Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 41 degi beið Bjarni eftir að Gunnhild- ur kæmi í heimsókn til hans, sem aldrei brást, og sat hjá honum með prjónana sína eða las fyrir hann. Við þökkum Bjarna samfylgdina og sendum vinkonu okkar Gunn- hildi, börnum þeirra og afkomend- um öllum, innilegar samúðarkveðj- ur. Birna og Trúmann. Hinn 9. nóvember síðastliðinn lést góður vinur minn Bjarni Ey- vindsson. Okkar kynni hófust árið 1973 þegar hann stóð að stofnun Lands- sambands slökkviliðsmanna ásamt nokkrum slökkviliðsmönnum víðs- vegar að af landinu. Hann vann mikið og gott starf fyrir samtök slökkviliðsmanna um árabil og lét mikið að sér kveða. Einnig sat hann í fyrstu stjórn sambandsins. Bjarni átti alltaf gott samstarf við starfsfólk Brunamálastofnunar. Fyrsta slökkviáætlun á meiriháttar áhættu var gerð á húsnæði NLF, náttúrulækningafélagsins í Hvera- gerði. Þar voru allir þættir æfðir sem Bjarni stjórnaði af öryggi. Þessi áætlun var síðan notuð til kennslu fyrir önnur slökkvilið landsins um árabil. Í ágúst 1973 fóru 12 slökkviliðs- menn til Þýskalands í boði slökkvi- liðsins í Seelenberg, sem er í Tau- nusfjöllum. Þar mynduðust mikil vináttubönd við þessa þýsku slökkviliðsmenn en Bjarni vann öt- ullega að því að þessi tengsl héld- ust Síðar tók Brunavarðafélag Reykjavíkur við og hefur haldið þessum tengslum. Bjarni kom víða við í félagsmál- um og starfaði m.a. mikið fyrir Framsóknarflokkinn. Það var ávallt gott að starfa með Bjarna. Hann var gamansamur og sló oft á létta strengi, en þó fastur fyrir og kom sínum meiningum fram og fylgdi þeim eftir. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka fyrir öll þau góðu samskipti sem starfsfólk Brunamálastofnunar átti við þig og votta Gunnhildi, börnum og öðrum ættingjum okkar innilegustu samúð. Guðmundur Haraldsson. Kveðja frá Lionsklúbbi Hveragerðis Seiður lífs uppurinn, elju slokknað ljós, andans kraftur slunginn, mörgum veitti hrós. Er nú leið á enda, lífsins brostið boð, ljúft er því að lenda við drottins stóru stoð. (KGK) Félagar koma og félagar fara. Má þar fá samlíkingu við lífið sjálft. Menn koma og menn fara, það er lífsins gangur. Þó er það svo að misjafnt er hve djúp spor hver og einn markar, bæði á ævinnar veg og ekki síður, hvað einstaklingur getur sett mikinn svip á þann fé- lagsskap sem hann hefur átt sam- leið með. Bjarni Eyvindsson var einn af stofnfélögum Lionsklúbbs Hveragerðis. Hann kom á fundi svo lengi sem heilsan leyfði. Hann var einn þessara traustu félaga sem koma á alla fundi og ganga í öll verkefni þegar kallað er. Þó svo að aldur og heilsa leyfðu ekki félags- málavafstur síðustu árin hafði Bjarni alltaf áhuga fyrir að vita hvernig gengi hjá Lionsklúbbnum. Bjarni dvaldi síðustu misseri á hjúkrunarheimilinu Ási í Hvera- gerði og lét mjög vel af öllum að- búnaði þar og hrósaði starfsfólkinu fyrir gott viðmót, hlýju og góða umhyggju. Bjarna verður sárt saknað um ókomin ár og eru hér þökkuð öll hans störf innan Lions- hreyfingarinnar. Við vottum fjölskyldu hans, vin- um og venslafólki okkar einlægustu samúð og þökkum um leið þann tíma sem okkur hlotnaðist að hafa hann á meðal okkar. Minningin lifir um traustan fé- laga sem var stoltur af veru sinni innan Lionsklúbbsins. Fyrir hönd Lionsklúbbs Hvera- gerðis, Kristinn G. Kristjánsson. ✝ Fjóla Þorleifs-dóttir fyrrver- andi ljósmóðir, fæddist í Sól- heimum í Svína- vatnshreppi í A- Hún. 20. ágúst 1928. Hún lést á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri 6. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þorleifur Ingvarsson bóndi í Sólheimum, f. 9.10. 1900, d. 27.8. 1982, og kona hans Sigurlaug Hansdóttir, f. 6.6. 1889, d. 16.3. 1980. Hálfsystir Fjólu var Lára Sigríður Guð- mundsdóttir, f. 4.8. 1912 (látin). Alsystkin eru Ingvar, f. 17.3. 