Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í ÖLLUM þeim alþjóðamæl- ingum sem gerðar hafa verið und- anfarin ár á jafnrétti kynjanna reyn- ast Svíar vera efstir á lista. Þar í landi ríkir almenn viðurkenning á að kynin sitji ekki við sama borð og að það beri að grípa til mark- vissra aðgerða til að bæta þar úr. Árangur Svía í jafn- réttismálum byggist ekki síst á öflugum kynjarannsóknum og einstöku sambandi milli kvennahreyfinga og kynjarannsókna annars vegar og stjórnmálaflokka hins vegar. Sænskar rík- isstjórnir hafa stutt dyggilega við kynja- rannsóknir í þeim til- gangi að öðlast dýpri skilning á sænsku samfélagi og til að finna leiðir til úrbóta. Rannsóknir á stöðu kynjanna ná ekki að- eins til kvenna, heldur einnig til gagnrýnnar skoðunar á hugmyndum um karl- mennsku, stöðu ýmissa minni- hlutahópa, lýðræðis og réttlætis og nú síðast tengsla kyns og þess um- hverfis/náttúru sem við lifum í. Þótt margt hafi verið gert í jafnrétt- ismálum í Svíþjóð er þó langt í frá að björninn sé unninn. Þar ráða mið- aldra hvítir karlmenn ferðinni eins og annars staðar á Vesturlöndum. Nýlega sótti ég kynjafræðiráð- stefnuna Past – Present – Future í Umeå en þar var litið yfir farinn veg og horft til framtíðar. Þetta var mjög skemmtileg og fróðleg ráð- stefna og ég var hreinlega græn af öfund yfir styrk kynjafræðirann- sókna í Svíaríki. Eitt af því sem ég hlustaði á og vakti hrifningu mína var kynning á nýju verkefni sem er að fara af stað. Sænsk stjórnvöld hafa samþykkt að koma á fót þremur öndvegissetrum (Centre of Excellence) á sviði kynja- rannsókna. Hvert þeirra fær um 200 milljóna króna framlag á ári í fimm ár frá sænska vísindaráðinu en verða að afla frekari styrkja til rann- sókna sinna. Háskólarnir í Svíþjóð kepptu um að fá setrin og voru um- sóknir þeirra vegnar og metnar í ljósi gæða, nýjunga, alþjóða- samstarfs og fleiri þátta. Háskól- arnir sem hrepptu hnossið eru í Umeå, Uppsölum og Linköping/ Örebro. Það er afar fróðlegt að skoða áherslur öndvegissetranna. Setrið í Umeå gengur út frá hugtakinu ögr- un eða hólmgöngu (challenging). Það á t.d. að skoða lýðræði og rétt- læti á gagnrýninn hátt út frá kynja- sjónarhorni, ganga á hólm við við- teknar hugmyndir. Heilbrigðismál verða skoðuð á sama hátt, sem og kynbundið ofbeldi. Fleiri svið eru undir, t.d. hvernig fjallað er um til- finningar eða geðshræringar í bók- menntum, sögu, listasögu og fleiri greinum. Loks eru það svo hug- myndir um aðlögun eða hið viðtekna sem verða rannsakaðar, hvernig staðalmyndum kynjanna er viðhaldið, hvað er viðurkennt og hvernig kynjaímyndir spila þar inn í. Hvaða aðferðum er beitt við að steypa sem flesta í við- urkennd mót. Sjá www.umu.se/genus- forskning. Í Uppsölum er verk- efnaskráin mjög at- hyglisverð. Þar ber verkefnið yfirskriftina Náttúra og menning, farið yfir landamæri. Þar á að efna til þver- faglegrar samvinnu milli vísindamanna á sviði menningar- tengdra greina og nátt- úruvísinda. Það á að hefja umræðu milli kynjafræðinga og raun- vísindamanna sem hingað til hafa verið afar erfiðar vegna þess hvernig náttúruvísindi hafa verið notuð í hundruð ára til að halda konum niðri. Til skamms tíma voru ríkjandi alls kyns hugmyndir um ófullkomleika kvenna