Morgunblaðið - 12.08.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 B 41
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
á Hornafirði
Hjúkrunarfræðingur
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing á
hjúkrunar- og sjúkradeild. Heilbrigðisstofnun
Suðausturlands er áhugaverður vinnustaður
sem samanstendur m.a. af heilsugæslustöð,
hjúkrunar- og sjúkradeild og dvalarheimili.
Starfsemi á hjúkrunar- og sjúkradeild er mjög
fjölbreytt og rúmar 30 skjólstæðinga og skiptist
í 12 rúma heilabilunareiningu, 12 rúm fyrir
hjúkrunarsjúklinga og 4 sjúkrarými fyrir
bráðainnlagnir og sængurkonur. Starfssvæði
Heilbrigðisstofnunarinnar er A-Skaftafellssýsla
og eru íbúar um 2200.
Laun eru samkvæmt stofnanasamningi
Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands.
Flutningsstyrkur og niðurgreidd húsaleiga.
Umsóknarfrestur er til 15. september nk.
Frekari upplýsingar veita Jóhanna
Kristjánsdóttir hjúkrunarstjóri,
sími 478 2321, johannak@hssa.is og
Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdastjóri,
sími 478 1400, gjj@hssa.is.
Rennismiður
Óskum eftir að ráða hressan rennismið í
fjölbreytt verkefni. Ný smíði og samsetningar.
Framtíðarstarf. Áhugasamir hafi samband við
Hilmar í síma 660 3639.
Nobex ehf.
var stofnað árið 2001 og hefur frá upphafi haft
það að markmiði að bjóða upp á framúr-
skarandi lausnir til vörustjórnunar. Fyrirtækið
hefur m.a. innleitt vöruhúsakerfi frá Manhattan
Associates og unnið samþættingarverkefni
fyrir nokkur af stærstu fyrirtækjum landsins.
Vegna aukinna verkefna leitum við nú að
nýjum starfsmönnum. Okkar vantar ráðgjafa til
þátttöku í innleiðingarverkefnum þar sem
menntun og reynsla á sviði vörustjórnunar er
æskileg. Einnig leitum við að tæknimönnum
vegna samþættingarverkefna, þar sem menn-
tun og reynsla tengd .NET, SQL Server og Biz-
Talk er æskileg.
Í boði eru áhugaverð störf við krefjandi
verkefni.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Magnússon,
thorir@nobex.is.
Sjúkraliðar
nemendur á heilbrigðissviði eða
sérhæfðir starfsmenn í aðhlynningu
Sjálfsbjargarheimilið leitar eftir starfsmönnum
til aðhlynningarstarfa. Um er að ræða hluta-
starf og fullt starf. Unnið er á morgunvöktum
og kvöldvöktum. Við erum sveigjanleg og
komum til móts við þig. Ef þú ert að fara í nám
og vilt vinna með náminu gæti þetta hentað.
Ertu að flytjast til Reykjavíkur og vantar vinnu
eða vilt breyta til? Við tökum á móti þér með
bros á vör. Hafðu samband við Guðrúnu Erlu
Gunnarsdóttur hjúkrunarforstjóra í síma 550
0330 eða gudrun@sbh.is, sem allra fyrst.
Sjálfsbjargarheimilið er ætlað hreyfihömluðu fólki, sem þarfnast
aðstoðar og umönnunar allan sólahringinn. Íbúar eru 39 og starfs-
menn um 50. Hjúkrunarfræðingar, félasgráðgjafi, iðjuþjálfar,
sjúkraliðar, læknar, sérhæfðir starfsmenn og aðrir starfsmenn vinna
við heimilið. Við vinnum markvisst að því að auka lífsgæði íbúa
heimilisins. Sjálfsbjargarheimilið er vinnustaður sem leggur áherslu á
góða starfsmannastefnu.
Vantar II. vélstjóra
Vantar II. vélstjóra (vélavörð) á Arnarberg ÁR-
150 sem gerir út á línu með beitningarvél frá
Þorlákshöfn. Vélastærð 478 kW (649 hö). Skipið
mun hefja veiðar að nýju í byrjun september.
Upplýsingar í síma 898 3285.
Starf í dráttarvéladeild
Sérhæfðir verkamenn í dráttarvéladeild
Óskað er eftir sérhæfðum verkamönnum til starfa á dráttarvéla-
deild, meðal verkefna eru snjóhreinsun, sláttur opinna svæða og
háþrýstiþvottur.
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að áreiðanlegu, verklögnu og þjónustulunduðu fólki með
almenn ökuréttindi en einnig er æskilegt að viðkomandi hafi
dráttarvélapróf og/eða BE bílpróf.
Dráttarvéladeild Framkvæmdasviðs sér m.a. um snjóruðning,
hreinsun gönguleiða og grasslátt opinna svæða.
Fjölbreytt störf á hverfastöðvum
Framkvæmdasviðs
Verkamenn á hverfastöðvum
Óskað er eftir verkafólki til starfa á hverfastöðvar Framkvæmda-
sviðs. Meðal verkefna eru, viðhald gatna og gönguleiða, hreinsun
borgarlandsins, viðhald leikvalla og opinna svæða, snjóhreinsun,
grassláttur og fleira.
Menntunar og hæfniskröfur
Við leitum að verklögnu og áreiðanlegu fólki sem býr yfir færni í
mannlegum samskiptum og er tilbúið til að læra og takast á við fjöl-
breytt verkefni. Æskilegt er að viðkomandi hafi almenn ökuréttindi.
Skrifstofumaður á hverfastöðinni Njarðargötu
Óskað er eftir starfsmanni til starfa við almenn skrifstofustörf á
hverfastöð Njarðargötu. Meðal verkefna er símsvörun, móttaka,
umsjón með viðveruskráningu og verkbókhaldi og þjónusta við
íbúa vegna ýmissa erinda.
Menntunar og hæfniskröfur
Við leitum að fólki með ríka þjónustulund, færni í mannlegum
samskiptum, haldgóða tölvuþekkingu og menntun sem nýtist í
starfi.
Hverfastöðvar Framkvæmdasviðs sjá um daglega þjónustu við
íbúa borgarinnar vegna ábendinga og athugasemda um
hvaðeina sem viðkemur starfsemi gatna- og eignaumsýslu
Framkvæmdasviðs. Hverfastöðvarnar sjá m.a. um allar eignir
borgarinnar, opin svæði og skólalóðir, götur og gönguleiðir, rus-
latínslu og stampatæmingar auk þess að sjá um að ryðja snjó af
stofnanalóðum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
viðeigandi stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar um störfin veitir starfsfólk mannauðsdeildar
(mannaudsdeild.fs@reykjavik.is) í síma 411 8000.
Umsóknarfrestur er til 26. ágúst 2007. Umsóknareyðublöð er
hægt að nálgast í þjónustuveri Framkvæmdasviðs Skúlatúni 2
sem er opið frá kl. 8.20-16.15 alla virka daga. Einnig er hægt að
senda umsóknir með tölvupósti á mannaudsdeild.fs@reykjavik.is
merktar viðkomandi starfi.
- Einn vinnustaður
Laus störf á Framkvæmdasviði
Framkvæmdasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi
borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.