Morgunblaðið - 14.09.2007, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● HLUTABRÉF hækkuðu í verði í
Kauphöll Íslands í gær. Úrvals-
vísitalan hækkaði um 0,25% og er
7.889 stig. Bréf Foröya Bank hækk-
uðu um 3,2%, bréf Atlantic Petrolium
um 2,26% og Tryggingamiðstöðv-
arinnar um 1,77%. Bréf Flögu lækk-
uðu um 2,07% og bréf Century Al-
uminium um 2,01%.
Gengisvísitala krónunnar lækkaði
um 0,46% í viðskiptum gærdagsins
og styrktist gengi krónunnar sem því
nemur. Nam velta á gjaldeyrismark-
aði 16,5 milljörðum króna. Gengi
Bandaríkjadals var 63,79 krónur við
lokun markaða, gengi evru var 88,6
krónur og gengi breska pundsins var
129,29 krónur.
Hækkanir á markaði
● STJÓRNVÖLD í
Kína hyggjast
fjórfalda olíu-
birgðir landsins á
næstu þremur ár-
um og eiga þá
12 milljónir
tonna af gullinu
svarta. Þetta
sagði Chen Dem-
ing, aðstoðarfor-
stjóri Þróunar- og umbótastofnunar
alþýðunnar, á ráðstefnu í Bandaríkj-
unum nýlega.
Samkvæmt frétt China Daily jafn-
gilda 12 milljónir tonna af olíu eins
mánaðar olíuþörf landsins en þar
segir jafnframt að stefnt sé að því
að árið 2020 muni olíubirgðir Kína
jafngilda þriggja mánaða olíuþörf.
Hyggjast fjórfalda ol-
íubirgðirnar í Kína
● ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR hefur í kjölfar
útboðs á íbúðabréfum ákveðið að út-
lánsvextir íbúðalána sjóðsins verði
óbreyttir, þ.e. 4,85% á lán með upp-
greiðsluálagi og 5,1% án upp-
greiðsluálags. Ákvörðunin byggist á
ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa,
sem fór fram í gær, ásamt vegnum
fjármagnskostnaði uppgreiðslna á
veðbréfum sjóðsins. Vegnir vextir í
útboðinu voru 4,42% og vaxtaálag
samtals 0,70%.
Óbreyttir útlánavextir
hjá Íbúðalánasjóði
LÖGREGLA í Svíþjóð hefur hand-
tekið tvo menn sem grunaðir eru um
gróf innherjasvik. Að sögn frétta-
vefjar Dagens Nyheter er annar
maðurinn starfsmaður fjárfestinga-
bankans Carnegie og var í kjölfarið
gerð húsleit í skrifstofum bankans
þar sem maðurinn hefur starfað.
Blaðið hefur eftir Andreas Koch,
upplýsingafulltrúa Carnegie, að
maðurinn hafi starfað í ráðgjafar-
deild bankans í Svíþjóð þar sem veitt
er fjárfestinga- og viðskiptaráðgjöf.
Um 130 manns starfa í þeirri deild.
Annar maðurinn var handtekinn í
Malmö á mánudag og var í kjölfarið
úrskurðaður í gæsluvarðhald þar til
síðdegis í gær. Hinn maðurinn var
kallaður til yfirheyrslu í fyrradag og
handtekinn í kjölfarið. Lögreglan
mætti síðan á skrifstofur Carnegie
klukkan 8.30 að þarlendum tíma í
gærmorgun.
Saksóknarar hafa staðfest að mál
mannanna tengist. Í gær var svo
krafist lengra gæsluvarðhalds yfir
manninum, sem handtekinn var á
mánudag og gæsluvarðhalds yfir
hinum.
Landsbankinn átti 20% hlut í
Carnegie en seldi á síðasta ári.
Tryggingamiðstöðin á óbeint hlut í
sænska bankanum gegnum fjárfest-
ingafélagið Kinnevik.
