Morgunblaðið - 17.11.2007, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 17.11.2007, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 43 ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BÆRINGS VALGEIRS JÓHANNSSONAR, Geitlandi 8, Reykjavík. Björgvin Ó. Bæringsson, Guðrún H. Guðmundsdóttir, Stella G. Bæringsdóttir, Jón Hjartarson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, HULDU REYNHLÍÐ JÖRUNDSDÓTTUR frá Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks í Foldabæ og Skógarbæ, sem annaðist hana síðustu ár. Björg Sigurðardóttir, Hallgrímur Valdimarsson, Inga Jóna Sigurðardóttir, Sævar G. Proppé, Guðlaugur Sigurðsson, Kristrún O. Stephensen, barnabörn, systkini og fjölskyldur þeirra. ✝ Þökkum innilega öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug og minntust okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSU EIRÍKSDÓTTUR, Helgamagrastræti 6, Akureyri, sem lést 26. október. Starfsfólk Hjúkrunarheimilisins Sels fær sérstakar þakkir fyrir kærleiksríka umönnun. Ragnar Skjóldal, Kristín S. Ragnarsdóttir, Jakob Jóhannesson, Ragnar S. Ragnarsson, Inga Úlfsdóttir, barnabörn og langömmustrákarnir. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar eigin- manns, föður, stjúpföður, tengdaföður og afa, INGVARS CHRISTIANSEN, Holtsgötu 41, Reykjavík. Gíslína Björnsdóttir, Inga Þóra Ingvarsdóttir Sigríður Pálsdóttir, Ólafur Hauksson, Gíslína og Haukur Þór. ✝ Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls okkar ástkæru SOFFÍU KRISTÍNAR HJARTARDÓTTUR skrifstofustjóra, Brúnastöðum 17, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Krabbameinsdeildar 11E, Landspítalanum við Hringbraut, fyrir einstakan hlýhug og góða umönnun. Hörður Barðdal, Þórður Vilberg Oddsson, Laura Fr. Claessen, aðrir aðstandendur. Glæsilegi afi minn er farinn. Það er erfitt fyrir afastelpu eins og mig að sjá á eftir eina afanum í lífi sínu sem maður hélt að ekkert myndi bíta á. En hann varð að láta í minni pokann í þetta sinn og kveðja. Alla tíð svo snyrtilegur og glæsi- legur til fara. Alltaf nýrakaður og vel ilmandi svo anganin fylgdi manni lengi á eftir. Meira að segja á spítalanum fékk skeggið ekki að vaxa. Ein af mínum fyrstu minn- ingu um afa er einmitt rakstur inni á baði með tilheyrandi raksturs- bursta og kremi. Rjúkandi heitt vatnið í vaskinum og hljóðið í sköf- unni. Eins er mér líka minnisstæðar sundferðirnar um helgar. Heims- málin rædd í heita pottinum. Prins- essutilfinning í nýbónuðum svörtum Buicknum. Rauð leðursætin ilmandi og brakandi. Viðkoma í bakaríi eftir birkirúnstykkjum. Þykkt lagi af smjöri vandlega smurt út í öll horn, alveg eins og ég. Súkkulaðibúðingur með miklum rjóma eða þykkt lag af kanilsykri á grjónagrautnum. Kaffi- bollinn með áletruninni Afi. Undir bláhimni í öllum útgáfum, hvort sem það var á harmonikkuna, hljómborðinu eða bara sungið. Og alltaf var það tileinkað ömmu með ástleitnu bliki í augum. Eitt sinn lét ég einn draum minn rætast og festi kaup á gamalli VW bjöllu. Hún var blásanseruð með til- heyrandi krómlistum og hvítum dekkjahringjum. Þá ákvað afi að kenna mér réttu handtökin við bíla- þvottinn en það var hans sérgrein. Afi bað um að fá að keyra út eftir og þótti mér það mikill heiður. Það var frekar kómískt að sjá þennan hávaxna mann troða sér inn undir stýrið. En það hafðist og við keyrð- um saman á stöðina þar sem ég fékk dýrmæta kennslu í alþrifum og bóni á bjöllunni. Mér er það sér- staklega minnisstætt hversu mikil áhersla var lögð á að brjóta vask- askinnið rétt saman og setja það aftur í pokann. Þannig héldist það mjúkt. Svo hringdi hann í mig áhyggjufullur ef hann sá bjölluna einhvers staðar útí kanti vélarvana og bauð fram aðstoð sína. Já, um- hyggjan var mikil. Þó að við barna- börnin værum mörg fékk hvert okk- ar alltaf innilegt knús og yngstu krílin voru ávallt kölluð „litla sílið“. Sem síðan færðist yfir á langafa- börnin. „Litla sílið mitt“, sagði hann svo við dóttur mína litla að maður klökknaði. Eftir smá rölt var hún steinsofnuð. Enda mikil ró og yf- irvegun sem fylgdi afa. Síðar tókst dóttur minni að hringja nokkrum sinnum í langafa sinn eldsnemma að morgni ef hún komst yfir símann. Ekki svo flókið þegar afi er fyrsta númerið í símaskránni. En það kom ekki að sök því hann var jú löngu vaknaður, sat inni í eldhúsi með kaffibollann að taka út daginn. Elsku afi minn, söknuðurinn er mikill og sár. En við sjáumst e.t.v. aftur og þá tökum við saman lagið þitt, Undir bláhimni. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín afastelpa, Rakel Júlía. Guðmundur Kristinn Erlendsson ✝ GuðmundurKristinn Er- lendsson fæddist í Hamrahóli í Holtum í Rang. 3. mars 1932. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 24. október síðastliðinn og var jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík 2. nóv- ember. Já, tengdafaðir minn, Guðmundur, lét ekki hefta sig í eina né neina ramma. Hann var öruggur í sinni mýkt: tónlistin sást í limaburðinum. Ást og umhyggja til mannanna jafnt sem dýranna, meðfæddur kærleikur til ungviðis í ættinni, og allir sofn- uðu á öxl afa. Þessi tignarlega reisn kom svo berlega í ljós er hann eitt vorkvöld ók okkur Steinsa á stefnumót í gamla Þórskaffi. Þegar „pabbi“ mætti og steig út úr að því er virtist glæsi- vagni, hélt ég að hér hefði einhver farið númera- og húsavillt, en það var ekki. Síðar varð hann föðurafi Rakelar minnar Júlíu. Afahálsakot umvafði þetta heilbrigða stúlku- barn, í fullkomleika sínum. Og ekki voru spöruð atlotin og föðurlega höndin við Eini minn, sem ég átti fyrir. Báðir með gullhjarta. Við sem eftir stöndum, hniprum okkur saman og fáum ei ráðið við neitt. En þýtt viðmót okkar lýsir trú okkar og kærleika. Hinsta kveðja, Karlína Hólm. Kveðja frá Strætókórnum Fallinn er frá mikill heiðursmað- ur, Guðmundur Erlendsson. Hann vann hjá Strætisvögnum Reykjavík- ur fyrst frá því í júní 1954 og vann þá í 6 ár, og hann kom aftur júní 1968 og vann fram að hausti 1974. Guðmundur vann við akstur mestan hluta ævi sinnar. Hann var sérlega mikill snyrtimaður og þau farartæki sem hann ók þekktust langa vegu. Árið 1958 ákváðu nokkrir starfs- menn Strætó að stofna starfs- mannakór og kom Guðmundur fljót- lega inn í kórinn, og var meðlimur í honum til síðasta dags. Kórinn er í norrænu samstarfi við vagn- og sporvagnastjóra og eru mót haldin á fjögurra ára fresti. Í þeim ferðum var Guðmundur góður félagi, fremstur í flokki með íslenska fán- ann. Þín verður sárt saknað, kæri vin- ur. Elsku Steina og fjölskylda, við kórfélagar og eiginkonur sendum ykkur okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Hvíl í friði kæri vinur. Guðmundur Sigurjónsson formaður. Haustið 2001 vorum við á Rhodos í sumarfríi ásamt svo ótrúlega hressum eldri hjónum, sem voru þar í fríi ásamt dóttur sinni og tengdasyni. Okkur varð fljótlega ljóst að þetta væri fólk sem okkur langaði að kynnast, enda geislaði af þeim orkan og lífsgleðin. Þau tóku okkur strax fagnandi og það var eins og við hefðum alltaf þekkst. Dóttirin og tengdasonurinn sögðust heita Jonna og Maggi, en pabbinn sagði „kallið okkur bara pabba og mömmu“. Þetta var upphafið á ynd- islegri vináttu, sem hefur styrkst og þróast með árunum. Saman höfum við átt frábærar stundir sem ferða- félagar jafnt innanlands sem utan, jafnframt því sem við höfum verið aufúsugestir í Neðstaleitinu. „Pabbi“ hafði átt við veikindi að stríða undanfarið, en þegar við hitt- um hann á sjúkrahúsinu kvöldið áð- ur en hann lést héldum við að hann væri allur að hressast. Við áttum þarna góða stund saman, þar sem við vorum að skipuleggja að hittast við fyrsta tækifæri þegar „pabbi“ væri kominn heim. Það var því mik- ið áfall fyrir okkur að fá þær fréttir næsta dag að hann væri fallinn frá. Upp í hugann koma allar þær góðu stundir sem við höfum átt saman, jafnframt því sem við þurfum að horfast í augu við að hér eftir muni vanta í hópinn okkar. Við höfum misst mikilvægan vin úr lífi okkar, en Guðmundur „pabbi“ mun þó lifa áfram í huga okkar þar sem minn- ingin um hann mun ylja okkur um hjartarætur um ókomna framtíð. Við