Morgunblaðið - 06.11.2007, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Islamabad. AP, AFP. | Pakistanska lög-
reglan beitti táragasi og bareflum til
að koma í veg fyrir að lögmenn gætu
staðið fyrir mótmælaaðgerðum við
dómshús landsins í gær. Lögmenn-
irnir vildu mótmæla framgöngu
Pervez Musharrafs, forseta Pakist-
ans, sem á laugardag setti neyðarlög
í landinu og rak fjölda dómara við
hæstarétt landsins úr embætti.
Fjölmargir voru sárir vegna að-
gerða lögreglunnar og þá höfðu
nokkrir tugir manna verið færðir í
fangaklefa. Musharraf hefur verið
gagnrýndur fyrir framgöngu sína og
hafa Bandaríkjamenn og Bretar ýjað
að því að þeir kunni að hætta fjár-
hagsstuðningi við stjórn forsetans.
Robert Gates, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði m.a. að Mus-
harraf yrði að taka aftur upp lýðræð-
islega stjórnarhætti í landinu eins
fljótt og auðið væri, þar sem stjórn-
arskrá væri virt og lög og réttur
giltu. Eftir því var hins vegar tekið
að Gates passaði sig að ganga ekki of
langt, sagði að Bandaríkjastjórn
myndi vara sig á því að gera nokkuð
sem kynni að grafa undan viðleitni til
að ráða niðurlögum hryðjuverka-
hópa í Pakistan og Afganistan.
Stjórnvöld í Pakistan hafa frá árinu
2001 fengið um ellefu milljarða
Bandaríkjadala í aðstoð frá stjórn-
völdum í Washington. Condoleezza
Rice utanríkisráðherra sagði í gær
að Bandaríkjastjórn myndi endur-
skoða aðstoð sína við Pakistan en sló
þó þann varnagla, að hluti þessa fjár
tengdist beint hryðjuverkavörnum
og þeirri aðstoð yrði ekki hætt, hvað
sem öðru liði.
AP
Spenna Lögregla stóð vörð við öll dómshús Pakistans í gær og kom í veg fyrir mótmælaaðgerðir lögmanna.
Mikil ólga í Pakistan
Pakistanska lögreglan beitti táragasi og bareflum gegn þeim
sem vildu mótmæla framgöngu Musharrafs forseta
GÓRILLUR eru stærsta apateg-
undin og vissulega ógnvekjandi að
sjá en í reynd mestu friðsemdardýr
sem lifa að mestu á jurtafæðu. Svo-
nefndar fjallagórillur, sem eru
loðnari og dekkri á lit en górillur á
láglendinu, eru orðnar mjög sjald-
gæfar, aðeins um 700 dýr. Þau
höfðu fengið að vera að mestu í
friði í meira en áratug en nú syrtir í
álinn, 10 dauð dýr hafa fundist það
sem af er árinu. Ekki er vitað með
vissu hvað veldur því að þau voru
skotin, kjötið var ekki hirt. Er gisk-
að á að um geti verið að ræða öfund
í garð fólks á svæðum sem njóta
góðs af þjónustu við ferðamenn sem
koma til að skoða dýrin í sínu nátt-
úrulega umhverfi. Aðrir nefna ein-
faldlega drápsæði en milljónir
manna hafa látið lífið síðustu árin í
borgarastríði í Lýðveldinu Kongó.
Arthur Mugisha, fyrrverandi
veiðivörður í Úganda, fer nú fyrir
alþjóðasamtökum um verndun
fjallagórillunnar sem margir óttast
að verði útrýmt. Segir hann að með
því að vekja athygli á örlögum
fjallagórillanna sé um leið verið að
minna umheiminn á neyðina sem
átökin valdi fólki á svæðinu.
Mannapar
í háska
staddir
Tíu górillur hafa
fundist skotnar
!
"
#$%&'()&
*
+%%,- )!& &+&-&& !%&
+%%,- )&
&' &.&&!.*%
!.(*"&'/&'"%&'.!&
&)
&
0&&! "&+%(.&1'&- &%2&
'&""&% .!%&&- )
'
&"&1,
)
)&
&
'"&&!$.3
!
456&76 &655 4558 4
9:;<4
!! "#
$ $
# %$
&
#
& = <8 '
(!
"!
)
#
*
!!+
&
"
,
-'
"
.
/0&%."
!
*
% :9 8 102
$
$&! $ *
!
/3 $
4
"
567
&
MAFÍUFORINGINN Salvatore Lo
Piccolo, sem hefur farið huldu höfði í
tuttugu og fjögur ár, var handtekinn
af ítölsku lögreglunni skammt frá
Palermo á Sikiley í gær, ásamt syni
sínum og tveimur öðrum mönnum.
Lo Piccolo var í hópi 30 eftirlýst-
ustu meðlima ítölsku mafíunnar og
er talinn hafa náð yfirráðum í Cosa
Nostra-mafíuklíkunni, í kjölfar
Bernardo Prov-
enzano í fyrra.
