Morgunblaðið - 26.05.2007, Page 56
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 146. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Mengun í Elliðaám
Örn Sigurðsson, settur sviðsstjóri
mengunarvarna hjá Reykjavík-
urborg, óttast að meint mengun í
Elliðaánum geti haft áhrif á dýralíf
þar. Örn taldi með öllu óviðunandi ef
sá grunur væri á rökum reistur að
mengunin kæmi úr öðru sveitarfé-
lagi, Reykjavíkurborg hefði lagt
mikla vinnu og fjármuni í að halda
Elliðaánum hreinum. »Forsíða
Reynt að leysa vandann
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra mun beita sér fyrir
lausn á vanda erlends starfsfólks
Kambs, en allstór hluti þess á ekki
rétt á atvinnuleysisbótum. » 2
Ahern í vænlegri stöðu
Flest bendir til að Bertie Ahern,
forsætisráðherra Írlands, verði
áfram við stjórnvölinn eftir kosning-
arnar á fimmtudag. Enda Kenny,
leiðtogi eins stjórnarandstöðu-
flokksins, neitaði að játa ósigur. »18
SKOÐANIR»
Staksteinar: Skynsamleg ráðning
Forystugreinar: Snöggir að hækka
verð en seinir að lækka | Tími til
kominn að skapa traust
UMRÆÐAN»
Svo ódýr er VG ekki
Friður við Þjórsá
Fréttir, eru þær fyrir börn?
Áfram á traustum grunni
Lesbók: Lísa í myndasögulandi |
Stafsetning og námsárangur
Börn: Munaðarlausir kettir |
Hjálpa ömmu sinni í sjoppunni
LESBÓK | BÖRN»
-
!
3 0
;
, "%,& ) 6 6)
6 6)
6 6
) 6 6
6 6 6 6)
*6 6)
6*)))
2!<#9 -
)6
6)
6*
6 6 6 6
6
*6*
6
=>??7@A
-BC@?A4;-DE4=
<747=7=>??7@A
=F4-<<@G47
4>@-<<@G47
-H4-<<@G47
-:A--4 @74<A
I7D74-<BIC4
-=@
C:@7
;C4;A-:0-AB7?7
Heitast 10 °C | Kaldast 1 °C
N 5–10 m/s. Dálítil
slydda eða él f. norðan
en skýjað með köflum
S til og sums staðar
skúrir síðdegis. »10
Róbert Douglas leit-
ar nú logandi ljósi að
meðframleiðendum
að sinni nýjustu
mynd sem á að heita
Baldur. » 46
KVIKMYNDIR»
Leitandi í
Cannes
DÓMUR»
Unknown fær aðeins
tvær stjörnur. » 50
Jónas Sen segir frá
því hvernig það kom
til að hann fór að
ferðast með Björk
Guðmundsdóttur
um allan heim. » 52
TÓNLIST»
Heimsreisa
með Björk
LEIKLIST»
Lög með Á móti sól
í nýju leikriti. » 46
TÓNLIST»
Tónleikar Motion Boys
voru undarlegir. » 46
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Leyndarmálið hélt fjölsk. …
2. Emma Thompson gerði Will …
3. Bloom hefur ekki efni …
4. „Það er ekki allt í lagi“
ALÞJÓÐLEGI
meistarinn Héð-
inn Steingríms-
son mætir skoska
stórmeistaranum
Jonathan Rowson
í 9. og síðustu
umferð Capo
d’Orso-mótsins á
Ítalíu í dag. Ljóst
er orðið að Héð-
inn hefur náð sín-
um fyrsta stórmeistaraáfanga burt-
séð frá því hvernig skákin gegn
Rowson fer. Héðinn er efstur á
mótinu með 7 vinninga.
