Morgunblaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 47 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 0 7 -1 0 7 3 NÝ ÍSLENSK DAGSKRÁRGERÐ Í SJÓNVARPINU – Á HVERJUM DEGI Í VETUR ÚTSVAR Stærstu bæjarfélög landsins keppa sín á milli í skemmti- legum spurningaleik sem Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Í fyrsta þættinum keppa Hveragerði og Kópavogur. KL. 20.10 Í KVÖLD SÖNGLEIKJAMYNDIN Ha- irspray verður frumsýnd í kvik- myndahúsum landsins í dag. Cult-myndin Hairspray sem hinn magnaði leikstjóri John Waters gerði árið 1988 er hér sett í nýjan búning, en að þessu sinni er stuðst við söngleikjaútfærsluna sem hefur sópað til sín verðlaunum síðan hún var fyrst sett á svið á Broadway árið 2002. Það eru þau John Travolta og Queen Latifah sem leika aðal- hlutverkin í myndinni sem gerist ár- ið 1962 og fjallar um unga stúlku (Nicole Blonsky) sem setur allt á annan endann eftir að hún fær tæki- færi til að koma fram í vinsælum dansþætti í sjónvarpinu. Frjálsleg framkoma hennar hristir upp í hinu íhaldssama þjóðfélagi og brátt fer fólk að taka eftir því að hin hefð- bundnu gildi samfélagins eiga undir högg að sækja undan kraftinum í ungu kynslóðinni. Meðal leikara í myndinni eru þau John Travolta, Queen Latifah, Chri- stopher Walken og Michelle Pfeiffer en auk þess koma fram í myndinni fjöldinn allur af óþekktum en bráð- efnilegum leikurum. Myndin er sýnd í Laugarásbíói, Smárabíói, Háskólabíói og Borg- arbíói, Akureyri. Söngleikja- útfærsla Hairspray Hairspray Litrík söngleikjamynd. Erlendir dómar: Metacritic 81/100 New York Post 100/100 Entertainment Weekly 91/100 Variety 80/100 Empire 80/100 BRATZ-dúkkurnar hafa nú lifnað við á hvíta tjaldinu en unglinga- myndin Bratz – The Movie kemur í bíóhús í dag. Þar segir frá fjórum góðum vin- konum, Yasmin, Jade, Sasha og Cloe, sem hafa verið óaðskiljanlegar frá því þær hittust fyrst. Nú tekur líf þeirra nýja stefnu þegar þær byrja í unglingaskólanum, Carry Nation High. Þar bíður þeirra nýr heimur þar sem útlit og félagsstaða skiptir öllu máli með tilheyrandi baráttu. Stúlkurnar finna að þeir fjarlægj- ast hver aðra í skólanum en ákveða að láta það ekki gerast og rísa á ný saman sem „the Bratz“ til að berjast gegn þrýstingnum sem er á þeim sem unglingum. Leikstjóri er Sean McNamara og aðalhlutverk er í höndum: Paula Ab- dul, Skyler Shaye og Janel Parrish. Myndin er sýnd í Sambíóunum. Bratz Um unglingsstúlkur sem læra að meta vináttuna. Unglinga- veiki Erlendir dómar: Metacritic 21/100 The Hollywood Reporter 50/100 Variety 40/100 The New York Times 30/100 FRUMSÝNING» ÞETTA HELST UM HELGINA» Föstudagur <til fjársjóðsleitar> Organ Rjóma-tónleikar til styrktar BUGL (barna- og unglingageðdeild). Fram koma April, Hellvar, Vicky Pollard, Coral og Jan Mayen. Miðaverð er 500 krónur. Paddy’s Rockville Festival Nasa Franz Ferdinand Háskólabíó Jethro Tull Oliver DJ JBK Sólon DJ Rikki G Hressó Hljómsveitin Dalton og DJ Maggi Kringlukráin Geirmundur Valtýsson Players Paparnir Prikið Tónleikar með Vilhelm. Jóna og Ladycats. Vegamót DJ Símon Laugardagur <til Led Zeppelin> Norræna húsið Færeyskir tónleikar. Fram koma Jensina Olsen, Budam og Jógvan Hansen & Ízafold. LIDO Opnunartónleikar. Fram koma Blo- odgroup. Paddy’s Rockville Festival Edinborgarhúsið á Ísafirði Megas og Senuþjófarnir Organ Endurkoma DJ KGB Háskólabíó Jethro Tull Oliver DJ JBK & Addi trommari Sólon DJ Rikki G og DJ Maggi Hressó Alexander og Örvar. DJ Maggi. Kringlukráin Geirmundur Valtýsson Nasa Stórdansleikur SSSól Players Paparnir Prikið DJ Danni Deluxe Vegamót DJ Jónas Morgunblaðið/ÞÖK Jan Mayen Sveitin kemur fram á tónleikum til styrktar BUGL í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.