Morgunblaðið - 14.09.2007, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FLEIRI áskriftarkort hafa selst hjá Leik-
félagi Akureyrar í haust en nokkru sinni
fyrr og áberandi er hve margt ungt fólk
fjárfestir í korti, að sögn starfsmanns LA.
Í fyrra seldust rúmlega 1.200 áskriftar-
kort þær sjö vikur sem kortasalan stóð sem
var nífalt miðað við söluna nokkrum árum
áður. Nú eru tvær og hálf vika síðan sala
áskriftakorta hófst og metið frá því í fyrra
hefur þegar verið slegið.
Þegar keypt er kort tryggir viðkomandi
sér miða á þrjár ákveðnar sýningar en get-
ur valið eina til viðbótar. „Kortagestir okk-
ar eru fjölbreyttur hópur. Stök hjón, vina-
hópar og starfsmannahópar eru áberandi
en einnig er töluvert um að foreldrar komi
með krökkum, velja fyrir þau aukasýn-
inguna og borga, en það er áberandi nú hve
margir koma sjálfir, jafnvel nokkrir saman,
og kaupa sér kort; 14, 15 ára krakkar og svo
er fjöldi háskólanema með fasta miða. Það
er enginn að draga þessa krakka í leikhúsið,
þeim finnst greinilega við hafa eitthvað
skemmtilegt að bjóða,“ sagði Þóra Hjalta-
dóttir starfsmaður LA.
Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri
segir töluvert um það nú að fólk á höfuð-
borgarsvæðinu kaupi áskriftarkort, sem
hafi heyrt til algjörra undantekninga áður.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Áhugi Leikritið Ofvitar er fyrsta verk
vetrarins hjá LA og áhuginn er mikill.
Enn fellur
met hjá LA
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti í gær samning við Íþrótta-
félagið Þór um uppbyggingu á fé-
lagssvæði þess í Glerárhverfi og
þar með er endanlega ljóst, með
formlegum hætti, að Landsmót
Ungmennafélags Íslands fer fram
á Akureyri 2009. Samningurinn
var kynntur á fjölmennum fé-
lagsfundi Þórsara í gærkvöldi.
„Ég fagna því að löngu og
ströngu samningaferli sé lokið og
tel að í þessum samningi felist
mikil tækifæri fyrir Íþróttafélagið
Þór. Framundan eru spennandi
tímar,“ sagði Sigfús Helgason for-
maður
Sigrún Björk Jakobsdóttir bæj-
arstjóri lýsti einnig yfir mikilli
ánægju í gær, í samtali við blaðið.
„Ég held þetta verði mjög gott
fyrir bæinn, svæðið er miðsvæðis
og þegar það verður fullbyggt er
ég sannfærð um að það verður
glæsilegt og fólk mjög sátt.“
Aðalfundur Þórs felldi í sumar
samning félagsins við bæinn en
fjölmennur félagsfundur veitti
stjórn umboð til samninga á nýjan
leik. Og Sigfús segir niðurstöðuna
töluvert aðra nú en í fyrri samn-
ingi. Fastar sé að orði kveðið en í
fyrri samningi, félagið beri meira
úr býtum „og sýn okkar er sú að
nú verði stigið stórt skref í þá átt
að gera íþróttasvæði Þórs að ein-
hverju því besta hér á landi“.
Sigfús segir suma félagsmenn
gagnrýna að svæði Þórs sé skert
með því að þar komi inn frjáls-
íþróttavöllur, það sé vissulega rétt
„en við förum í landvinninga ann-
ars staðar á móti – fáum nýtt æf-
ingasvæði vestan við vellina okkar,
svæði norðan við Bogann verður
lagfært og síðan getum við nýtt
svæðið norðan Skarðshlíðar til æf-
inga og ætlum í framkvæmdir þar
strax. Því má heldur ekki gleyma
að við höfum afnot af Boganum og
af grasinu innan hlaupabrautanna
á frjálsíþróttavellinum.“
Sigfús segir stúkubygginguna
veigameiri en áður var gert ráð
fyrir og þar geti t.d. í framtíðinni
setið 1.000 áhorfendur undir þaki á
knattspyrnuleik og sæti fyrir 300
snúi að frjálsíþróttavellinum, „sem
nýtist okkur reyndar líka sem
knattspyrnuvöllur. Við verðum því
með stúku við tvo knattspyrnu-
velli.“ Hann segist hlakka til sam-
starfs við Ungmennafélag Ak-
ureyrar á svæðinu. „Ég býð UFA
hjartanlega velkomið til okkar.“
Loks er allt klappað og klárt
Formlega búið að ganga frá samningi við Þór Landsmótið við Hamar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
VINSTRA megin á myndinni, austast á Þórssvæðinu, verður fullkomin
aðstaða til frjálsra íþrótta sem nýtast mun Ungmennafélagi Akureyrar
og uppfyllir kröfur sem gerðar eru til mótshaldara á Landsmóti UMFÍ.
Keppnisvöllur í knattspyrnu (náttúrulegt gras) verður þar við hliðina,
beint framan við félagsheimili Þórs, Hamar, sem er litla húsið með
rauða þakinu við hornið á Boganum, stóra fjölnotahúsinu. Á milli vall-
anna verður stúka; sæti fyrir 1.000 áhorfendur í þeim hluta sem veit að
knattspyrnuvellinum, en 300 frjálsíþróttavallarmegin.