Handteknir fyrir
innherjasvik
ráð fyrir að verðbólga verði enn
meiri.
Hagstofa Íslands birtir í dag yfirlit
yfir landsframleiðslu á öðrum árs-
fjórðungi þessa árs og fáum við þá
enn eina vísbendingu um hvert hag-
kerfið stefnir. Verði þær tölur hærri
en reiknað hefur verið með er ljóst að
grundvöllur fyrir stýrivaxtalækkun-
um er enn sem komið er enginn.
Hagtölur benda til
áframhaldandi þenslu
Erfitt að sjá stýrivaxtalækkun verða að veruleika í mars
Morgunblaðið/Ómar
Seðlabankinn Fæst bendir til þess að hagkerfið sé að kólna og grundvöll-
ur fyrir lækkun stýrivaxta á næstunni er því varla sjáanlegur.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
HAGTÖLUR þær sem Hagstofa
Íslands sendi frá sér í fyrradag
benda síður en svo til þess að vaxta-
lækkunarferli Seðlabankans geti
hafist í mars á næsta ári eins og
margir höfðu vonað. Þvert á móti
benda tölurnar til þess að hagkerfið
sé ennþá funheitt og á meðan svo er,
er erfitt að sjá hvernig hægt er að
réttlæta stýrivaxtalækkun.
Bráðabirgðatölur Hagstofunnar
um verga landsframleiðslu árið 2006
benda til þess að hagvöxtur hafi ver-
ið mun meiri en gert var ráð fyrir,
bæði af opinberum aðilum sem og
öðrum sem spá í efnahagsspilin.
Hægari hagvöxtur var einmitt ein
helsta röksemd þeirra sem vildu
meina að hægja væri á hagkerfinu og
lögðu til að stýrivextir yrðu lækkaðir
sem fyrst. Þeim verður vart að ósk
sinni.
Verðbólga ekki á niðurleið
Tólf mánaða verðbólga jókst um
0,8 prósentustig á milli mánaða og ef
litið er til þróunar síðustu ára má
ætla að verðbólgan sé ekki á leiðinni
niður fyrir efri þolmörk verðbólgu-
markmiðs Seðlabanka. Árið 2006
hækkaði vísitala neysluverðs um
0,23% á milli september og október
og árin þar áður um 0,6% (2005) og
0,76% (2004). Sem sagt, vísitala
neysluverðs hækkar yfirleitt á milli
september og október. Hversu mikil
hækkunin verður að þessu sinni er
ekki hægt að segja til um að svo
stöddu en verði hún jafn mikil og í
fyrra, þ.e. 0,23%, verður tólf mánaða
verðbólga í október 4,2%. Þar sem
undirliggjandi verðbólguþrýstingur
nú er umtalsverður má jafnvel gera
GREININGARAÐILAR telja nú
auknar líkur á kreppu í bandarísku
efnahagslífi á næstu tólf mánuðum,
að því er segir í frétt Wall Street Jo-
urnal. Ástæðurnar eru frekari sam-
dráttur á bandarískum húsnæðis-
markaði og áframhaldandi óvissa á
lánamörkuðum. Hins vegar eru
greiningaraðilarnir ekki sammála
um hve miklar líkurnar á kreppu eru
í raun og veru. Halda sumir þeirra
því fram að kreppa sé óumflýjanleg
og aðrir vilja meina að hagkerfið
muni með herkjum komast hjá
kreppu.
Í könnun, sem gerð var fyrir Wall
Street Journal telja 55 hagfræðing-
ar, sem rætt var við, að meðaltali
36% líkur á kreppu, en fyrir mánuði
síðan var meðaltalið 28%. Var könn-
unin gerð eftir að nýjar vinnumark-
aðstölur voru gefnar út, en þær
sýndu að störfum hafði fækkað í
Bandaríkjunum í fyrsta skipti í fjög-
ur ár.
