Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 314. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
SVARTI/BJARTI
JÓNAS „Í SENN GANGSTER OG KRÚTT“.
LESBÓKIN ER HELGUÐ ÞJÓÐSKÁLDINU
FRÉTTASKÝRING
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
Á MIÐNESHEIÐI stendur til að
reisa þrjú kvikmyndaver sem hvert
um sig verður 750 til 1.200 fermetrar
að stærð. Hlutafélagið Atlantic Stud-
ios hefur samið um kaup á þrettán
byggingum á gamla varnarsvæðinu
undir reksturinn. Þetta er mikil
breyting á aðstöðu kvikmyndagerð-
arfólks á Íslandi, en hingað til hefur
yfirleitt verið tjaldað til fárra nótta í
vöruskemmum eða öðru tilfallandi
húsnæði. Latibær rekur nú lang-
stærsta kvikmyndaver landsins, en
það er um 1.600 fermetrar.
Til þess að framkvæmdin standi
undir sér er nauðsynlegt að fá til
landsins stór verkefni frá erlendum
framleiðendum og nú er unnið að því
að kynna aðstöðuna. Í markaðssetn-
ingu hennar er lögð áhersla á stað-
setningu kvikmyndaversins rétt við
alþjóðlegan flugvöll og skipahöfn, en
ekki síður hagstæðar aðstæður til
kvikmyndagerðar á Íslandi. Í land-
inu er fjöldi fólks með þekkingu og
kunnáttu sem nýtist kvikmynda-
framleiðendum og stjórnvöld styðja
við greinina með því að endurgreiða
hluta framleiðslukostnaðar. Það
mun vera grundvallaratriði í sam-
keppninni við önnur lönd um þennan
iðnað.
75 milljónir í endurgreiðslur
Kvikmyndaframleiðendur geta
sótt um endurgreiðslu á hluta fram-
leiðslukostnaðar til iðnaðarráðu-
neytisins að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum. Samanlögð upphæð end-
urgreiðslunnar og framlags Kvik-
myndasjóðs má til að mynda ekki
nema meira en helmingi heildar-
kostnaðar.
Um síðustu áramót var endur-
greiðslan hækkuð úr tólf prósentum
í fjórtán prósent af framleiðslu-
kostnaði og á þessu ári er gert ráð
fyrir að verja 75 milljónum í þessar
greiðslur samkvæmt fjárlögum.
Hörð samkeppni ríkir milli landa um
að laða að þennan iðnað og sem
dæmi má nefna að Ungverjar bjóða
20 prósenta endurgreiðslu.
Morgunblaðið/Ómar
Myndver Til stendur að reisa 3
kvikmyndaver á Miðnesheiði.
Myndver
sem mun
brjóta blað
Risavaxið verkefni
á Miðnesheiði
Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • Sími 577 1170
www.boconcept.is
EF ÞÚ FINNUR EKKI
RÉTTU GJÖFINA
EKKI KENNA OKKUR UM
X
E
IN
N
IX
0
7
11
0
08
Leikhúsin í landinu
Uppskrift að góðri
kvöldstund... >> 56
SIGURBJÖRN Einarsson biskup
hlaut Verðlaun Jónasar Hallgríms-
sonar fyrir að hafa unnið íslenskri
tungu ómetanlegt gagn.
Sigurbjörn hefur nokkrar
áhyggjur af þróun tungumálsins og
segir latmælgi og orðfæð vera
áberandi meðal ungs fólks og eins
sé alltof mikið af enskuslettum,
beinum og óbeinum.
