Morgunblaðið - 17.11.2007, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.11.2007, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is AKSTUR fimm ölvaðra ökumanna að meðaltali var stöðvaður af lögreglu á hverjum degi í októbermánuði. Drukknir ökumenn ollu níu banaslys- um á síðasta ári og meginorsakir fjór- tán banaslysa af 28 mátti rekja til áfengis, fíkniefna og ofsaaksturs. Samkvæmt upplýsingum frá for- stöðumanni Rannsóknarnefndar um- ferðarslysa má rekja að minnsta kosti þrjú af þeim þrettán banaslysum sem orðið hafa á árinu til ölvunaraksturs. Þrátt fyrir hert viðurlög og aukið eftirlit lögreglu virðist lítið ef nokkuð hafa dregið úr því að einstaklingar haldi út í umferðina undir áhrifum einhverskonar vímugjafa. Erfitt er að segja til um hvort aukning hafi orðið á akstri ökumanna undir áhrifum fíkni- efna, þar sem lagabreyting sem fól í sér mun afdráttarlausari afstöðu gegn slíku en áður var, tók aðeins gildi í júní á síðasta ári. Það hefur hins vegar komið mörgum á óvart hversu margir virðast teknir dag hvern undir áhrifum og vakna spurn- ingar um almennt öryggi í umferð- inni. Að sögn Sigurðar Helgasonar, verkefnastjóra hjá Umferðarstofu, er einn ökumaður tekinn fyrir vímu- akstur á meðan fjórir eru teknir fyrir ölvunarakstur. Haft var eftir Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðis- ins, í Morgunblaðinu í gær að lögregl- an treysti mikið á ábendingar frá borgununum. Sigurður tekur undir það. „Við reynum að höfða til almenn- ings að láta vita þegar menn hafa rök- studdan grun um að ökumaður sé undir áhrifum. Með því er verið að stórminnka áhættuna fyrir aðra og það er nú einu sinni skýr réttur hvers borgara að þurfa ekki að lenda í þeirri aðstöðu að mæta svo óhæfum öku- mönnum.“ Sá maður sem hvað best þekkir af- leiðingar ölvunaraksturs er Ágúst Mogensen, forstöðumaður Rann- sóknarnefndar umferðarslysa. Hann segist merkja aukningu á ölvunar- akstri í tengslum við banaslys. „Und- anfarin tvö, þrjú ár höfum við séð meira um að ölvunarakstur er meg- inorsök slysa en áður. Oft spila aðrir þættir inn í, s.s. tilfinningalegt ójafn- vægi, rifrildi og þess háttar og þess vegna er þetta mjög erfitt viðureign- ar. Þegar við blöndum saman reiði og ölvun erum við með mjög vonda blöndu. Þá er skynsemin víðs fjarri og áróðurinn ekki bakvið eyrað.“ Ágúst telur ekki óvarlegt að telja að í kringum 15 þúsund einstaklingar haldi út í umferðina undir áhrifum áfengis á ári hverju, en það er fram- reiknuð tala sem fundin var í könnun sem gerð var fyrir nokkrum árum. Ölvunarakstur var þriðja algeng- asta orsök banaslysa í umferðinni ár- in 1998-2005. Það sem af er ári hafa í það minnsta þrjú banaslys orsakast af slíkum akstri og segir Ágúst ekki öll kurl komin til grafar enn. „Við er- um ekki komin með heildarmyndina en mér sýnist sem eitthvert framhald verði á því að áfengi sé stór þáttur á þessu ári.