Morgunblaðið - 14.09.2007, Síða 24

Morgunblaðið - 14.09.2007, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. MÓTVÆGI VIÐ KVÓTANIÐURSKURÐI Ríkisstjórnin tilkynnti í fyrra-dag að 10,5 milljörðum krónayrði varið í mótvægisaðgerðir vegna niðurskurðar þorskveiðiheim- ilda á þessu fiskveiðiári. Fyrirhugað- ar aðgerðir ná til margra þátta og hefur ekki verið ákveðið endanlega hvernig öllu fénu verður varið vegna þess að enn er ekki ljóst með hvaða hætti áhrif kvótaniðurskurðarins munu koma fram. Ákvörðunin um að skera niður þorskveiðiheimildir úr 193 þúsund tonnum í 130 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári kemur harkalega niður á mörgum byggðarlögum, sem byggja á sjávarútvegi. Sú ákvörðun að fara að ráðum Hafrannsóknastofnunar var hins vegar óhjákvæmileg. Sú uppbygging þorskstofnsins, sem von- ast hafði verið til að kvótakerfið myndi leiða til, hefur ekki skilað sér. Frá því að kvótakerfið var tekið upp hafði aldrei verið farið eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og var tíma- bært að láta nú á hana reyna. Meg- inástæðan er vitaskuld sú að það er eina leiðin til að komast að því hvort vísindin hafa rétt fyrir sér, en einnig má segja íslenskt efnahagslíf standi svo sterkum fótum um þessar mundir að sennilega hafa aldrei verið jafn miklar efnahagslegar forsendur fyrir slíkum aðgerðum og nú. Tilgangurinn með niðurskurðinum er að byggja upp þorskstofninn í þeirri von að innan skamms verði hægt að auka veiðiheimildir að nýju og það til frambúðar. Niðurskurður- inn þýddi hins vegar að með einhverj- um hætti varð að koma til móts við byggðarlög, sem yrðu illa úti, og hjálpa þeim að brúa bilið. Þetta á við um sveitarstjórnir, sem skyndilega missa tekjur án þess að geta dregið úr útgjöldum, og fyrirtæki, sem þurfa tímabundið að halda velli. Eins og áður sagði eru aðgerðirnar af ýmsum toga og ljóst er að þær koma sér vel fyrir flest þau sveitar- félög, sem í hlut eiga, þótt gagnrýni hafi borist frá tveimur um að þau hafi orðið útundan, Grindavík og Grund- arfirði. Samband íslenskra sveitarfé- laga lýsti yfir óánægju með skort rík- isstjórnarinnar á samráði og verður að teljast klaufalegt að það skyldi ekki gert. Á hinn bóginn ber þess að gæta að ekki hefur öllu því fé, sem ákveðið hefur verið að veita í aðgerð- irnar, verið ráðstafað þannig að enn er hægt að taka upp samræðustjórn- mál. Mikilvægast er hins vegar að að- gerðirnar gagnist þeim einstakling- um, sem haft hafa atvinnu af sjávar- útvegi og sjá nú fram á að missa vinnuna eða að dragi verulega úr at- vinnumöguleikum. Með mótvægisað- gerðunum hefur ríkisstjórnin sýnt að hún hyggst hjálpa til við að milda af- leiðingar kvótaniðurskurðarins. Það er mikilvægt að mótvægisaðgerðirn- ar beri árangur. EFLD TENGSL VIÐ ÍRA Margt er skylt með Írum og Ís-lendingum. Milli landanna liggur menningarlegur strengur, sem nær allt aftur til upphafs byggð- ar á Íslandi, og rannsóknir hafa sýnt að írsk gen er að finna í stórum hluta Íslendinga. Geir H. Haarde er nú staddur á Írlandi til að eiga viðræður við þarlenda ráðamenn. Heimsókn hans ber upp á tíma mikils uppgangs í landinu. Fyrir tveimur áratugum var efnahagsástandið slæmt á Ír- landi og atvinnuleysi gríðarlegt. Síð- an þá hafa orðið alger umskipti sem byggst hafa á áherslu á útflutnings- greinar og efnahagslífið fór á fljúg- andi ferð. Í viðtali við Davíð Loga Sigurðsson í Morgunblaðinu í dag segir Geir að viðræður hans við menn á Írlandi hafi ekki aðeins fært honum heim sanninn um að ýmislegt megi læra af þeim, heldur einnig að menn hafi verið að taka réttar ákvarðanir á Íslandi. „Við