Morgunblaðið - 25.06.2007, Page 25

Morgunblaðið - 25.06.2007, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 25 ✝ Ester SigurlaugKristjánsdóttir fæddist í Stykk- ishólmi hinn 4. febrúar 1931. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri hinn 16. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Kristján Magnús Rögnvaldsson vél- smiður, f. 1900, d. 1965, og Rannveig Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 1909, d. 2003. Ester átti sex systkini, þau eru: Sigurður Amlín, f. 1933, Guðmundur, f. 1936, Guðrún Ragna, f. 1937, Ólafur, f. 1940, Edda Svava, f. 1947, og Þuríður, f. 1950. Ester giftist 1.9. 1953 Vern- harði Sigursteinssyni, f. 7.12.1929. Foreldrar hans voru Sigursteinn Gunnlaugsson sjó- maður, f. 1896, d. 1959 og Krist- ín Jóhannesdóttir húsmóðir, f. 1893, d. 1957. Þau eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Kristín Regína, f. 1953, sonur hennar er Vernharð S. Þorleifsson, f. 1973, börn hans eru Rannveig Íva, f. 1997 og Kristján Ríkarður, f.1998. 2) Rannveig Sjöfn, f. 1954, gift Alexander Pálssyni, f. 1956. Synir þeirra eru Gauti, f. 1979, Sindri, f. 1984, og Tjörvi, f. 1988. 3) Kristján Rögnvaldur, f. 1963, kvæntur Sig- ríði Jakobsdóttur, f. 1955. Sonur þeirra er Almar Daði, f. 1992. Börn Sigríðar eru Jakob, f. 1973, Einar, f. 1977 og Elísabet, f. 1979. Ester, eða Eddý, eins og hún var alltaf kölluð, ólst upp í Stykkishólmi og lauk þaðan hefð- bundinni skóla- göngu. Hún hóf nám við Versl- unarskóla Íslands en óhapp sem leiddi til langrar sjúkralegu varð til þess að hún hætti námi þar. Hún nam síðan eitt ár við Hús- mæðraskólann Ósk á Ísafirði. Hún fór að vinna sem tal- símavörður hjá Landssímanum, fyrst í Stykkishólmi og síðan á Akureyri. Þar kynntist hún eft- irlifandi manni sínum og búsetti sig þar. Hún vann áfram hjá Landssímanum, síðustu árin sem varðstjóri. Árið 1999, þá orðin ellilífeyrisþegar, fluttu hjónin til Danmerkur og bjuggu þar í rúm 3 ár. Árið 2002 komu þau aftur til Akureyrar og bjuggu þar síð- ustu æviár hennar. Útför Ester- ar verður gerð frá Glerárkirkju á Akureyri í dag og hefst at- höfnin klukkan 14, Elsku mamma. Það er erfitt að skrifa síðustu kveðju til þín. Það var svo sárt að sjá þig lúta í lægra haldi fyrir sjúkdómn- um og um leið var það gott að þú fékkst frið og hvíld frá sársaukafullri baráttu. Þú varst mamma með stóru emmi og amma með enn stærra ai. Orðin fórnfýsi og umhyggja lýsa þér best. Best leið þér ef einhver þurfti á þér að halda og gast hlustað enda- laust þegar aðrir þurftu að tala. Eng- um hallmæltir þú og barst alltaf í bætifláka fyrir þá sem misstigu sig á lífsins vegi. Húsmóðurhlutverkið var þér mikils virði, heimilið átti að vera hreint, fötin hrein og heil og maturinn lystugur. Haustin voru til að birgja heimilið upp af mat til vetrarins og þó ekki væru alveg öll börnin jafnhrifin af vambasaumi og mörbrytjun, var sko ekkert múður liðið, við hefðum gott af að læra þetta. Sennilega hefur þú bara haft alveg rétt fyrir þér. Handavinnukona varstu líka, prjón- lesið óx niður af prjónunum, peysur, húfur, sokkar og vettlingar. Heima- saumaðir kjólar og önnur plögg urðu til fyrir hátíðisdagana og ófáir ösku- dagsbúningar voru framleiddir. Fram í andlátið varstu með heklunál- ina á lofti að undirbúa brúðkaup í fjöl- skyldunni. Þegar