Morgunblaðið - 12.06.2007, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
ÚT er komin hjá Andríki kilj-
an Löstur er ekki glæpur eftir
Lysander Spooner í þýðingu
Tómasar Brynjólfssonar. Lys-
ander Spooner var bandarísk-
ur bóndasonur, lögfræðingur,
athafnamaður og bar-
áttumaður gegn hvers kyns of-
ríki á 19. öld. Baráttuna fyrir
sjálfstæði mannsins háði hann
bæði í orði og verki. Í ritinu
Löstur er ekki glæpur fjallar Spooner um þau
verk manna sem skaða þá sjálfa eða eigur þeirra,
það er að segja lesti þeirra, og svo þau verk sem
skaða aðra menn eða þeirra eigur, sem sagt glæpi
þeirra.
Bókmenntir
Lysander Spooner
og lestirnir
Lysander Spooner
VORHEFTI tímaritsins Sögu,
tímarits Sögufélagsins, er
komið út. Að þessu sinni er
kastljósinu beint að nokkrum
þeirra erlendu menningar-
strauma sem haft hafa áhrif á
íslenskt þjóðlíf. Þar má nefna
framrás kristinnar trúar og
kirkjulegra stofnana á miðöld-
um og viðbrögð við þeim. Einn-
ig er fjallað um erlenda
strauma á nýliðinni öld, allt frá
útbreiðslu vestrænnar djass- og rokktónlistar til
alþjóðlegs sósíalisma. Eitt af markmiðum tíma-
ritsins Sögu er að beina erlendum straumum til
lesenda. Fjöldi greina er í vorheftinu.
Fræði
Erlendir
straumar í Sögu
STÚLKNAKÓR Reykjavíkur
undir stjórn Margrétar J.
Pálmadóttur er farinn í æf-
inga- og tónleikaferð til Tosc-
ana á Ítalíu. Tveir sönghópar
verða á ferðinni, allt stúlkur á
aldrinum 9-20 ára. Stúlkna-
kórinn heldur tvenna tónleika
í menningarborginni Flórens,
15. júní í San Gaetano-
kirkjunni kl. 19 og 22. júní í
Santo Stefano a Pontevecchio-kirkjunni kl. 21.
Þær koma einnig fram í messu í Dómkirkjunni í
Massa, skoða skakka turninn í Pisa o.fl. Um 60
konur og stúlkur úr kórunum taka þátt í Kvenna-
hlaupi ÍSÍ á Ítalíu 16. júní.
Tónlist
Reykvískar söng-
meyjar á Ítalíu
Úr stúlknakórnum
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
GALLERÍ Kling & Bang tekur nú
þátt í VOLTA-myndlistarkaup-
stefnunni í Sviss sem er haldin í
samhengi við Art Basel sem er ein
stærsta og virtasta myndlist-
arstefna í heiminum.
„Þetta er í þriðja sinn sem
VOLTA er haldin samhliða Art
Basel og nú í ár er fókusinn á nor-
ræn ung gallerí,“ segir Kristján
Björn Þórðarson sem sér um Kling
& Bang-básinn á VOLTA. Þar
kynnir hann fimm íslenska lista-
menn sem eru: Erling Klingenberg,
Sirra Sigrún Sigurðardóttir, Hekla
Dögg Jónsdóttir, Snorri Ásmunds-
son og Daníel Björnsson.
Kling & Bang var boðin þátttaka
í stefnunni af þýska galleríinu Ad-
ler sem er með þrjá íslenska lista-
menn á sínum snærum. „Við deil-
um bási með Adler sem er hér að
kynna Ragnar Kjartansson, Sigurð
Guðjónsson og Siggu Björgu Sig-
urðardóttur. Það er yfirleitt nokkuð
erfitt að komast inn á svona lista-
stefnu, sérstaklega svona fína eins
og VOLTA, en Adler bauð okkur
að vera með og auðvitað þáðum við
það.“
Önnur hlið
Með því að vera boðið þarf Kling
& Bang ekki að greiða þátttöku-
gjald sem Kristján segir frekar
hátt og þá sérstaklega fyrir svo lít-
ið gallerí, en þau fengu styrk frá
útflutningsráði til að komast með
verkin út sem Kristján segir hafa
verið mikinn feng.
„Kling & Bang tók þátt í mynd-
listarkaupstefnu í Berlín fyrir
tveimur árum en annars höfum við
ekki komið nálægt slíku áður. Þetta
er allt önnur hlið á myndlistinni en
við höfum verið að taka þátt í hing-
að til, þessi viðskiptahlið lýtur allt
öðrum lögmálum en því sem við
höfum verið að gera. Af því að við
erum ekki auglýsingarekið gallerí,
heldur rekið af listamönnum og
meira í að skapa listaverk með öðr-
um, erum við líka að reyna að nota
þetta tækifæri til að komast í sam-
band við sýningarstjóra og önnur
gallerí. Þannig að árangurinn af
þátttöku okkar hér mælist ekki
bara út frá því sem við seljum
heldur líka út frá því hvort menn
muna eftir okkur og hvort okkur
verði boðið eitthvað í framhaldinu.“
VOLTA opnaði á hádegi í gær
fyrir sýningarstjóra og galleríseig-
endur en formleg opnun var í gær-
kvöldi og stendur sýningin fram á
laugardag. Kristján segir að þrátt
fyrir að íslenski básinn sé lítill sé
hann á besta stað í húsinu og fái
því mikla umferð.