og enn er verið að troða upp á þær alls konar eiginleikum og eðli sem flestar kon- ur kannast ekkert við. Flestum fem- ínistum er afar illa við kenningar um líffræðilegan kynjamun (nema þann sýnilega) enda oft byggðar á fyr- irfram ákveðnum hugmyndum. Nú á að hefja samræður. Ráðstefna sem halda á nú í lok ágúst skýrir hvað stendur til en hún ber yfirskriftina Samfélag, dýr og kyn (Society, Ani- mals and Gender). Þar verður fjallað um tengsl manns, menningar og náttúru út frá ýmsum sjónarhornum en þau geta verið mjög kynjuð. Fyr- irlestrarnir fjalla m.a. um karl- mennsku í kjötauglýsingum, grimmd og karlmennsku sem birtist í dýraverndarlögum í Bretlandi á 19. öld (afstaða til dýra), kynjaðar tilvís- anir til dýra í tungumálinu, konur og hesta, dýrasögur og þannig mætti áfram telja. Rottu- og músarann- sóknir fá sinn skammt. Afstaða til dýra tengist hugmyndum um mann- inn (karlinn) sem höfuð sköp- unarverksins, manninn sem leyfir sér að fara með móður jörð og lífríki hennar eins og honum sýnist. Sjá www.genna.gender.uu.se. Þriðja setrið er í Linköping og Örebro en á síðarnefnda staðnum er Anna G. Jónasdóttir prófessor í kynjafræðum í forsvari. Áætlun þess seturs ber yfirskriftina Til móts við fjölþjóðlegar rannsóknir á breyttum kynjasamskiptum. Rannsóknin sem Anna ber ábyrgð á beinist að kyni, kynverund (sexuality) og al- þjóðaþróun. Í Linköping verða gagnrýnar karlarannsóknir í önd- vegi sem og áherslur á kynheilbrigði og rannsóknir sem snúa að hópum sem skoðaðir verða út frá fleiri breytum en kyni, t.d. uppruna, kyn- hneigð, kynþætti o.fl. eða það sem á ensku er kallað intersectionality. Hvenær skyldi sú stund renna upp hér á landi að kynjarannsóknir öðlist stöðu sem nauðsynlegur og mikilvægur hluti þeirra rannsókna sem auka skilning á íslensku sam- félagi og leiða til aukins réttlætis og jafnra tækifæra? Hvenær fáum við þó ekki væri nema eitt öndveg- issetur á sviði kynjarannsókna? Öndvegissetur í kynjafræði- rannsóknum Kristín Ástgeirsdóttir skrifar um kynjafræðirannsóknir Kristín Ástgeirsdóttir » Í Svíþjóð eruað fara af stað þrjú önd- vegissetur kynjafræði- rannsókna. Höfundur er forstöðumaður Rann- sóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands. MINNINGAR ✝ Hilmar JónHauksson fædd- ist 27. janúar 1950 í Reykjavík. Hann lést á krabbameins- deild Landspítalans við Hringbraut, fimmtudaginn 14. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Svava J. Brand, ritari og húsmóðir, f. 7.3. 1920 í Wynyard, Sask., Kanada, og Haukur Jósefsson, deildarstjóri hjá Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga, f. 11.11. 1915, á Vatnsleysu í Viðvík- urhreppi, Skagafirði, d. 3.9. 1999. Systkini Hilmars eru a) Þórunn Helga, f. 1.12. 1947, gift Guðmundi Sveinssyni, þeirra dætur eru 1) Svava Rán, gift Kristjáni Sigurðs- syni, þeirra synir eru Oliver og Nói, 2) Hildur Ýr, hennar maður er Viðar Magnússon og þeirra son- ur Ari Tómas. b) Björn Torfi, f. 4.12. 1956, kvæntur Laufeyju Birkisdóttur, þeirra börn eru 30.3. 