Munur á svörum hagfræðinganna
var mikill, eða allt frá 5% líkum á
kreppu í 90% líkur. Ellefu hagfræð-
ingar telja að minnsta kosti 50% lík-
ur á að kreppa hefjist á næstu tólf
mánuðum, en 13 hagfræðingar töldu
líkurnar minni en 30%.
Segir í fréttinni að þessi mikli
munur endurspegli þær deilur sem
nú eigi sér stað meðal hagfræðinga
um ástand efnahagsmála í Banda-
Auknar líkur á kreppu
Ný könnun endurspeglar deilur meðal hagfræðinga
Reuters
Kreppa Ný könnun meðal hagfræð-
inga sýnir að þeir telja 36% líkur á
kreppu á næstu 12 mánuðum.
LÍKLEGT má
telja að íslenska
hagkerfið sé að
ganga í gegnum
tímabundna upp-
sveiflu í aðdrag-
anda þess að
efnahagslífið sé
nú á niðurleið eft-
ir mikinn hag-
vöxt 2004-2006,
að því er Ásgeir Jónsson, for-
stöðumaður greiningardeildar
Kaupþings, segir. „Fyrr eða síðar
hljóta háir vextir Seðlabankans að
fara að bíta.“
Í dag mun Hagstofan birta áætlun
fyrir landsframleiðslu á öðrum árs-
fjórðungi 2007 og gerir greining-
ardeild Kaupþings ráð fyrir end-
urnýjuðum vexti einkaneyslu
hagvöxt eftir stöðnun á fyrsta fjórð-
ungi, en áframhaldandi samdráttur í
fjárfestingu komi þó á móti.
„Það er einnig töluverð verðbólga
í pípunum sem á eftir að koma fram
þegar líður á haustið, en þensla á
vinnumarkaði, snögg veiking krón-
unnar í ágúst og hærri leigukostn-
aður fyrirtækja skiptir þar mestu.“
Hvað varðar áhrif áðurnefnds
þenslutímabils á stýrivaxtastefnu
Seðlabankans segir Ásgeir að Seðla-
bankinn hafi áður gert ráð fyrir að
vaxtalækkunarferlið gæti hafist á
fyrsta ársfjórðungi 2008, en geri nú
ráð fyrir að það hefjist á fyrri helm-
ingi ársins. „Í samræmi við það spáir
greiningardeild Kaupþings því að
vextir taki í fyrsta lagi að lækka í
maí á næsta ári, en áður höfðum við
spáð lækkun í marsmánuði.“
Töluverð
verðbólga í
pípunum
Ásgeir Jónsson.
!""#
)* ! !"
" !
# " !
#"
!# " #
#
! "
!
!!"
!
!!"
!
#!"
!
$%"
&!
'("
&
!
!!"
!
)!"
&
!
%'"
)"
&
*$"
&
!
(%"
%
%'"
!+"
&%
!$"
(
%!"
!
!!"
&!
!"
&
$$"
&
&%
! "
&
&
456
7
8 9
1*%20*%331
0/,%22,%/**
0+/%)30%02)
0)*%2),%))2
2-/%/+1%)/*
0*%*,/%*22
0%0**%**3
3)-%/00%00)
+30%)*,%-23
)%0)1%,02
))2%**)%22+
0)%+-*%0+1
))/%1**%203
0%)12%***
3%203%-33
)0%)*1%/*)
00%*++%020
0%,)3%***
/%,)+%,--
"
),%1-/%,),
+,2%***
/02%)0+
"
2-%03*%0**
"
"
/:/+
+1:1*
1*:+*
)2:**
)3:32
1/:22
)2:/2
0*-3:**
1/:32
0/:)*
+:*3
//:+*
):,2
+:)1
01*2:**
++):**
0:,*
))2:**
2:/*
/-:1*
)0:2*
,2:-*
)-/*:**
0*:2*
+:)*
/:/-
+1:2*
1*:3*
)2:0*
)3:-2
1/:-2
)+:)*
0*/*:**
,*:**
0/:1*
+:0+
//:/*
):,3
+:)3
0102:**
+3*:**
0:,)
)12:**
2:/-
/-:/*
)0:/*
,+:**
/:**
)/1):**
0):2*
+:22
00
+
)3
0+
,0
,
)
+)
)1
0
12
2
10
1
1
)/
0)
1
))
"
+
0
0
"
3
"
"
;
%
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
,%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
0)%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
01%/%)**3
))%-%)**3
01%/%)**3
3%/%)**3
2%/%)**3
+,
-
.$)
)
$# %
' # %
<=
%
# %
# 5 %
%<
>?
