Morgunblaðið - 14.09.2007, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 21
AUSTURLAND
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Krónan Mosfellsbæ
Nóatún Hafnarfirði
Calsium eap
Kalk sem nýtist
Ljósmynd/BG Bros
Ljúfsárt Guðmundur R. Gíslason gefur út nýja trúbadoraplötu þar sem um-
fjöllunarefnin eru sum þungbær og snerta sammannlegan sársauka.
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem
forsetar bæjarstjórna gefa út plöt-
ur, en einn slíkur er þó að koma með
nýja músík þessa dagana.
Það er Guðmundur R. Gíslason,
forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggð-
ar, en hann er kannski betur þekkt-
ur í tónlistarheiminum fyrir að hafa
verið söngvari í hljómsveitinni
Súellen, sem spilar enn við hátíðleg
tækifæri. Guðmundur rak einnig
Hótel Egilsbúð í Neskaupstað um 9
ára skeið, heldur árlega Trúba-
dorahátíð Íslands, spilar með
BRJÁN og er nú mannauðsstjóri
hjá ESS á Reyðarfirði.
„Íslensk tónlist“ er fyrsta sóló-
plata Guðmundur og inniheldur 11
lög, þar af 8 eftir hann sjálfan. Tvö
laganna eru eftir Halla Reynis og
eitt frá Bubba Morthens, sem
Magni Ásgeirsson syngur með Guð-
mundi.
Kveður sveitaballapoppið
Diskurinn er að sögn Guðmundar
trúbadorahliðin á söngvaranum og
var lagt upp með að gera yfirveg-
aðan disk þar sem textar fengju að
njóta sín. „Mig langaði að gera öðru-
vísi tónlist en Súellen gerði á sínum
tíma og kveðja sveitaballapoppið –
alla vega í bili,“ segir Guðmundur.
„Mottóið var „less is more“ og
áhersla lögð á einfaldar útsetning-
ar.“ Hann segir það hafa verið yfir-
vegaða ákvörðun að vera ekkert að
rembast á þessum diski og sýna alla
stælana. „Það eru alltof margir í
þeim pakka að syngja eins hátt og
þeir geta og taka eins hröð gítarsóló
og hægt er. Fegurð tónlistar er ekki
síður að finna í einfaldleikanum. Ég
vil meina að þetta sé svolítið þrosk-
uð tónlist sem fer ákaflega vel með
rauðvíni og ostum.“
Guðmundur byrjaði að hlusta á
tónlist í kringum Rokk í Reykjavík
og segir þá rokkara sem einnig voru
trúbadorar hafa haft mikil áhrif á
sig. Súellen var í poppi og rokki og
smám saman varð til safn allt öðru-
vísi laga í fórum Guðmundar sem
hentaði aldrei að nota með hljóm-
sveitinni. „Mig langaði alltaf að gefa
út trúbadoraplötu og elstu lögin eru
sjálfsagt frá 1990.“ Textarnir fjalla
t.d. um hjónaskilnað, föðurást, alkó-
hólisma, bróðurmissi og kynferðis-
legt ofbeldi gagnvart stúlkubörnum
og tileinkar Guðmundur Stígamót-
um eitt lag plötunnar. Tilfinningar
og sterk þjóðfélagsádeila einkenna
þannig textana. Tónlistin og pólitík-
in fer ágætlega saman að sögn Guð-
mundar, sem segir þetta tvennt
skyldara en ætla mætti. Hann held-
ur í lok mánaðarins í tónleikaferða-
lag um Austurland. Hann spilar
einnig á Austfirðingaballi á Players í
Kópavogi 21. september nk. Útgáfu-
tónleikar í Reykjavík verða svo á
Organ 11. október þar sem Dúkku-
lísurnar kynna einnig nýjan disk.
Forseti bæjarstjórnar
sleppir trúbadornum út
Í HNOTSKURN
»Íslensk tónlist er ný platafrá Guðmundi R. Gíslasyni
í Neskaupstað.
»Hann er forseti bæjar-stjórnar í Fjarðabyggð,
mannauðsstjóri hjá EES á
Reyðarfirði, spilar með
BRJÁN og stendur fyrir Trú-
badorahátíð Íslands árlega.
»Guðmundur kynnir plöt-una á Austurlandi í sept-
emberlok og í Reykjavík 11.
október.
SÍLDARVINNSLAN hf. hefur lok-
að öllum starfsstöðvum sínum fram
til 17. september nk. og boðið
starfsmönnum fyrirtækisins og
mökum þeirra til borgarinnar Tall-
inn í Eistlandi. Skip félagsins verða
í höfn og öll vinnsla lokuð, en sinna
á þó afgreiðslum í kringum frysti-
klefa.
317 manns og makar frá öllum
starfsstöðvum Síldarvinnslunnar,
þ.e. Neskaupstað, Seyðisfirði,
Siglufirði og Helguvík, fóru utan
með þremur flugvélum frá Egils-
staðaflugvelli seint í fyrrakvöld.
Annað kvöld mun fyrirtækið halda
fólkinu hóf í óperuhúsinu í Tallinn
og er það, líkt og ferðin sjálf, í til-
efni hálfrar aldar afmælis Síld-
arvinnslunnar nú í ár.
Fram kemur á vef fyrirtækisins,
svn.is, að um leið og vonast er til að
ferð starfsmanna valdi við-
skiptavinum ekki óþægindum sé
þess farið á leit að þeir verði ekki
ónáðaðir að óþörfu í gsm-símum
sínum vegna vinnunnar.
