Morgunblaðið - 14.09.2007, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.09.2007, Qupperneq 26
matur 26 FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Æ tli megi ekki segja að ástin hafi tog- að mig til Ís- lands,“ segir Eliza Reid, sem er fædd og uppalin í Kanada, en fluttist til Íslands árið 2003 með manni sínum og sagnfræðingnum Guðna Th. Jóhannessyni. „Ég ólst upp í höfuðborginni Ot- tawa og við Guðni hittumst í Oxford á Englandi árið 1998 þar sem við vorum bæði við nám, ég í masters- námi í sagnfræði og hann í sínu doktorsnámi. Eftir fimm ára dvöl í Englandi ákváðum við að setjast að á Íslandi og fluttum hingað heim ár- ið 2003,“ segir Eliza. Frumburðurinn að fæðast Þau hjónin hafa nú komið sér fyrir í litlu gömlu, gulmáluðu húsi vestast í Vesturbænum innan um önnur gömul hús með sál. Iðnaðarmenn voru í óða önn að búa til auka- herbergi í risinu þegar útsendara Daglegs lífs bar að garði því von er á frumburðinum í heiminn innan ör- fárra daga. „Þetta er víst strákur og ég er alveg tilbúin. Það er mikil til- hlökkun í loftinu og nú taka við ný ævintýri,“ segir Eliza og brosir, en fyrir á Guðni þrettán ára dóttur, Rut að nafni. Fæðingarorlof er því á næsta leiti hjá Elizu, sem hingað til hefur titlað sig sem blaðamann á Íslandi þar sem hún hefur verið að vinna í hálfri stöðu við að skrifa fyrir tímaritin Iceland Review og Atlantica. Auk þess hefur hún tekið að sér verkefni við að skrifa enska texta í bæklinga fyrir ýmis fyrirtæki og stofnanir. „Ég hef líka afskaplega gaman af ferðalögum og hef til dæmis gert viðreist um Vestur-Afríku, Asíu og Rússland,“ segir Eliza á góðri ís- lensku og því liggur beinast við að spyrja hvernig hún hafi nálgast tungumálið, sem liggur nú ekki jafn- vel fyrir öllum útlendingum. „Þar sem við ákváðum að framtíðarheim- ili okkar yrði á Íslandi, fannst mér ekki annað hægt en að leggja mig eftir því að læra íslenskuna. Við Guðni tölum einhverra hluta vegna alltaf saman á ensku, en ég tók ís- lenskukúrsa í Endurmenntun Há- skóla Íslands auk þess sem tengda- móðir mín Margrét Thorlacius hefur verið óþreytandi við að tala við mig á íslensku, en hún var kennari í Garðabæ í mörg ár. Svo hefur mér fundist mjög mikilvægt að koma mér upp mínu eigin tengslaneti hér í staðinn fyrir að vera bara konan hans Guðna. Ég hef kynnst hér mörgu góðu fólki þó svolítið erfitt sé að komast að Íslendingum, sem eru yfir höfuð fremur lokaðir persónu- leikar. Um tíma var ég að syngja með Mótettukór Hallgrímskirkju og nú er ég sjálfboðaliði hjá Rauða kross- inum í litlu sjoppunni á Landspít- alanum til að geta æft mig á íslensk- unni.“ Gaman að grúska í matargerð Eliza er líka mikill matgæðingur og á fullt af matreiðslubókum uppi í hillu í litla eldhúsinu sínu. „Ég á mér svo sem engan uppáhaldsmat, en hef afskaplega gaman af því að grúska í alls konar alþjóðlegri matreiðslu. Ætli mér finnist ekki matur frá Taí- landi, Líbanon og Tyrklandi mest spennandi í augnablikinu. Mjög erfitt er að lýsa kanadískum matarhefðum því þær koma í reynd frá mörgum löndum þar sem Kan- ada hefur byggst upp af þjóðar- brotum héðan og þaðan,“" segir Eliza um leið og hún ber fram svo- kallaða nanaimo-bita, sem sækja nafn sitt til samnefndrar borgar í Bresku-Kólumbíu þar sem upp- skriftin varð til um eða upp úr 1930. „Það má segja