Romano Prodi,
forsætisráðherra
Ítalíu, fagnaði
handtökunni en
Lo Piccolo, sem
er 65 ára, er tal-
inn hafa gegnt
mikilvægu hlut-
verki sem tengiliður við glæpaklíkur
í Bandaríkjunum. Lo Piccolo, eða
„Baróninn“ eins og hann var nefnd-
ur, hóf feril sinn sem lífvörður fyrir
sikileyskan glæpamann en vann sig
fljótt upp metorðastigann. Handtak-
an þykir sæta miklum tíðindum og
sagðist Giuliano Amato innanríkis-
ráðherra vonast til að hún yrði bana-
högg Cosa Nostra-mafíugengisins.
„Baróninn“ tekinn höndum
Salvatore Lo
Piccolo
HART er deilt um tillögur hugveit-
unnar Senlis Council sem vill gera
tilraun með löglega framleiðslu á
morfíni úr valmúa í Afganistan.
Markmiðið er að gefa fátækum
bændum færi á að auka tekjur sínar
án þess að framleiða ólögleg eiturlyf
til útflutnings. Ætlunin er að veita í
fyrstunni fáeinum þorpum fram-
leiðsluleyfi.
Tillagan hefur fengið stuðning á
þingi Evrópusambandsins. Er bent á
að baráttan gegn talíbönum, sem
hafa helst stuðning í sunnanverðu
Afganistan, gangi illa og ein ástæðan
sé að þurrkar hafi plagað bændur ár-
um saman á svæðinu. Þeir reyni í ör-
væntingu sinni að komast af með því
að rækta valmúa sem þolir afar vel
þurrka. Þeir sjái lítið vit í að styðja
stjórnina í Kabúl sem berst gegn eit-
urlyfjaútflutningnum en getur fátt
boðið bændum í staðinn.
Stjórn Afganistans fordæmir hins
vegar hugmyndina og bendir á að
trúarleiðtogar hafi sagt eiturlyfja-
framleiðslu stríða gegn lögum ísl-
ams. Einnig er bent á að erfitt muni
reynast að fylgjast með því að bún-
aður sem nota á í umræddum þorp-
um til að vinna morfín úr valmúanum
verði ekki einnig notaður til að búa
til ólögleg eiturlyf. Þótt svipuð verk-
efni hafi tekist í nokkrum öðrum
löndum með fíkniefnavanda sé Afg-
anistan ekki reiðubúið; of mikil upp-
lausn og lögleysa ríki í landinu.
„Senlis Council og Evrópuþingið
ýta undir óstöðugleika í Afganistan,“
segir Khodaidad, ráðherra fíkniefna-
mála í Kabúl-stjórninni.
Fái að
framleiða
morfín
SÓSÍALÍSKI
þjóðarflokk-
urinn, SF, vinnur
mest á ef marka
má könnun sem
gerð var fyrir
Jyllandsposten
um dönsku kosn-
ingarnar. SF fær
24 sæti en er með
11. Vinstrivæng-
urinn á þingi og sá til hægri fá jafn-
mörg sæti, 83 hvor en alls eru sætin
179. Gangi þetta eftir mun nýr
miðjuflokkur, Nýtt bandalag
Nasers Khaders, ráða hvor fylk-
ingin myndar stjórn.
Nýtt bandalag
í lykilstöðu
Naser Khader
SÓSÍALDEMÓKRATINN Alvaro
Colom sigraði í annari umferð for-
setakosninganna í Gvatemala um
helgina. Hann tekur við af Oscar
Berger sem lætur af embætti 14.
janúar nk. Mikil fátækt er í landinu,
spilling útbreidd og glæpatíðni há.
Colom náði kjöri
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti veitti í gær Ellen Johnson-
Sirleaf, forseta Líberíu, Frelsisorðu
forsetaembættisins við hátíðlega
athöfn í Hvíta húsinu. Líkti Bush
Sirleaf við Nelson Mandela fyrir
baráttu hennar fyrir lýðræði.
Fékk frelsisorðu
FJÓRÐUNGUR karla og kvenna í
63 ríkjum á við offitu að stríða, að
því er helsta rannsóknarstofnun
Frakka í heilbrigðisfræðum skýrði
frá í gær. Rannsóknin var viðamikil
og náði til 168.000 karla og kvenna
á aldrinum 18 til 80 ára árið 2005.
Margir of þungir
Hver á Norðurpólinn?
Málstofa um réttarstöðu Norður-Íshafsins
Þjóðmenningarhúsinu
föstudaginn 9. nóvember kl. 11-14.
Dagskrá:
11.00 Ávarp Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
utanríkisráðherra.
11.15 Ron Macnab, meðlimur Norðurskautsnefndar
Kanada:
The Central Arctic Ocean
- Shrinking Ice and Expanding Jurisdiction.
11.45 Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar:
Fiskveiðar á norðurslóð við breyttar aðstæður.
12.15 Veitingar í boði Hafréttarstofnunar Íslands.
13.00 Douglas Brubaker, Fridtjof Nansen-stofnuninni:
The Northern Sea Routes - Legal Considerations.
13.30 Pallborðsumræður og fyrirspurnir.
Þátttakandi ásamt frummælendum: Trausti Valsson,
prófessor í skipulagsfræði við Háskóla Íslands.
14.00 Slit.
Málstofustjóri: Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur í
utanríkisráðuneytinu, forstöðumaður
Hafréttarstofnunar Íslands.
Málstofan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir.