Morgunblaðið - 12.06.2007, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjár-
málaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og
Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu
www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í
störf á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali - háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.
Hjúkrunardeildarstjóri
Staða hjúkrunardeildarstjóra á dagdeild þvagfærarann-
sókna 11A á skurðlækningasviði er laus til umsóknar.
Starfshlutfall 100%. Á deildinni er lögð áhersla á þjónustu
við sjúklinga sem glíma við sjúkdóma í þvagfærum.
Deildin sinnir jöfnum höndum þjónustu við inniliggjandi
sjúklinga og þá sem koma til rannsókna og minni aðgerða.
Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni
og stjórnar daglegum rekstri hennar. Hann ber ábyrgð á
uppbyggingu og þróun hjúkrunar, starfsmannahaldi,
rekstri og áætlanagerð. Hann skal stuðla að þekkingar-
þróun í hjúkrun, m.a. með því að hvetja til rannsókna og
nýta rannsóknarniðurstöður. Umsækjendur skulu hafa
a.m.k. fimm ára starfsreynslu í hjúkrun og reynslu í starfs-
mannastjórnun. Framhaldsnám í hjúkrun er æskilegt.
Leitað er eftir framsæknum og dugmiklum leiðtoga.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá. Jafn-
framt skal leggja fram afrit af prófskírteinum og hjúkrunar-
leyfi. Einnig afrit af ritgerðum, þróunarverkefnum og
vísindastörfum sem umsækjandi hefur unnið, tekið þátt í
að vinna eða birt. Mat á hæfni umsækjenda byggist á
innsendum gögnum, umsögn stöðunefndar hjúkrunarráðs
LSH og viðtölum við umsækjendur. Staðan veitist frá
1. september 2007.
Umsóknir berist fyrir 25. júní nk. á skrifstofu framkvæmda-
stjóra hjúkrunar, Eiríksgötu 5, netfang
annastef@landspitali.is.
Upplýsingar veitir Anna Stefánsdóttir framkvæmdastjóri í
síma 543 1109, netfang annastef@landspitali.is.
Umsækjendum er bent á leiðbeiningar stöðunefndar hjúkrunarráðs
LSH á vef spítalans varðandi frágang umsókna um stjórnunarstöður í
hjúkrun.
Sérfræðingur í hjúkrun aðgerðasjúklinga
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í hjúkrun aðgerða-
sjúklinga á skurðlækningasviði. Starfshlutfall er 50%.
Staðan veitist frá og með 1. september 2007 eða eftir
samkomulagi. Sérfræðingur í hjúkrun aðgerðasjúklinga
starfar samkvæmt starfslýsingu sérfræðinga í hjúkrun á
LSH. Hann vinnur að þróun hjúkrunar aðgerðasjúklinga
innan allra sérgreina sviðsins ásamt sviðsstjóra hjúkrunar,
deildarstjórum og forstöðumanni fræðasviðs. Sérstaklega
er lögð áhersla á eflingu hjúkrunar í dag- og göngu-
deildum, þróun sjúklingafræðslu, eflingu gagnreyndrar
þekkingar innan sviðsins, þróun verkjameðferðar og ráð-
gjöf og kennslu til starfsfólks og nemenda auk rannsókna-
og þróunarvinnu.
Umsækjendur skulu hafa lokið meistara- eða doktorsprófi
og hafa hlotið sérfræðileyfi í hjúkrun langveikra í samræmi
við reglugerð nr. 124/2003 um sérfræðileyfi í hjúkrun.
Með umsókn skal leggja fram náms- og starfsferilskrá
ásamt gögnum um vísindastörf og ritsmíðar. Jafnframt skal
leggja fram afrit af prófskírteinum, hjúkrunarleyfi og sér-
fræðileyfi í hjúkrun. Mat á umsækjendum byggist m.a. á
innsendum gögnum og viðtali.
Umsóknir berist fyrir 1. júlí nk. til skrifstofu framkvæmda-
stjóra hjúkrunar, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík, netfang
annastef@landspitali.is.
Nánari upplýsingar veita Lilja Stefánsdóttir, sviðsstjóri, í
síma 543 7964, netfang liljaste@landspitali.is og Anna
Stefánsdóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 543 1109, netfang
annastef@landspitali.is.
Umsækjendum er bent á leiðbeiningar stöðunefndar hjúkrunarráðs LSH
á vef spítalans varðandi frágang umsókna um stjórnunarstöður í
hjúkrun.
Innlagnastjóri
Laus er til umsóknar staða innlagnastjóra. Staðan veitist frá
1. september eða eftir nánara samkomulagi, til tveggja
ára. Innlagnastjóri ábyrgist skipulag og framkvæmd við
innlagnir í samstarfi við stjórnendur legudeilda og sér-
greina. Hann innleiðir nýjungar, endurskoðar vinnulag og
verkferla. Hann skal stuðla að þekkingarþróun m.a. með
því að hvetja til rannsókna og nýta rannsóknarniðurstöður.
