Morgunblaðið - 25.06.2007, Qupperneq 6
UM 75 slökkviliðs- og björg-
unarsveitarmenn réðu niðurlögum
mosabruna á laugardaginn. Alls
brann um 15 hektara svæði og segir
plöntuvistfræðingur hjá Nátt-
úrufræðistofnun Íslands að mörg ár
kunni að taka svæðið að gróa á ný.
Eldurinn kviknaði í mosa á Mið-
dalsheiði á milli Nesjavallavegar og
Suðurlandsvegar. Slökkviliðið höf-
uðborgarsvæðisins var kallað út um
klukkan hálfþrjú. Slökkvistarfið var
erfitt vegna þess hve mosi og annar
gróður var þurr en einnig var vindur
nokkuð hvass og blés því lífi í glæð-
urnar. Jafnframt reyndist torvelt að
koma vatni að eldinum og þurftu
slökkviliðsmenn að draga slöngur
nokkra vegalengd. Slökkviliðsmenn
voru síðan ferjaðir frá veginum að
eldinum á sexhjólum.
Eldurinn sást víða að og bárust
margar hringingar til Neyðarlín-
unnar. Engin hætta stafaði af eld-
inum enda brann hann fjarri öllum
mannvirkjum. Síðdegis voru 50
björgunarsveitarmenn kallaðir út til
að aðstoða slökkvilið við slökkvi-
starfið og umferðarstjórn nærri
vettvangi. Um ellefuleytið hafði tek-
ist að ráða niðurlögum eldsins en
þrír slökkviliðsmenn urðu eftir á
brunastaðnum og höfðu eftirlit.
Borgþór Magnússon, plöntuvist-
fræðingur hjá Náttúrufræðistofnun
Íslands, skoðaði svæðið á laugardag-
inn og segir svæðið vera u.þ.b. 15
hektara á stærð og illa farið eftir
eldinn. „Þetta er u.þ.b. eins fets
þykk mosaþemba. Hún hefur verið
alveg skraufþurr efst og hefur
brunnið að miklu leyti.“ Hann segir
þann plöntugróður sem hafi þrifist í
mosanum illa farinn og mestallan
brunninn. „Þetta er ófrjótt land og
ef ekkert verður gert er ég hræddur
um að það taki mörg ár fyrir svæðið
að ná fyrri mynd. Mosinn er lengi að
vaxa upp aftur.“ Háplöntugróðurinn
nái sér tæplega á strik aftur fyrir
sumarlok og einungis strjált á næsta
ári.
Hann segist þó ekki halda að upp-
blástur verði á svæðinu og venjulega
sé ekki mikið um fuglavarp á svona
gróðursvæðum. „Kannski eitthvað
en það er þá ekki stórfellt,“ segir
Borgþór. Ekki er vitað um elds-
upptök en einnota grill fannst á
brunastaðnum.
Mun taka svæð-
ið langan tíma
að gróa á ný
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Basl Aðstæður voru slökkviliðsmönnum ekki hliðhollar á laugardaginn. Bruninn var fjarri samgönguleiðum, mos-
inn þurr og vindurinn blés í glæðurnar. 75 slökkviliðs- og björgunarsveitarmenn réðu niðurlögum eldsins.
Slökkvistarf stóð yfir í um það bil 12
tíma á Miðdalsheiði á laugardaginn
!
" #$ %& '
'
6 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GÍFURLEGT mold- og sandrok var um helgina af Suð-
urlandi og út á haf og sést það greinilega á gervi-
tunglamynd sem tekin var á laugardag. Gervitunglið
nam líka óeðlilega hitabreytingu vegna mosabrunans á
Miðdalsheiði og sést hann á myndinni sem rauður
punktur.
Ástæðu þessa mikla uppblásturs má að einhverju
leyti rekja til þess að síðasti vetur var óvenjusnjóléttur
og gróður á hálendinu því berskjaldaður fyrir frostinu.
Þegar við bætast miklir þurrkar eins og verið hafa að
undanförnu losnar mikið af jarðvegi sem fýkur á haf út
þegar sterkir vindar blása úr norðri.
