Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Jón H. Sigurmundsson
Þorlákshöfn | Tónlistarlíf í Þor-
lákshöfn er fjölbreytt, þar starfa
þrír kórar, lúðrasveit og fjölmarg-
ar hljómsveitir. Ekki minnkar fjöl-
breytnin því nú hefur 20 manna
hópur eldri borgara bæst í hópinn.
Hópurinn kallar sig „Tónar og
trix“ og segist ekki vera kór í
þeirri merkingu þó að vissulega sé
söngurinn eitt aðalatriðið, líka er
leikið á hljóðfæri dansað og samin
tónlist. Upphafið má rekja til þess
að í vor lauk Ása Berglind Hjálm-
arsdóttir tónlistarkennaraprófi frá
Listaháskóla Íslands. Lokaverkefni
Ásu Berglindar var tvíþætt, annars
vegar fræðileg ritgerð um tónlist-
armanninn og tónskáldið Karl Orff
og hins vegar verkefni sem hún og
samnemandi hennar Guðrún Árný
Karlsdóttir unnu með Félagi eldri
borgara í Þorlákshöfn. „Ég ræddi
við eldri borgara í Þorlákshöfn og
spurði hvort þau væru til í að taka
þátt í þessu lokaverkefni með okk-
ur. Undirtektir voru framar öllum
vonum því á fyrstu æfingu mættu
konur og karlar full eftirvæntingar
og vissu lítið hvað beið þeirra.
Margir sögðust bara hafa komið af
því að þeir þekktu mig og vildu
hjálpa til,“ sagði Ása Berglind.
„Verkefnið fólst í því að æfa og
skapa tónlist með eldri borgurum,
við byrjuðum á því að syngja sam-
an, síðan fórum við að slá taktinn
með alls konar ásláttarhljóðfærum,
þar á meðal notuðum við eigin lík-
ama verulega. Búkslátturinn varð
mjög vinsæll, það kom okkur veru-
lega á óvart hvað þetta fólk var
tilbúið að prófa eitthvað nýtt. Afr-
ísk tónlist var mikið notuð enda
mikið unnið með rythma og þar
hentar Afríkutónlistin vel. Þessi
tónlist kallar fram í fólki þörf fyrir
að hreyfa sig því kom það af sjálfu
sér að bæta dansi við og gekk það
vel.“
Tónlist er skapandi listform
„Tónlist er skapandi listform, því
var það eðlilegt framhald að semja
sjálf lag og þó að ég segi sjálf frá
sömdu þau rosalega fallegt lag. Við
lögðum upp með það að tæknin og
fullkomnunin væru ekki aðalatriðið
heldur að njóta þess sem verið var
að gera, hafa gaman af og sleppa
fram af sér beislinu. Það er erfitt
að lýsa þessu, þetta verður fólk að
sjá. Lokapunktur verkefnisins var
svo flutningur á öllu saman í Saln-
um í Kópavogi þar sem vel var
mætt og fengu þau frábærar mót-
tökur. Við fengum styrk til starfs-
ins úr Lista- og menningarsjóði
Ölfuss,“ sagði Ása Berglind.
„Ánægjan og áhuginn var svo mik-
ill að í haust var þráðurinn tekinn
upp að nýju þó að verkefnið væri
að baki. Við höfum þrisvar komið
fram opinberlega í vetur, bæði hér
í Þorlákshöfn og á Selfossi. Nú er-
um við að æfa jólaprógramm sem
flutt verður í aðstöðu eldri borgara
hinn 16. desember. Þar mun Ás-
berg Lárenzínusson leika á sner-
iltrommu og Erla Markúsdóttir á
píanó,“ sagði Ása að lokum.
Ragna Erlendsdóttir er formað-
ur Tóna og trix, hún sagði að mikil
ánægja væri með störf Ásu Berg-
lindar. „Hún nær öllu því besta út
úr okkur og það er alltaf gaman að
því sem við erum að gera, við viss-
um ekkert hvað við vorum að fara
út í en áhuginn er mikill og heldur
hefur fjölgað í hópnum hjá okkur.
Margir hafa sungið í kórum og
spilað í lúðrasveit og annað slíkt
þannig að við höfum virkilega
hæfileikafólk í hópnum,“ sagði
Ragna.
Ása Berglind starfar í dag sem
tónlistarkennari við Tónlistarskóla
Árnesinga og Grunnskóla Þorláks-
hafnar. Hún leikur á trompet í
Stórsveit Suðurlands og í Lúðra-
sveit Þorlákshafnar en þar hefur
hún leikið frá unga aldri.
Tónar og trix
Fjöllistahópur
eldri borgara
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Hópurinn Tónar og trix stilltu sér upp fyrir ljósmyndarann, yfirleitt er ekki svona hefðbundin uppstilling.
Tónlistin Ásberg Lárenzinusson, bregður sér stundum á trommurnar.
Stjórinn Ása Berglind Hjálm-
arsdóttir, stjórnandi fjöllistahóps
eldri borgara í Þorlákshöfn.
3
Selfoss | Selfyssingar eru, sumir
hverjir, komnir í jólaskapið. Fjöl-
skyldan að Grashaga 3 er byrjuð að
skreyta og um liðna helgi voru sett-
ar upp fjórar seríur. Í heildina
verða þær um 20.
„Lóðin er enn næsta sumargræn
og á meðan ég setti upp seríurnar í
rjómablíðu voru konan og krakk-
arnir þrír – þriggja, fjögurra og
fimm ára – að skreyta piparkökur
með jólalögin ómandi. Þegar ég
kom inn frá því að tendra jólaljósin
sagði sonur minn fimm ára, Vilberg
Fannar: Hér eru allir í jólastuði,“
segir Kristján Kristjánsson íbúi að
Grashaga 3
Bæjaryfirvöld í Árborg eru líka
að komast í jólaskap og hafa starfs-
menn bæjarins verið að setja upp
skreytingar að undanförnu. Ljósin
á Ölfusárbrú loga og nú vantar ekk-
ert nema snjóinn. „Þegar ég spurði
soninn fimm ára hvenær hann teldi
að snjórinn kæmi, svaraði hann að
bragði: „Hringjum í Sigga Storm,
hann veit það,“ segir Kristján.
Jólastuð á
Selfossi