Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI SKÓLINN að Þelamörk í Hörg- árdal er sá sem næstur er fæðing- arstað Jónasar Hallgrímssonar að Hrauni í Öxnadal. Þess vegna fengu nemendur þar á bæ fyrstu eintök hinnar nýju bókar um Jónas, sem menningarfélagið Hraun í Öxnadal ehf. gefur út og færir öllum nem- endum 10. bekkjar grunnskóla á Ís- landi að gjöf. Nemendur Þelamerkurskóla tóku vel á móti forseta lýðveldisins í gær- morgun, þeir yngstu höfðu stillt sér upp í tveimur röðum fyrir utan skól- ann með heimatilbúna íslenska fána, þegar forsetinn kom í hlaðið. Nokkr- ir dropar féllu úr lofti í þann mund sem forsetinn gekk heim að húsinu en börnin létu það vitaskuld ekki á sig fá. Eftir að Ólafur Ragnar hafði heilsað upp á börnin og spjallað við þau um stund var gengið á sal þar sem athöfnin fór fram. Nemendur lásu ljóð, bæði eftir Jónas og fleiri, og forsetinn afhenti bók Böðvars Guðmundssonar. Í verkinu rekur Böðvar ævi og störf skáldsins, náttúrufræðingsins og stjórnmálamannsins Jónasar Hallgrímssonar og bregður ljósi á þá þætti í lífi hans sem gerðu hann að skáldi. Inn í ævisöguna er fléttað kvæðum Jónasar og brotum úr bréf- um hans og dagbókum sem tengjast sérstaklega þroskaferli hans sem manns og skálds. Ólafur Ragnar sagði, þegar hann ávarpaði nemendur, að þau væru í raun og veru í mikilli forréttinda- sveit í þessum skóla „því þótt öll ungmenni á Íslandi lesi um Jónas og fari með ljóðin þá njótið þið þeirra forréttinda að geta haft æskuslóðir hans á hverjum degi í návígi og í hjartastað, og hugleitt hvernig fjöll- in og dalurinn hafa mótað Jónas, því Hraun í Öxnadal er satt að segja svo samofið Jónasi að það er ekki hægt að slíta þar á milli“. Ólafur þakkaði menningarfélag- inu Hrauni í Öxnadal sérstaklega fyrir það framtak að gefa út um- rædda bók og færa hópi grunnskóla- nemenda að gjöf. Nefndi hann sér- staklega að Sparisjóður Norðlendinga og Byr sparisjóður hefðu styrkt útgáfuna og færði fyrir- tækjunum þakkir. Forsetinn sagði bókargjöfina bæði veglega og vel við hæfi. Hann sagðist reyndar hafa sérstaklega gaman af því að afhenda bókina því höfundurinn, Böðvar, væri gamall skólabróðir hans úr Mennta- skólanum í Reykjavík. „Böðvar er […] eins og Jónas, sveitadrengur að uppruna […] en líkt og Jónas fór hann til Danmerkur og hefur dvalið þar lengi og það er gaman að því að þessi bók skuli vera skrifuð í Dan- mörku eins og reyndar obbinn af verkum Jónasar. Það er því gaman og hugljúft að fá að afhenda þessa bók eftir minn gamla og góða vin, Böðvar Guðmundsson.“ Ólafur Ragnar sagði að mynd- irnar í bókinni væru svo fallegar og textinn svo snjall „að ég veit að þið munuð öll varðveita hana og minnast þessa dags, þegar þið farið að sýna börnum ykkar og barnabörnum þessa góðu bók. Þið getið lesið fyrir þau um Jónas og minnist þess þegar þið tókuð við henni þegar minnst var 200 ára afmælis Jónasar Hallgríms- onar.“ Góður rómur var gerður að máli forseta Íslands, og eftir að hann gekk um salinn og heilsaði öllum með handabandi í lok athafnarinnar svifu börnin á Ólaf Ragnar og báðu hann um eiginhandaráritun. Varð hann við þeirra bón, eins og sannur íþróttamaður, og víst er að bókin mun víða þykja enn dýrmætari grip- ur en ella þegar hana prýðir eigin- handaráritun forseta lýðveldisins. Þið njótið forréttinda Elstu nemendur allra grunnskóla fá að gjöf nýja bók um Jónas Hallgrímsson, sem Böðvar Guð- mundsson hefur skrifað. Skapti Hallgrímsson fylgdist með þegar forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti fyrstu eintök bók- arinnar í Þelamerkurskóla í Hörgárbyggð í gær. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ævimynd Ólafur Ragnar ásamt nokkrum þeirra sem fengu bók; frá vinstri: Ásta Magnea Einarsdóttir, Sigurbjörg Ásta Hauksdóttir, Ágúst Heiðar Hannesson, Guðlaug Jana Sigurðardóttir og Anna Bára Unnarsdóttir. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Áritun Börnin í Þelamerkurskóla föluðust mörg eftir eiginhandaráritun forsetans og Ólafur Ragnar gaf sér góðan tíma til þess að skrifa fyrir þau. Í HNOTSKURN »Í stjórn menningarfélagsinsHrauns í Öxnadal ehf. sitja Guðrún María Kristinsdóttir fornleifafræðingur, Jón Kr. Sól- nes lögmaður og Tryggvi Gísla- son magister. »Sparisjóður Norðlendinga ogByr sparisjóður kosta útgáfu bókarinnar nýju um Jónas Hall- grímsson, eftir Böðvar Guð- mundsson, sem kom út í gær. »Ævisagan; Jónas Hall-grímsson – Ævimynd, er prýdd teikningum eftir Halldór Þorsteinsson. NÝ móttaka fyrir fólk með sykursýki var opn- uð formlega á dag- og göngudeild lyflækn- inga á Sjúkrahúsinu á Akureyri í vikunni, á alþjóðadegi sykur- sjúkra. Ingvar Teits- son, sérfræðingur í lyf- lækningum, sagði við það tækifæri að með þessu væri verið að færa út kvíarnar og þjónustan yrði betri. Í ávarpi við opnun móttökunnar sagðist Ingvar Teitsson vonast til þess að starfsemin myndi vaxa og dafna enn frekar, enda væri sykursýki vaxandi vanda- mál hér á landi. Hann sagði 5-7 þús- und manns með sykursýki og ekki væru allir meðvitaður um að þeir væru með sjúkdóminn. Ingvar nefndi að sykursýkin tengdist offitu og nauðsynlegt væri að auka enn frekar fræðslu um sjúkdóminn. Ingvar lagði einnig áherslu á að sykursýki væri þannig sjúkdómur að nauðsynlegt væri að sjúklingarnir tækju fullan þátt í meðferð hverju sinni. Lyflækningadeildinni barst góð gjöf við þetta tækifæri; Samtök syk- ursjúkra á Norðurlandi gaf tæki til að mæla langtíma blóðsykur, en með því tekur aðeins sjö mínútur að fá nið- urstöðu. Með eldra tæki sem notast hefur verið við þurfti að bíða í 10 daga. Nýja móttakan er staðsett á 1. hæð í suð- urálmu sjúkrahússins og er gengið inn að sunnanverðu. Í vikunni urðu einnig þau tímamót á Sjúkra- húsinu á Akureyri að 25 ár voru liðin frá opn- un bæklunardeildar. Upphaflega var gert ráð fyrir 15 rúmum, að innlagn- ir yrðu um 300 og gerðar yrðu 30 gerviliðaaðgerðir árlega. „Húsnæðið rúmaði þó ekki meira en 13 rúm. Á nokkurra ára tímabili eftir úrbætur á húsnæði 1992 var deildin rekin sem 15 rúma eining, en í dag er aðgengi að 13 rúmum nema yfir sumartím- ann,“ segir þar. Biðtími fyrir fólk með bráða þörf fyrir gerviliðaaðgerð er nú talinn í vikum eða mánuðum og fyrir aðra um eitt ár þrátt fyrir að meðaltal fjölda gerviliðaaðgerða áranna 2002- 2006 sé 170 gerviliðaaðgerðir á ári. Frekari fræðsla nauð- synleg um sjúkdóminn Stórbætt aðstaða fyrir sykursjúka Ingvar Teitsson FORSETI Íslands sagði í Þelamerk- urskóla í gær að þegar menn ör- væntu um framtíð íslenskrar tungu, og hæfu orðræðu um að hún þyrfti að víkja, ættu þeir að skoða fram- lag Jónasar Hallgrímssonar. Ólafur Ragnar Grímsson sagðist vilja nefna þetta við nemendur, „því miklar umræður hafa farið fram um framtíð íslenskunnar og sumir sett fram þá skoðun að nauðsynlegt sé, bæði í háskólum og fyr- irtækjum, að tala jöfnum höndum annað tungumál, ensku, í daglegri önn; kennslu og rannsóknum í há- skólunum og starfinu á vettvangi fyrirtækjanna.