“ Fimm drukknir ökumenn á dag ÁFENGISMÆLAR í bílum hafa verið í þróun um nokkurra ára skeið og eru nú þegar komnir í allnokkrar atvinnubifreiðar. Eitt af mark- miðum Norræna umferðarráðsins er að mæl- arnir verði staðalbúnaður í atvinnubílum fyrir árið 2012. Slíkar mælar virka þannig að bifreiðinni verður ekki komið í gang nema ökumaður blási í hann. Sé ekkert áfengi í öndunarsýni öku- manns er hægt að ræsa bílinn. Ágúst Mogen- sen, forstöðumaður Rannsóknarnefndar um- ferðarslysa, segist fylgjast grannt með þróuninni á þessum vettvangi og telur að tækið muni henta afar vel til að sporna við ölvunarakstri. Innbyggður áfengismælir verður boðinn í nokkr- um gerðum bifreiða af tegundinni Volvo á næsta ári. Volvo er jafnframt fyrsti bílaframleiðandinn í heiminum sem setur mæla í bíla sína. Áfengismælar í bílum framtíðin? Blásið Tækið er handhægt. ÞAÐ er ástæða til þess fyrir dómstólaráð að taka til gaumgæfi- legrar athugunar hvort ekki sé ástæða til þess að efla fjölmiðlakynn- ingu í þágu dómstólanna, að því er fram kom í erindi Björns Bjarnason- ar, dómsmálaráðherra á aðalfundi Dómarafélags Íslands í gær. Björn sagði að fræða þyrfti al- menning um þau meginsjónarmið, sem dómarar eigi að hafa í heiðri og eftir hvaða leiðum þeir komist að niðurstöðu. „Festi sú skoðun rætur meðal almennings, að dómstólar taki ekki nógu hart á þeirri tegund af- brota, sem vekur mestan ótta á líð- andi stundu, getur það hæglega dregið úr alhliða trausti á dómstól- um,“ sagði Björn. Hann ræddi einnig um stöðu þriggja greina ríkisvaldsins og sagði í því sambandi: „Hraði breytinganna hefur verið svo mikill, að allar þrjár greinar ríkisvaldsins eiga fullt í fangi með að fylgja þeim eftir. Á það ekki síst við þá aðila, sem halda uppi eft- irliti með þróun hins frjálsa við- skiptalífs og hvers kyns fjármála- umsvifa. Við það eftirlit duga aðferðir gærdagsins alls ekki leng- ur,“ sagði dómsmálaráðherra einnig í ávarpi sínu á fundinum. Dómstólar efli kynningu Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is GRINDAVÍKURBÆR hefur gert samning við íþróttafélagið á staðn- um, UMFG, þess efnis að öll börn á grunnskólaaldri á staðnum geti stundað íþróttaæfingar án endur- gjalds. Samningurinn felur í sér að bærinn greiðir UMFG á bilinu 15 til 40 milljónir króna árlega og sér ungmennafélagið í staðinn um að taka á móti öllum börnum, sem vilja stunda íþróttir. Jafnframt vinnur félagið að öflugu forvarnastarfi. Eftir því sem næst verður komizt er Grindavík fyrsta bæjarfélag á land- inu, sem býður upp á ókeypis íþróttaiðkun allra grunnskóla- barna. „Þetta er tvímælalaust tímamóta- samningur í sögu íþróttahreyfing- arinnar á Íslandi. Við bjóðum öllum börnum á grunnskólaaldri að æfa frítt hjá UMFG. Þetta er þannig út- fært að bærinn borgar ákveðna upphæð á hvern iðkanda á mánuði. Þá skiptir það ekki máli hve marg- ar íþróttagreinar eru stundaðar. Við erum mjög ánægð með þessa niðurstöðu og teljum að ekkert bæjarfélag á landinu geri þetta svona vel,“ segir Sigurður Enoks- son, formaður æskulýðs- og íþrótta- nefndar Grindavíkur. „Þessi samningur hefur tvíþætta þýðingu. Annars vegar skiptir þetta miklu máli fyrir foreldrana, sem ekki þurfa lengur að greiða æf- ingagjöld fyrir börn á grunnskóla- aldri. Á móti höfum við sett okkur það markmið af auka iðkendafjölda um 10 til 15%. Það er stærsti þátt- urinn í þessu. Mér finnst líka skipta miklu máli að með samningnum er bæjarstjórnin að viðurkenna það í verki að íþróttaiðkun er líklega bezta og auðveldasta forvörn fyrir krakka á þessum aldri, að halda þeim frá sollinum. Það hefur komið vel í ljós undanfarin ár. Það má því segja að verið sé að setja peninga í forvarnir fyrst og fremst. Þetta er því allra hagur,“ segir Gunnlaugur Hreinsson, formaður UMFG. Frítt að æfa í Grindavík Ljósmynd/Óskar Sævarsson Íþróttir Gunnlaugur Hreinsson, formaður