Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 29
Sjónvarpsherbergið „Hér kúrum við okkur á kvöldin enda hefur eitt
barnabarnið spurt: Amma, hvað heldurðu að sé metið hans afa í stólnum?,"
segir Kristín, sem uppgötvaði þessa skemmtilegu IKEA-hillulausn, sem
rúmar bæði Bang og Olufsen græjurnar ásamt eldgamla Nordmende-
viðtækinu, sem keypt var í Radíóbúðinni á sínum tíma.
Baðherbergið tekið í gegn Húsmóðirin tók sig til og hannaði baðher-
bergi þeirra hjónanna upp á nýtt fyrir fjórum árum.
trépall með stiga niður í garðinn.
Kjallarinn er nú helsti íverustaður
hjónanna á kvöldin og á næturnar
því þar er aðalsjónvarpsherbergið
við hliðina á svefnherbergi þeirra
hjóna auk þvottahúss, geymslu og
baðherbergis, sem húsmóðirin hann-
aði algjörlega sjálf fyrir fjórum ár-
um. Í risi er svo „svíta“ fyrir börn,
tengdabörn og barnabörn þegar þau
koma heim til mömmu og pabba, en
auk sonarins fluttist eldri dóttirin
líka til Kaupmannahafnar í sumar
ásamt manni sínum og tveimur börn-
um. Yngri dóttirin býr hins vegar á
Íslandi og starfar hjá stoðtækja-
framleiðandanum Össuri.
Þrjátíu lampar
á heimilinu
Fagrir munir prýða heimilið og
myndlist skipar augljóslega stóran
sess í huga húsráðenda því veggi
prýða myndir eftir fræga listamenn
á borð við Karolínu Lárusdóttur,
Svavar Guðnason, Snorra Arin-
bjarnar, Eirík Smith, Jón Reykdal,
Þorvald Skúlason, Tryggva Ólafsson
og Braga Ásgeirsson. Bækur hafa
líka augljóslega það hlutverk að
skemmta húsbónda sínum í hús-
bóndastólnum og svo mætti halda að
lampar væru í sérstöku uppáhaldi
hjá húsmóðurinni því lamparnir á
heimilinu eru nú um þrjátíu.
„Mér finnst lýsing skipta sköpum
ef maður vill skapa „kósí“ stemn-
ingu. Og svo lærðum við það af Dön-
um að það er allt í lagi að blanda
saman nýjum og gömlum hlutum.
Það er bara skemmtilegt,“ segir
Kristín, sem fékk nýlega það verk-
efni í vinnunni sinni að velja efni og
húsgögn með arkitektinum Erni
Baldurssyni í nýtt skrifstofu-
húsnæði, sem var verið að taka í
notkun hjá Söfnunarsjóði lífeyris-
réttinda við Borgartún.
Rótgrónir Vesturbæingar
„Þrátt fyrir að vera inni á skandin-
avísku línunni fluttum við lítið með
okkur frá Danmörku þegar við flutt-
um heim enda höfðum við litla pen-
inga til húsgagnakaupa þá. Við höfum
smám saman verið að kaupa inn og
má segja að Epal sé uppáhaldsbúðin
auk þess sem við höfum töluvert
keypt okkar innbú í Casa, Exó, Dux
og IKEA þegar það á við.
Þegar ég hins vegar hugsa til baka
féll ég aldrei fyrir þessu húsi í upphafi
enda var það í mikilli niðurníðslu þeg-
ar ég og fyrri maðurinn minn keypt-
um það af dánarbúi. Í dag líður mér
voða vel hér og myndi hvergi annars
staðar vilja búa enda finnst mér vera
komin sál í húsið auk þess sem við er-
um bæði rótgrónir Vesturbæingar,“
segir Kristín að lokum.
join@mbl.is
Hjónaherbergið Rúmið er úr Epal og rúmteppið var keypt í Verona á
Ítalíu og svo var farið í IKEA til að velja skápana.
Uppstilling Málverk eftir Tryggva Ólafs-
son, hillur úr IKEA og lampi úr Casa.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 29
ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · ASKJA er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi.
KOMDU VEL ÚT
Í Mercedes-Benz B-Class situr þú hátt, hefur góða yfirsýn og hönnunin
á innanrými tryggir hámarksþægindi og frábært aðgengi.
Takmarkað magn Mercedes-Benz B-Class er til afgreiðslu
strax á góðu verði. Innifalin eru vetrardekk og Íslandspakki.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
7