Morgunblaðið - 25.06.2007, Síða 33
Fréttir
í tölvupósti
ÓNEFND sölu-
kona í Hanoi í
Víetnam ber
smáverslun sína
um á höfðinu.
Brauð er það
sem hún býður
upp á, fyrir
rétta upphæð.
Reuters
Brauð
til sölu!
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 33
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá kl. 9-16.30.
Viðtalstími hjúkrunarfræðings frá kl. 9-11. Boccia kl.
10. Félagsvist kl. 14.
Árskógar 4 | Bað kl. 8-16. Handavinna kl. 9-12.
Smíði/útskurður kl. 9-16.30. Félagsvist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna, morg-
unkaffi/dagblöðin, fótaaðgerðir, hádegisverður,
kaffi. Upplýsingar í síma 535 2760.
Dalbraut 18-20 | Brids alla mánudaga í sumar frá
kl. 13 í félagsmiðstöðinni á Dalbraut 18-20.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan í Gull-
smára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10-
11.30. S. 554 1226. Skrifstofa FEBK í Gjábakka er
opin á miðvikudögum kl. 13-14. Félagsvist er spiluð í
Gullsmára á mánudögum kl. 20.30, en í Gjábakka á
miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30.
Félag eldri borgara í Kópavogi, ferðanefnd | 3
daga Vestmannaeyjaferð 2.-4. júlí. Skráningarlistar
og nánari ferðalýsing í Gullsmára og Gjábakka. Gist
á Hótel Þórshamri. Boðið upp á skoðunarferðir um
Heimaey og á sjó umhverfis Heimaey. Brottför frá
Gullsmára kl. 10 og Gjábakka kl. 10.15.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids spilað kl. 13.
Dagsferð í Landmannalaugar 7. júlí, skráning hafin.
Upplýsingar í s. 588 2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin.
Lomber kl. 13. Canasta kl. 13.15. Heitt á könnunni og
heimabakað meðlæti til kl. 16. Upplagt að líta inn,
kíkja í blöðin, taka í spil eða bara spjalla.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13
handavinna, kl. 20.30 félagsvist FEBK.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar. Frá hádegi vinnustofur opnar. Á morgun kl.
13 hefst leiðsögn á púttvelli við Breiðholtslaug, um-
sj. frá Vinnuskóla Reykjavíkur, kylfur og kúlur eru á
staðnum til afnota að kostnaðarlausu, allir vel-
komnir. Strætisvagnar S4, 12 og 17. S. 575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöðin. Kl. 9-
16.30 opin vinnustofa. Kl. 10-11 bænastund. Kl. 12-
12.30 hádegismatur. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi rabb og kaffi kl. 9. Ganga kl. 10.
Félagsvist kl. 13.30. Skráning í Akranesferð er í
Hraunseli, nokkur sæti laus.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-11, Sóley Erla. Böð-
un fyrir hádegi. Hádegisverður kl. 11.30. Frjáls spila-
mennska kl. 13-16. Fótaaðgerðir, s. 588 2320. Blöð-
in liggja frammi.
Hæðargarður 31 | Göngur á hverjum degi, púttað
og skrafað við hringborðið. Félagsvist. Sumarferðir.
Morgunkaffi, hádegisverður og síðdegiskaffi. Kíktu
við og skoðaðu dagskrána. S. 568 3132, asdis-
.skuladottir@reykjavik.is.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Handverks- og bóka-
stofa kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Söng og sam-
verustund kl. 15. Nánar auglýst á töflu í anddyri.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir.
Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 9-10 boccia, Sigurrós
(júní). Kl. 11-12 leikfimi, Janick (júní – ágúst). Kl.
11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 14.30-15.45 kaffi-
veitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, morgun-
stund kl. 9.30, boccia kl. 10, hárgreiðslu- og fótaað-
gerðarstofur opnar frá kl. 9, handavinnustofa opin
allan daginn, frjáls spilamennska kl. 13-16.30.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 félagsráðgjafi (annan
hvern mánudag til 18. júní). Kl. 13 leikfimi (Bergþór).
Kl. 14 boccia (Bergþór).
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17-
22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í
kirkjunni og eftir samkomulagi í síma 858 7282.
Kvöldbænir kl. 20. Verið velkomin.
Áskirkja | Bænastund á Dalbraut 27 kl. 9.30 í
umsjá djákna Áskirkju.
