og peningar um-
vefja hvort annað núna. Dómgreindar-
leysi þitt gæti varað þann tíma sem það
tekur að gera vissa fjárfestingu. Kynntu
þér rétt þinn til að skila, og fáðu kvittun.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nú átt þú að halda kynningu. Trúðu
því að fólki líki þú, og vertu góður við
sjálfan þig. Að koma fram er bara listin að
fá hóp af fólki til að hætta að hósta.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú heldur aftur af þér með
að gera eitthvað. Kannski er undirmeðvit-
undin að tala. Eða þú heldur að einhver sé
að horfa. Hvort sem er, þá ertu betri mað-
ur á eftir.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú umgengst einhvern sem
þér þykir mjög vænt um en ert ekki sam-
mála. Það er ágætt. Því ef þið væruð sam-
mála um allt væri bara annar ykkar hugs-
uðurinn.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert ótrúlega úrræðagóður.
Fáðu innblástur innan frá í stað þess að
biðja um hjálp. Það myndi bara hægja á
þínum mikilfenglega skriðþunga.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Einhver verndar þig og talar
þínu máli bakvið tjöldin. Hér er verið að
borga tilbaka þegar þú stóðst svo fast
með því fólki sem þú hafðir trú á.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er engin óvild þess virði að
halda í hana. Þegar þú hefur gleymt af
hverju þú varst pirraður öðlastu yfirnátt-
úrulegt afl til að upplifa mögnuð augna-
blik.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. Rf3 Rf6 4.
Rc3 a6 5. e4 b5 6. e5 Rd5 7. a4
Bb7 8. e6 fxe6 9. Rg5 Rxc3 10.
bxc3 Dd6 11. Dg4 Rd7 12. Be2 Rf6
13. Dh3 g6 14. 0-0 h6 15. He1 Bg7
16. Rxe6 Kf7 17. Rxg7 Kxg7 18.
Ba3 Df4 19. Bf3 Rd5 20. Dd7 Df7
21. Bxd5 Dxd5 22. Hxe7+ Kf6 23.
Dg4 Df5 24. De2 Bd5 25. h4 g5
Staðan kom upp á bandaríska
meistaramótinu sem er nýlokið í
Stillwater í Oklahoma.
Stórmeistarinn Yury Shulman
(2.600) hafði hvítt gegn alþjóðlega
meistaranum Irina Krush (2.464).
26. g4! Df4 svartur hefði einnig
orðið mát eftir aðra leiki. 27.
De5+ Dxe5 28. dxe5+ Kg6 29. h5
mát.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik
Upplýsingaþvingun.
Norður
♠Á87
♥843
♦D10
♣ÁKD109
Vestur Austur
♠DG1054 ♠632
♥106 ♥G975
♦KG74 ♦8652
♣52 ♣63
Suður
♠K9
♥ÁKD2
♦Á93
♣G874
Suður spilar 6G.
Eins og legan er fæst tólfti slagurinn
auðveldlega með því að spila tígli að
D10, en það er ónákvæm spila-
mennska. Hvernig er best að spila með
spaðadrottningu út?
Rökrétt byrjun er að taka slaginn
heima, spila laufi einu sinni eða tvisvar
og svo tíguldrottningu úr borði. Þetta
er búið ef austur á kónginn, en hér fær
vestur slaginn og spilar háspaða. Þá er
næsta vers að prófa hjartað. Ekki fell-
ur það, en hins vegar er hagstætt að
fjórliturinn sé í austur, því nú rennur
upp tvöföld „upplýsingaþvingun“ –
vestur valdar spaðann og austur hjart-
að, svo báðir verða að fara niður á einn
tígul og þá er sama hvar gosinn er.
Sem sagt: laufin tekin í botn og tígul-
nían verður slagur í lokin.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Hvaða kauphöll er að eignast norræna hlutabréfa-markaðinn OMX og hvar er sú kauphöll?