“ Málþing? Forsetinn sagðist vilja minna þjóð- ina alla á að þegar Jónas hélt til náms í Kaupmannahöfn „átti ís- lenskan á brattan að sækja hér á landi, var orðin dönskuskotnari en hún hafði löngum verið áður og tungumálið á engan hátt jafn hreint og fagurt og við þekkjum það á okkar tíma.“ Hann sagði að þá hefði mjög skort orð yfir margt það sem um var fjallað í öðrum löndum „en Jón- as sýndi það og sannaði með ný- yrðasmíð sinni og tökum sínum á ís- lenskri tungu að það var hægt að orða sérhverja nýja þekkingu í vís- indum og tækni, hugsanir og heimsmynd þeirrar tíðar á svo gull- fallegri íslensku, að þessi nýyrði hans eru orðin svo samofin tung- unni að okkur finnst eiginlega sjálf- sagt að þau hafi alltaf verið til.“ Ólafur Ragnar lýsti þeirri skoðun sinni að þegar menn örvæntu um framtíð íslenskunnar, „eða hefja orðræðu um það að nú þurfi hún að víkja fyrir öðru, þá bið ég menn vinsamlega að skoða Jónas Hall- grímsson og framlag hans.“ Forsetinn varpaði fram þeirri hugmynd að efna til sérstaks mál- þings um nýyrðasmíð Jónasar, til að minna á hve íslenskan er skemmtilegt tæki, hægt væri að skapa nýja hugsun og ný orð og fella íslenskuna „að þeirri heims- mynd og þeirri framþróun vísinda, tækni og menningar, og viðskipta, sem birtist okkur á hverjum degi.“ Ættu að skoða fram- lag Jónasar MIKILL fjöldi barna hefur síðustu ár heimsótt jólasveinana í Dimmu- borgum í Mývatnssveit og brátt gefst jólabörnum á öllum aldri tækifæri til að njóta sýningar á Ak- ureyri þar sem Stúfur úr Dimmu- borgum segir sögu kryddaða með tónlist, brúðum og leikhústöfrum. Sýnt verður í Rýminu hjá LA. Stúfur var mættur á svæðið fyrir helgina þegar blaðamaður leit þar við, hann var þá m.a. að kanna hvort ljósabúnaður hússins væri ekki örugglega í góðu lagi. Frumsýnt verður 2. desember og sýnt allar helgar fram að jólum og á milli jóla og nýárs. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir, sem meðal ann- ars leikstýrði Klaufum og kóngs- dætrum í Þjóðleikhúsinu. Þú ert nú meiri jóla- sveinninn! Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson HALDIÐ var upp á það í gær í Verkmenntaskólanum á Akureyri að 25 ár voru síðan málmsmíða- deild skólans flutti úr þröngu hús- næði við Glerárgötu í nýbyggt og rúmgott húsnæði á Eyrarlands- holti. Málmsmíðadeildin var fyrsta deild skólans sem flutti í hið nýja hús á Eyrarlandsholti, en bygging- arsaga skólans hefur verið óslitin síðan öll þessi 25 ár og enn stendur til að stækka húsnæðið. Fjöldi fólks sótti VMA heim í gær í tilefni dags- ins, en boðið var til fagnaðar síð- degis. Hákon Hákonarson, formaður Félags málmiðnaðarmanna, mætti færandi hendi í samkvæmið með tvær girnilegar tertur sem þeir fá sér hér sneið af, Ingólfur Sverris- son frá Samtökum iðnaðarins, til vinstri, og Baldvin Ringsted, kennslustjóri tæknissviðs VMA. Ljósmynd/Krist́ján Aldarfjórðungur á Eyrarlandsholti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.