Vídalínskirkja Garðasókn | Opið hús í Vídalíns-
kirkju. Vettvangsferð á Byggðasafn Akraness
þriðjudaginn 26. júní. Kaffi á staðnum. Lagt verður
af stað kl. 13, áætluð heimkoma kl. 17. Þeir sem
óska að koma með láti Nönnu Guðrúnu vita í síma
895 0169. Verið velkomin.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup, ættar-
mót og fleira lesendum
sínum að kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að
berast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og
mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/ eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í síma
569-1100, senda tilkynn-
ingu og mynd á netfangið
ritstjorn@mbl.is, eða
senda tilkynningu og
mynd í gegnum vefsíðu
Morgunblaðsins, www.-
mbl.is, og velja liðinn
Senda inn efni". Einnig
er hægt að senda vélrit-
aða tilkynningu og mynd
í pósti. Bréfið skal stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er mánudagur 25. júní, 176. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? (Sl. 27, 1.)
Myndlist
Sýningarsalur SÍM Seljavegi 32 |
Gestalistamenn SÍM sýna afrakst-
ur dvalar sinnar á Íslandi mánu-
daginn 25. júní kl. 20. Listamenn-
irnir eru Anne Kathryn Greiner frá
Þýskalandi, Celeste Roberge og
Sharyn Finnegan frá Bandaríkj-
unum, Lesley Davy frá Bretlandi
og Inga Darguzyte frá Litháen.
FRÉTTIR
Háskóli Íslands og Háskólinná Hólum undirrita í dagsamstarfssamning um nýttsameiginlegt BS-nám í
sjávar- og vatnalíffræði.
Sameina styrkleika skólanna
Bjarni Kristófer Kristjánsson er
sérfræðingur við Hólaskóla og situr í
samstarfsnefnd um nýju námsleiðina:
„Með þessu samstarfi tekst okkur að
búa til nýtt hágæðanám sem sameinar
styrkleika skólanna. Við Háskóla Ís-
lands er boðið upp á góðan almennan
líffræðigrunn en Háskólinn á Hólum
býr að mikilli sérþekkingu og úrvals-
rannsóknaraðstöðu,“ segir Bjarni, en
á Hólum er 1.500 fermetra rann-
sóknar- og kennsluaðstaða og hefur
skólinn til umráða sérútbúna fiskeld-
isstöð þar sem gera má jafnt stórar
sem smáar tilraunir á ferskvatns- og
sjávarfiskum. „Námið hefur verið
skipulagt með þeim hætti að fyrstu
tvö árin stunda nemendur líffræðinám
fyrir sunnan, en þriðja og síðasta
námsárið stunda þeir á Hólum, en
einnig er gert ráð fyrir alþjóðlegu
samstarfi og að fá hingað til lands er-
lenda sérfræðinga frá samstarfs-
skólum sem og að nýta skiptimögu-
leika fyrir nemendur erlendis.“
Löngu tímabært
Bjarni segir nýja námið bjóða upp
á spennandi möguleika fyrir frekari
rannsóknir: „Það er löngu tímabært
að bjóða upp á nám af þessu tagi hér
á landi. Þó að þær rannsóknir sem
farið hafa fram á sviði vatna- og sjáv-
arlíffræði hér á landi hafi allar verið
unnar af mjög hæfum fræðimönnum
hefur mátt greina að skortir á frekari
rannsóknir,“ segir Bjarni.
Þörf fyrir frekari rannsóknir
„Nýting okkar á auðlindum fersk-
vatns og sjávar er að stóraukast, en
þegar kemur að framkvæmdum t.d. í
tengslum við aflvötn eða lífríki sjávar
rekumst við oft á að vitneskju vantar.
Vonandi mun tilkoma þessa nýja
náms verða til þess að bæta úr þess-
ari þörf og auka þekkingu okkar á
vatnalífi í og við landið.“
Finna má nánari upplýsingar um
nýja námið, rannsóknaraðstöðu og
kennsluhætti á heimasíðum Háskólans
á Hólum á slóðinni www.holaskoli.is
og Háskóla Íslands á slóðinni www.-
hi.is.
Menntun | Nýtt nám í sjávar- og vatnalíffræði í samstarfi HÍ og Hólaskóla
Bjóða nýtt hágæðanám
Bjarni Kristófer
Kristjánsson fædd-
ist í Hafnarfirði
1971. Hann lauk
stúdentsprófi frá
Flensborgarskóla
1991, BS-prófi í líf-
fræði frá Háskóla
Íslands 1994,
fjórðaársverkefni
1997, meistaranámi frá háskólanum í
Guelph 2001 og leggur nú stund á
doktorsnám í sama skóla. Bjarni hefur
starfað við kennslu og rannsóknir,
einkum á sviðum fiskalíffræði og um-
hverfisfræði fiskeldis.
STJÓRN Sambands ungra
sjálfstæðismanna hefur sam-
þykkt ályktun þar sem segir
að sá atburður þegar lögregla
stöðvaði með valdi spila-
keppni, sýni að „þörf sé á því
að fjarlægja úr íslenskum lög-
um heimildir stjórnvalda til
þess að hafa afskipti af ein-
staklingum sem stunda starf-
semi eða afþreyingu sem er
öðrum skaðlaus, jafnvel þótt
einhverjum kunni að þykja
hún siðferðislega ámælisverð,“
eins og segir í ályktuninni.