við lítum tilbaka er ótrúlegt að þú skyldir koma öllu þessu í verk og vinna jafnframt utan heimilis. Okkur var uppálagt að tala fallega og rétta íslensku og ófáir af yngri kynslóðinni hafa setið hjá þér með heimaverkefnin sín. Þegar þið pabbi svo fluttuð til Danmerkur lentu þínir grænu fingur í gósenlandi. Stór garður, nýjar tegundir af blómum og öll ávaxtatrén. Berjarunnar, græn- meti og kryddjurtir. Þú varst í essinu þínu, jákvæð og með opinn huga fyrir öllu nýju. Litla sveitaþorpið féll líka fljótt fyrir ykkur, þið eignuðust marga góða vini og áttuð frábær ár þar. Fjölskyldan var þér mikils virði, þið komuð heim og allir áttu hjá þér skjól. Ömmubörnin og langömmu- börnin voru gimsteinarnir þínir, þér fannst þú svo rík. Talaðir þó oft um að þér fyndist þú ekki geta gert nóg fyrir þau. Alltaf tilbúin að gefa meira af þér. Orðin eru fátækleg en skrifuð frá hjartanu, elsku mamma, takk fyrir það sem þú gafst okkur í veganesti. Sagt er að ófæddar sálir velji sér for- eldra, við vorum heppin sem völdum þig fyrir mömmu og kveðjum þig með sárum söknuði. Regína, Rannveig og Kristján. Ég vil byrja á að þakka Guði fyrir að hafa gefið mér þessar seinustu mínútur með þér sem ég fékk, þar sem við vissum bæði að þær yrðu okk- ar seinustu saman. Mínútur sem við nýttum okkur til að segja allt sem segja þurfti, þó svo að við höfum tal- ast við nánast á hverjum degi síðan ég man eftir mér. Sama hvar ég var í heiminum þá hringdir þú í mig og minntir mig á að skipta um á rúminu, ganga ekki í sömu sokkunum dag eft- ir dag og að þrífa klósettið. Það skipti þig engu máli hvar ég var, það skipti þig bara máli að ég var þar. Ég skildi aldrei hvernig þú gast verið svona æðrulaus og skilningsrík gagnvart öllu og öllum og það fór oft í taug- arnar á mér þegar þú varst að pre- dika yfir mér hversu mikilvægt þetta væri. En þegar ég sá þig á sjúkrahús- inu og gerði mér ljóst að þú værir í raun að fara frá mér, þá skildi ég hvers virði það er að geta horft um öxl á líf eins og þú kaust að haga þínu. Þeir sem fengu að kynnast þér elsk- uðu þig og þeir sem minnast þín sakna þín. Í hvert skipti sem einhver ljúf rödd hvíslar að mér að hugsa minn gang og minnir mig á að bera virðingu fyrir öðrum þá verður það þín rödd. Í hvert skipti sem ég legg mig fram af öllum mætti fyrir aðra og næ að bægja sjálfselsku frá mér þá varst það þú sem kenndir mér hvers virði það er. Þú ert fallegasta mann- eskja sem ég hef kynnst og ég mun leggja mig allan fram við að kenna börnunum mínum (okkar) allt það sem þú þreyttist aldrei á að kenna mér. Kristján og Jóel „vilja þakka þér fyrir allt. Þú varst góð, mjög góð og við vonum að þér líði vel. Og takk fyr- ir að vera til og takk fyrir bestu pönnukökur í heimi. Og Guð blessi þig.“ Við eigum öll eftir að sakna þín sár- lega þó að við vitum að þú farir ekki langt, eins og þú lofaðir. Vernharð Þorleifsson, Magga Gísladóttir, Kristján og Jóel. Elsku amma mín. Þú varst einstök, því getur enginn neitað sem varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast þér. Ég á ævinlega eftir að muna eftir þér og öllum þeim góðu stundum sem við áttum saman. Ég veit þér þótti vænt um okkur barnabörnin og þú varst alltaf mjög mikil amma. Á eftir foreldrum mínum varst þú örugglega mikilvægasta manneskjan í lífi mínu, ég gat alltaf