Morgunblaðið - 25.06.2007, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
+ Nánari upplýsingar og bókaðu á www.icelandair.is
Sölutímabil Special Offer tilboða: 22. júní–13. júlí.
Ferðatímabil: 17. júlí–10. desember.
Takmarkað sætaframboð.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
66
61
0
6
/0
7 9.9
00
kr
. a
ðr
a l
eið
ina
ÞETTA HELST ...
● SAMRUNI VBS fjárfestingabanka
(áður Verðbréfastofunnar) og FSP hf.
(Fjárfestingafélag sparisjóðanna)
mun ekki valda röskun á samkeppni
á fjármálamarkaði og því telur Sam-
keppniseftirlitið í nýjum úrskurði sín-
um ekki ástæðu til að aðhafast
vegna samrunans.
Hins vegar hefur eftirlitið til athug-
unar hvort leggja skuli stjórnvalds-
sektir á VBS fjárfestingabanka
vegna mögulegra brota á tilkynning-
arskyldu, samkvæmt nýjum ákvæð-
um samkeppnislaga. Telur Sam-
keppniseftirlitið að í tilkynningu um
samrunann í byrjun maí sl. hafi ekki
fylgt allar þær upplýsingar sem lögin
kveða á um. Tóku þær lagabreytingar
gildi í mars sl. að leggja á sektir
vegna ófullnægjandi upplýsinga.
Til skoðunar að leggja
stjórnvaldssekt á VBS
● SAMSON Global Holdings SARL,
sem er í jafnri eigu eignarhaldsfélaga
feðganna Björgólfs Guðmundssonar
og Björgólfs Thors
Björgólfssonar, hefur
aukið við hlut sinn í
Straumi-Burðarási
Fjárfestingabanka.
Eftir lokun markaðar
á föstudag var til-
kynnt um kaup Sam-
sonar á 280 millj-
ónum hluta í bankanum á
meðalgenginu 20,9, eða að andvirði
um 5,8 milljarða króna. Eiga feðg-
arnir og tengd félög nú um 32% hlut í
Straumi og markaðsvirði þess hlutar
er um 72 milljarðar króna. Þá var til-
kynnt um kaup Áningar, félags í eigu
fráfarandi forstjóra bankans, Frið-
riks Jóhannssonar, á 25 milljónum
hluta í Straumi á genginu 21,1. And-
virði viðskiptanna er um 527 millj-
ónir króna en Friðrik á kauprétt að 40
milljónum hluta til viðbótar.
Samson eykur við sig
í Straumi-Burðarási
● LÁN til fyrirtækja í maí sl. jukust
um 28% miðað við sama tíma í fyrra,
að því er Hálffimmfréttir Kaupþings
vitna til upplýsinga frá Seðlabank-
anum. Aukningin í fyrra var hins veg-
ar 50% og hefur því hægt á útlána-
aukningunni. Útlán til fyrirtækja
skiptast þannig að langstærstur
hluti er gengisbundin lán, eða tæp-
lega 59%, verðtryggð skuldabréf eru
14% og önnur skuldabréf 17%. Aukn-
ing verðtryggðra skuldabréfa var nán-
ast engin milli ára en þau nema nú í
heildina 255 milljörðum króna.
Gengisbundin skuldabréf fyrirtækja
eru nú 1.057 milljarðar og drógust
saman á milli mánaða en vegna
gengisstyrkingar krónunnar varð
samdráttur upp á rúma 30 milljarða.
Hægir á útlánaaukn-
ingu til fyrirtækja
● FASTEIGNAFÉLÖGIN Sjælsø
Gruppen og Property Group, sem
Samson Properties, Straumur-
Burðarás og fleiri íslenskir fjárfestar
eiga hlut í, hafa gert samninga um
fasteignaverkefni upp á 1,2 milljarða
danskra króna, jafnvirði ríflegra 13
milljarða króna. Um er að ræða
framhald á sex verkefnum í Svíþjóð
og Finnlandi. Ekki kemur fram í til-
kynningu frá Sjælsø hvaða byggingar
þetta eru en stærð þeirra er sam-
anlögð um 30 þúsund fermetrar.
Eiga þær að vera tilbúnar til notk-
unar á næsta ári.
Samson Properties eiga um helm-
ingshlut í Sjælsø og Straumur er stór
eigandi að Property ásamt Birgi Þór
Bieldvedt og dönskum stjórnendum
félagsins. Bæði félögin eiga höf-
uðstöðvar sínar í Danmörku.
Sjælsø og Property
Group í samstarfi
FJÖLMIÐLAFYRIRTÆKIÐ
News Corp., sem er að stærstum
hluta í eigu Ruperts Murdochs, hef-
ur átt í viðræðum við vefrisann
Yahoo! um að skipta á tónlistarvef-
síðunni MySpace fyrir 30% hlut í
sameinuðu fyrirtæki Yahoo! og
MySpace. Frá þessu er greint í frétt
í The Times of London sem er ein-
mitt í eigu News Corp.
Segir í fréttinni að News Corp.
hafi mikinn áhuga á að af samruna
Yahoo! og MySpace verði, þó svo að
fyrirtækið missi þar með yfirráðin
yfir tónlistarvefsíðunni. Í staðinn ná-
ist hins vegar mun meiri útbreiðsla á
Netinu. Viðræður séu hins vegar það
skammt á veg komnar að ekkert sé
hægt að segja um líkur á samkomu-
lagi.