1980, hennar börn eru Arnar Már og Katrín María. Hilmar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1970 og B.Sc. í sjávarlíffræði og grasafræði frá Háskólanum í Ban- gor N-Wales 1975. Hann tók stýri- mannapróf frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík 1973, var á Bjarnareynni og Gullberginu frá Vestmannaeyjum, bæði sem háseti og stýrimaður, og stundaði einnig sjávarrannsóknir. Hann sigldi Víkingaskipunum heim frá Noregi þjóðhátíðarárið 1974 og var úti- bússtjóri Hafró á Húsavík í eitt ár. Hilmar kenndi við Grunnskólann í Grundarfirði veturinn 1975-76, lauk prófi í uppeldis- og kennslu- fræði frá HÍ 1978 og hóf kennslu í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1979, þar sem hann starfaði til dauðadags. Hann lauk meist- araprófsritgerð frá HÍ árið 2003 um Eldi lagardýra með jarðhita í Vestmannaeyjum. Hann var afar fjölhæfur tónlistarmaður, lék á hvers kyns hljóðfæri og spilaði með fjölda hljómsveita bæði hér- lendis og erlendis. Eftir hann liggja bæði plötur og diskar. Hilmar verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju mánudaginn 25. júní kl. 13. Birkir Thor og María Elísabet. Hilmar var í sam- búð með Kari Ólafs- dóttur og eignuðust þau dótturina Söru, f. 8.5. 1983. Hilmar kvæntist 30.5. 1989 Salóme Benediktu Kristinsdóttur, f. 4.12. 1949, d. 27.8. 1993, þau eignuðust soninn Hauk Stein, f. 23.10. 1989. Salóme átti frá fyrra hjóna- bandi Kristin Sævar Thorarensen, f. 14.4. 1971, hans kona er Ásdís Guðrún Magn- úsdóttir, þeirra sonur er Eiður Andri. Hilmar kvæntist 11.6. 2007 eftirlifandi eiginkonu sinni Mo- niku D. Blöndal, f. 31.1. 1947, í Neuenkirchen, Þýskalandi. Börn Moniku frá fyrra hjónabandi eru a) Davíð, f. 23.8. 1972, hans kona er Kristín, þau eiga soninn Kára, b) Dagný, f. 13.9. 1972, hennar börn eru Sandra Sif og Pétur Andri, c) Stefán, f. 28.6. 1976, hans dóttir er Monika Sól, d) Stella, f. Það er gott að eiga stóran bróður þegar maður er að alast upp. Bróðir var fæddur kennari. Líffræðin skip- aði strax forustusætið. Haldnar voru ánamaðkasýningar þar sem maðk- arnir voru krufðir með viðhlítandi skýringum. Götubardagar voru dag- legt brauð í Hlíðunum og eiga þær kynslóðir sem þar ólust upp allar minningar um þessa bardaga. Oft var lögreglan kölluð til að stöðva leikinn áður en ungviðið fór sér að voða, Hilmar bróðir var þessi sem aldrei náðist. Einhverju sinni vant- aði öll eggin í ísskápinn en það fékkst skýring á því; þau höfðu verið notuð til að fleygja þeim yfir verslunina Krónuna í Lönguhlíðinni og komu þau öll niður í miðri Keflavíkur- göngu. Húsin hristust, rúður skulfu og stór gígur hafði myndast í miðri götu, svo stór að líktist því að gríð- arstór lofsteinn hefði ákveðið að lenda í miðri Barmahlíðinni. Pabbar, misrauðir í framan, birtust einn af öðrum við útidyrnar og tilkynntu móður okkar að sonum þeirra væri stanglega bannað að leika við Hilm- ar. Verkfræðingurinn hafði verið að störfum og ekki gætt að styrkleika sprengjunnar. Hilmar var einstak- lega heppinn með vini sem allir eiga það sameiginlegt að hafa góðan húm- or. Húmorsleysi var ófyrirgefanlegt og ekki miklum tíma eytt í fólk sem þannig var ástatt fyrir. Ævintýri voru ástríða, svo og tón- list og matargerð. Minnisstæðar eru útilegurnar með fjölskyldunni þegar lagt var upp í ferð á gamla Ópelnum. Pabbi keyrði og mamma frammi í, vopnuð brjóstsykurspoka, systir með bestu danslagatextana, bróðir með gítarinn og kverið spilað frá upphafi til