leitað til þín og talað við þig um allt mögulegt. Ég mun aldrei gleyma því þegar þú bjóst fyrir ofan okkur, ég í Austurbergi, þið afi í Austurhlíð og ég heimsótti ykkur nánast á hverjum degi. Svo þegar ég heimsótti ykkur til Danmerkur í 6 vikur þegar ég var 8-9 ára. Og allar góðu stundirnar sem við áttum eftir að þið fluttuð svo heim. Þegar þú veiktist af krabbameininu tókstu því með ótrúlegu æðruleysi allt fram að síðustu stundu. Þú átt fastan stað í hjarta mínu og ég á alltaf eftir að sakna þín. Almar Daði Kristjánsson. Ég kynntist Eddý frænku fyrir um 45 árum. Við vorum fjórir skólapiltar, sem leigðum hjá þeim Venna í Mýrargöt- unni. Fyrir í fjölskyldunni voru tápmikl- ar yngismeyjar, Regína og Rannveig, en sonurinn Kristján kom í heiminn undir lok þessa hernáms. Ekki var skólapilturinn að velta fyrir sér því álagi sem lagt var á fjöl- skylduna og þá ekki hvað síst á hús- móðurina, sem fyrir utan að sinna þessu þunga heimilishaldi, vann á Símanum, ýmist hálfan eða heilan daginn. Skrambakornið að maður lyfti hendi til viðviks; skömm frá því að segja í dag. Afsakanir eru vitaskuld engar, en málið er það, að Eddý kveinkaði sér aldrei. Hún erfði þá eiginleika for- eldra sinna, að vinna verkin snarlega, án þess að eftir því væri tekið. Annar snar þáttur í hennar skap- gerð var að svara ekki viðmælanda, fyrr en hann hafði lokið því sem hann vildi sagt hafa. Hún greip ekki fram í og svaraði heldur ekki fyrr en hún var búin að gaumgæfa málið. Af þessu urðu stuttar þagnir í samtali sem veittu orðræðu hennar aukið vægi. Alltaf gaf hún sér tíma til að spjalla, fá sér kaffisopa og fara með gaman- mál, þrátt fyrir langan vinnudag. Nú er þessi sómakona öll, fyrir ald- ur fram, eftir langvinna og æðrulausa baráttu við þann sjúkdóm sem svo margan manninn hefur lagt af velli. Guð blessi hennar minningu. Venna, dætrum og syni og þeirra fjölskyldum, systkinum og venslafólki úr Hólminum, sendum við hjónin samúðarkveðjur. Jónas Matthíasson. Þegar ég var lítil stelpa vestur í Stykkishólmi fannst mér alltaf ein- hver töfraljómi yfir Akureyri. Þegar ég lít til baka geri ég mér grein fyrir því að það var ekki aðeins fegurð Ak- ureyrar og ,,góða veðrið“ þar í bæ, sem þessum hughrifum ollu, heldur líka Eddý frænka mín sem þar bjó og við kveðjum í dag. Eddý var einstök kona, sem gott var að eiga að hvenær sem var og hvar sem var. Takk, elsku Eddý, fyrir allar þær stundir sem við áttum saman. Þær eru mér dýrmætar. Þín frænka Lára Lúðvígsdóttir. Ester Sigurlaug Kristjánsdóttir  Fleiri minningargreinar um Ester Sigurlaugu Kristjánsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. helstu hljóðfærin sem þar var að sjá. Þau voru frá öllum heiminum og frá öllum tímum. Nokkur herbergi voru tileinkuð helstu tónskáldum. Ég fann að Hilmar hefði vel getað hugs- að sér svona leiðsagnarstarf. Við seinna tækifæri færði Hilmar mér gular rósir sem voru uppáhalds- blómin mín. Hann sagðist nefnilega muna það síðan ég sagði honum það í lystigarðinum á tónlistarsafninu. Þannig hugulsemi einkenndi hann og lýsir honum svo vel. Þetta er mín eftirminnilegasta heimsókn af mörgum þangað. Hilm- ar talaði oft um safnið og gerði það líka í síðasta skiptið sem við hittumst nú í vor. Okkur samleið hefur varað í 35 ár og ég þakka samfylgdina, minningin um hann mun lifa. Það