Morgunblaðið - 14.09.2007, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 14.09.2007, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand LÍSA, LANGAR ÞIG AÐ KOMA Í GÖNGUTÚR Í GARÐINUM? JÁ, ENDILEGA ÆÐI! ER Í LAGI AÐ ÉG KOMI MEÐ? ÆTLI ÞAÐ EKKI HERRA ÓÖRUGGUR HELDUR ÞÚ Í ALVÖRUNNI AÐ KALLI GETI ORÐIÐ FORSETI? HVAÐ ÁTTU VIÐ MEÐ ÞVÍ? VEIST ÞÚ EKKI NEITT? FYRST VERÐUR HANN AÐ VERÐA PRINS... SÍÐAN VERÐUR HANN FORSETI!! ÞAÐ SKELFIR MIG AÐ KOMAST AÐ ÞVÍ HVAÐ ÉG VEIT LÍTIÐ UM GANG MÁLA Í ÞJÓÐFÉLAGINU ÞÚ HEFUR TÍU SEKÚNDUR TIL ÞESS AÐ OPNA DYRNAR OG LÁTA MIG FÁ GLÓSURNAR MÍNAR! ÉG ER HRÆDDUR UM AÐ ÞÚ ÞURFIR AÐ BIÐJA MIG FALLEGA... ÞÚ VILT EKKI AÐ NEITT KOMI FYRIR GLÓSURNAR ÞÍNAR, ER ÞAÐ NOKKUÐ? ÞÚ ERT MEIRA KVIKINDIÐ! ÞEGAR FORELDRAR ÞÍNIR... ÞAR FÓR EIN SÍÐA HVAÐ RÁÐLEGGUR ÞÚ MÉR LÆKNIR? ÞÚ ÆTTIR AÐ HREYFA ÞIG MEIRA, DREKKA MINNA OG HUGSA BETUR UM MATARÆÐIÐ TIL AÐ LOSNA VIÐ FLÖSU?!? ÞAÐ GETUR VARLA SKAÐAÐ ÉG MÁ EKKI LENGUR BÍTA BRÉFBERANN! HVAÐ Á ÉG ÞÁ AÐ GERA? HVERNIG Á ÉG AÐ GETA LIFAÐ? ÉG ER MEÐ SENDINGU... GET ÉG FENGIÐ SENDIL HEIM? GRÍMUR! VILTU GJÖRA SVO VEL AÐ LEGGJA Á... NÚNA!! KRAKKAR, HVAÐ LANGAR YKKUR AÐ GERA Í DAG? GERA? NÚNA ÞEGAR ÉG ER BYRJUÐ AÐ VINNA HEIMA ÞÁ HEF ÉG NÓGAN TÍMA TIL AÐ FARA Í GÖNGUTÚR MEÐ YKKUR, BAKA SMÁKÖKUR EÐA BARA SLAPPA AF YFIR GÓÐRI BÍÓMYND ÉG ER MAMMAN SEM YKKUR HEFUR ALLTAF DREYMT UM TAKK... ÉG ER FREKAR UPPTEKINN ÉG ÆTLA AÐ FARA TIL GUNNU RUSLABÍLLINN ÆTTI AÐ KOMA FLJÓTLEGA BARDAGAMAÐURINN GETUR HORFIÐ UM LEIÐ OG BÚNINGUR- INN ER KOMINN Á HAUGANA Æ, NEI! dagbók|velvakandi Margt skal varast FYRIR skömmu heyrði ég öm- urlega sögu. Fyrir utan barnafata- verslun á Skólavörðustíg hafði ung móðir skilið barnavagninn eftir með litla barninu sínu í. Fljótlega kemur inn í búðina maður með látum og spyr hvort einhver þarna inni sé með þennan vagn. Hann hafi séð mann taka vagninn úr bremsu og vagninn var byrjaður að renna. Þarna höfðu verið að verki tveir ungir ógæfumenn. Varð uppi fótur og fit og lögreglan kölluð til. Ekki fylgdi sögunni hvort mennirnir náð- ust en mér finnst rétt að vara fólk við því að skilja barnavagna eftir eft- irlitslausa. Því miður lifum við á tím- um þar sem svona hlutir gerast. Sigurbjörg Hjörleifsdóttir. Léleg aðstaða bitnar á nemendum SKÓLASTJÓRN gerir náms- mönnum ekki auðvelt fyrir, heldur lætur það bitna á þeim að ekki er hægt að hafa næg bílastæði fyrir nemendur. Nýlega lenti ég í því að ég var að keyra í skólann og þegar ég kem að skólanum vill svo til að það er ekki EITT bílastæði laust. Búin að keyra nokkra hringi í leit að stæði, sé bíla allsstaðar þar sem þeir mögulega gátu troðið sér, ég að verða sein í tíma og er á samning og má ekki við því að koma seint. Ég keyri á planið fyrir ofan en þar er allt fullt líka og allsstaðar í kring, þannig að ég legg uppi á grasinu fyr- ir ofan skólann ásamt mörgum öðr- um bílum sem höfðu lent í því sama og ég. Hleyp síðan í tíma en áður en ég veit af er búið að draga bílinn minn í burtu og ég þarf að borga 10.500 kr. til þess að fá bílinn minn aftur, sem er kannski helmingur launa minna yfir heilan mánuð. Síð- an þegar ég fer til skólastjórnar og spyr hvað ég hefði átt að gera, þá var mér einfaldlega svarað: „Það var alveg nóg af stæðum, við kíktum út.