enda. Þegar kom að bítla- lögunum hafði verið samið við mömmu um upplagðan tíma til að gefa pabba brjóstsykur, því pabbi var kórmaður og söng bassa, en Hilmar hafði alveg gefist upp á að reyna frekari skýringar á því að það væri enginn bassi hjá Bítlunum. Hilmar gat samt haft skoðanir eins og að Bítlarnir hefðu kannski getað þegið hjálp frá Óla Gauk við að út- setja þetta lag og svo spilaði hann lagið í annarri útsetningu. Hann lék á hljóðfæri sem enginn spilar á nema einhver kósakki í Rússlandi eða Sorba í Grikklandi og hefði náð lagi úr ryksugu hefði hann viljað. Ingi- björg Þorbergs fékk sinn skammt; Ari var lítill átta ára bítill sem reykti og drakk, mamman í ástandinu, afi og amman geggjuð, bróðirinn svart- ur og allt í steik hjá Ara, mjög svart- ur húmor, fullur af ádeilu og eins langt frá upprunalega textanum og hægt var. Matargerðin var eins, allt ætt, aðeins spurning um matreiðslu. Það var málað í olíu, vatnsliti, graf- íkin reynd og flestallt sem viðkemur listum. Hjálpsamur var Hilmar með eindæmum, hann vildi vita hvenær maður ætlaði að flytja, hvenær mað- ur ætlaði að mála íbúðina, flytja fyr- irtækið og var alltaf fyrstur á svæð- ið. Þegar illa gekk þá gat maður leitað til Hilmars, en þegar áföllin dundu á honum þá var það ekki rætt. Hilmar var mikill námsmaður og var í fyrsta eða öðrum árganginum í MH og að sjálfsögðu í hljómsveit þar, upphafinu að Stuðmönnum og kórn- um sem sá skóli er löngu landsþekkt- ur fyrir. Síðan lá leiðin til Bangor í Wales í sjávarlíffræðina. Ég man að hann tók sér frí einn vetur og kom heim, fór í stýrimannaskólann, tók alla bekkina saman og dúxaði, en ég sá hann aldrei með opna bók. Mér fannst hann alltaf í einhverju námi takandi þessa gráðu eða aðra og er löngu hættur að henda reiður á hvað hann var að nema. Hilmar var ein- staklega fjölhæfur maður og allt sem hann tók sér fyrir hendur var gert í botn og helst haldið upp á það. Hér sem ég sit og set þessar fátæklegu línur á blað í minningu bróður fæ ég fréttir af hesti sem ég á og er mér náinn, sem Birtingur heitir. Hann hefur kastað sér í sjóinn, synt í kjöl- far franska leiðangursskipsins og tekið land í Straumfirði á Mýrum. Það leiðir hugann að keltneskum uppruna okkar nú á Jónsmessunni, það er fleira sem prýðir góðan klár en gangur. Bróðir gat átt það til að kasta sér í sjóinn. Öll náum við landi að lokum. Minningin um bróður minn er sú að þar fer skemmtilegur maður sem kemur örugglega til með að lífga upp á himnaríki. Við skulum hafa það skemmtilegt. Ég og fjöl- skylda mín biðjum góðan guð að styrkja börnin hans tvö og aðra að- standendur á þessum tímamótum og þökkum öllu því góða fólki sem ann- aðist hann í veikindunum Björn Torfi (Bonni), Laufey og börn. Hilmar bróðir minn var maður líð- andi stundar og þá alveg sér í lagi gleðistundar. Hann vildi hafa gam- an. Og það var sannarlega oft gam- an, mikið fjör og mikið talað. Við systkinin ólumst upp í Hlíð- unum í faðmi stórfjölskyldunnar. Uppi á lofti bjuggu afi og amma og á hæðinni fyrir neðan voru pabbi og mamma með okkur börnin þrjú. Á þeim árum voru Hlíðarnar paradís okkar barnanna, lóðirnar flestar ófrágengnar, malargöturnar og portin helstu boltavellirnir og kál- garðar borgarbúa í Kringlumýrinni