„Undanfarið hefur þeirrar
tilhneigingar orðið mjög vart
að stjórnvöld á Íslandi beiti
valdi sínu til að þvinga sið-
ferðismat sitt upp á sam-
félagið. Borgarstjórn Reykja-
víkur beitti valdi sínu til þess
að fæla löglega spilastarfsemi
frá fyrirhuguðu starfssvæði,
Alþingi hefur sett ofstækisfull
lög sem leggja sektir við því
að veitingahúsaeigendur leyfi
gestum sínum að reykja inn-
andyra; og nú síðast greip lög-
regla til aðgerða gegn hópi
manna sem sat og spilaði á
spil gegn þátttökugjaldi.
Hræsnin í aðgerðunum
gegn spilamótinu er algjör,
enda eru víða stundaðir leikir
þar sem greitt er þátttöku-
gjald og verðlaunað er með
peningum. Eitt dæmi um slíkt
er Íslandsmótið í knattspyrnu,
sem þó hefur enn ekki verið
stöðvað með lögreglu-
aðgerðum. Aðgerðunum gegn
pókerspilinu réð augljóslega
sú staðreynd að um ákveðna
gerð spils var að ræða,“ segir
í ályktun stjórnar SUS.
Á undanförnum áratugum
hafa íslenskir stjórnmálamenn
borið gæfu til þess að draga
smám saman úr valdi sínu í ís-
lensku viðskiptalífi. Þessi þró-
un hefur reynst ákaflega
happadrjúg. Eitt mikilvægasta
verkefni löggjafans nú um
stundir er að vinda ofan af
forneskjulegri forræðishyggju
sem víða er til staðar í íslensk-
um lögum. Ungir sjálfstæð-
ismenn ætlast til þess að þing-
menn sinni ekki af minni alúð
því verkefni að auka persónu-
frelsi einstaklingsins heldur
en þeir hafa gert við að frelsa
athafnalífið undan þeim höml-
um sem á það höfðu verið
lagðar.“
Þvinga siðferðismat
sitt upp á samfélagið
UM fjórir tugir nemenda og
kennara frá 16 löndum taka
þátt í smáríkjaskjóla Rann-
sóknaseturs um smáríki við
Háskóla Íslands, sem hefur
störf í dag. Heimsþekktir er-
lendir fræðimenn á sviði smá-
ríkjarannsókna og Evr-
ópufræða munu sinna
kennslu á námskeiðinu, sem
er fjármagnað af veglegum
ERASMUM-styrk frá Evrópu-
sambandinu. Skólinn, sem er
starfræktur frá 25. júní til 7.
júlí, er haldinn í samstarfi við
ellefu erlenda háskóla og er
opinn bæði fyrir innlenda og
erlenda nemendur á BA- og
MA-stigi.
Meðal kennara í sumar
verða Alyson Bailes, fráfar-
andi forstöðumaður sænsku
friðarrannsóknastofnunar-
innar, SIPRI, Clive Archer
frá Manchester Metropolitan-
háskólanum, Richard Grif-
fiths frá Háskólanum í Lei-
den í Hollandi og Annica
Kronsell frá Háskólanum í
Lundi í Svíþjóð.
Þetta er annað árið af
þremur sem styrkur ESB til
reksturs sumarskólans gildir
fyrir. Styrkurinn er að mati
forsvarsmanna skólans mikil
viðurkenning fyrir Smáríkja-
setrið sem var stofnsett árið
2002 að frumkvæði Baldurs
Þórhallssonar, prófessors í
stjórnmálafræði.
Þetta er í annað sinn sem
Smáríkjasetrið hlýtur þennan
stóra þriggja ára styrk frá
ESB til að reka sumarskóla
um smáríki og Evrópusam-
runann. Sumarskólinn er
þegar orðinn vel þekktur
meðal háskólasamfélagsins í
Evrópu sem marka má af því
að á hverju ári sækja mun
fleiri um inngöngu en pláss
er fyrir, bæði kennarar og
nemendur. Auk þess að sitja
fyrirlestra sækja nemendur
ýmis embætti, samtök og
stofnanir heim, m.a. forseta
Íslands, utanríkisráðuneytið,
Alþingi og Samtök iðnaðar-
ins.
Smáríkjaskólinn
hefur störf
Í FRÁSÖGN af braut-
skráningu stúdenta frá
MA í Morgunblaðinu var
farið rangt með nafn Guð-
rúnar Hlínar Þórarins-
dóttur. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Rangt nafn