Stórmeist-
araáfangi
Héðinn
Steingrímsson
GÍSLI Örn Garð-
arsson leikur um
þessar mundir í
umdeildri sýn-
ingu í Þjóðleik-
húsinu í Lund-
únum. Harðar
ritdeilur milli
þjóðleikhússtjór-
ans og leik-
húsgagnrýnenda
hafa staðið yfir
vegna sýningarinnar og að sögn
Gísla er leikverkið orðið það umtal-
aðasta í borginni. | 20
Í umdeildri
sýningu
Gísli Örn
Garðarsson
LÖGREGLAN hafði búið sig undir aukna löggæslu vegna vaxandi umferð-
ar nú um hvítasunnuna og var hún töluverð á Snæfellsnesi og í Húnavatns-
sýslum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgist með umferð á Vestur- og
Suðurlandsvegi. Leið fólks lá m.a. að Kirkjubæjarklaustri á torfæru-
hjólamót og einnig var straumur fólks á vorhátíð undir Snæfellsjökli og
sjókajakmót í Stykkishólmi að sögn lögreglunnar á Snæfellsnesi. Lög-
reglan á Hvolsvelli verður með aukið eftirlit vegna bifhjólamótsins og
einnig er torfærumót í Eyjafirði.
Morgunblaðið/Sverrir
Löggæsla aukin vegna umferðarinnar
Hvítasunnan ísköld en margir á faraldsfæti
NANNA Einarsdóttir, Borgnesingur og dúx frá Kvenna-
skólanum í Reykjavík, hafði ástæðu til að fagna í gær-
kvöldi að lokinni brautskráningu stúdenta við athöfn í
Hallgrímskirkju. Brautskráðir voru 144 stúdentar frá
Kvennaskólanum og varð Nanna efst á stúdentsprófi
með 9,58 í meðaleinkunn. Þá hlaut hún 10 í meðal-
einkunn fyrir alla áfanga á fjórða ári. Auk framhalds-
skólanámsins var Nanna í myndlistarnámi í Myndlist-
arskóla Reykjavíkur og fékk listnám sitt metið til
eininga í Kvennaskólanum. Foreldrar Nönnu eru Einar
Guðbjartur Pálsson og Guðrún Jónsdóttir.
Nú að loknu stúdentsprófi hyggst Nanna fara í verk-
fræðinám, annaðhvort við Háskóla Íslands eða Háskól-
ann í Reykjavík. Mestan áhuga hefur hún á bygginga- og
umhverfisverkfræði eins og sakir standa. „Ég hef verið
að skoða að minnsta kosti sex verkfræðigreinar sem mér
líst vel á,“ segir hún og bætir við að hún sé að þrengja
hringinn áður en hún kemst að endanlegri niðurstöðu.
Skipulögð og hefur ánægju af námi
Lykillinn að góðum árangri á stúdentsprófinu er fólg-
inn í skipulagningu og samviskusemi, að sögn Nönnu, en
hinu má ekki gleyma að hún hefur mikla ánægju af lær-
dómi. „Ég er svo heppin að hafa áttað mig á því hvað
mér þykir skemmtilegt að læra og finna út í hverju ég er
góð,“ bendir Nanna á. Í sumar mun hún starfa sem gjald-
keri hjá Kaupþingi í Borgarnesi en undanfarin sumur
hefur hún unnið á Hótel Hamri í Borgarnesi.
Við brautskráninguna í Hallgrímskirkju í gær hlaut
Nanna m.a. verðlaun Stærðfræðifélags Íslands fyrir
framúrskarandi árangur í stærðfræði sem er meðal
hennar eftirlætisnámsgreina og verðlaun fyrir 100%
skólasókn. Meðal annarra eftirlætisgreina hennar eru
eðlisfræði, efnafræði og þýska.
Með tíu í meðaleinkunn
og sinnir myndlistinni
Nanna Einarsdóttir dúx
frá Kvennaskólanum
stefnir á verkfræðinám
Dúx Nanna Einarsdóttir úr Kvennó. Bankastörf taka
við í sumar og síðan er stefnan tekin á verkfræðina.
♦♦♦