Morgunblaðið - 25.06.2007, Page 43

Morgunblaðið - 25.06.2007, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 43 GÓÐ stemning var á tón- leikum hljómsveitarinnar Hjálma og Megasar á Nasa aðfaranótt sunnudags en þar flutti Megas lög af plötum, sem væntanlegar eru í haust. KK aðstoðaði einnig við flutning laganna og var því fjölmennt á sviðinu. Megas áformar frekara tónleika- hald í haust, þar á meðal stórtónleika í Laugardals- höll. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Fjömennt Þeir Megas, KK og Hjálmar léku saman. Meistarinn Megas hyggur á frekara tónleikahald á árinu. Megastuð á Nasa ÚTGÁFUTÓNLEIKAR hljóm- sveitarinnar Amiinu voru haldnir í Iðnó síðastliðið fimmtudagskvöld. Hljómsveitin sendi nýverið frá sér plötuna Kurr en á henni hljómar afskaplega vönduð popptónlist í klassískum dúr. Amiina hefur verið í slagtogi við hljómsveitina Sigur Rós um nokkurt skeið – þær stöll- ur hafa meðal annars farið með þeim á tónleikaferðalög svo eitt- hvað sé nefnt. Amiina stóð sig með prýði – eig- inlega alveg ótrúlega vel. Lögin léku fyrirhafnarlaust í höndum hljómsveitarstúlkna og mátti auð- veldlega heyra hve færir tónlist- armenn þær eru. Það var ekki ann- að að sjá á gestum en að þeir nytu stundarinnar afskaplega vel, tón- leikarnir voru vel sóttir og stemn- ingin notaleg. Hljómburðurinn í Iðnó hefur stundum verið til vand- ræða, ég hef séð margar hljóm- sveitir þjást þar vegna slæms hljóðs. Því var ekki að heilsa á fimmtudagskvöldið, hljóðið var nán- ast óaðfinnanlegt í höndum þeirra Kjartans í Sigur Rós og Bigga í Sundlauginni. Ljúfir tónar léku fyr- irhafnarlaust um salinn. Þetta var á allan hátt vel heppn- að kvöld. Amiina á heiður skilinn fyrir vandaðar útsetningar sem nutu sín sérstaklega vel á þessum skemmtilegu tónleikum. Ekki ber á öðru en að þær stöllur séu að koma sér kirfilega fyrir í íslensku tónlist- arlífi. Morgunblaðið/Sverrir Góðar „Amiina stóð sig með prýði – eiginlega alveg ótrúlega vel.“ Afskaplega vel heppnað kvöld TÓNLIST Amiina í Iðnó  Helga Þórey Jónsdóttir „LÍFIÐ er fullt af óútskýranlegum fyrirbrigðum,“ segir sálusorgari við Lindu Hanson (Bullock), að- alpersónuna í mynd sem á að flokk- ast undir eitt slíkt en tekst það ekki. Það virðist allt leika í lyndi hjá hjónunum Lindu og Jim (McMa- hon). Þau búa praktuglega, eiga fal- legar, ungar dætur og húsbóndinn rekur blómstrandi viðskipti. Þá knýr ógæfan dyra í líki lögreglumanns, sem tilkynnir Lindu að maður henn- ar hafi lent í umferðarslysi daginn áður og látist samstundis. Upp frá því er lítil glóra í handrit- inu því höfundunum tekst engan veginn að vinna á viðunandi hátt úr atburðarásinni sem þeir setja í gang. Hún er nógu áhugaverð í sjálfu sér, því næsta morgun vaknar frú Linda með Jim sprelllifandi við hliðina á sér í bólinu. En framvindan er grautarkennd þar sem Jim er ýmist lífs eða liðinn, Linda á geðlyfjum, ól- uð niður á sjúkrahúsi, eða alheil í basli með að fá vitrænan botn í mál- ið. Það kemst upp um framhjáhald, grunur er um heimilisofbeldi o.s.frv. Aldrei dettur Lindu í hug að spyrja sem svo í lífsköflum Jims: „Heyrðu kallinn minn, hvernig er það, ertu lifandi eða draugur?“ Það hefði fríað hana og okkur við mikil leiðindi. Bullock hefur sjálfsagt séð eitt- hvað athyglisvert í handritinu en það skilar sér ekki á tjaldið. Það bætir heldur ekki úr skák að Bul- lock, sem er ljómandi gam- anleikkona, er ömurleg þegar kemur að dramatíkinni. Að hafa hana grát- bólgna fyrir augunum eða djúpt hugsi mestallan sýningartímann er þolraun. McMahon (Fantastic 4), þarf að fá sér nýjan umboðsmann; Kate Nelligan og Peter Stormare bregður fyrir en þau hafa ekki erindi sem erfiði frekar en aðrir. Lokakafl- inn er ótrúlegur. Lífs eða liðinn? KVIKMYNDIR Háskólabíó, Regnboginn, Borgarbíó Akureyri Leikstjóri: Mennan Yapo. Aðalleikarar: Sandra Bullock, Julian McMahon. 110 mín. Bandaríkin 2007. Viðvörun/Premonition  Sæbjörn Valdimarsson Bullock „Að hafa hana grátbólgna fyrir augunum eða djúpt hugsi, mest allann sýningartímann, er þolraun.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.