erum þakklát fyrir að hafa notið þeirra forréttinda að hafa fengið að kynnast Guðmundi „pabba“, hann gaf lífi okkar aukið gildi. Við viljum votta Steinu „mömmu“ og fjölskyldu hennar samúð okkar og biðjum þess að góður Guð styrki þau á þessum erfiðu tímum. Ásgerður, Jóhann, Jónas og Inger. Lífsskeiðið er svo stutt. Það skynjum við betur og betur þegar við eldumst. Þá fyrst skiljum við orð þeirra sem á undan okkur fóru. Ráð þeirra sem eldri og reyndari voru. Gáfu okkur ráð og leiðbein- ingar um hvað mikilvægast er í þessum heimi, það að njóta, að elska, rækta og virða þá vináttu sem við eigum og berum í brjósti til hvert annars og til þeirra sem við höfum fengið tækifæri á að dvelja með og fylgjast að í gegnum lífið. Allt svo óbrigðult. Þannig upplifði ég lífið á þeim árum er ég kynntist Guðmundi Erlends, fyrst í gegnum karlakór SVR 27 ára gömul. Ekkert tæki enda. Guðmundur var stór- glæsilegur maður, snyrtilegur, vel klæddur, kíminn og fóru ekki fram hjá neinum þeir persónutöfrar sem hann bar. Í gegnum síðustu áratugina hafa kórfélagar SVR „nú Strætó“ og við konur þeirra tengst órjúfanlegum vináttuböndum. Ég hef ekki tölu á öllum þeim ferðalögum hér heima og erlendis sem við höfum farið og upplifað saman. Í þeim ferðum var Guðmundur alltaf valinn sem fána- beri, því þar fór maður sem bar af. Ég þakka Guðmundi af alhug allar góðu stundirnar sem við öll eigum úr þeim ferðum með honum og geymi í huga mér allar þær hug- skotsmyndir frá því að hann var að kenna mér að tjútta almennilega, ganga og standa virðulega, kunna sig. Steina með gítarinn og þau að syngja saman dúett, Vartan, ásamt öllu öðru þar sem ljósmyndirnar hennar Steinu geta talað sínu máli. Guðmundur, ég sakna þín, sakna þess að þú sért ekki lengur með í hópnum okkar. Eitt er öruggt, við komum öll á eftir hvert á fætur öðru þegar okkar tími rennur upp. Þangað til bestu kveðjur til hinna úr hópnum okkar sem þegar eru farnir. Elsku Steina mín, Guð veri með þér og fjölskyldunni þinni. Þú átt okkur að. Þú veist að hópurinn okk- ar er og verður alltaf til staðar. Þeirri ást og fegurð sem ég sé í huga mér á milli og í lífsgöngu Guð- mundar og Steinu finnst mér hægt að lýsa með ljóðlínum Davíðs Stef- ánssonar. Þú komst í hlaðið á hvítum hesti. Þú komst með vor í augum þér. Ég söng og fagnaði góðum gesti og gaf þér hjartað í brjósti mér. Hvíl í Guðs friði. Eygló og Reynir. Mig langar að fá að þakka þau forréttindi sem mér hlotnuðust í líf- inu að kynnast þér, Guðmundur minn, og Steina sem hafið ávallt verið nefnd bæði í sama orðinu, sem og fjölsk. Það er mjög mismunandi hvernig maður kynnist foreldrum vina sinna en að eignast dóttur/ dætur ykkar að vinkonum er mikið lán sem og ykkar fjölskyldu, sá vin- skapur er nú kominn yfir þrjá ára- tugi. Ég komst mjög fljótt að því hvað þið eruð og hafið ávallt verið samstillt fjölskylda. Fjölskyldan hefur ávallt verið í fyrirrúmi og allir hjálpast að. Guðmundur og Steina voru ekki bara hjón og foreldrar barna sinna heldur voru þau sem ein persóna og bestu vinir hvort annars, sem og barna sinna og fjölskyldu og var ótrúlega sterkt samband milli þeirra allra. Hlýja, virðing, traust, vinátta, dans, söngur og ferðalög voru líf ykkar og yndi. Að horfa á ykkur hjónin dansa er mér efst í huga í þessari smá upprifjunar- kveðju til þín Guðmundur minn og fjölskyldu. Þrátt fyrir stóra fjöl- skyldu þá tel ég ekki að böndin milli ykkar hefðu getað verið sterkari. Það vita það allir sem þekktu þig, hvað þú varst stórkostlegur maður í alla staði. Missir fjölskyldunnar all- ar er mikill. Elsku Steina, Jonna mín, Elín, Kári, systkini og fjölskyldur. Eiga svo ómetanlegar minningar um traustan, tryggan og skemmtilegan eiginmann, föður og afa. Vona ég og óska þess að þið getið yljað ykkur við þær perlur á þessum erfiðu tím- um. Ég bið Guð að styrkja ykkur öll. Því missirinn er mikill. Ég þakka ykkur, Guðmundur og fjölskylda, ómetanlega vináttu. Hvíl í friði. Vinarkveðja. Olga Björk og fjölskylda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.