„Við sýnum hér mest af ljós-
myndaverkum, fjögur myndbands-
verk og innsetningu eftir Heklu,
grafíkþrykk eftir Daníel og skúlp-
túr eftir Erling sem ég er næstum
því búinn að selja,“ segir Kristján
kampakátur enda viðtökurnar á
fyrsta opnunardegi stórgóðar.
„Þetta er voða gaman, hér úir og
grúir af alls konar verkum og í
heildina litið er þetta mjög
skemmtileg sýning,“ segir Kristján
en á VOLTA taka þátt 67 gallerí
sem sýna eingöngu myndlist-
armenn af yngri kynslóðinni. „Gall-
eríin leggja líka mikla áherslu á að
komast hingað inn því þetta er
sterk sölusýning og þessi lista-
stefna er með þeim best sóttu í
Evrópu.“
Til Berlínar í haust
Spurður hvað sé framundan hjá
Kling & Bang segir Kristján ekk-
ert koma í beinu framhaldi af
VOLTA. „Við ætlum að bíða og sjá
hvort þátttaka á þessari sýningu
vindur ekki upp á sig en í haust
förum við til Berlínar og verðum
með sýningu í tengslum við lista-
stefnu sem fer þar fram. Svo auð-
vitað höldum við galleríinu á Ís-
landi gangandi.“
Gallerí Kling & Bang tekur þátt í myndlistarkaupstefnunni VOLTA í Sviss
Sýna sig og sjá aðra
Áberandi Kristján Björn Þórðarson og Ulrike Adler í Kling & Bang básn-
um á VOLTA myndlistarkaupstefnunni í Basel í Sviss. Sýningin var opnuð í
gær og segir Kristján aðsóknina að básnum hafa verið góða frá upphafi.
EINS og fram kom í forsíðufrétt
Morgunblaðsins í gær hreppti mal-
íski ljósmyndarinn Malick Sidibé
Gullna ljónið á Feneyjatvíæringnum
um helgina. Þetta þykir tíðindum
sæta, því aldrei áður hefur Afr-
íkumaður hlotið þessi verðlaun, – en
í þeim felst viðurkenning á skapandi
ævistarfi í myndlistinni. Sýning-
arstjórinn í Feneyjum, Robert Storr,
sagði við verðlaunaafhendinguna að
enginn annar afrískur listamaður
hefði unnið jafn ötullega að fram-
gangi ljósmyndunar í Afríku, og þar
með skapað henni sögu og listrænan
metnað, sem hefur gefið umheim-
inum nýja sýn á þá margbreytilegu
flóru mannlífs og menningar sem
álfan hýsir.
Gullna ljónið
til Afríku
Malick Sidibé
HÚN fór ekki vel af stað sum-
arvertíðin hjá Holland Park-
óperunni í London nú fyrir helgi. Á
efnisskránni var óperan Nabucco
eftir Verdi, byggð á sögum biblíunn-
ar um Nebúkadnesar kóng í Bab-
ýlon. Þannig háttar til að svið og
sæti óperunnar í garðinum eru ekki
nema að hluta til yfirbyggð og svo
fór að fuglar himinsins tóku völdin
af söngfuglum óperunnar, svo ákaf-
lega að fyrsti þáttur óperunnar fór
meira og minna forgörðum, óp-
erugestum til ama. Sérstaklega var
kvartað undan páfuglum, sem höfðu
sig mjög í frammi meðan her Bab-
ýlonmanna á sviðinu lagði til atlögu
við Jerúsalemborg.
Næsta kvöld var óperan Jenúfa
eftir Janacek á dagskrá Holland
Park-óperunnar, og hafði fiðurféð
þá hljótt um sig. Þá bar hins vegar
svo við að vindur blés köldu og næð-
ingurinn varð sumum óperugestum
um megn.
Hamfarir í
Holland Park
Í HNOTSKURN
» Erling, Sirra og Hekla eru öllstödd á VOLTA ásamt Krist-
jáni en Erling og Sirra komu það-
an beint af Feneyjatvíæringnum
þar sem þau unnu að uppsetningu
á sýningu Steingríms Eyfjörð.
Snorri er staddur í Feneyjum líka
með píramídaverki sínu.
» Art Basel, sem er ein stærstaog virtasta kaupstefna í heim-
inum, fer nú fram í 38. skipti og í
samvinnu við hana eru VOLTA
og LISTE haldnar til að kynna
minni gallerí og yngri listamenn.
»VOLTA fer fram í vöru-skemmu á höfninni við Rín og
ganga rútur og bátar á milli
hennar, Art Basel og LISTE svo
gestir láti ekki neitt framhjá sér
fara.
www.voltashow.com
♦♦♦
ÆSKUHEIMILI Cole Porters, tón-
skáldsins fræga, hefur nú verið gert
að gistihúsi og safni. Húsið er í Peru
í Indiana-ríki, og var komið í niður-
níðslu þegar vinafélag tónskáldsins
tók sig til, keypti húsið og gerði það
upp. Í safninu verða tónlist Porters
og ævistarfi gerð góð skil, en hann er
höfundur sígildra söngleikja og laga
á borð við Night and Day, Begin the
Beguine og Anything Goes.
Í ból hjá Cole
♦♦♦