Morgunblaðið - 06.11.2007, Side 44
ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 310. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Eignasafn hátt metið
Á minnisblaði Hjörleifs Kvaran,
forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur,
sem lagt var fram á stjórnarfundi
OR kemur fram að Hjörleifur telji
að færa megi gild rök fyrir því að
eignasafn Geysir Green Energy sé
hátt metið í samrunaefnahagsreikn-
ingi Reykjavík Energy Invest og
GGE. » Forsíða
Mikið magn barnakláms
Íslendingur sem handtekinn var í
tengslum við alþjóðlega rannsókn á
sölu og dreifingu á barnaklámi hafði
undir höndum um 24 þúsund ljós-
myndir og 800 hreyfimyndir sem
sýndu kynferðislegt ofbeldi á börn-
um. Mál mannsins hefur verið sent
ríkissaksóknara. » 2
Ólga í Pakistan
Mikil ólga er enn í Pakistan í kjöl-
far þess að forseti landsins setti
neyðarlög á í landinu á laugardag. Í
gær beitti lögregla táragasi og bar-
eflum til að koma í veg fyrir mót-
mælaaðgerðir lögmanna við dóms-
hús landsins. » 14
Vilja lóð í Reykjavík
Sturla G. Eðvarðsson, fram-
kvæmdastjóri Samkaupa, segist
vilja fá lóð í Reykjavík á sömu for-
sendum og Bauhaus, þ.e. að með út-
hlutuninni sé verið að stuðla að auk-
inni samkeppni. Sturla segir
Samkaup hafa sótt um lóðir í
Reykjavík á undanförnum árum en
engin svör fengið. » 6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Hvað er seinagangur?
Forystugreinar: Snúningur Svan-
dísar | Um keppni í fjölmiðlun
Ljósvakinn: Barði bumbur
UMRÆÐAN»
Samkeppni Iceland Express mun
lækka flugfargjöld innanlands
Fyrirmyndarveiðimaður?
4 4
4
4 4 4 4
4
5 +6$& /#
$* #+
7 #"
# #"$$%$#( / $ 4 4 4 4
4 4 4 4
- 82 & 4
4 4 4 4
4 4
4 4
9:;;<=>
&?@=;>A7&BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA&8$8=EA<
A:=&8$8=EA<
&FA&8$8=EA<
&3>&&A%$G=<A8>
H<B<A&8?$H@A
&9=
@3=<
7@A7>&3*&>?<;<
Heitast 9 °C | Kaldast 3 °C
V og SV 15-20 m/s,
allt að 23 n-lands og í
hryðjum v-lands. Hæg-
ara a-lands en hvessir
síðdegis, lægir þá f. V. » 10
Nýjasta plata Múm,
Go go smear the
poison ivy, er fjög-
urra stjörnu gripur,
meiri kraftur en enn
krúttlegt. » 37
PLÖTUDÓMUR»
Kraftur í
krúttum
FÓLK»
Roberts segist mjög lík
Depp í útliti. » 39
Hinn 15 ára gamli
Ívar Glói Gunn-
arsson opnar fyrstu
myndlistarsýningu
sína í verslun við
Skólavörðustíg. » 36
MYNDLIST»
15 ára popp-
listamaður
TÓNLIST»
Ný plata frá Nick Cave
and the Bad Seeds. » 43
KVIKMYNDIR»
Verri en sú fyrri um
meydrottninguna. » 38
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Aldrei upplifað … eins dónaskap
2. Þáði ekki blóð og lést …
3. Reiddist vegna „ælugjalds“
4. Katie Holmes hljóp maraþon
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
BÆJARYFIRVÖLD í Kópavogi og
undirbúningsnefnd um byggingu
óperuhúss í bænum áætla að fram-
kvæmdir við byggingu óperunnar
geti hafist á næsta ári. Húsið verður
við Borgarholt í Kópavogi, en fyrir
eru við holtið Salurinn, Gerðarsafn
og Safnahúsið. Húsin munu mynda
listatorg, en sérstök áhersla verður á
það lögð að Kópavogskirkja verði
eftir sem áður í öndvegi og að bygg-
ingin falli vel að náttúru Borgar-
holts.