Mold fýkur á haf út og gróður brennur
FARÞEGAR bíls sem valt á Lang-
holtsvegi í Hrunamannahreppi
sluppu vel. Bílveltan varð snemma í
gærmorgun og voru þrír fluttir með
sjúkrabíl á Landspítala – háskóla-
sjúkrahús í Reykjavík. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á Sel-
fossi er ökumaðurinn grunaður um
ölvun. Að sögn læknis á slysadeild
sluppu allir ótrúlega vel úr veltunni.
Síðar um daginn rákust torfær-
umótorhjól og fjórhjól saman í ná-
grenni Selfoss. Einn var fluttur til
aðhlynningar en hann hlaut minni-
háttar áverka. Hjólunum var ekið á
slóða meðfram þjóðveginum þegar
mótorhjólið reyndi að aka fram úr
fjórhjólinu. Ökumaður torfærumót-
orhjólsins blindaðist þá í moldryk-
inu með þeim afleiðingum að hjólin
rákust saman.
Þegar lögregla kom á staðinn
kom í ljós að ökumaður fjórhjólsins
var aðeins 13 ára og því réttinda-
laus.
Sluppu
ótrúlega vel
úr bílveltu
Réttindalaus fjór-
hjólaökumaður
GÓÐ stemning var á Thule-mýrarboltamótinu sem haldið var á Selfossi á
laugardaginn. Þetta er í fyrsta sinn sem mót af þessu tagi er haldið sunnan
heiða en samskonar mót hefur verið haldið á Ísafirði um árabil.
Það voru liðsmenn utandeildarliðsins Grettis sem sigruðu á mótinu en
Knattspyrnufélag Árborgar stóð fyrir skemmtuninni. Mýrarbolti er ætt-
aður frá Finnlandi og svipar til knattspyrnu en leikið er á litlum forarvelli í
sex manna liðum. Hið árlega mýrarboltamót Mýrarboltafélags Íslands
verður svo haldið um verslunarmannahelgina á Ísafirði.
Skítsæl íþrótt Það verður víst ekki komist hjá góðri sturtu með ærlegu
skrúbbi og ferð í þvottahúsið eftir þennan foruga keppnisleik.
Atgangur í mýrarbolta
Morgunblaðið/Guðmundur Karl
„EF þetta er íslenskur fiskur, sem
mér finnst hvað líklegast, er þetta
fiskur sem er í bókhaldinu okkar sem
ungviði, þannig að ég held að þetta
breyti ekki miklu. Þó svo að það væru
þarna einhver þúsund tonn, breytir
það ekki heildarmyndinni í okkar ráð-
gjöf, segir Björn Ævarr Steinarsson,
fiskifræðingur hjá Hafrannsókna-
stofnun. Að undanförnu hafa íslenskir
togarar á grálúðuveiðum við Hamp-
iðjutorgið þurft að flýja þaðan vegna
mikillar þorskgengdar. Hilmar
Helgason skipstjóri segir í samtali við
Morgunblaðið á laugardaginn að
hann hafi stundað veiðar á svæðinu
frá árinu 1990 og aldrei séð annað
eins.
Björn segir að sýni frá svæðinu
verði tekin til rannsóknar. Þegar þau
hafa borist stofnuninni verði farið
mjög ítarlega yfir það hvaðan fiskur-
inn er upprunninn, með tilliti til fæðu-
vals, kvarnastrúktúrs, aldurs og fleiri
atriða. Þá muni afladagbækur frá tog-
urum á Hamp-
iðjutorgingu
verða hafðar til
hliðsjónar.
„Það sem er
merkilegt við
þetta er það að
þeir eru að fá fisk
þarna á mun
meira dýpi en áð-
ur hefur þekkst,“
segir Björn, en
þorskur hefur verið að veiðast í allt
niður á 500 faðma dýpi á svæðinu.
Hann segir blikur á lofti um að
ástandið í Grænlandshafi sé að breyt-
ast. „Í raun má segja að þeir [skip-
stjórarnir við Hampiðjutorg] séu að
sjá fiskinn breyta hegðun sinni. Um-
hverfisaðstæður eru mjög breyttar og
það er allt önnur mynd sem blasir við í
dag,“ segir Björn og bætir við að Haf-
rannsóknastofnun rannsaki nú þenn-
an samgang þorsksins milli Austur-
Grænlands og Íslands.
Breytir ekki
heildarmyndinni
Hafró mun taka þorskgengd á
Hampiðjutorginu til rannsóknar
Björn Ævarr
Steinarsson