getum lært ýmislegt af þeim, en þeir geta líka lært af okkur,“ sagði Geir. Í frásögn Davíðs Loga kemur fram að Geir hafi sérstaklega sýnt þjóð- arsáttarkerfinu, sem Írar komu sér upp 1987 áhuga, enda er í stefnu- yfirlýsingu ríkisstjórnar Sjálfstæðis- flokks og Samfylkingar frá því í vor vikið að því að stofna skuli samráðs- vettvang aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda á Íslandi í líkingu við það sem gert hefur verið á Írlandi. Sagði Geir að ætlunin væri ef til vill ekki að koma þessum samskipt- um í jafn fast form og á Írlandi, enda ekki ástæða til þess, en markmiðið væri að binda hlutina fastar en nú væri. Heimsóknin til Írlands hefur þeg- ar skilað árangri á menningarsvið- inu. Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að efna eigi til samstarfs milli þjóðminjasafna Írlands og Íslands og er stefnt að því að sameiginleg sýning um tengsl landanna verði sett upp í Dyflinni sumarið 2010 með áherslu á írsk áhrif frá upphafi. Þar stæði sýningin yfir í sex mánuði og yrði síðan flutt yfir til Íslands. Þarna er af miklu að taka og gæti þetta orð- ið fróðleg og merk sýning. Ekki hafa verið mikil viðskipti milli Írlands og Íslands. Andvirði innflutnings til Íslands frá Írlandi er 8,4 milljarðar króna og útflutningur frá Íslandi til Írlands er rúmlega milljarður króna á ári. Sjö íslensk fyrirtæki eru með umsvif af ýmsum toga á Írlandi, allt frá fjármálastarf- semi til netagerðar og fiskeldis. Írar fengu ekki sjálfstæði fyrr en árið 1937 og líkt og Íslendingar voru þeir með fátækustu þjóðum Evrópu. Bókmenntaarfurinn hefur reynst báðum þjóðum mikilvægur. Að Norð- urlöndunum undanskildum eiga Ís- lendingar sennilega mestan skyld- leika við Íra. Á þessum skyldleika á að byggja. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Davíð Loga Sigurðsson í Dublin david@mbl.is Geir H. Haarde forsætis-ráðherra segir margasnertifleti milli Írlandsog Íslands í efnahags- málum en ráðherrann kynnti sér aðstæður á Írlandi á öðrum degi opinberrar heimsóknar sinnar þangað í gær. Hann átti m.a. fund með viðskiptaráðherra Írlands, Micheal Martin, en meðal umræðu- efnanna voru evrumál og skatta- mál. Um miðjan níunda áratuginn ríktu „hinar myrku miðaldir“ í írsk- um efnahagsmálum en þá var at- vinnuleysi á ársgrundvelli meira en 15%, þjóðarskuldirnar gríðarlegar og halli á ríkissjóði varanlegur. Ljóst var að bregðast þurfti við með ýmsum hætti og rakti Micheal Martin viðskiptaráðherra í gær- morgun fyrir Geir þær aðgerðir sem gripið var til á sínum tíma. Um leið reyndi hann að útskýra hvers vegna Írland hefði náð jafn frábær- um árangri og raun bæri vitni í efnahagsmálum, en mikill upp- gangur hefur verið á Írlandi und- anfarin ár. Geir sagði fundinn með Martin hafa verið sérlega áhugaverðan: „Við getum dregið ýmsan lær- dóm af reynslu manna hér en þó fyrst og fremst þann að árangurinn hér á Írlandi byggist ekki á neinu einu atriði. Ræðir þar m.a. um fjár- festingu í menntun, eins konar þjóðarsáttarsamninga (Social Part- nership) sem tryggt hafa stöðug- leika og ró á vinnumarkaði, auk að- ildarinnar að Evrópusambandinu.“ Mikill uppgangur hefði hins veg- ar verið á Íslandi einnig, m.a. fyrir tilstilli aðgerða íslenskra stjórn- valda, s.s. með sölu ríkisfyrirtækja og vinsamlegra umhverfis fyrir fjárfesta og fyrirtæki. Sagði Geir að samræður hans við aðila á Írlandi hefðu ekki aðeins fært honum heim sanninn um að ýmislegt mætti læra af þeim, heldur einnig að menn hefðu verið að taka réttar ákvarð- anir á Íslandi. „Við getum lært ýmislegt af þeim en þeir geta líka lært a Orkumálin eru þar veiga líka lífeyrismálin,“ sagði G erum auðvitað í fararbrod um sviðum. Við höfum mj lífeyrissjóðakerfi sem b sjóðssöfnun sem þeir h hérna. Það er eitt af þessu málum sem þeir eiga óle eru það orkumálin: þeirra byggist nánast eingöngu á jarðefnaeldsneyti og þar e lega mikill munur á aðs löndunum tveimur.