Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 40
40 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA SHREK 3 m/ensku tali kl. 3 - 8:15 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4:15 - 6:15 LEYFÐ DIGITAL CODE NAME: THE CLEANER kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 5 B.i. 10 ára DIGITAL SHREK 3 m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ SHREK 3 VIP m/ensku tali kl. 8 - 10:10 SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ OCEAN'S 13 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7.ára OCEAN'S 13 VIP kl. 5:30 PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6 - 8 - 10 B.i.10.ára ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ WWW.SAMBIO.IS VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA MYND OG HLJÓÐ Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. STÆRSTA OPNUN Á TEIKNIMYND FYRR OG SÍÐAR. MYNDDISKAR» HOLLAND er mikilvægur leikstjóri sem sendi frá sér fáein stórvirki á ofanverðri kvikmyndaöldinni. Copying Beethoven er ekki í hópi hennar bestu mynda, en falleg og persónuleg. Gerð til heiðurs meistaraverkunum og nýtur sýnilega góðs af uppruna leikstjórans, þrungin anda aldagamallar hámenningar Mið-Evrópu. Hljóm- agleði 9. sinfóníunnar kemur mest við sögu af verkum Beethovens og Búdapest er trúverðug sem Vínarborg á öndverðri 19. öld. Sögþráðurinn er spunninn í kringum síðustu ár tónskáldsins. Anna (Kruger), ung og efnileg stúlka, kemur sem nótnaskrifari inn í hljóðan heim Beethovens. Með tímanum fær hún stærri hlutverk í lífi hans, en sjálf hyggst hún njóta góðs af síðar sem skap- andi tónlistamaður. Harris er útsmoginn senuþjófur, það var hann líka sem málarinn Pollock og hinn helsjúki Brown í The Ho- urs. Hann kann tökin á hlutverkum sem þessum, og Kru- ger (National Treasure), er seiðandi. Copying Beethoven er ætlað að bregða ljósi á hvaða kraftar stóðu að baki köllun jöfursins, en það er ómark- visst og á köflum í litlu samræmi við mikilfengleika lista- mannsins. Þá bestu að finna þegar sú 9. flæðir um sali. Dálítill óður til meistarans MYNDDISKAR Drama/Tónlist Bandaríkin/Þýskaland/Ungverjaland 2006. Myndform 2007. 100 mín. Bönnuð yngri en 14 ára. Leikstjóri: Agnieszka Hol- land. Aðalleikarar: Ed Harris, Diane Kruger. COPYING BEETHOVEN  Sæbjörn Valdimarsson NEW JERSEY er mafíubæli og hafa þeirri sögu verið gerð skil í verkum eins og Á eyrinni – On the Waterfront, eftir Kazan. Nú er Lu- met, annar gamalkunnur, en kannski ekki jafn hátt skrifaður snillingur, kominn með sína útgáfu. Byggð á alræmdu sakamáli sem lauk 1987, eftir tveggja ára dóm- stólaskrípaleik. Þrátt fyrir gíf- urlegan málatilbúnað þar sem átti að klekkja á einni sterkustu maf- íufjölskyldu Bandaríkjanna sat rétt- lætið eftir tómhent. Sannið mig sekan fjallar um mála- ferlin, hvernig Jackie Dee (Diesel), öðrum fjölskyldumeðlimum fremur, náði að slá vopnin úr höndum sækj- endanna með skopskyni og götu- visku sem er ósjaldan haldreipi manna með ríka glæpahneigð. Myndin fer að mestu fram í rétt- arsölunum en er fimlega skrifuð, skynsamleg og rík af fyndnum uppá- komum og tilsvörum um leið og hún skýtur föstu skoti á galla rétt- arkerfis sem byggist á kviðdómi. Lumet (Serpico, Network), sem heldur upp á 83 ára afmælið sitt í dag (25. júní), er hér með sína fyrstu klassamynd í árafjöld. Það er hægt að taka hana sem kómedíu, rétt- arsalsdrama, gangstermynd, en háðsádeila er réttasta skilgrein- ingin. Leikhópurinn er skotheldur, með hárprúðan og fantagóðan Dies- el í fararbroddi. Frábær skemmtun sem er forvitnilegt að bera saman við Little Caesar. Réttlætið gegn götuviskunni MYNDDISKAR Glæpagrín Þýskaland/Bandaríkin 