að bitar þessir séu hálfgert þjóðarstolt Kanadabúa þar sem allir Kanadamenn kannast við þá og baka þá á góðum stundum, en varla nokkur sála utan Kanada þekkir uppskriftina. Það er því kom- inn tími til að bæta úr því,“ segir Eliza og gefur blaðamanni uppskrift af bitunum góðu sem eru einkar ljúf- fengir með kaffisopanum. „Þið fáið líka uppskrift af bráðgóðri bláberja- köku og af franskættuðu kjötböku frá Québec sem gjarnan er fram bor- ið að afloknu messuhaldi, ýmist á jól- um eða á gamlaársdag.“ Nanaimo-bitar 175 g suðusúkkulaði 15 muldar Graham hafrakexkökur ¾ bolli kókosmjöl 75 g valhnetukjarnar, muldir eða smátt saxaðir 2 msk. sykur 175 g lint, ósaltað smjör 1 egg 1 tsk. vanilludropar 3 msk. mjólk 2 msk. vanillubúðingsduft, t.d. frá Royal 350 g flórsykur Blandið saman kexmylsnu, kókos- mjöli og valhnetum í skál. Blandið saman í aðra skál 50 g af smátt söx- uðu súkkulaðinu, tveimur þriðju af smjörmagninu, sykri, eggjum og vanilludropum. Bræðið saman yfir vatnsbaði. Hrærið svo þessari blöndu í kexmylsnuna. Þrýstið þessu í kökumót, um 20 cm í þvermál. Blandið saman mjólkinni og van- illubúðingsduftinu og hrærið saman ásamt helmingnum af því sem eftir er af smjörinu og bætið síðan flór- sykrinum út í. Smyrjið þessu ofan á kökuna í forminu og kælið vel, t.d. í frysti. Bræðið saman restinni af smjörinu og súkkulaðið yfir vatns- baði og breiðið yfir kökuna. Kælið vel og skerið síðan í litla bita áður en „nammið“ er fram borið. Bláberjakaka 2 bollar hveiti 1 bolli sykur 3 tsk. lyftiduft ½ tsk. salt 1⁄3 bolli lint, ósaltað smjör 250 ml mjólk 1 egg 2 bollar fersk eða frosin bláber Kremið: 1 bolli flórsykur 1 tsk. raspaður sítrónubörkur 1-2 msk. sítrónusafi Hrærið öll hráefnin að undan- skildum berjunum saman í stórri skál í hálfa mínútu og hrærið síðan í hrærivélarskál á hálfum hraða í tvær mínútur. Setjið helminginn af deiginu í smurt eldfast fat eða bökunarform, um 23 cm í þvermál, stráið helmingnum af berjunum yfir, setjið restina af deiginu yfir og loks afganginn af berjunum. Bakið í ofni í 35-45 mínútur. Smyrjið kreminu svo yfir á meðan kakan er enn volg. Québec-„tourtiere“ Hægt er að kaupa tilbúið bökudeig úti í búð eða búa það til úr tveimur bollum af sigtuðu hveiti, 1 tsk. af salti, 2⁄3 bollum af smjörlíki og 5-7 msk. af köldu vatni. Fyllingin: 450 g svínahakk 1 smátt saxaður laukur salt og pipar ½ tsk. oregano negull season-all rauður pipar 60 ml sjóðandi vatn Blandið saman kjöti, lauk og kryddum í pott og bætið sjóðandi vatni út í. Sjóðið án loks í 20 mínútur og hrærið vel í á meðan. Fleytið fitu ofan af. Breiðið helming deigsins út og leggið í eldfast mót, um 23 cm í þver- mál. Hellið fyllingunni ofan á deigið. Breiðið hinn helming deigsins út og leggið ofan á. Pikkið í með gaffli á nokkrum stöðum. Bakið við 190°C í um 30 mínútur. Borið fram með tóm- at- eða salsasósu. join@mbl.is Allir Kanadamenn kannast við nanaimobita Það var ástin sem togaði blaðamanninn og mat- gæðinginn Elizu Reid til Íslands. Jóhanna Ingv- arsdóttir kíkti í heimsókn og fékk hana til að gefa upp nokkrar góðar kan- adískar uppskriftir. Morgunblaðið/Sverrir Matgæðingurinn Eliza Reid hefur gaman af að grúska í matreiðslubókum og elda nýja rétti. Nanaimobitar Kökur sem allir Kanadamenn kannast við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.