Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 35 BÆÐI á Alþingi og í borg- arstjórn Reykjavíkur sjáum við nú merki þess að víðtæk andmæli geta borið árangur. Það er verið að rétta lýðræðishalla sem ber þessi gamalkunnu einkenni: Reynt að þvinga fram samþykki með því að stilla andmælendum upp við vegg, skapa tímaþröng, fullyrða að málið sé eiginlega útkljáð og þegja um staðreyndir eða skrum- skæla þær. Þannig var frumvarp- inu um forréttindi alþingismanna og ráðherra til eftirlauna snarað gegnum Alþingi fyrir nær fjórum árum eftir að tálbeita var lögð fyrir stjórnarandstöðuna og ýmsu logið til um forsendurnar í grein- argerð. Valgerður Bjarnadóttir hefur nú ásamt fjórum öðrum þingmönnum Samfylkingarinnar opnað leið fyrir syndaaflausn Al- þingis með frumvarpi sínu um af- nám eftirlaunaósómans. Enn meiri athygli hefur beinst að við- brögðum til varnar lýðræði í land- inu eftir að fulltrúar í borg- arstjórn Reykjavíkur fengu að kenna á leikaðferðum forkólfa hjá Orkuveitunni og fésýslumanna með reynslu af sýndarveruleika hlutabréfamarkaðarins. Þar voru yfirhylmingin, tímaþröngin, sér- hagsmunagæslan og fortöluskil- greiningarnar komnar í mun hærra veldi en við eigum að venj- ast. Þannig að sex borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hrukku í bak- gír; sem betur fer. Oft er valdamönnum lagt til lasts ef þeir skipta um skoðun. Það er mál til komið að við áttum okkur á því að raunsætt endurmat á fyrri skoðunum er fólki fremur til sóma en skammar og raunar æskilegt að fulltrúar okkar á Al- þingi og í sveitarstjórnum við- urkenni sem oftast mistök sín og skipti um skoðun þegar afleið- ingar af samþykktum þeirra og nýjar upplýsingar gefa tilefni til þess. Það hallar á lýðræði í land- inu ef samþykktir, sem vekja al- menna hneykslun og mótmæli, eru látnar standa eins og ekkert hafi í skorist. Því er ánægjulegt að fá nú í skammdeginu merki frá Al- þingi og borgarstjórn um viðleitni til að rétta af lýðræðishalla sem þessar stofnanir bera ábyrgð á, sjá þar vilja til að viðurkenna mis- tök. Jákvæð viðbrögð Valgerðar Sverrisdóttur, Péturs Blöndals og Jóns Magnússonar á Alþingi við fyrstu umræðu um eftirlauna- frumvarpið vekja vonir um breytta tíma. Sama má segja um hin sterku viðbrögð í samfélaginu við því sem hékk á spýtunni í fyr- irhuguðum samruna fyrirtækis í eigu Orkuveitu Reykjavíkur og einkafyrirtækis. Uppreisn borg- arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins vitnaði um einlæga hneykslun og vilja til að bera siðferðilega ábyrgð gagnvart almenningi. At- burðarásin gefur okkur innsýn í veikleika opinberrar stjórnsýslu þegar glímt er við fjársterka fé- sýslumenn. Við hljótum að mega vona að sú samstaða, sem tókst milli fulltrúa allra flokka í borg- arstjórn um að fallast ekki á hinar umdeildu áætlanir leiði til vökulli gæslu almannahags, mistök verði leiðrétt og lærdómur dreginn af þeim. Ofurlaun, sérsniðnir kaup- réttarsamningar og sjónhverf- ingar með „óefnislegar eignir“ eiga ekki heima á sviði opinbers rekstrar. Þeir þingmenn, sem hjálpa Val- gerði Bjarnadóttur að koma áð- urnefndu frumvarpi sem fyrst gegnum Alþingi, verðskulda þakk- læti og gefa þjóðinni tilefni til að breyta viðhorfi sínu til þingsins. Ekki veitir af. Þegar reglubundin skoðanakönnun á afstöðu almenn- ings til helstu stofnana samfélags- ins fór fram á liðnu vori kom í ljós að einungis 29% báru traust til Alþingis og hafði það aldrei mælst svo lítið fyrr. Ég er sann- færður um að ein ástæðan var eins kon- ar sjálftaka ráðherra og annarra alþing- ismanna á eftirlauna- forréttindum og drátt- ur sem orðinn var á afnámi þeirra. Sá gjörningur hefur sennilega valdið sárari vonbrigðum fleiri kjósenda með sína menn en áður eru dæmi til. Það verður léttir bæði fyrir þing og þjóð ef fréttir af viðunandi lyktum málsins berast úr þingsölum fyrir ára- mót. Enn hafa þeir borg- arfulltrúar Sjálfstæð- isflokksins, sem risu gegn yfirgangi for- kólfa hjá Orkuveit- unni og Reykjavik Energy Invest og vanrækslusyndum fyrrverandi borgarstjóra, ekki fengið það lof sem þeir eiga skilið. Ef grannt er skoðað eiga þeir að hafa álíka sóma af andmælum sínum og Svandís Svavarsdóttir, eiga þakk- læti skilið fyrir að afhjúpa yf- irhylmingar, sérgæsku, ástæðu- lausa tímapressu og vanreifaðar áætlanir um framtíð fyrirtækis í opinberri eigu. Ef lærdómurinn af átökunum um verkefni og mannaflanotkun Orkuveitunnar verður til þess að kröftum fyr- irtækisins verður einkum beitt til að finna leiðir til að lækka orku- verð til almennings eiga bæði borgarfulltrúar meiri- og minni- hluta heiður skilinn. Það hlýtur að teljast nærtækara verkefni en að sækjast eftir einhvers konar manndómsvígslu á Filippseyjum eða leita vonarpeninga í Indónesíu. Öflug andmæli bera árangur Ráðamenn eiga að viður kenna mistök sín segir Hörður Bergmann »Um viðleitni á Al-þingi og í borg- arstjórn til að leiðrétta mistök sem þessar stofnanir bera ábyrgð á. Hörður Bergmann Höfundur er kennari og rithöfundur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.