Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 31
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 31 Þessi dagur sem við okkur blasir er 321. dagur ársins. Og í dag byrjar 4. vika vetrar og tungl er á fyrsta kvartili, tungli sem kviknaði í norð- vestri. Sólin hangir þá hæst hún rís rétt sex gráður yfir sjóndeildarhring og fer lækkandi. Í gær var dagur ís- lenskrar tungu en á morgun er dag- ur hinna 10 meyja. Dagur hinna tíu meyja fjallar um það að hafa vaðið fyrir neðan sig og hugsa fram á veg- inn. Frekari túlkun á þessari til- vitnun í Mattheus 25 í gömlu bibl- íuþýðingunni er hér með lokið en menn geta flett upp á þessu í bók bókanna. Það er svolítið umhugsunarefni að skrifa grein á degi sem hefur nið- urtalningarröð þ.e.a.s. 321 en ef maður skoðar upphafið í stað end- isins þá er 123. dagur ársins 2. maí hlaupárið 2008 og þá eru flestir far- fuglar komnir til landsins. Þetta seg- ir manni bara eitt; að allt á sitt upp- haf og endi. Þetta gildir hér á Blönduósi sem og annars staðar. Það sem kveikti þessa hugleiðingu mína var það að kvenfélagið okkar hér á staðnum hefur hrópað eftir hjálp til að viðhalda hinu ástsæla þorrablóti bæjarbúa. Hrópið er nákvæmlega svona: Er ekki einhver eða ein- hverjir þarna úti sem hafa gaman af því að gera grín að náunganum og treysta sér til að taka þetta að sér gegn góðri borgun og bjarga um leið okkar árlega og skemmtilega þorra- blóti? Hinar tíu meyjar og rúmlega það í kvenfélaginu hafa þörf fyrir aðstoð við gerð skemmtiefnis á komandi þorrablóti. Ef enginn gefur sig fram verður ekkert þorrablót og annar maí mun upp rísa, þorrablótinu fá- tækari, og heimurinn í kringum okk- ur mun ekki láta sig það neinu skipta og halda áfram hikstalaus. En við sem byggjum þetta samfélag verð- um líklega búin að jafna okkur á áfallinu en svolítið ör verður eftir í sálinni.    Samkvæmt tölum frá Hagstofu Ís- lands um búferlaflutninga milli sveitarfélaga fjölgaði íbúum á Blönduósi, Skagaströnd og í Skaga- byggð fyrstu níu mánuði ársins. Á Skagaströnd fjölgaði íbúum um níu, á Blönduósi um sjö og í Skagabyggð um einn. Í Húnavatnshreppi fækk- aði íbúum um 13. Samkvæmt þessu fjölgaði A–Húnvetningum um fjóra. Ástandið í íbúaþróun er aðeins verra í Húnaþingi vestra en þar fækkaði íbúum um 25.    Nýtt met var slegið í sauðfjárslátrun á Blönduósi í haust. Rúmlega 93 þús- und kindum var slátrað og er það töluverð aukning frá árinu áður en dilkar voru örlítið léttari þetta árið. Menn eru farnir að byggja íbúðar- hús að nýju á Blönduósi og töluverð gróska er í endurgerð gamalla húsa og Vilko hefur ekki undan að fram- leiða vöfflur ofan í landann. Reyndar stendur það framleiðslugetunni nokkuð fyrir þrifum að það þarf að handpakka öllum framleiðsluvörum en það stendur til bóta því með vor- inu er væntanleg pökkunarvél.    Það væri hægt að ræða ýmislegt og á því full þörf eins og það hvers vegna Húnvetningar séu ekki ekki með í spurningakeppninni Útsvari. Göng undir Holtavörðuheiði. Um- hleypingana frá því í ágústlok. Reyndar hefur vikan sem nú er að líða verið nokkuð róleg í veð- urfræðilegu tilliti en það hlýtur að breytast. Það væri hægt að ræða dræma rjúpnaveiði í sýslunni. En hvað sem öllu þessu líður og mörg- um spurningum ósvarað þá er eitt víst að enn eru álftir í sýslunni og menn eru byrjaðir að skreyta hús sín fyrir jólin. Svona er lífið við botn Húnafjarðar um miðjan nóvember. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Brosmildir krakkar Börn í Grunnskólanum á Blönduósi stilla sér upp fyrir ljósmyndara í handavinnutíma á degi íslenskrar tungu. BLÖNDUÓS Jón Sigurðsson fréttaritari Hreiðar Karlsson var viðstaddurþegar opnuð var ný og stærri vínbúð á Húsavík í dag. Gestir fengu kaffi og tertu, en freistandi búðargluggar vöktu athygli þeirra er þyrstir voru: Kátt er nú í höllinni því hvergi ber á skugga, kaffi og terta í boði ásamt því sem varðar mestu. Talsvert mörgum flöskum er troðið út í glugga, til að allir sjái hvað þeim er fyrir bestu. Hjálmar Freysteinsson samgleðst Hreiðari: Efalítið eflir dáð og allra bætir gengi. Léleg vínbúð hefur háð Húsvíkingum lengi. En Hólmfríði Bjartmarsdóttur á Sandi, sem kallar sig Fíu, fannst eitthvað vanta: Hún er sko ekta, undrun mín aðeins tertur og kökur! Því buðu þeir ekki upp á vín og almennilegar stökur? Hörður Björgvinsson tók í sama streng: Það varpar á veisluna skugga, – svo viðruð sé gömul tugga, að koma í búð, fá kaffi og snúð, með kræsingar úti í glugga. Loks Björn Ingólfsson: Þar er Vínbúð (með stóru V-i) og vönu og þjálfuðu staffi og á boðstólum margt en mörgum finnst hart að gestum er gefið KAFFI! pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Af vínbúð og Húsavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.