er sárt að kveðja en gott er að hugsa til þess að nú sé þjáningunum lokið. Ég mun alltaf minnast Hilmars með gleði og þakklæti. Ég votta móður hans, börnum og öðrum ástvinum mína dýpstu samúð. Heidi Strand. Vinur okkar og samstarfsmaður, Hilmar Jón Hauksson, er fallinn frá langt um aldur fram. Okkur setti öll hljóð þegar við fréttum að hann væri látinn, en samt sáu allir að hverju stefndi þegar við kvöddumst við skólaslitin í vor. Það verður ekki annað sagt en að Hilmar hafi barist eins og hetja við þennan vágest, sem sigraði hann að lokum. Það er stórt skarð höggvið í kenn- arahóp Fjölbrautaskólans í Breið- holti og samstarfsmenn og nemend- ur munu sakna hans sárt. Hilmar kom til starfa við skólann í september 1979 og hafði kennt hér allar götur síðan. Hann var einn af aðal-líffræðikennurum skólans, og svo miklar sögur fóru af frábærri kennslu hans, að eftir að hann veikt- ist óskuðu nemendur eftir því að hann kenndi þeim eins mikið og hann treysti sér til, og voru nemendur til- búnir að hliðra til í stundatöflu bara ef þeir gætu fengið hann sem kenn- ara. Þetta segir meira en langar töl- ur um hversu dáður Hilmar var sem fræðimaður og kennari. Hilmari var margt til lista lagt. Hann var frábær hljóðfæraleikari, lagahöfundur og söngvari. Þegar hann kvaddi okkur samstarfsmenn sína núna í vor gaf hann öllum hljóm- disk sem hann hafði búið til og til- einkaði vinum sínum, Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti og nemendum skólans. Hann hafði samið öll lögin og texta sjálfur og einnig söng hann og spilaði undir á hljóðfæri. Þetta sýnir hvílíkur kraftur og lífsvilji bjó í honum. Hilmar hafði ákveðið að fara til út- landa í sumar, en örlögin réðu því að hann fór í aðra ferð sem við öll eigum eftir að fara í. Við munum minnast Hilmars sem góðs félaga og frábærs kennara,en nú er röddin hans þögnuð, og það verður erfitt að hefja skólastarfið í haust án hans Starfsfólk og nemendur Fjöl- brautaskólans í Breiðholti kveðja góðan dreng og þakka fyrir þau ár sem við fengum að njóta hans. Við vottum fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. F.h . kennara og starfsfólks Fjöl- brautaskólans í Breiðholti, Stefán Benediktsson. Nú þegar sumarblíða og blóma- ilmur eru í lofti gerir dauðinn enn einu sinni vart við sig og tekur frá okkur ljúfan, dugmikinn og skemmtilegan samstarfsmann. Hilmar J. Hauksson, vinur okkar, er genginn alltof snemma. Góður drengur sem átti eftir að gera margt, sem hann ætlaði að koma í verk. Við höfum þekkst í nær þrjá ára- tugi, en síðustu 15 árin, síðan blak- félagið Flatmagar var sett á laggirnar í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti, fengum við að kynnast Hilmari mun betur. Þar komu til æfingarnar sem voru tíðar og ferðalögin fylgdu í kjölfarið til að taka þátt í mótum sem haldin voru víða um landið. Tónlist, söngur og skemmtiatriði voru alltaf með í för- inni því Hilmar ferðaðist ætíð með gítar og harmóníku okkur öllum til gamans. Hilmar var ævilangt ráðinn sem veislustjóri okkar, enda manna best til þess fallinn. Frá stofnun var Hilmar formaður Flatmaga og helsti drifkraftur félagsins. Stórt skarð er höggvið í leikmannahópinn okkar og verður hans ávallt minnst. Fyrir hálfu öðru ári greindist Hilmar með krabbamein í lungum og af þeim sökum varð hann að hætta