Vilja hlut í
Yahoo! fyrir
MySpace
FLESTIR forráðamenn fyrirtækja
telja aðstæður í efnahagslífinu góð-
ar um þessar mundir en hins vegar
er bjartsýni um horfur í efnahags-
lífinu á næstu sex mánuðum mun
minni en áður. Hefur vísitala efna-
hagslífsins sex mánuði fram í tím-
ann lækkað úr 117 stigum í febrúar
í tæp 107 stig.
Þetta er meðal niðurstaðna nýrr-
ar könnunar um stöðu og framtíð-
arhorfur stærstu fyrirtækja á Ís-
landi, en könnunin er samstarfs-
verkefni fjármálaráðuneytisins,
Seðlabankans og Samtaka atvinnu-
lífsins, og var framkvæmd af Capa-
cent-Gallup á tímabilinu 8. til 31.
maí sl. Frá þessu er greint í vefriti
fjármálaráðuneytisins en í end-
anlegu úrtaki voru 370 fyrirtæki og
tóku 223 þeirra þátt í könnuninni.
Engir forráðamenn í fyr-
irtækjum í fjármála- og trygginga-
starfsemi, sjávarútvegi, bygging-
arstarfsemi og veitum og ýmissi
sérhæfðri þjónustu telja að ástand-
ið sé slæmt í efnahagslífinu. Þá
telja 51% svarenda að skortur sé á
starfsfólki, en 40% svarenda töldu
svo vera í febrúar. Fyrirtæki í fjár-
mála- og tryggingastarfsemi og í
ýmissi sérhæfðri þjónustu eru áber-
andi hvað það varðar, sem bendir
til að skortur sé á háskólamennt-
uðum einstaklingum. Fyrirtæki í
byggingarstarfsemi, veitustarf-
semi, iðnaði og sjávarútvegi telja
skortinn minni.
Minnkandi bjart-
sýni fyrirtækja
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Útgerð Sjómaður í Þorlákshöfn lyftir boldangsþorski úr góðri veiði en
ekki er alveg jafn létt yfir útgerðarmönnum um horfur í efnahagslífinu.
Ríflega 50% stjórnenda telja skort vera
á starfsfólki en voru 40% í febrúar 2007
JK fjárfestingar kaupa Odda
skrifstofuvörur af Kvos
EIGNARHALDS- og fjárfestingarfélagið Kvos
hefur selt eitt af fyrirtækjum sínum, Odda skrif-
stofuvörur (OSK), til JK fjárfestinga, sem á og
rekur Eico og fleiri fyrirtæki. Nýir eigendur taka
við rekstri OSK hinn 1. júlí nk. en firmaheitið Oddi
fylgir ekki með í kaupunum og fær fyrirtækið því
nýtt nafn á næstu mánuðum. Söluverð er trún-
aðarmál, að því er segir í tilkynningu.
OSK rekur þrjár verslanir á höfuðborgarsvæð-
inu, þar á meðal Skólavörubúðina, eina verslun á
Akureyri og gefur árlega út stóran vörulista. Hjá
fyrirtækinu starfa um 30 manns.
Í tilkynningu um söluna segir að áframhaldandi
samstarf muni verða milli nýrra eigenda og Kvos-
ar um kaup á pappír og pappírstengdum vörum
sem verða seldar undir Odda-nafninu áfram. Nýir
eigendur munu starfrækja bæði verslanir og fyr-
irtækjaþjónustu í óbreyttri mynd.
Haft er eftir Baldri Þorgeirsyni, framkvæmda-
stjóra innlendrar starfsemi Kvosar, að með söl-
unni sé verið að skerpa á áherslum Kvosar. Helsti
styrkur félagsins felist í þekkingu og reynslu af
prentiðnaði og skyldum rekstri.
Kvos á nú tíu dótturfélög á Íslandi, í Bandaríkj-
unum og Evrópu, með samtals um 1.300 starfs-
menn. Áætluð velta í ár er um 12 milljarðar króna.
Í HNOTSKURN
»Oddi skrifstofuvörur rekur fjórar versl-anir og starfsmenn er um 30. Fram-
kvæmdastjóri er Ólafur Sveinsson.
Creative Foods ræktar og fram-
leiðir ýmiss konar salöt, eða um 250
vörutegundir í fimm verksmiðjum
fyrir stórmarkaði og veitinga-
húsakeðjur í Kína. Starfsmenn fyr-
irtækisins eru um 750 talsins. Á
meðal helstu viðskiptavina fyr-
irtækisins er Yum! Brands, sem er
ein stærsta veitingahúsakeðja í
heimi og rekur m.a. Kentucky
Fried Chicken og Pizza Hut. Aðrir
viðskiptavinir eru m.a. Wal-Mart,
Starbucks og Burger King.
BAKKAVÖR Group hefur keypt
eftirstandandi hlutafé í kínverska
salatfyrirtækinu Creative Foods í
samstarfi við Glitni. Í tengslum við
kaup á 40% hlut í félaginu í mars
2006 stofnuðu Bakkavör Group og
Glitnir nýtt félag, Bakkavör China,
sem einbeitir sér að fjárfestingum í
Kína. Eftir kaupin á Bakkavör 80%
hlut í Creative Foods og Glitnir
20%. Glitnir veitti ráðgjöf og fjár-
magnaði kaupin en kaupverðið er
trúnaðarmál.
Bakkavör tekur yfir
Creative Foods
Bakkavör Tækifærin í Kína eru gríðarleg en samfara matvælaframleiðslu
er Bakkavör Group með öflugt rannsókna- og þróunarstarf á matvælum.