voru ígildi stærstu frumskóga. Gamli golfvöllurinn, Öskjuhlíðin með dular- fullum stríðsminjum, Stóri-pollur, sem hefur sennilega slagað hátt upp í Þingvallavatn að stærð í okkar aug- um, allt hafði þetta aðdráttarafl sem ekki var hægt að standast. Fyrir uppátektarsama krakka var ekkert til sem gat mögulega tekið þessu fram og Himmi var sannarlega einn af þeim. Boð og bönn mömmu voru svo ótrúlega fljót að gleymast og áð- ur en við vissum af vorum við mætt við Stóra-poll enn eina ferðina, þrátt fyrir allar aðvaranir, Himmi og fleiri strákar komnir út á flekaræfil, sem engu hélt og komnir í vandræði. Í landi var hlaupið, hrópað og kallað, góð ráð gefin til hægri og vinstri og allt reynt til bjargar án hjálpar full- orðinna en okkur til mikillar furðu var þessi sjómennska furðu illa séð af foreldrum. Þannig var reyndar um ýmislegt fleira. Heimatilbúnar sprengjur voru t.d. mjög illa séðar og ýmislegt efnafræðifikt þótti í meira lagi varhugavert. Enda mun heyrn uppfinningamannanna ekki hafa batnað neitt sérstaklega við þessar tilraunir. Kálgarðahernaðurinn átti það til að enda í brenninetlurunna, sem hafði langvarandi afleiðingar og varð að forðast í lengstu lög, nú eða einhver fullorðinn kom til skjalanna og upphófst þá eltingaleikur upp á líf og dauða. Á rigningardögum lá Himmi í alfræðibókum, setti saman módel og mekkanó, varð að sjá hvernig allt virkaði. En allt voru þetta skref á þroska- brautinni. Seinna tóku við annars konar siglingar, markvissari hlaup og aðrar tilraunir, en allt gert af jafn mikilli ástríðu og fyrr, allt lesið og kannað í þaula svo fullkomnun yrði náð. Orgelið hennar mömmu var mikið notað, spilað eftir eyranu og sungið með og aldrei gleymist sá merki at- burður þegar fyrsta Bítlaplatan var spiluð, 45 snúninga plata, á grammó- fón sem Himmi hafði eignast. Á okkar æskuheimili var mikið tal- að. Miklir ræðumenn eru í báðum ættum og til siðs að hafa skoðun. Ekkert gefið eftir í rökræðum og sögur sagðar hvort heldur var vest- an úr Ameríku eða norðan úr Skaga- firði. Þegar rætt var um menn og málefni var aðeins einn mælikvarði notaður, hafði maðurinn húmor? Þeir sem höfðu húmor voru „all right“. Hvorki var að finna öfund né ágirnd í garð náungans og skilaboðin til okkar systkinanna voru í þá átt, að vera ánægður með sig og sitt frekar en stöðugur samanburður við aðra. Þessu finnst mér Hilmar hafa verið trúr, hann hafði góðan húmor, sagði skemmtilega frá, hafði skoðanir á flestu, var ánægður með sitt og fór sannarlega ekki troðnar slóðir. Þórunn Helga Hauksdóttir. Á kveðjustund kemur svo margt upp í hugann, bjartar minningar af öllu tagi, en allt í einu erum við Hilm- ar stödd saman á tónlistarsögusafn- inu í Þrándheimi fyrir tæpum ald- arfjórðungi. Hilmar átti erindi í borginni á sama tíma og ég og í mín- um huga kom ekkert annað til greina en að heimsækja safnið. Það var fal- legur dagur og við eyddum löngum tíma í lystigarðinum frá 19. öld, feng- um okkur hressingu og spjölluðum. Við fórum saman inn í safnhúsið sem hafði einu sinni verið bernsku- heimili sjóhetjunnar Tordenskjolds. Þar vorum við leidd um af ungu leið- sögufólki sem sagði frá og spilaði á Hilmar J. Hauksson Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.