Þremur íslenskum arkitekta-
stofum, Arkþingi ehf., ASK ehf. og
ALARK ehf. var í lok október þessa
árs sent boð um þátttöku í hönnun-
arsamkeppni um húsið. Keppendum
er skylt að starfa í samráði við er-
lenda hönnuði, sem búa yfir reynslu
af hönnun óperuhúsa eða sambæri-
legra mannvirkja. Íslensku arki-
tektastofurnar skulu þó sjálfar vera
aðalhönnuðir verkefnisins.
Að sögn Gunnars I. Birgissonar,
bæjarstjóra í Kópavogi, eru fjárfest-
ar orðnir fjórir og mun að öllum lík-
indum fjölga. Einkafjármögnun er
nú komin á það stig að fljótlega verð-
ur hægt að hefja formlegar fjár-
mögnunarviðræður við ríkið.
Alhliða söngleikhús
Óperuhúsið verður um 6.000 fer-
metrar að stærð og gert verður ráð
fyrir 800 sæta bogadregnum sal með
tvennum svölum. „Þetta verður rek-
ið sem alhliða hús fyrir óperuflutn-
ing, söngleiki, kóra og einnig ráð-
stefnur og fundi. Segja má að þetta
verði nokkurs konar söngleikhús,“
sagði Gunnar. Bæjaryfirvöld og und-
irbúningsnefndin kjósa að líta á
verkefnið sem samverkandi við nýtt
tónlistarhús í Reykjavík, en ekki
sem samkeppni. Mikilvægast er að í
húsinu mun Íslenska óperan eiga sér
samastað og á að geta sinnt metn-
aðarfullum verkefnum sínum í góðu
rými með nýjustu tækni.
Dómnefnd hönnunarsamkeppn-
innar skipa: Gunnar I. Birgisson,
bæjarstjóri í Kópavogi og formaður
nefndarinnar, Ásdís Ingþórsdóttir
arkitekt, Ólafur Axelsson arkitekt,
Stefán Baldursson óperustjóri og
Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt.
Niðurstöðu dómnefndar er að
vænta 1. apríl 2008 og er ætlunin að
framkvæmdir hefjist á því ári.
Hefja byggingu að ári
Búið er að setja af stað hönnunarsamkeppni um óperuhús í Kópavogi
Húsið verður um 6.000 fermetrar að stærð með sæti fyrir 800 manns
Tölvuteikning/KR arkitektar
List Myndin sýnir staðsetningu óperuhússins við Borgarholt, en nú stendur yfir hönnunarsamkeppni um útlit þess.
TÓNLISTARDRAMAÐ Edda
the Prophecy, eða Edda-
Völuspá, verður frumflutt á
Nordwind-listahátíðinni í
Berlín 15. nóvember nk.
Sverrir Guðjónsson söngvari
hefur á seinustu misserum
unnið að verkinu í samvinnu
við sænska listamenn. Tónlist-
ina samdi píanistinn Steen
Sandell, notar meðal annars
gamalt stofuorgel sem Sverri segir tengjast lífs-
ins tré, Yggdrasli. Eins og nafnið gefur til kynna
byggist verkið á Völuspá. Ljósmyndarinn Ragn-
ar Axelsson, eða RAX, kom að myndgerð verks-
ins og leikkonan Kristbjörg Kjeld tekur einnig
þátt í flutningi þess í Berlín. | 15
Edda-Völuspá
frumflutt í Berlín
Kristbjörg Kjeld
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
FORMLEG gangsetning aflvéla Kárahnjúka-
virkjunar fór fram í Fljótsdalsstöð í gær. Tvær
vélar af sex ganga nú fyrir vatni úr Hálslóni og
framleiða raforku fyrir álver Alcoa Fjarðaáls.
Landsvirkjun hefur séð álverinu fyrir 100 MW
afls síðan í vor en nú tekur Kárahnjúkavirkjun við
að sjá því fyrir þeirri raforku sem það getur tekið
við og eykst orkuafhendingin jafnt og þétt uns
fullri afkastagetu er náð. Fimm vélar virkjunar-
innar verða komnar í gang fyrir mánaðamót og sú
sjötta, sem notuð verður sem varaaflsvél, í janúar.
Alcoa Fjarðaál reiknar með að ljúka gangsetn-
ingu 336 kera verksmiðjunnar snemma á næsta
ári. Uppsett afl virkjunarinnar er 690 MW.
Vatn úr Hálslóni knýr vélar
Allar aðalvélar settar í gang í þessum mánuði
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Ræsing Guðmundur Pétursson, Landsvirkjun,
og sérfræðingur VA Tech gangsetja vél 2.