Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING MAGNEA Ásmundsdóttir opnar einkasýningu sína, Á ferð, í Gallerí Ágúst kl.16 í dag. Magnea notar ólíka miðla, svo sem ljósmyndir, myndbands- verk og margt fleira til þess að skapa sögu, ferðalag, hring, samhengi og heild. Magnea er borinn og barnfæddur Reyk- víkingur og hefur víða komið við í listheiminum. Magnea nam á Íslandi, Noregi og Þýskalandi og hefur hún haldið fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis, ásamt því að sinna listkennslu. Gallerý Ágúst er nýtt myndlistargall- erí og mun sýningin standa til 29. desember. Myndlist Gallerí Ágúst opnar nýja sýningu Verk af sýningunni. NÚ um helgina lýkur sex mán- aða löngu sýningartímabili á verki Unnars Arnar J. Auð- arsonar í Safni, en verkið ber titilinn Yfirborðssafnið Girnd- ararkífið Hrörnunarvirkið. Í dag kl. 15-17 verður efnt til út- gáfuhátíðar í Safni vegna út- gáfu á bókverki Unnars; Girndar Arkífið / Desire Arc- hive og er það einn hluti af verki hans í Safni. Bókin er byggð á samstarfi við aðra listamenn og boðið verður upp á léttar veitingar, allir velkomnir. Safn er á Laugavegi 37 og er þar til sýnis samtímalist á þremur hæðum, aðgangur ókeypis. Myndlist Girndar Arkífið í Safni Safn á Lauga- vegi 37. Í TILEFNI þess að tvö hundruð ár eru liðin frá fæð- ingu skáldsins og nátt- úrufræðingsins Jónasar Hall- grímssonar mun Fífilbrekkuhópurinn koma fram í Tíbrá í Salnum og flytja lög eftir Atla Heimi Sveinsson, en hann hefur samið mörg lög við ljóð Jón- asar. Fífilbrekkuhópurinn mun fara í gegnum lögin á þessum tónleikum í Salnum. Hópnum til full- tingis verður leikarinn Arnar Jónsson, sem tengir lögin lífsferli Jónasar. Tónleikarnir hefj- ast kl. 17.00 í Tónlistarhúsi Kópavogs. Tónlist Fífilbrekka gróin grund Sigrún Eðvaldsdóttir Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „Þetta eru tónleikar, en ekki í al- hefðbundnasta forminu,“ segir Stefán Baldursson óperustjóri um Óperuperlur, tónleikadagskrá með leikrænu ívafi, sem frumflutt verð- ur í Óperunni kl. 20 í kvöld. Þar verða flutt atriði; aríur, dúettar, terzettar og kvartettar úr hvorki fleiri né færri en tuttugu óperum. Einvalalið söngvara þræðir perl- urnar; þau Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sigríður Aðalsteinsdóttir, Ágúst Ólafsson og Bjarni Thor Krist- insson. Tónlistarstjóri Óperunnar Kurt Kopecki leikur með söngv- urunum, en það er sjálfur óp- erustjórinn sem sviðsetur tón- leikana. Útlit annast Þórunn S. Þorgrímsdóttir og um lýsingu sér Björn Bergsteinn Guðmundsson. Cherubino er stúlka „Við viljum fanga stemmn- inguna í hverju atriði – og í sam- skiptum persónanna í þeim. Við sviðsetjum tónlistina því ekki sem sýnishorn úr viðkomandi óperum,“ segir Stefán og útskýrir það nán- ar: „Með þessu erum við á okkar hátt að afklæða óperuna vissum hátíðleika. Söngvararnir eru gjarnan í sínum eigin fötum, eða öðrum nútímaklæðum, en eru kannski með leikmuni eða annað til að gefa hverju atriði lit. Þetta er því ekki heldur útfærð bún- ingasýning í hefðbundnum skiln- ingi, þótt ákveðin hugsun sé í öllu útliti. Það leikræna sem við viljum ná fram sækjum við í tónlistina. Við erum til dæmis með litla aríu Cherubinos úr Brúðkaupi Fígarós, þar sem hann er að uppgötva ást- ina. Í óperunni er Cherubino ung- ur piltur, sunginn af konu, klædd- ur í kvenföt – en við sleppum svoleiðis flækjum. Hjá okkur er Cherubino bara ung stúlka sem er að uppgötva sömu tilfinningar – upplifa ástina í fyrsta sinn og spyr: „Hvað er að gerast hjá mér? Þið sem betur vitið, er þetta ást- in?