Það er ferðaskrifstofan Trans-
Atlantic á Akureyri sem skipulegg-
ur ferðina til Tallinn og hefur stað-
ið fyrir beinu flugi frá Egilsstöðum
og Akureyri undanfarin misseri.
Að Síldarvinnslustarfsfólki með-
töldu fóru í fyrrakvöld alls út 378
farþegar með þremur Boeing-
vélum.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Rólegt á kajanum Starfsemi Síldarvinnslunnar hf. liggur niðri enda
starfsmennirnir allir í Tallinn í boði fyrirtækisins að skemmta sér.
Síldarvinnsluhóf í
óperuhúsi Tallinn
SUÐURNES
ÍÞRÓTTAFÉLÖGIN í Reykjanesbæ
fá Íþróttamiðstöðina í Akurskóla til
afnota eftir að leikfimi- og sundtím-
um nemenda lýkur. Töluverð eft-
irspurn er eftir æfingatímum í
íþróttasalnum sem er sá sjötti í
Reykjanesbæ.
Íþróttamiðstöðin er ekki eyrna-
merkt Ungmennafélagi Njarðvíkur
og bauð bærinn öllum íþróttafélög-
unum að sækja þar um æfingatíma.
Ragnar Örn Pétursson, íþrótta- og
tómstundafulltrúi, segir að í Reykja-
nesbæ sé lögð sé áhersla á að æf-
ingatímar yngstu íþróttaiðkendanna
séu hafðir strax eftir að skólatíma
lýkur, meistaraflokkarnir fái yf-
irleitt tíma um kvöldmatarleytið og
unglingarnar snemma kvölds. Segir
hann að nánast fullbókað sé í
íþróttasal Akurskóla frá klukkan
þrjú til níu alla virka daga.
UMFN fær flesta tíma í húsinu
fyrir yngri iðkendur í körfubolta. Þá
fær Badmintondeild Keflavíkur tíma
ásamt knattspyrnudeild UMFN og
körfuknattleiksdeild Keflavíkur sem
fær þarna inni æfingatíma fyrir einn
flokk. Sunddeild UMFN fær æfinga-
tíma fyrir ungt sundfólk í lauginni.
UMFN fær flesta tímana
Opnun Lára Rut Björgvinsdóttir, nemandi í Akurskóla, opnaði nýja
íþróttamiðstöð. Hún er hér með Árna Sigfússyni og Jónínu Ágústsdóttur.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Innri-Njarðvík | Íþróttamiðstöð Ak-
urskóla hefur verið opnuð formlega.
Var það gert við athöfn sem fram fór
í húsinu í fyrradag. Í Íþróttamiðstöð-
inni er íþróttasalur og innisundlaug.
Akurskóli er í Tjarnahverfi sem er
í örri uppbyggingu. Þar eru nú 202
nemendur, liðlega sextíu fleiri en í
fyrra. Skólinn tók til starfa fyrir
tveimur árum og bætist einn árgang-
ur við á ári. Nemendurnir sem nú
eru í skólanum eru í 1. til 8. bekk, 9.
bekkur bætist við næsta haust og 10.
eftir tvö ár.
Börnin byrjuð
Bygging Íþróttamiðstöðvarinnar
er annar áfanginn í uppbyggingu
skólans. Miðstöðin skiptist í þrjá
hluta, það er 16,6 metra innisund-
laug og kjallara, búningsaðstöðu
með tækjarými og íþróttahús með
áhaldageymslu. Hægt er að koma
upp löglegum körfuboltavelli í saln-
um og þar er stúka sem tekur 120
manns í sæti.
Eignarhaldsfélagið Fasteign lét
byggja Íþróttamiðstöðina og leigir
Reykjanesbæ. Bergur Hauksson
framkvæmdastjóri afhenti Árna Sig-
fússyni bæjarstjóra hana og Árni af-
henti aftur skólanum til afnota. Lára
Rut Björgvinsdóttir tók við aðstöð-
inni fyrir hönd nemenda. Börnin
tóku íþróttasalinn og sundlaugina
strax í notkun.
Nemendur Akurskóla hafa sótt
tíma og leikfimi í Íþróttamiðstöðina í
Njarðvík. „Það er óskastaða hvers
skóla að hafa íþróttahús og sundlaug
innan seilingar,“ sagði Jónína
Ágústsdóttir. Reykjanesbær hefur
fylgt þeirri stefnu að byggja íþrótta-
aðstöðu við alla grunnskólana sem
nú eru fimm. Íþróttasalurinn er sá
sjötti í Reykjanesbæ og sundlaugin
sú fimmta og er þá ekki talin með
sundlaug sem tekin verður í notkun
á næstunni á Vallarheiði, háskóla-
hverfinu á Keflavíkurflugvelli.
Byrjað á lokaáfanganum
Gert er ráð fyrir allt að 400 nem-
endum í Akurskóla, þegar honum
verður að fullu lokið. Byrjað er á
framkvæmdum við þriðja og síðasta
áfanga. Í honum verða stofur fyrir
hönnun og smíðar, sérgreinastofur
og fleiri kennslustofur. Jónína von-
ast til að hægt verði að taka hluta
stofanna í notkun næsta haust og
það sem á vantar í framhaldinu.
Óskastaða hvers skóla
að hafa íþróttaaðstöðu
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Fimleikar Nemendur Akurskóla voru komnir á fullt í íþróttasalnum strax
eftir opnun íþróttamiðstöðvarinnar. Brúnkaka og aðrar veitingar biðu.
Sundlaug og
íþróttasalur
við Akurskóla