að mæta á æfingar á meðan spítalad- völ og lyfjameðferð stóðu yfir. Hilm- ar sýndi þá hvað dugnaður hans og hugrekki var mikið, öðrum eins bar- áttuvilja og kjarki höfum við ekki kynnst. Með vorinu byrjaði hann aft- ur að æfa blakið með okkur og lyfta upp andanum í þeim góða fé- lagsskap. Við spurðum hann oft hvernig líðanin væri á meðan hann barðist við banvænan sjúkdóm og alltaf var svarið á þann hátt að hann hefði trú á lífinu og á sigur á veikind- unum. Einu sinni svaraði hann okk- ur, eftir að hægra lunga hans hafði verið fjarlægt: „Vitið þið, núna get ég ekki lengur hlaupið heilt mara- þon, en ég get hlaupið hálft.“ Við blakfélagarnir höfðum fylgst með Hilmari takast á við sjúkdóminn af miklum kjarki, þrautseigju og æðruleysi, ætíð jákvæður og sann- færður um að geta sigrað að lokum. Í dag kveðjum við dyggan for- mann, liðsmann og vinnufélaga með þakklæti. Nærveru hans, félagslynd- is og hlýlegs viðmóts verður sárt saknað. Móniku, eiginkonu hans og fjölskyldu vottum við okkar dýpstu samúð. F.h. blakfélagsins Flatmaga í FB, Torfi Magnússon, þjálfari, Jesús Potenciano, fyrirliði. Leiðir okkar undirritaðra og Hilmars lágu fyrst saman í hljóm- sveitinni Náttfara sem starfaði á Húsavík á árunum 1979 til 1981. Þar nutum við fjölhæfra tónlistarhæfi- leika Hilmars, sem gat spilað á öll þau hljóðfæri sem sett voru uppí hendurnar á honum. Eins og Nátt- fari forðum, sem fór sínar eigin leiðir í landnámi sínu við Skjálfandann, fór Hilmar oft eigin leiðir með óhefð- bundinni túlkun sinni í lagasafni sveitarinnar og spilaði, ef þurfti, á fleiri en eitt hljóðfæri í einu, eftir því sem tónlistinni hæfði eða andinn blés honum í brjósti. En fleira átti Hilmar sameiginlegt með landnemanum Náttfara, því til Húsavíkur kom hann einmitt sigl- andi seglum þöndum á víkingaskip- inu Hrafninum. Já, Hilmar Hauks- son var sannkallaður landnemi á hinum ýmsu sviðum lífsins. Hann samdi fjöldann allan af söngleikjum og lögum og gaf út hljómplötur, og nú síðast fyrir nokkrum vikum gaf hann út hljómdisk. Á Húsavíkurár- unum áttum við oft boð í mat, en þá hristi hann fram úr lopaerminni „þvílíka“ alþjóða matarrétti, en rúss- neska kjötsúpan hans var og verður öllum sem hana fengu, alltaf ógleym- anleg. Við minnumst þess að oft þeg- ar við heimsóttum hann, var hann að semja leikrit með hægri hendinni, eins og t.d. þegar hann samdi söng- leikinn Landkrabbar, um leið og hann fór yfir prófverkefni með þeirri vinstri, og munaði hann lítið um það. Síðastliðin tíu ár voru Daði og Hilmar í góðu sambandi og spiluðu saman tónlist af og til, eða þar til fyr- ir 2 árum þegar Hilmar veiktist. Fyrir nokkrum vikum, þegar vel leit út með bata, vöknuðu vonir um að við gætum farið að telja inn aftur í næsta lag, en við verðum að bíða með það þar til síðar í nýju landnámi. Við sem fengum að spila með Hilmari í nokkrum þáttum í lífs-sin- fóníu hans, erum ævinlega þakklátir fyrir hlýlega nærveru hans, geisl- andi bros og óborganlegan húmor. Við sendum eiginkonu hans, dóttur og syni okkar innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum hinn hæsta höf- uðsmið ljóssins og kærleikans að gefa þeim styrk. Steingrímur B. Gunnarsson og Þorvaldur Daði Halldórsson.  Fleiri minningargreinar um Hilm- ar J. Hauksson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.