“ Þannig tökum við hvert atriði, notum úr því kjarna innihaldsins, og yfirfærum á aðrar persónur sem standa nær okkur í tíma – næstum því í eldhúsinu eða stof- unni heima. Við hnikum þó hvergi til orði í textanum né tóni. Tónlist- in er flutt algjörlega eins og hún kemur frá tónskáldinu, en við leik- um okkur að forminu.“ Stefán og Kurt völdu tónlistina, en þegar búið var að velja söngv- ara fengu þeir líka að koma með tillögur um hvað þeir vildu syngja. „Það er því sameiginleg ákvörðun okkar allra hvað sungið er.“ Stefán segir að óperutextarnir verði ekki þýddir orð fyrir orð, en skjátextar gefi til kynna úr hvaða óperu sungið sé hverju sinni og upplýsi ennfremur það sem gerist í viðkomandi atriði. Og það er óhætt að segja að efnisskráin sé glæsileg; þar er að finna mörg ástsælustu atriði óperubók- menntanna úr óperum eftir Moz- art, Verdi, Puccini, Bellini, Ross- ini, Tsjaíkvoskíj, Wagner, Gershwin, Bernstein og fleiri. Stefán Baldursson kveðst kunna vel við sig í starfi óperustjórans og fyrsta sýning nýja óperustjór- ans, Ariadne sem sýnd var í haust, gekk með mestu ágætum. „Það er gríðarlega gaman að vinna hér með tónlistina allt í kringum sig. Haustið gekk vel, nú erum við með þetta og svo fer stórsýningin La traviata í æfingu eftir áramót- in.“ Óperuperlur, tónleikadagskrá með leikrænu ívafi frumsýnd í Óperunni í kvöld Óperan afklædd hátíðleikanum Reiði Er það Næturdrottningin sem þarna leggur dóttur sinni lífsreglurnar? Diddú og Sigríður Aðalsteinsdóttir. TENGLAR .............................................. www.opera.is. SÉRA Sigurður Haukur Guð- jónsson, fyrrverandi sóknarprestur í Langholtsprestakalli, féll frá þann 13. ágúst síðastliðinn. Hann var fyrsti heiðursfélagi kórs Langholts- kirkju og mun kórinn, ásamt hljóm- sveit og einsöngvurum, halda tón- leika í kirkjunni annað kvöld kl. 20 til minningar um hann. Á efnisskrá verða verkin Actus Tragicus og Magnificat eftir Johann Sebastian Bach, en það síðarnefnda var frumflutt fyrir 300 árum. Björn Jónsson, tónlistarráðunaut- ur kirkjunnar, segir Bach hafa sam- ið Actus Tragicus til minningar um látinn vin og að með flutningi þess vilji kórinn með sama hætti minnast látins vinar, Sigurðar Hauks. „Inni- hald og tilfinning verksins varð til þess að það var valið. Þetta hefur veitt mörgum huggun við erfiðar að- stæður,“ segir Björn. Verkið sé flutt við sérstakar aðstæður af kórnum, en það var flutt fyrir 20 árum þegar einn kórmeðlima lést með sviplegum hætti. Hitt verkið, Magnificat, hefur kórinn aldrei flutt. Það er samið fyr- ir hljómsveit, einsöngvara og fimm radda kór, textinn er „Lofsöngur Maríu“ úr Lúkasarguðspjalli. Björn segir því bæði verið að kveðja góðan vin og fagna end- urfæðingunni, svo að segja. Björn er einn einsöngvaranna á tónleikunum en hinir eru Þóra Einarsdóttir sópr- an, Ólöf Kolbrún Harðardóttir sópr- an, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir messósópran og Alex Ashworth bassi. Gamlir kórmeðlimir munu ljá lið sitt á morgun og verða alls 105 í kórnum. Þóra Einarsdóttir er fyrr- verandi kórmeðlimur og þekkti séra Sigurð vel. „Hann gifti okkur hjónin og skírði eldri son okkar,“ segir Þóra sem syngur í Magnificat. Verk- in séu bæði falleg og aðgengileg. Kór Langholtskirkju flytur Magnificat og Actus Tragicus ásamt hljómsveit og einsöngvurum Til minningar um góðan vin Sópranar og tenór Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Björn Jónsson og Þóra Einarsdóttir æfa á meðan Jón sonur Björns og Þóru fylgist með. EKKI virtist fyrirferðarlítil forkynn- ing (miðað við hvað þarf orðið mikið til) draga teljandi úr aðsókn forntón- kera í fyrrum Landsbókasafni á mið- vikudag, þótt vafalaust hefði mátt fylla út úr dyrum með lengri og viða- meiri fyrirvara. Því þótt hinn ungi ís- lenzk-sænski barokkhópur hefði þeg- ar getið sér gott orð hér sem erlendis, þá gat hann nú óneitanlega hampað alþjóðlegum stjörnugesti; ef að líkum lætur í fyrsta sinn á Íslandi (Hvers vegna slíkt er jafn sjaldan tekið fram og raun ber vitni má ann- ars furðu gegna og virðist jaðra við feimnismál). Sænski sópraninn Susanne Rydén hefur á síðustu áratugum komið víða við, hvort heldur á hljómleikum sem diskum, og þykir meðal fremstu túlk- enda, ekki sízt á barokksöngverkum 17.-18. aldar, sérskeiðs NoA. En þótt ég gæti í þessu tilviki ekki státað af sömu ferilþekkingu og sérhæfðustu plötusafnarar, þá nægði mér einn minnisstæður dúett, „Så nyttjen nu i allsköns nöje“ úr Bröllopsmusik J.H. Romans á sýnisdiski Musicae Sveci- ae frá 1993, til að örva forvitni mína um núverandi getu söngkonunnar, enda er sá enn með glæsilegustu dæmum í fórum undirritaðs um tær- an örðu- og áreynslulausan barokk- flúrsöng. Sú sérgrein var að vísu ekki í for- grunni að þessu sinni. En söngles og aríur Rydéns úr Gli equivoci Aless- andros Scarlattis og ítölskum verald- legum kantötum hins unga Händels, Ah! Che pur troppo è vero og síðast hinni bráðskemmtilegu Tu fedel? tu constante? auk alkunnrar óperuaríu „Saxans“ Lascia la spina (seinna end- urnýtt í Rinaldo) ollu sannarlega engum vonbrigðum í hagvanri og gjörsamlega óþvingaðri meist- aratúlkun mezzo-litaða sópransins. Funheitu undirtektirnar voru í sam- ræmi við það og kölluðu á aðra út- gáfu af Lascia sem aukalag. NoA var þetta kvöld skipaður dæmigerðri tríósónötuáhöfn með tveim fiðlum á móti fylgibassa semb- als, sellós og „theorbo“ bassalútu. Flutti hópurinn auk nefndra söng- verka fjórþætta Sonata da camera Corellis í C Op. 4,2 og síðar fjórþætta Sónötu Händels í h Op. 2,2 af engu ósamstilltari fágun. Í líflegri tón- leikaskrárumfjöllun Höllu Steinu Stefánsdóttur saknaði maður aðeins ársetninga á sónötunum tveimur. Ítalíuár hins unga Händels TÓNLIST Þjóðmenningarhúsið Verk eftir Corelli, A. Scarlatti og Händel. Einsöngur: Susanne Rydén. Nordic Af- fect-hópurinn (Halla S. Stefánsdóttir og Julia Fredersdorff fiðlur, Hanna Lofts- dóttir selló, Karl Nyhlin þjorba og Guðrún Óskarsdóttir semball). Miðvikudaginn 14. nóvember kl. 20. Kammertónleikar  Ríkarður Ö. Pálsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.