Morgunblaðið - 25.06.2007, Page 17
Ljósmynd/UHJ
Sjúkranudd Ólífuolían kom sér vel
í sjúkranuddinu sem Reyni Frey
Framara fannst mikilvægt fyrir fót-
boltamenn eftir erfiða leiki. „Þetta
er eins og alvöru.“
Á KNATTSPYRNUVÖLLUNUM
á Langasandi var það leikgleði
hinna ungu knattspyrnukappa sem
bar hæst ásamt heilbrigðum keppn-
isanda og drengilegri keppni. Yfir
90 lið tóku þátt í mótinu, oft mörg
frá hverju félagi og hvert eitt og
einasta gerði eins og það best gat.
Þetta var eins og á alvörumóti og
strákarnir skynjuðu það.
Að leik loknum tókust leikmenn
ávallt í hendur og oft hlupu liðin
fagnandi af velli, hvort sem þau
höfðu unnið, tapað eða gert jafn-
tefli. Hverju liði fylgdi líka dyggur
stuðningsmannahópur; nefnilega
foreldrarnir.
Við enda eins vallarins hljóp
Hrannar Máni Eyjólfsson, 7 ára, úr
Fylki, sem nýhafði lokið leik, og
spurði gesti og gangandi hvort þeir
hefðu séð þessa glæsilegu víta-
spyrnu sem hann tók í leiknum.
Einlægnin var ekta, enda kváðu
flestir vítaspyrnuna hafa verið ein-
mitt eins og fótboltakappinn lýsti.
Hrannar Már gaf samstundis jáyrði
sitt þegar hann var beðinn um við-
tal í Morgunblaðið.
– „Ertu búin að æfa lengi fót-
bolta?“ „Já, í svona fimm, fjögur
ár.“
– Hvers vegna byrjaðirðu að æfa
fótbolta? „Af því að ég ætla að
verða fótboltamaður. Ég ætla að
vera í Fylki. Mér finnst gaman að
keppa í fótbolta.“ – Varstu að taka
vítaspyrnu áðan? „Já, ég tók víta-
spyrnu í tveimur leikjum. Eina á
móti Stjörnunni og þá skoraði ég
og líka núna.
– Og var hún svolítið glæsileg?
„Mörgum finnst það.“
– Hvort finnst þér skipta meira
máli að sigra leiki eða að vera
með?
„Vera með.“
Mörg lið best á Íslandi
Leikmenn Þróttar og Breiðabliks
hlupu fagnandi af einum vellinum
eftir drengilega keppni. Leikmaður
Breiðabliks, Ísak Ólafsson, 7 ára,
og Kristófer Þórisson, 6 að verða 7
ára, leikmaður Þróttar, voru báðir
sáttir við úrslitin, enda lauk leikn-
um með jafntefli, 1-1.
,,Þetta er búið að vera rosa gam-
an, sagði Kristófer. Kapparnir voru
báðir með svarið við næstu spurn-
ingu á kristaltæru.
– Hvert er besta liðið á Íslandi?
„Auðvitað Breiðablik,“ sagði Ísak.
„Auðvitað Þróttur,“ sagði Krist-
ófer.
Er ekkert erfitt að spila í þessu
roki?
„Nei, nei,“ segir Ísak sem er
greinilega ákveðinn í að láta rokið
ekkert á sig fá þótt það hafi stund-
um verið eins og áttundi maðurinn
í liðinu eftir því hvort spilað var
með eða á móti vindi. Hann er líka
búinn að vera í fótbolta frá því að
hann var fjögurra ára.
– Hvað er svona skemmtilegt við
fótbolta?
„Mér finnst skemmtilegast að
spila á vinstri kantinum,“ segir
Kristófer sem fær oft að spila í
draumastöðunni.
– En hvort skiptir meira máli að
vinna eða vera með?
„Það skiptir máli að hafa gaman
af að keppa,“ segir Ísak og Krist-
ófer tekur undir það.
„Það er gaman að spila við svona
mörg lið og vera með.“
Það er greinilegur samhljómur
um það.
„Sástu þessa glæsilegu vítaspyrnu?“
Ljósmynd /UHJ
Barátta Það var hart barist í leik Stjörnunnar og Fram á einum knattspyrnuvallanna á Langasandi við Akranes um helgina.
Það voru margir fót-
boltar á lofti í knatt-
spyrnubænum Akra-
nesi um helgina þar
sem hundruð 6-8 ára
stráka léku listir sínar í
knattspyrnu.
Unnur H. Jóhanns-
dóttir fylgdist með
tilþrifunum.
» Strákunum fannstekki mikilvægast að
sigra heldur að vera
með og hafa gaman af
því að keppa.
uhj@mbl.is
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Á Skaganum Sigursteinn Gíslason með börnin sín, Unni Elínu og Magnús Svein.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Stjarnan Stjörnustrákarnir stóðu sig vel á mótinu á Akranesi og hlutu að launum bikar.
Ljósmynd/UHJ
Drengileg Keppnin var drengileg en hér eru Ísak í
Breiðabliki og Kristófer í Þrótti að leik loknum.
Ljósmynd/UHJ
Vítaskytta Hrannar Már skoraði úr vítaspyrnu og ætl-
ar að verða fótboltamaður þegar hann er orðinn stór.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 17
VESTURLAND