2 Íslendingur lenti í vopnuðu ráni í Afríku. Í hvaðalandi?
3 Kona fékk óvenjulegan vinning í Happdræti DAS aukpeninga. Hvaða vinning?
4 Hvað heitir lénið þar sem m.a. má finna nauðgunar-leik?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Geir Haarde for-
sætisráðherra hef-
ur verið sæmdur
heiðursdokt-
orsnafnbót við
bandarískan há-
skóla. Hvaða há-
skóla? Svar: Há-
skólann í
Minnesota. 2. Sig-
rún Klara Hannesdóttir var kjörin nýr formaður Upplýsingar, félags
bókasafns- og upplýsingafræða. Við hvað starfaði hún áður?
Svar: Landsbókavörður. 3. Hver er framkvæmdastjóri Amnesty
International hér á landi? Svar: Jóhanna K. Eyjólfsdóttir. 4. Söng-
konan Guðrún J. Ólafsdóttir vann til verðlauna í alþjóðlegri ljóða-
söngkeppni. Hvar var hún haldin? Svar: Á Spáni.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
Ráðherrar frá 1999
Í FRÉTT um stjórnarskipti í
Morgunblaðinu í gær var rangleg
fullyrt að Guðni Ágústsson og Val-
gerður Sverrisdóttir hefðu verið
ráðherrar í 12 ár. Hið rétta er að þau
hafa verið ráðherrar í 8 ár eða frá
árinu 1999.
Kynnisferð til Japans
Í FRÉTTATILKYNNINGU frá
japanska sendiráðinu, um boð í
kynnisferð til Japans, sem birtist í
Morgunblaðinu 19. maí sl. var rang-
ur dagur tilgreindur fyrir skilafrest
umsókna. Umsóknarfrestur er til
þriðjudagsins 29. maí. Sendist til
Sendiráðs Japans, Laugavegi 182,
105 Reykjavík eða á japan@itn.is.
Umsókn á að fylgja ritgerð upp á 1
A4 síðu (1 línubil) sem fjallar um
efnið: Nefndu eitt af félagslegum
vandamálum Japans í dag og finndu
mögulega lausn á vandamálinu.
(Discribe one of the social problems
occuring in Japan and give some
solutions in your essay.) Auk þess,
ferilskrá og stutt bréf með upplýs-
ingum um þátttakanda.
LEIÐRÉTT
MND-FÉLAGIÐ hefur gefið
taugalækningadeild B-2 í Fossvogi
svokallaða hóstavél sem er tæki til
þess að hjálpa sjúklingum með
minnkaðan vöðvakraft til þess að
losa sig við slím úr öndunarvegum.
Hóstavélin var keypt fyrir fé
sem Lionsklúbburinn Freyr safn-
aði og gaf MND-félaginu. Afhend-
ingin fór fram á taugalækn-
ingadeildinni hinn 8. maí
síðastliðinn. Við þetta tækifæri af-
henti Guðjón Sigurðsson formaður
MND-félagsins félögum úr Lions-
klúbbnum Frey listaverk eftir
listakonuna Helgu Unnarsdóttur
sem þakklætisvott fyrir gjöfina.
Var það steinn með keramikblómi.
Guðjón hefur verið ötull í því að
safna fé til kaupa á hjálpartækjum
fyrir taugalækningadeildina ásamt
fleiri deildum. Hann afhenti deild-
inni til dæmis nýjan baðbekk í júní
á sl. ári. Guðjón verðskuldar því
þakklæti fyrir sitt ötula og óeigin-
gjarna starf við það að stuðla að
betri aðbúnaði sjúklinga á Land-
spítala.
Hóstavélin afhent Óskar Óskarsson og Guðjón Sigurðsson, formaður
MND-félagsins, ásamt listakonunni Helgu Unnarsdóttur og félögum úr
Lionsklúbbnum Frey við afhendingu gjafarinnar.
Fengu hóstavél að gjöf