Þór fær til æfinga grassvæðið lengst til hægri á myndinni, á milli
blokkanna og verður það girt af. Litla svæðið norðan við Bogann, þar
sem æft var til skamms tíma, verður lagfært. Náttúrulegt gras verður
á keppnisvöllunum en komist samstarfshópur Þórs og bæjarins að
þeirri niðurstöðu, eftir þriggja ára notkun, að það henti ekki á knatt-
spyrnuvellinum verður hann lagður gervigrasi 2016-2018. Flóðlýsingu
verður komið upp 2015 ef þurfa þykir, stúkubygging verður fullkláruð
2012 að undanskildu þaki sem sett yrði upp á árunum 2013-2014.
Hvað verður hvar?
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Kópavogur | Svo þrengir að Hér-
aðsskjalasafni Kópavogs í Hamra-
borg 1 að ekki er hægt að taka við
miklu fleiri skjölum. Að því er
Hrafn Sveinbjarnarson héraðs-
skjalavörður segir er það vegna
þess að ekki er hægt að treysta
gólfplötunni í húsnæðinu. „Skjöl
eru með því þyngsta sem sett er í
inn í hús,“ útskýrir Hrafn. „Papp-
írinn er vatnsbaseraður þannig að
þetta er næstum því á við sund-
laug í þyngd, ef maður tekur
massann.“
Húsnæði skjalasafnsins er
bráðabirgðahúsnæði sem tekið var
í notkun upp úr aldamótum.
„Staðan er erfið en þetta er allt í
skoðun,“ segir Hrafn. „Sigurður
Geirdal var bæjarstjóri þegar hús-
næðið var tekið í notkun og hann
lýsti því yfir að húsnæðið væri til
bráðabirgða. Það var aldrei neitt
launungarmál.“
Býður skrifstofuna
Engin lestraraðstaða er í
skjalasafninu en Hrafn býður
þeim sem slíkt þurfa að setjast inn
á skrifstofu sína til að athafna sig.
Vandann segir Hrafn ekki
óvenjulegan fyrir skjalasöfn á Ís-
landi og nefnir sem dæmi að
ástandið á Þjóðskjalasafninu sé
líka bágt. „Þau bágindi eru svo
óskapleg að engu tali tekur og
segja má að hlutfallslega sé
ástandið svipað hér,“ segir Hrafn.
Til eru staðlar til að reikna út
hversu marga metra af pappír má
setja inn í húsnæði.
Úrbætur segir Hrafn velta á
vilja bæjaryfirvalda. „Ég hef fulla
trú á því að lausn fáist á þessu,“
segir hann.
Morgunblaðið/Frikki
Þrengsli Hrafn Sveinbjarnarson héraðsskjalavörður. Húsnæðið er of lítið en Hrafn er bjartsýnn á úrbætur.
Eins og sundlaug að þyngd
NESBRYGGJA ehf. hefur óskað
eftir heimild til landfyllingar fyrir
utan lóð sína á Kársnesi. „Þeir
eru bara búnir að óska eftir við-
ræðum við bæjarráð og málinu
var vísað til mín. Ég hef bara ekki
haft tíma til að hitta þá ennþá,“
segir Gunnar Birgisson, bæjar-
stjóri í Kópavogi, um ósk Nes-
bryggju ehf.
Athugasemdir íbúa vegna
Kársness hafa verið lagðar fyrir
skipulagsnefnd og skipulagsyfir-
völd eru að fara yfir þær. „Vænt-
anlega verða þær teknar upp á
næsta fundi skipulagsnefndar,“
segir Gunnar.
Alls bárust 1.674 athugasemd-
irfrá einstaklingum og samtökum,
þar af 1.117 af Kársnesinu sjálfu.
Ein athugasemd barst frá heim-
ilisketti en hún var ekki talin með.
Biðstaða
á Kárs-
nesinu
Miðborgin | Alls söfnuðust um 305 þúsund
krónur í „stærsta pylsupartíi Íslandssög-
unnar“ sem Bæjarins beztu efndu til í tilefni
af 70 ára afmæli fyrirtækisins um síðustu
helgi og haldið var á sölustöðum þess; í
Tryggvagötu, Skeifunni og Smáralind.
Frá laugardagsmorgni til sunnudags-
kvölds bauðst gestum og gangandi að kaupa
sér pylsu fyrir 10 krónur og kókglas fyrir
annað eins; pylsu og kók fyrir tuttugu krón-
ur. Því var jafnframt heitið að allt sem „í
kassann kæmi“ myndi renna til góðgerð-
armála.
Í lok helgar réðst eigandi í það verk ásamt
starfsfólki sínu að telja alla tíkallana – og
þegar upp var staðið reyndust 30.554 tíkallar
hafa safnast – og reyndar 6 krónum betur,
hvernig svo sem á því stendur, segir í frétt
frá fyrirtækinu. Lokatalan reyndist því vera
305.546 krónur. Guðrún Kristmundsdóttir,
eigandi Bæjarins beztu, ákvað að afrakstur
helgarinnar skyldi renna til Konukots, næt-
urathvarfs fyrir heimilislausar konur, sem
er samstarfsverkefni Reykjavíkurdeildar
Rauða krossins og Reykjavíkurborgar.
Gjöf Kristín Helga Guðmundsdóttir, verk-
efnisstjóri í Konukoti, tekur við gjöfinni
frá Guðrúnu Kristmundsdóttur.
305 þúsund
krónur til
Konukots
KANNABISPLANTA fannst við
húsleit í fjölbýlishúsi í Árbæ í
gær. Húsráðandi, sem er karl á
miðjum aldri, var handtekinn en í
íbúð hans fannst einnig lítilræði
af ætluðu maríjúana. Á sama stað
fannst einnig riffill sem hafði
verði stolið á Norðurlandi fyrir
tveimur árum.
Húsleitin var framkvæmd að
undangengnum úrskurði Héraðs-
dóms Reykjavíkur, samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu.
Kannabis
í Árbæ
♦♦♦