2006. Sena. 125 mín. Bönnuð yngri en 16 ára. Leikstjóri: Sidney Lumet. Aðalleikarar: Van Diesel, Alex Roco. FIND ME GUILTY  Vin Diesel Hárprúður og fantagóður. Sæbjörn Valdimarsson FÁA hefur grunað að tímamóta- mynd væri í smíðum þegar Little Ceasar var gerð. Ódýr í framleiðslu, sagan ógeðfelld, um uppgang og fall samviskulauss þorpara (Robinson), sem kemur utan af landsbyggðinni og haslar sér völl í undirheimum stórborgarinnar. Það leynir sér ekki að Little Ca- esar er komin til ára sinna, gerð um það leyti sem kvikmyndahljóð kom til sögunnar. Þessi magnþrungna lýsing á glæpamanni af sauðahúsi Al Ca- pone, varð kveikjan að „Gangster- myndinni“, sem varð nánast vöru- merki Warnerbræðra á fjórða ára- tugnum. Túlkun Robinsons á illfyglinu Rico, sem lætur ekkert standa í vegi fyrir fjölmiðlafrægðinni, lýsir eins og leift- ur um nótt og heldur myndinni sí- ungri. Hann einfaldlega verður „and- litið sem aðrir óttast“. Fyrsta, umtalsverða hlutverk skapgerðarleik- arans, sem átti í ævilangri baráttu við að losna undan ímynd gangstersins. „Allir sem sverði bregða … Litli Sesar Tímamótamynd sem staðist hefur tímans tönn. MYNDDISKAR Glæpamynd Bandaríkin 1930. Sam-myndir. 75 mín. Leikstjóri: Mervyn LeRoy. Aðal- leikarar: Edward G. Robinson, Dou- glas Fairbanks, Jr. LITTLE CAESAR  Sæbjörn Valdimarsson MARGIR hafa sjálfsagt velt fyrir sér hvað hlutur mynddiskaleigu er stór í samanburði við aðsóknartölur kvikmyndahúsanna. Hann ræðst af ýmsum og ólíkum aðstæðum, sjálfsagt breytilegur eftir landi, útgáfutíma, inni- haldi, hvernig þeir eru auglýstir og hversu langt er liðið frá því að mynd- irnar gengu í bíóunum. Tölur af markaðnum hér heima hafa ekki legið frammi, til að gefa lesendum hugmynd um þessa stærðargráðu, er gluggað í nýjan lista frá Bandaríkjunum. Þegar rýnt er í forvitnileg sýnishorn af listanum yfir 50 vinsælustu mynddiskana (vikan 11.–17. júní), kemur ýmislegt óvænt í ljós. Bæði hvað snertir úthald þeirra og stöðu miðað við bíóaðsókn, þá blasir við undarlegt faðmlag afþreyingarmoðs og gæðamynda. Yfir höfuð er ekki annað að sjá en DVD-markaðurinn sé jafn óútreiknanlegur og kvikmyndahúsin. Upp- hæðirnar eru í Bandaríkjadölum. Vægi mynddiskaleigu miðað við bíóaðsókn "  1  94   & &  9  <D< >&'=                           ! "  # # $ %&# ' # ' ( ") * +  $  " ,      ! "   ## #  $% &# &&  & &  &  ! $ $ & %'" "' $!'( $('% $'( #'" %&'" "' ('% ('& ('" %(' !'% '! $' ##'" '% $'"  ' "'# #!' '  '% ' ('() $') &'%)  '%) "')  '$) $' ) ""'$) %$'") (' ) &%'&) #'!) *+ +     AFFLECK leikur Jack, umboðs- mann handritshöfunda í Hollywood, sem hefur vegnað vel, þangað til allt hrynur sem hrunið getur í kringum hann. Konan heldur framhjá með besta viðskiptavini eiginmannsins, sem er barinn til óbóta og dagbók hans með persónulegum og við- skiptalegum upplýsingum, er rænt og efninu lekið í fjölmiðla. Meinið er að Jack skiptir ekki máli eins og hann er skrifaður af Binder og leikinn af Affleck. Jack á ekki að vekja meðaumkun, en Af- fleck er fyrirmunað að túlka per- sónuna af þeirri grípandi innlifun sem t.d. gerði Warren Schmidt áhuga- verðan í höndum Nichol- sons. Affleck er tak- markaður leikari og Romjin er síst skárri. Leikstjórn og handrit Binders minnir á bíl í hálku og hríð, ferðalagið hæpið, endalokin tvísýn. Hafi hann ætlað sér að gera ádeilu á drauma- borgina er hún ósamin enn. Hverjum er ekki sama um Jack? Sæbjörn Valdimarsson MYNDDISKAR Gamandrama Bandaríkin 2006. Myndform. 94 mín. Bönnuð innan 14 ára. Leikstjóri: Mike Binder. Aðalleikarar: Ben Affleck, Re- becca Romjin. MAN ABOUT TOWN  Óheppinn Hinn afleiti Affleck á sjúkrahúsi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.