1930, Steingrímur Th., f. 27.4. 1932 og Svanhildur Sóley, f. 9.9. 1934 (látin). Uppeldissystir er Sjöfn Ingólfsdóttir, f. 17.7. 1939, dóttir Láru Sigríðar. Fjóla giftist 9. október 1950 Ingólfi Guðmundssyni bifvéla- virkja, f. 19.4. 1929, d. 16.6. 1991. Foreldrar hans voru Guð- mundur Árnason bóndi á Þor- bjargarstöðum og kona hans Kristín Árnadóttir. Börn Fjólu og Ingólfs eru: 1) Þorleifur, f. 21.2. 1950, maki Brynja Ólafs- dóttir, f. 27.10. 1951. Börn þeirra eru: a) Kristín, f. 10.11. 1969, sambýlismaður Finnur Daní- elsson, f. 8.6. 1968, dóttir þeirra er Sigrún Freygerður, f. 24.2. 2006. b) Ingólfur Áki, f. 24.7. 1975, maki Monika Kapanke, f. 30.3. 1974. Börn þeirra eru Kar- en Dís, f. 27.5. 2001 og Kristian Þorleifur, f. 11.11. 2005. c) Guð- mundur Haukur, f. 28.4. 1980, sambýliskona Elva Rún Rúnars- dóttir, f. 6.5. 1986. 2) Guð- mundur Örn, f. 19.10. 1952, maki Sigríður Sigurjóns- dóttir, f. 16.4. 1955. Sonur Guðmundar og Jóhönnu Sveins- dóttur er Sveinn Hinrik, f. 25.5. 1974, sambýliskona Særún Brynja Níelsdóttir, f. 27.5. 1975. Börn þeirra eru Rebekka Sunna, f. 11.6. 2004 og Arnór Ísak, f. 7.6. 2007. Börn Guðmundar og Sig- ríðar eru: a) Her- dís, f. 1.10. 1978, sambýlismaður Gunnar Andri Gunnarsson, f. 5.10. 1975. b) Ingólfur, f. 4.8. 1980. c) Fjóla Kristín, f. 10.4. 1987. d) Sóley Björk, f. 18.8. 1988. 3) Jóhann Helgi, f. 3.7. 1960, maki Hrönn Pétursdóttir, f. 1.3. 1964. Synir þeirra eru Pét- ur Örn, f. 2.7. 1992 og Friðrik Hrafn, f. 11.12. 1996. Fjóla nam við Húsmæðraskól- ann á Blönduósi árin 1944-1945. Hún lauk ljósmæðraprófi frá LMSÍ 1949. Hún starfaði sem ljósmóðir í Skagafirði allt frá árinu 1955, fyrst í Skefilsstaða- hreppsumdæmi og síðar einnig í Seylu- og Staðarhreppsumd. og Akra- og Rípurhreppsumd. Frá árinu 1971 starfaði Fjóla sem ljósmóðir á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki þar til hún lét af störfum 1991. Fjóla var alla tíð virk í félagsstörfum og var m.a. formaður Kvenfélags Sauðár- króks um árabil og síðar formað- ur Félags eldriborgara. Fjóla og Olli bjuggu alla tíð á Sauðár- króki, fyrst í prestshúsinu við Kirkjutorg og síðar á Hólavegi 21. Fjóla verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Fjóla amma er dáin, mikil og merkileg kona. Fjóla amma og Olli afi bjuggu á Hólavegi 21 þegar ég kom í fjöl- skylduna og voru þau mér alla tíð einstök. Bakkakot var í burðarliðn- um og varð það þeirra annað heim- ili og griðastaður frá erilsömum störfum. Bæði heimilin báru hand- bragði og söfnunaráráttu ömmu skýr merki. Hún var mikill steina- safnari og fljótlega fylltu steinar frá öllum heimshornum hvert pláss, enda voru vinir og vanda- menn duglegir við að færa henni steina í safnið. Hún sótti ýmis námskeið í gegnum tíðina þar sem hún bjó til ótrúlegustu hluti sem skreyttu heimilin hennar og man ég t.d. eftir keramikinu, sokka- blómunum, glerinu og afrakstrin- um af hnýtingarnámskeiðinu sem fyllti alla jólapakka það árið. Amma lagði mikinn metnað í að eiga falleg og smekkleg heimili og þreyttist aldrei á að breyta og bæta við það sem fyrir var, sem þó var ærið. Hún var húsmæðraskóla- gengin og vitnaði oft í það þegar matur og þrif voru annars vegar, enda konan snillingur með tusk- una. Amma vildi vera „móðins“ sem gerði það að verkum að ætíð var gaman að spjalla við hana því hún fylgdist svo vel með. Hún vissi alltaf mun betur en ég hvað var í tísku og flestar tískuflíkur sem ég eignaðist á yngri árum voru keypt- ar af ömmu. Amma var útivinnandi ljósmóðir alla ævi og hafði gríðarlega ánægju af sínu starfi, sem þó var oft æði strembið með öllum sínum nætur- vöktum og yfirsetum. Hún var al- fræðibók um meðgöngu, fæðingar og brjóstagjafir og margir leituðu til hennar löngu eftir að hún hætti að starfa sem ljósmóðir. Ég hef þá trú að amma hafi