@A # %
8 B 5 %
5 ?
%
!
A
%
9 "'
%5% %
4( %
C
%
/$ 0$," 1)
1+2 %
$
A %
$ AD D
<' # %
E('
@A A# %
! %
FG %
4(
%
%
+$) 23$( 4)'
H ($ H%
'# %
%
I!J5
I!J6
# $
#
&
&
I!J!
7'J
!$!
# #
&
&
;KL
F
!$# $
#
&
&
49<
;$J
$! #
"$!
&
&
I!J802
I!J2,*
"$ $!#
!
&
&
HÖSKULDUR Ásgeirsson hefur
verið ráðinn forstjóri Nýsis frá 1.
desember nk. en eins og fram kom í
Morgunblaðinu
er að hann hætta
sem forstjóri
Flugstöðvar
Leifs Eiríksson-
ar. Á sama tíma
hættir Sigfús
Jónsson sem
framkvæmda-
stjóri Nýsis eftir
tíu ára starf. Sig-
fús mun hverfa til
starfa erlendis og stýra útrás Nýsis í
Bretlandi og víðar, ásamt því að sitja
í stjórn félagsins. Höskuldur er
rekstrarhagfræðingur að mennt og
hefur verið forstjóri Leifsstöðvar frá
árinu 2000, var þar áður hjá Iceland
Seafood.
Fer til Nýsis
Höskuldur
Ásgeirsson
● ATLANTIC Petroleum hefur ásamt
samstarfsaðilum sínum fengið leyfi
írskra stjórnvalda til olíuleitar á nýju
svæði undan ströndum Írlands. Um
er að ræða 375 þúsund ferkílómetra
svæði og gildir rannsóknaleyfið til
eins árs. Svæðið er nálægt Hood
Head hafsvæðinu sem nýlega var
greint frá að hefðu bundist góðar vís-
bendingar um olíu- eða gaslindir. Í
tilkynningu fagnar forstjóri Atlantic
Petroleum þessu nýja leyfi, það gefi
félaginu aukna möguleika á að finna
frekari olíulindir.
Nýtt olíuleitarsvæði
ACTAVIS hefur lagt inn skráningu
til bandaríska Matvæla- og lyfjaeft-
irlitsins fyrir samheitalyf verkjalyfs-
ins Avinza® og véfengir félagið
einkaleyfi King Pharmaceuticals á
lyfinu. Rennur einkaleyfi King út ár-
ið 2017, en Actavis vonast til að geta
markaðssett lyfið eftir þrjú ár.
Í tilkynningu frá Actavis kemur
fram að Actavis lagði inn lyfjaskrán-
ingu fyrir lyfið í júní. Í vikunni til-
kynnti King að það muni lögsækja
Actavis á grundvelli einkaleyfis sem
það telur Actavis brjóta.
Í tilkynningu Actavis segir að lög-
sóknin komi ekki á óvart, því nær al-
gilt sé í slíkum tilvikum að einkaleyf-
ishafi höfði mál. Ekki hafi fengist
staðfest að Actavis sé fyrsta félagið
til að leggja inn skráninguna, en
reynist það rétt þá fái félagið sex
mánaða einkaleyfi á sölu lyfsins.
Véfengir einka-
leyfi King
♦♦♦
♦♦♦