UMFG, og Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri undirrita samninginn um gjaldfrjálsa íþróttaiðkun. LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu óskar nú eftir liðsinni almenn- ings vegna sakamáls sem hún hefur tekið til rannsóknar og vill vita hvort einhver þekki karlmanninn á með- fylgjandi mynd. Er maðurinn talinn tengjast málinu en lögreglan segir að um alvarlegt sakamál sé að ræða þótt hún á hinn bóginn svari því ekki hvers eðlis það er. Maðurinn er 165 til 170 cm á hæð, grannvaxinn, dökkhærður, stutt- klipptur með þunnt yfirvaraskegg og pinna í tungunni. Hann er talinn af erlendu bergi brotinn, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Þeir sem geta gefið upplýsingar um manninn eru vinsamlega beðnir um að hringja í lögregluna í síma 444 1000. Eftirlýstur af lögreglu Eftirlýstur Maðurinn er talinn 165- 170 cm á hæð og með pinna í tungu.  Rekja má orsök að minnsta kosti þriggja banaslysa af þrettán á árinu til ölvunaraksturs  Skýr réttur vegfarenda að mæta ekki ökumönnum undir áhrifum, segir verkefnastjóri hjá Umferðarstofu                                 AFLÍFA þurfti að minnsta kosti tólf ær eftir meiriháttar búfjárslys sem varð á hringveginum skammt norð- an Blönduóss í gær. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi voru tildrög slyssins þau að verið var að reka stóran fjárhóp við veginn þegar hundur tvístraði ánum með þeim afleiðingum að ærnar hlupu upp á braut og í veg fyrir tvær aðvíf- andi bifreiðar sem óku beint inn í fjárhópinn. Telur lögreglan á Blönduósi að um 100 ær hafi verið í hópnum. Þegar ökutækin skullu á fjárhópn- um skemmdust þau töluvert að sögn lögreglu, að ógleymdu hinu mikla fjártjóni. Ekki urðu þó meiðsl á ökumönn- unum. Ekið á stór- an fjárhóp ♦♦♦ Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is SÍLDVEIÐISKIPIN halda áfram að moka upp síldinni á Grundarfirði. Í gær voru fjögur skip þar að veiðum og Guðmundur VE fékk risakast upp undir fjöru, hugsanlega allt að 2000 tonn. Kap VE fékk líka mjög stórt kast. Róbert Hafliðason, skipstjóri á Guðmundi, sagði í gærkvöldi að það væri erfitt að meta hve mikið væri í nótinni. Það væri búið að dæla um 1.000 tonnum úr henni, tæplega 500 tonnum um borð hjá þeim og tæp- lega 600 tonnum um borð í Hákon EA. Nú væru þeir að bíða eftir þriðja skipinu, Áskeli EA til að klára að dæla úr nótinni. „Hún liggur á botn- inum núna og það er allt í lagi meðan veðrið er svona gott. Við erum að flaka og frysta um borð og getum því ekki tekið nema um 500 tonn í einu, en afkastagetan er um 100 tonn af flökum á sólarhring, en það svarar til um 200 tonna upp úr sjó. Þetta mikla kast gefur okkur því ekki mikið og núna saknar maður þess að það skyldu ekki vera fleiri skip hérna til að taka frá okkur. Síldin er nokkuð góð, 280 til 300 grömm að þyngd og það gengur vel að selja hana, en verðið er ekkert himinhátt,“ sagði Róbert. Síldveiðin hefur til þessa að mestu leyti verið inni á Grundarfirðinum, en eitthvað hefur líka verið af síld ut- an Grindavíkur, en hún hefur verið smærri og því ekki eins góð til fryst- ingar. Það háir skipunum hvað síldin er grunnt á Grundarfirðinum. Risakast á Grundarfirði Ljósmynd/Þorbjörn Víglundsson Veiðar Risakast af síld á Grundarfirði, allt að 2000 tonn. Guðmundur VE með allt að 2000 tonna kast í gær og aflanum skipt milli skipa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.