“ Sagði Geir að viðskipta ann írski hefði sýnt íslens stæðum í þessum efnum áhuga og léði hann máls á s í þeim geira, enda byggju Getum lært af Íru Á öðrum degi opinberr- ar heimsóknar sinnar til Írlands hitti Geir H. Haarde m.a. forseta Ír- lands, Mary McAleese, og viðskiptaráðherrann, Micheal Martin, auk þess sem hann kom við í höfuðstöðvum Merrion Capital, fyrirtækis í eigu Landsbankans. Í höfuðstöðvunum Sigurjón Árnason, Geir H. Haarde forsætisr GEIR H. H fund með lands, í gæ Phoenix P forseti Írla og er því n Á forsetaf Ánæ Áform eru uppi um að efna til sam-starfs milli Þjóðminjasafns Ís-lands og þess írska en stefnt erað því að setja upp sameiginlega sýningu um tengsl Írlands og Íslands sum- arið 2010 í Dublin og á hún að vera opin í sex mánuði. Að því búnu yrði hún sett upp á Íslandi. Áhersla yrði lögð á írsk áhrif á Ís- landi í öndverðu. Geir H. Haarde forsætisráðherra er í op- inberri heimsókn á Írlandi en tilgangur ferðarinnar er að stuðla að auknum sam- skiptum landanna, bæði á sviði menningar og viðskipta. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður er með Geir í heimsókn- inni og fundaði hún í gær og fyrradag með forsvarsmönnum írska þjóðminjasafnsins um þau áform sem fyrir liggja um samstarf safnanna tveggja. Margrét segir að um samvinnuverkefni stjórnvalda, safnanna tveggja og Árna- stofnunar yrði að ræða. Horft yrði til þess á umræddri sýningu hvaða írskra áhrifa sæi stað í fornminjum á Íslandi, í frásögnum af landnámi, mannanöfnum, íslenskri tungu, örnefnum og erfðafræðirannsóknum. Enn- fremur yrði horft til þeirrar trúar, siða og venja sem þróuðust á Íslandi, með dæmum af fornsögum og þjóðtrú/þjóðháttum síðari alda. Sérstaklega yrði staldrað við minn- ingar um papana, sem hermt er að hafi fyrstir komið til Íslands, frumkristni í land- inu og á Grænlandi, þátt fólks af gelískum uppruna í Vínlandsferðum og hlutverk hinna gelísku áhrifa í að móta sérstaka frá- sagnar- og kveðskaparhefð á Íslandi. Markmiðið er að draga fram sameig- inlega fortíð þeirra sem nú byggja Ísland og Írland og benda á þau menningar- sögulegu áhrif sem bárust vestan um haf til Íslands með það í huga að efla samkennd þjóðanna og opna leið fyrir greið samskipti á viðskipta- og menningarsviði. Segir Mar- grét að valdir verði gripir af þjóðminjasöfn- un Írlands og Íslands auk handrita úr Árnasafni og greint frá þverfaglegum rannsóknum. Einnig yrði beitt margmiðlun og nýjustu aðferðum á sviði sýningatækni. Skemmtilegt verkefni „Margt af þessu hefur ekki verið mikið rannsakað, einkum það sem varðar fyrstu aldirnar, og það verður svolítið gaman að spreyta sig á svona sýningarverkefni,“ seg- ir Margrét um tengslin milli Íslands og Ír- lands. Ekki sé ólíklegt að rannsóknir sem gerðar yrðu samhliða þessu samstarfi skil- uðu nýrri þekkingu. „Þetta er metnaðarfull hugmynd og aðstæðurnar sem okkur bjóð- ast í Þjóðminjasafni Írlands eru mjög góð- ar.“ Geir H. Haarde forsætisráðherra ræddi hugmyndina um samstarf þjóðminjasafn- anna á fundum sínum með írskum ráða- mönnum í gær og fyrradag og segist hafa fengið góð viðbrögð. „Ég fagna því mjög að við gátum notað þessa opinberu heimsókn til að vinna í þessu máli einnig,“ segir hann. Efla á menning- artengsl landanna Stefnt að auknu samstarfi þjóðminjasafnanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.