verið einstök í sínu starfi því þær voru margar mæðurnar sem sendu henni þakk- ir, gjafir og myndir af börnunum og hvar sem hún fór fékk hún hlýj- ar kveðjur og kossa. Þegar kom að starfslokum í ljósmóðurstarfinu fór hún að sinna „gamla fólkinu“ á sjúkrahúsinu í sjálfboðavinnu og eyddi þar jólum og áramótum við miklar vinsældir þeirra sem nutu. Hún tók mikinn þátt í félagsmálum og er óhætt að segja að alls staðar hafi sópað að henni. Amma er afskaplega eftirminni- leg kona sem hefur kennt mér margt og það verður margs að sakna. Umhyggjusöm og alúðleg manneskja, en skapstór og ákveðin þegar á reyndi. Hún var á sínu eig- in heimili fram á síðasta dag, við þokkalega heilsu. Ekki datt mér í hug þegar ég heimsótti hana fyrir tveimur vikum að það yrði okkar hinsti fundur. En þannig er það víst og blessunarlega fékk hún að fara á þann hátt sem flestir óska sér, að sofna og vakna ei meir. Hvíl í friði, amma mín, minning þín lifir. Kristín. Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum það yrði margt, ef telja skyldi það. Í lífsins bók það lifir samt í minnum er letrað skýrt á eitthvert hennar blað. Ég fann í þínu heita, stóra hjarta, þá helgu tryggð og vináttunnar ljós, er gerir jafnvel dimma daga bjarta, úr dufti lætur spretta lífsins rós. ( M.J.) Þakkir fyrir mikla og einlæga vináttu í gegnum árin. Sigrún Clausen. Fjóla Þorleifsdóttir Alvöru blómabúð Allar skreytingar unnar af fagfólki Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499 Heimasíða: www.blomabud.is Netfang: blomabud@blomabud.is ✝ Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, ELSA HALLDÓRSDÓTTIR áður til heimilis að Lindasíðu 2, Akureyri, lést að dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, þriðjudaginn 13. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 26. nóvember kl. 13:30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Starfsfólki Hlíðar eru færðar hjartans þakkir fyrir góða alúð og umönnun. Birgir Pálmason, Sigurbjörg Sigfúsdóttir, Elísabet Pálmadóttir, Ketill Tryggvason, Ásta Pálmadóttir, Hjördís Pálmadóttir, Pétur Haraldsson, Elsa Pálmadóttir, Valmundur Einarsson, Hreinn Pálmason, Þórunn Sigurðardóttir, Jón Karl Pálmason, Kolbrún Jónasdóttir, Viðar Pálmason, Kamilla Hansen, stjúpbörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG SNÓT EINARSDÓTTIR frá Götu, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja aðfarnótt fimmtudagsins 15. nóvember. Jarðarför fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Ebba Harðardóttir. ✝ SIGRÍÐUR BJÖRG ÓLAFSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 46, Reykjavík, lést að morgni fimmtudagsins 15. nóvember. Jarðarför auglýst síðar. Ingunn Hrefna Albertsdóttir, Þorsteinn Sigurðsson, Albert Ólafur, Sigríður Hrefna. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, afi og langafi, GUTTORMUR ÓSKARSSON, lést þriðjudaginn 13. nóvember á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki. Hann verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 24. nóvember kl. 14.00. Ingveldur Rögnvaldsdóttir, Sigríður Guttormsdóttir, Pétur Skarphéðinsson Ragnheiður Guttormsdóttir, Sigurður Frostason Elísabet Vilhjálmsdóttir, börn, barnabörn og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR JENSÍNA BJARMAN, Naustahlein 26, Garðabæ, sem lést mánudaginn 12. nóvember sl., verður jarðsungin mánudaginn 19. nóvember. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Guðrúnar Marteinsdóttur (sími 525 4960) Marteinn Friðriksson, Sveinn Bjarman Marteinsson, Eva Bjarman, Friðrik Marteinsson, Ólöf Bragadóttir, Guðbjörg Marteinsdóttir, Helgi Baldursson, Sigurður Marteinsson, Guðrún Árnadóttir, Ragnar Marteinsson, Sigríður Anna Guðjónsdóttir, Sigríður Jóna Marteinsdóttir, Timo Kallio, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.