Þá segir hann að bæta þurfi ís-
lenskukennslu í skólum. „Það er til
dæmis herfileg aðför gegn tung-
unni að hætta að láta fólk læra
kvæði utanbókar, því með utanbók-
arlærdómi lærir maður mest varð-
andi tunguna.“
Biskupinn er þó bjartsýnn þrátt
fyrir allt. „Mín trú bannar mér að
vera bölsýnn og hamrar gegn því á
allan hátt.“ | 6Morgunblaðið/Golli
Ensku-
slettur og
latmælgi
Sigurbjörn Einarsson hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
EIGENDAFUNDUR Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti samhljóða í gær-
kvöldi að staðfesta fyrri ákvarðanir borgarráðs Reykjavíkur og stjórnar
Orkuveitu Reykjavíkur (OR) frá byrjun þessa mánaðar um að hafna sam-
runa Reykjavik Energy Invest (REI) við Geysi Green Energy (GGE). Jafn-
framt samþykkti fundurinn að veita stjórnarformanni Orkuveitunnar umboð
til þess að hefja viðræður við ríkið og meðeigendur í Hitaveitu Suðurnesja
um framtíð fyrirtækisins í því skyni að tryggja að auðlindir og almennings-
veitur verði í eigu almennings, en samþykkt þar að lútandi var einnig gerð á
fundi borgarráðs fyrr í gær.
Framhaldshluthafafundur REI verður haldinn fyrir hádegi í dag og liggur
meðal annars fyrir fundinum að kjósa nýja menn í stjórn, en ekki er líklegt
að af því verði að svo komnu. Framhaldseigendafundur Orkuveitunnar er
síðan ráðgerður aftur að viku liðinni. | 2
Eigendafundur OR
hafnar samrunanum
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur komist að þeirri niðurstöðu að
starfsfólki Landspítala hafi yfirsést
að greina bráðakransæðastíflu og
veita manni meðferð í tæka tíð í febr-
úar 2003. Ekki þótti sannað að
hjartadrep sem maðurinn varð fyrir
hefði orðið það sama ef engin töf
hefði orðið og var skaðabótaskylda
íslenska ríkisins viðurkennd. Í kjöl-
far áfallsins hefur maðurinn átt við
mjög erfið veikindi að stríða.
Maðurinn höfðaði málið í kjölfar
þess að bótaskyldu var hafnað, sem
gert var með hliðsjón af umsögn
læknaráðs. Ráðið komst að þeirri
niðurstöðu að eðlilega hefði verið
staðið að greiningu á manninum og
er það í andstöðu við álit landlæknis
og tveggja sérfræðinga.
Maðurinn kom á sjúkrahúsið kl.
16.25 og var þá tekið hjartalínurit.
Það hefur hins vegar ekki fundist í
sjúkraskrá mannsins og taldi dóm-
urinn m.a. ámælisvert að gögn úr
sjúkraskrá skyldu ekki finnast. Ann-
að línurit var tekið kl. 17.41 og var þá
talið að maðurinn væri með gollurs-
hússbólgu. Rétt fyrir átta var á nýj-
an leik tekið hjartalínurit og að sögn
sérfræðinga sem báru vitni fyrir
dómi komu þá fram ótvíræðar vís-
bendingar um að maðurinn væri með
kransæðastíflu. Þó var beðið með
hjartalínurit, blóðprufur og ómun í
meira en tvær klukkustundir og
segaleysandi meðferð hófst ekki fyrr
en þremur tímum eftir að hjartalínu-
rit benti til hjartadreps.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir
m.a. að við mat á sönnunargildi um-
sagnar læknaráðs verði að líta til
þess að sá sérfræðingur sem leitað
var til starfar hjá Landspítala. „Þá
starfar formaður ráðsins hjá spítal-
anum og aðrir sem eru í réttarmála-
deild ráðsins. Er þetta til þess fallið
að draga úr hlutleysi umsagnarinn-
ar,“ segir m.a. í niðurstöðunni.
Héraðsdómur | 8
Líkamstjón vegna mistaka
við greiningu á Landspítala
Skaðabótaskyldu ríkisins hafði verið hafnað á grundvelli álitsgerðar læknaráðs
Í HNOTSKURN
»Maðurinn leitaði álits land-læknis í janúar 2004 á því
hvort mistök hefðu orðið á
greiningu starfsmanna Land-
spítalans.
»Óháður sérfræðingurkomst að því að segaleys-
andi meðferð hefði átt að hefj-
ast tveimur klukkustundum
fyrr en raun varð á.