Morgunblaðið - 25.06.2007, Síða 31

Morgunblaðið - 25.06.2007, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 31 Atvinnuauglýsingar Kranamaður óskast Óskum eftir að ráða kranamann með réttindi. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar í síma 861 1401. Á.B. Lyfting ehf. ⓦ Blaðbera vantar í Hveragerði í afleysingar og einnig í fasta stöðu Upplýsingar í síma 893 4694 eftir kl. 14.00 ⓦ Blaðbera vantar á Blönduós Upplýsingar í síma 569 1440 Atvinna óskast Dýralæknastofan í Garðabæ leitar eftir aðstoðarfólki Í starfinu felst afgreiðsla, símsvörun aðstoð við dýralækna o.fl. Við leitum að framtíðarstarfs- krafti sem á gott með mannleg samskipti, getur unnið undir álagi og er sjálfstæður og heiðarlegur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir ásamt meðmælum og ferilskrá sendist á netfangið: bjorn@dyralaeknastofan.is eða í pósti á: Dýralæknastofan, Lyngási 18, 210 Garðabær, fyrir 1. júlí 2007, merkt starfs- umsókn. Raðauglýsingar 569 1100 Tilboð/Útboð Lóðir & lagnir Einn verktaki í allt verkið Tökum að okkur verk fyrir fyrirtæki, stofnanir, húsfélög og einstaklinga. Grunnar, hellu- lagnir, snjóbræðslulagnir, dren, skolplagnir, lóðafrágangur o.fl. Gerum föst verðtilboð. Ólafur 897 2288/Guðjón 896 1001. Ýmislegt Félagslíf 24. - 29.6. Lónsöræfi (6 da- gar) Brottför kl. 08:30. 0706LF02 V. 24.500/28.200 kr. 28.6. - 1.7. Sveinstindur - Skælingar (4 dagar) Brottför frá BSÍ kl. 08:30. 0706LF04 Fararstj. Steinar Frímannsson. V.28.200 kr./32.100 kr. 29.6. - 1.7. Fimmvörðuháls Brottför frá BSÍ kl. 17:00. 0706HF06 Lagt af stað í skála Útivistar á Fimmvörðuhálsi á föstudagskvöldi. Daginn eftir verður gengið niður í Bása þar sem gist verður næstu nótt. V. 13.100/15.900 kr. 30.6. - 8.7. Vatnajökull (9 da- gar) Brottför frá skrif- stofu Útivistar kl. 08:30. 0706LF06 Krefjandi gönguskíðaferð yfir stærsta jökul Evrópu. Þátttaka háð samþykki fararstjóra. Fararstj. Reynir Þór Sigurðsson. Sjá nánar á www.utivist.is. Raðauglýsingar sími 569 1100 Fréttir á SMS AUGLÝSINGASÍMI 569 1100 Efnistaka í Hrossadal í Mosfellsbæ Mat á umhverfisáhrifum - álit Skipulags- stofnunar Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt á mati á umhverfisáhrifum efnistöku í Hrossadal í Mosfellsbæ samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. Niðurstaða Skipulagstofnunar er að helstu umhverfisáhrif framkvæmdarinnar lúti að ónæði vegna umferðar efnisflutningabifreiða fyrir dvalargesti í frístundabyggð í nágrenninu, auk þess sem þungaflutningarnir geti haft í för með sér neikvæð áhrif á núverandi umferðar- öryggi og að mikilvægt sé að endurbætur verði gerðar á Nesjavallavegi í samráði við Vega- gerðina. Þá telur Skipulagsstofnun að að ekki hafi verið sýnt fram á hver verði áhrif hávaða frá sprengingum og annarri starfsemi á efnistökusvæðinu í frístundabyggðinni og að framkvæma þurfi tilraunir með sprengingar í því námusári sem fyrir er á svæðinu til þess að mæla titringsáhrif og hljóðstig í frístunda- byggðinni. Með ákvæðum í framkvæmdaleyfi er að mati Skipulagsstofnunar unnt að setja skilyrði sem tryggja að hávaði frá sprengingum og annarri starfsemi á efnistökusvæðinu verði viðunandi í frístundabyggðinni. Álitið í heild liggur frammi hjá Skipulagsstof- nun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Álit Skipu- lagsstofnunar og matsskýrslu Stróks ehf. má sjá á heimasíðu stofnunarinnar: www.skipulag.is Skipulagsstofnun ✝ Stella Árnadótt-ir fæddist í Reykjavík 26. júní 1931. Hún lést á hjartadeild Land- spítalans 19. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Árni Pálsson bif- reiðastjóri, f. á Reynifelli á Rang- árvöllum 6. febrúar 1893, d. 15. ágúst 1958, og kona hans Ingibjörg Sveins- dóttir, f. á Felli í Biskupstungum 15. þeir eru Jón Einar, f. 1949, Björn, f. 1950, og Árni, f. 1963, sambýliskona Bozena Zofia Ta- baka. Sonur hennar er Andreas Tabaka. Stella ólst upp í Reykjavík. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Ingimarsskólanum. Hún starfaði jafnan utan heimilis við versl- unarstörf í ýmsum verslunum, samhliða heimilisstörfum, lengi í Skóbúð Lárusar G. Lúðvíkssonar og síðar í verslunum KRON, síð- ast í Domus við Laugaveg. Árið 1980 lauk hún prófi frá Sjúkra- liðaskóla Íslands og starfaði eftir það á ýmsum deildum Borg- arspítala og Landspítala, og síðar á geðdeild Landspítalans uns hún lét af störfum í árslok 2001. Útför Stellu verður gerð frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. maí 1902, d. 28. apríl 1988. Systur Stellu eru Sveinrún Árna- dóttir, f. 7. sept- ember 1925, d. 21. desember 1997, Elín Árnadóttir Jenssen, f. 17. maí 1928, bú- sett í Noregi, og Sig- ríður Helga Árna- dóttir, f. 8. ágúst 1929, búsett í Hafn- arfirði. Árið 1948 giftist Stella Böðvari Jóns- syni málara. Þau eignuðust þrjá syni, Í dag kveðjum við mæta konu, Stellu Árnadóttur, með trega í hjarta og miklum söknuði. Með orð- um mun mér aldrei takast að lýsa hversu einstök Stella var. Með sínum einstaka hætti gerði Stella gleðileg tilefni enn gleðilegri með nærveru sinni. Ég á margar góðar og bjartar minningar um hana og með henni, sem ég mun varðveita í hjarta mínu. Dýrmætust þeirra allra er minning- in sem ég á um hana laugardaginn 16. júní síðastliðinn. Ég er þakklát fyrir að við fjölskyldan skyldum eiga þennan dag saman og gleðjast og njóta samverunnar með Stellu. Það hvarflaði ekki að okkur að þetta yrði síðasta skiptið sem Stella myndi vera með okkur. Hún var sjálfri sér lík þennan dag, glæsileg og falleg. Hún geislaði sem sólin. Þótt hún hafði átt við nokkur veikindi að stríða undanfarið lét hún það ekki stoppa sig í að trítla upp á þriðju hæð í háhæluðum skóm. Við stilltum okk- ur upp og létum taka myndir af okk- ur á þessum dásamlega laugardegi. Eru það einu myndirnar sem ég á af okkur saman þó hún Stella mín hafi verið í lífi mínu í tæp 30 ár. Ég hugsa til þess með miklum trega að ná áfangasigrum í lífinu og Stella verð- ur ekki þar til að gleðjast með mér. Ég er jafnframt þakklát fyrir þær gleðistundir sem við áttum saman. Mun ég ylja mér við þær góðu minn- ingar um ókomna tíð. Stella var eins konar andleg víta- mínsprauta fyrir mig. Í hvert skipti sem við hittumst eða töluðum í síma, styrkti hún mig og hvatti með upp- örvandi orðum. Tómarúm hefur myndast innra með mér við fráfall Stellu, en ég veit að hún vakir yfir okkur öllum sem elskuðum hana á himnum, hjá algóðum Guði. Ég var þeirrar blessunar aðnjót- andi að eiga Stellu að í gleði og sorg. Minningin um dásamlega góða konu mun með tímanum fylla upp í tóma- rúmið. Elsku Böddi, Jón Einar, Bjössi, Árni og Bozena og aðrir aðstandend- ur og ástvinir, ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu Stellu Árnadóttur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Elsku Stella, Guð launi þér fyrir mig. Þín Nanda María. Elsku Stella mín Ég kveð þig með miklum söknuði kæra frænka. Þú varst 16 ára þegar ég fæddist og ég var skírð í höfuðið á þér. Þú varst yngsta systir hennar mömmu minnar af fjórum systrum. Mamma var næst yngst af ykkur systrum, svo þið voruð miklar vin- konur. Þú hefur alla mína ævi verið mér miklu meira en móðursystir. Alltaf léstu mig vita af því hvað þér þótti vænt um mig, nöfnu þína, og að þér fyndist þú eiga heilmikið í mér. Ég væri í raun dóttirin sem þú eignaðist ekki. En þú eignaðist þrjá stráka og enga stelpu, sem eru góðir frændur mínir í dag. Væntumþykjan var og er gagnkvæm elsku Stella mín. Ég hef alla tíð verið ánægð með nafnið okkar og nú er þriðja Stellan komin í fjölskylduna svo að nafnið þitt lifir. Það var dálítið í þínum anda að skilja við okkur á kvenréttindadag- inn 19. júní, án þess þó að þú værir sérstök kvenréttindakona. Þú varst hjartahlý, falleg og skemmtileg kona. Takk fyrir samveruna, elsku Stella mín. Hvíl í friði. Þín nafna, Stella. Stella Árnadóttir Kær vinkona, Stella Árna- dóttir, er kvödd í dag. Margs er að minnast og þakka. Hún var gefandi í mannlegum sam- skiptum, átti auðvelt með að setja sig í spor annarra, réttsýn og uppörvandi. Hún var ljós vonarinnar. Stella sótti styrk í trúna, bæði fyrir sjálfa sig og aðra. Ég þakka Stellu samfylgdina og bið henni Guðs blessunar í heimi ljóss og friðar. Borghildur Maack. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.