“ Ekkert nema ókurteisi. Mér var ekki einu sinni gefið færi á að færa bílinn. Ég er mjög sár yfir því hvern- ig þessi heimur er að verða, og er ég örugglega ekki sú eina sem er búin að lenda í þessu. Endilega notið þennan pening sem þið eruð að stela af okkur til þess að gera ný stæði! Ósáttur námsmaður. Ruslatunnur á strætisvagn- astoppistöðvar ÉG er margbúin að tala við stræt- isvagnabílstjóra um að fá ruslatunn- ur á hverja einustu stoppistöð í Reykjavík og vil ég einnig koma því á framfæri hér. Mér finnst að borg- aryfirvöld ættu að sjá sóma sinn í því að gera umhverfið snyrtilegra með því að hafa ruslatunnur á stoppi- stöðvunum. Elín. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Það er stundum betra að nota brjóstvitið en fylgja götuskiltum í blindni. Ekki er gott að segja til um hvar konan hefði endað hefði hún tekið þennan vegvísi bókstaflega. Morgunblaðið/Golli Á niðurleið? FRÉTTIR HINN árlegi haust- og grænmet- ismarkaður Kristniboðssambands- ins verður haldinn laugardaginn 15. september, kl. 13-15, í kjallara húss KFUM&K á Holtavegi 28. Í fréttatilkynningu segir að til sölu verði ávextir, grænmeti, sult- ur, kökur o.fl. Þá verður lítið Afr- íkuhorn á markaðnum með slæður og handunnar festar frá Afríku. Tilgangur markaðarins að þessu sinni er að afla fjár til verkefnis sem kallast Af götu í skóla. Mark- mið þess er að bæta líf götubarna í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, með því að gera þeim mögulegt að ganga í skóla. Íslenskir kristniboð- ar, sem starfa í borginni, munu fylgja verkefninu eftir. Allir sem hafa áhuga eru velkomnir. Haustmark- aður Kristni- boðssam- bandsins FJÖLSKYLDUVÆN starfs- mannastefna – að skapa fyrirmynd- arvinnustað er heiti fyrirlesturs sem Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, lektor og umsjónarmaður MS-náms í mannauðsstjórnun við Háskóla Ís- lands, heldur í boði Rannsóknastofu í vinnuvernd í dag, föstudaginn 14. september, kl. 12.15-13.15. Fyrirlesturinn verður í Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 201. Er hann ókeypis og opinn öllu áhuga- fólki um vinnuvernd. Hádegisfyrirlestrar Rann- sóknastofu í vinnuvernd verða haldnir annan hvern föstudag á tímabilinu 14. september til 23. nóv- ember. Fyrirlestrarnir eru í Lög- bergi, stofu 201, kl. 12.15-13.15. Fjölskylduvæn starfsmanna- stefna JÓHANNES Geir Sigurgeirsson kynnir lokaritgerð sína frá Háskól- anum á Bifröst á morgunfundi Samtaka atvinnulífsins í fyrra- málið, föstudaginn 14. september. Ritgerðin er lokaritgerð í fram- haldsnámi í viðskiptum sem er 45 eininga nám sem samsvarar MA- námi í hag- og viðskiptatengdum greinum. Ritgerðin ber nafnið Frá höndum til hugar – breytingar í ís- lensku atvinnulífi 1995-2005, mögu- leg þróun til 2015. Í ritgerðinni er fjallað um þær miklu breytingar sem hafa átt sér stað í íslensku at- vinnulífi 1995-2005. Staða Íslands sem þekkingar- og þjónustu- samfélags er sett í alþjóðlegt sam- hengi og rýnt í þær miklu breyt- ingar sem hafa orðið á íslenskum vinnumarkaði á örfáum árum. Fundurinn fer fram í Húsi at- vinnulífsins – á 6. hæð í Borgartúni 35 – kl. 8.30-10. Frá höndum til hugar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.