Innlagnastjóri veitir forystu útskrifta- og öldrunarteymi LSH
sem staðsett er á slysa- og bráðasviði. Teymið hefur yfir-
sýn yfir flæði sjúklinga og starfar innlagnastjóri náið með
stýrinefnd um flæði sjúklinga. Umsækjendur skulu hafa
lokið námi í hjúkrunarfræði frá viðurkenndri menntastofnun
og hafa a.m.k. fimm ára starfsreynslu í hjúkrun og reynslu í
starfsmannastjórnun. Framhaldsnám í hjúkrun er æskilegt.
Leitað er eftir framsæknum og dugmiklum leiðtoga.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá. Jafn-
framt skal leggja fram afrit af prófskírteinum og hjúkrunar-
leyfi. Einnig afrit af ritgerðum, þróunarverkefnum og
vísindastörfum sem umsækjandi hefur unnið, tekið þátt í
að vinna eða birt. Mat á hæfni umsækjenda byggist á inn-
sendum gögnum, umsögn stöðunefndar hjúkrunarráðs
LSH og viðtölum við umsækjendur.
Umsóknir berist fyrir 30 júní nk. til skrifstofu framkvæmda-
stjóra hjúkrunar, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík, netfang
annastef@landspitali.is.
Nánari upplýsingar veita Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir,
sviðsstjóri hjúkrunar í síma 543 2270, netfang
gudrakel@landspitali.is og Anna Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar, netfang annastef@landspitali.is.
Umsækjendum er bent á leiðbeiningar stöðunefndar hjúkrunarráðs LSH
á vef spítalans varðandi frágang umsókna um stjórnunarstöður í
hjúkrun.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjár-
málaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og
Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu
www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í
störf á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali - háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.
Starfsmaður óskast
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands óskar
eftir að ráða starfsmann í 100% starf til að sjá
um þrif, þvotta, minniháttar viðhald og umsjón
með orlofshúsum Kennarasambands Íslands
við Sóleyjargötu 25 og 33 í Reykjavík.
Skriflegar umsóknir ásamt mynd skal senda til
Orlofssjóðs Kennarasambands Íslands,
Kennarahúsinu, Laufásvegi 81, 101 Reykjavík
eða á netfang Orlofssjóðs KÍ: orlof@ki.is.
Umsóknarfrestur er til 18. júní.
Orlofssjóður Kennarasamband Íslands.
Starfsmaður óskast
Handlaginn starfsmaður óskast í 2 mánuði á
hjóhýsasölu og –leigu. Áhugasamir vinsamlega
hafið samband í síma 587-2200.
Vagnasmiðjan ehf.
vagnar@simnet.is - www.vagnasmidjan.is
Óskum eftir að ráða
löggiltan fasteignasala
eða lögfræðing hdl. í skjalagerð við fasteigna-
sölu. Um er að ræða launað starf. Viðkomandi
fær skrifstofu til afnota og væri lögfræðingi
heimilt að reka lögfræðiskrifstofu sína í sama
húsnæði.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast á skrif-
stofu okkar eða með tölvupósti í netfang
stefanp@remax.is. RE/MAX Fasteignir, Engja-
teigi 9, 105 Reykjavík.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Knattspyrnufélagið
Víkingur
Aðalfundur
knattspyrnufélagsins Víkings verður haldinn
mánudaginn 18. júní kl. 20.00 í Víkinni,
Traðarlandi 1.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillögur til lagabreytinga.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Aðalfundir
Aðalfundir Eignarhaldsfélagsins Samvinnu-
trygginga og Eignarhaldsfélagsins Andvöku g.f.
verða haldnir á Bitruhálsi 2, Reykjavík, 2. hæð,
föstudaginn 15. júní 2007 og hefjast kl. 14:00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, auk
tillögu stjórnar Eignarhaldsfélagsins Sam-
vinnutrygginga um breytingar á samþykktum
félagsins.
Stjórnir félaganna.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins að Hafnar-
stræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eign:
Öldugata 18, verslun 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-6660), þingl. eig.
Konný ehf, gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð, Lífeyrissjóður verslunar-
manna og Sparisjóður Svarfdæla, föstudaginn 15. júní 2007 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
11. júní 2007.
Eyþór Þorbergsson, ftr.
Til sölu
Jörð til sölu
Til sölu er jörðin Holtsmúli á Langholti, Skaga-
firði. Stærð lands er 150 ha, þar af 27 ha rækt-
aðir. Á jörðinni eru m.a. 227 m² íbúðarhús,
2 fjárhús, vélageymsla og minkahús.
Veiðihlunnindi í Staðará. Framleiðsluréttur í
kindakjöti getur fylgt með svo og vélar og tæki.
Hitaveita frá Varmahlíð.
Fasteignasala Sauðárkróks, s. 453 5900,
strimill@simnet.is.
Heimasíða undir Skagafjordur.com.
Atvinnuauglýsingar
Sjálfstæðisfélag
Garðabæjar
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélags Garðabæjar verður haldinn í
kvöld, þriðjudaginn 12. júní 2007 á Garðatorgi 7,
Garðabæ. Fundurinn hefst kl. 20.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Sjálfstæðismenn í Garðabæ eru hvattir til að
mæta - kaffiveitingar.
Verum blátt áfram,
Sjálfstæðisfélag Garðabæjar.
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is