Morgunblaðið - 17.11.2007, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 17.11.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 19 MIRALE Síðumúla 33 108 Reykjavík sími: 517 1020 Opið mán.–föstud. 11–18 laugardag 11–16 sunnudag 13–16 www.mirale.is Fegraðu þitt heimili! Öll ljós á 20% afslætti um helgina Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is LÖGGJÖF um hlutafélög, markaði og réttindi hluthafa er skapleg hér á landi, en nokkuð skortir á almennan skilning á efni laganna og eftirlit með því að þeim sé fylgt. Kom þetta fram í máli Vilhjálms Bjarnasonar, fram- kvæmdastjóra Samtaka fjárfesta, á fundi samtakanna um fjárfestavernd, sem haldinn var á Hótel Sögu í gær. Sagði Vilhjálmur að svo virtist sem Fjármálaeftirlitið léti sig nánast ekk- ert varða viðskipti með bréf í félögum sem ekki eru fjármálafyrirtæki og að þar þyrfti að bæta úr. Ótilhlýðilegir hagsmunir Í máli sínu fjallaði Vilhjálmur um nokkur atriði sem snúa að fjárfesta- vernd og réttindum hluthafa í fyrir- tækjum. Nefndi hann ákvæði í hluta- félagalögum um að stjórn og framkvæmdastjórn félags megi ekki gera neinar þær ráðstafanir sem ber- sýnilega séu fallnar til þess að afla ákveðnum hluthöfum eða öðrum ótil- hlýðilegra hagsmuna á kostnað ann- arra hluthafa eða félagsins. Sem dæmi um ákvarðanir sem vektu upp spurningar í þessa átt nefndi Vilhjálmur annars vegar sölu Straums-Burðaráss á 550 milljón hlutum í eigu félagsins til ónefndra fjárfesta og hins vegar kaup Glitnis á hlut Bjarna Ármannssonar, fráfar- andi forstjóra bankans, en báðir gerningarnir áttu sér stað fyrr á þessu ári. Benti Vilhjálmur á að það verð sem var greitt fyrir bréfin í Straumi, 18,6 krónur á hlut, hefði ver- ið undir dagsloka- og meðalgengi við- skipta með bréf í Straumi dagana fyr- ir og eftir viðskiptin og það ætti að vekja spurningar um réttmæti við- skiptanna. Sömuleiðis hefði verð það sem greitt var fyrir tæplega 235 millj- ónir hluta í Glitni, á genginu 29, verið töluvert yfir hæsta gengi sem bréf í Glitni hefðu farið á dagana fyrir og eftir kaupin á hlut Bjarna. Vilhjálmur ræddi einnig heimildir stjórnar til að ráðstafa hagnaði félags til annarra en hluthafa. Nefndi hann sem dæmi ákvörðun stjórnar félags um að greiða starfsmönnum sérstaka launauppbót vegna góðrar afkomu fé- lags, eða að gefa viðskiptavinum sér- stakan afslátt af sömu ástæðu. Sagði hann að hagnaðurinn væri sameign allra hluthafa og velti upp þeirri spurningu hvort stjórn hlutafélags hefði vald til að ráðstafa hagnaði fé- lagsins á þennan hátt. Þá fjallaði Vilhjálmur um kauprétt- arsamninga, sem hann sagði gjarnan vera óháða gengi fyrirtækis á samn- ingstímanum. Sagði hann eðlilega kröfu að í kaupréttarsamningum væru ákvæði um að þeir yrðu aðeins að kaupauka væri skilgreindum lág- marksárangri náð. Þá yrðu hluthafar að gera kröfu um gagnsæi við gerð kaupréttarsamninga. Undir einn hatt Vilhjálmur sagði að samtökin myndu skoða einstök mál tengd fjár- festavernd og sæju þau ástæðu til myndu þau fylgja eftir ákveðnum málum og ef til vill standa undir máls- kostnaði, kæmi til málaferla. Á fundinum tók Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, til máls og sagði að athuga bæri hvort ekki væri rétt að færa öll málefni markaðarins undir einn hatt. Nú væri málum svo háttað að lagasetning og reglugerðavinna væri á höndum við- skiptaráðuneytis en stór hluti eftirlits með markaðnum heyrði hins vegar undir fjármálaráðuneyti. Hagkvæm- ara og einfaldara væri ef málefni markaðarins, lagasetning og eftirlit, heyrðu öll undir sama ráðuneyti. Fjárfestavernd og hagsmunir hluthafa Morgunblaðið/G.Rúnar Fjárfestar Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, fjallaði um fjárfestavernd og réttindi hluthafa á fundi samtakanna í gær. VELTA í dag- vöruverslun var 10,5% meiri í október sl. en í sama mánuði í fyrra. Frá því í september sl. jókst veltan um 2,2%, samkvæmt tölum frá Rann- sóknasetri versl- unarinnar. Eru þetta umskipti frá mánuðinum á undan þegar veltan minnkaði um rúm 9%. Samkvæmt verðmælingu Hagstofunnar hækkaði verð á dag- vöru um 1,1% milli mánaða. Aukning varð í veltu flestra annarra tegunda smásölu í október. Sala áfengis dróst þó heldur saman, annan mánuðinn í röð. Velta í fataverslun jókst um 7,5% á milli september og október og skóverslun um 7,1%. Aukin velta í dagvöru Verslun jókst í október sl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.