Morgunblaðið - 17.11.2007, Síða 54
En svo erum við́ nátt-
úrlega báðir rauðir-
hvítir, hann er Valsari og ég
er Þróttari … 60
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
EINS og kom fram í Morgunblaðinu
á dögunum afþakkaði tónlist-
arkonan Lay Low boð Lucindu
Williams um að hita upp fyrir tón-
leikaferð Williams um Evrópu.
Ástæðan var sú að tónleikaferðina
bar upp á sama tíma og leiksýningu
LA á Ökutímum þar sem Lay Low
spilar stóra tónlistarrullu. En nú
hefur Lay Low fengið tilboð sem
hún getur einfaldlega ekki hafnað og
því var ákveðið að hliðra til fáeinum
leiksýningum fyrir norðan svo Lay
Low gæti farið út. Um er að ræða
átta daga tónleikaferð um Bret-
landseyjar ásamt samísku hljóm-
sveitinni Adjágas. Tónleikaferðin er
farin á vegum Arts Council Eng-
land, menningar- og listaráðs Eng-
lands, en hlutverk þess er að styðja
við breska menningu en einnig að
kynna nýjungar í menningu annarra
landa fyrir breskum almenningi.
Kemur út á iTunes í Bretlandi
Ein ástæða þess að Lay Low
ákvað að stökkva á þennan túr er sú
að á mánudaginn kemur út á iTunes
í Bretlandi plata hennar Please
Don’t Hate Me og því ríður á að vera
sjáanleg um svipað leyti. Sú plata er
þegar komin á iTunes í Bandaríkj-
unum og gengur vel í sölu að sögn
Lay Low, þó að hún hafi ekki sölu-
tölur á reiðum höndum. Hin ástæð-
an mun vera sú að mikið er lagt í
tónleikaferðina og allur kostnaður
er greiddur af Arts Council Eng-
land. Hvað þessa samísku sveit
varðar hafði Lay Low aldrei heyrt á
hana minnst en hefur nú leitað hana
uppi á netinu. „Þetta er svolítið
öðruvísi. Þau jojka eins og aðrir
Samar og ég hlakka mikið til að sjá
þau spila.“
Lay Low á túr um England
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Glimrandi gengi Leikritið Ökutímar hefur gengið fyrir fullu húsi fyrir
norðan en Lay Low flytur sína eigin tónlist í verkinu, eins og sjá má.
Please Don’t Hate Me kemur út á iTunes í Bretlandi
Björk er um
þessar mundir að
ljúka tónleikaferð
sinni um Suður-
Ameríku en þeg-
ar hefur hún
leikið í Brasilíu,
Argentínu, Perú og Chile og kem-
ur svo fram í Palacio de los De-
portes í Kólumbíu í kvöld. Sem
fyrr bloggar Valdís Þorkelsdóttir
frá túrnum og af síðustu færslu að
dæma er það ekki tekið út með
sældinni að vera ljóshærð blóma-
rós innan um hörundsdökka og
blóðheita karlmenn Suður-
Ameríku: „Með hverjum deginum
verð ég æ þakklátari fyrir að vera
ekki ljóshærð, því blondínurnar í
hópnum hafa átt undir högg að
sækja gagnvart Chile-búum sem
hrópa í sífellu að þeim ókvæð-
isorðum út á götu, og urðu sumar
að hylja hár sitt í gærkveldi, svo
mikill var ágangurinn.“
Wonderbrass-stúlkur
vinsælar í Chile
Barði dælir þeim út
Barði Jóhannsson er á miklu
flugi þessa dagana og er það spá
margra að lag hans „Ho, ho, ho, we
say hey, hey, hey“ fari alla leið í
undankeppni Evróvisjón á næsta
ári. Barði er með iðjusömustu
poppurum en auk Laugardagslag-
anna þriggja hefur hann nýlega
lokið við lag sem mun fylgja stutt-
myndinni „Örstutt jól“ sem vonast
er til að sýna hér á landi yfir jólahá-
tíðina. Lagið er sungið af tónlistar-
manninum Eberg en ekki er vitað
til þess að þeir kumpánar hafi unn-
ið saman áður.
Tom Waits-tónleikarnir sem
fram fóru í Óperunni á haustdögum
eru mörgum enn í fersku minni. Til
stóð að endurtaka leikinn en nú
hefur heyrst að aðstandendur hafi
því miður fallið frá þeirri ákvörðun.
Waits-tónleikum aflýst
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„Við tókum þetta upp í stofunni minni hérna í
Hveragerði, ég og Haffi tempó,“ segir Magnús
Þór Sigmundsson, einn af kunnustu lagahöf-
undum landsins. Hann stígur nú fram með sóló-
plötu, Sea Son, einn og óstuddur, en útgáfan er í
höndum hans sjálfs.
„Maður er auðvitað alltaf að semja, það ferli
er fyrir margt löngu orðið sjálfvirkt. Þetta er
vani. Það er samt heldur dýpra á tildrögum
plötunnar. Þarna fékk ég nokkurs konar köllun,
um að láta bara vaða. Gefa út plötu sem inni-
héldi lög sem standa mér í raun nær en þessi
vinsælustu lög sem ég hef gert.“
Magnús útskýrir það sem svo að „eldri“ gerð
af honum sjálfum sé í raun ábyrg fyrir plötunni.
„Þegar ég var yngri var ég mjög hugrakkur
og lét bara vaða blint á hlutina. Ég var maður
sem hætti við að fara heim til Íslands frá Lond-
on með klukkustundar fyrirvara, hringdi bara
heim og sagði konunni að selja allt draslið og
koma bara út. Svo þegar ég fór að eldast fór
þessi maður að hverfa, aðallega þar sem ég fann
að þetta hentaði ekki, og hann var ekki sér-
staklega þægilegur þeim sem næst honum
stóðu. En undanfarið hefur þessi náungi verið
að banka á dyrnar með æ reglubundnari hætti.
Það endaði með því að ég sagði bara: „Jæja …
komdu þá bara inn fyrir og við sjáum hvernig
þetta fer.“
Látið standa
Magnús segir að hann og Haffi tempó, sem
heitir fullu nafni Hafþór Karlsson, hafi legið yf-
ir lögum í nokkra daga.
„Hann kom með fínar græjur en ég var búinn
að fylgjast svolítið með honum og hafði hrifist
af aðferðafræðinni hans. Við rúlluðum ca. 25
lögum inn á band og skárum þau svo niður í 16.
Allt gerðist þetta mjög fljótt, ég var ekkert að
velta mér upp úr hlutunum, spilaði bara beint
inn með gítarinn og söng yfir, enda ætluðum við
að fara með upptökurnar í hljóðver sem leið-
beinandi tökur og endurtaka þetta svo. Tommi
Tomm Stuðmaður átti að sjá um það ferli en
honum fannst óþarfi að vera að renna í gegnum
þetta aftur – fannst sem einhver galdur hefði
læðst inn þarna í Hveragerðinu. Ég viðurkenni
að ég var efins um þetta í fyrstu en nú sé ég að
þessar afslöppuðu tökur vinna með plötunni
frekar en hitt. Öðrum hljóðfærum var svo bætt
við eftir á.“
Magnús mun fylgja plötunni eftir með spila-
mennsku og segist orðinn ansi sigldur í því að
troða einn upp með gítarinn, en hafi spilað all-
nokkuð á pöbbum án þess að vera að auglýsa sig
um of.
„Ég fæ svo Valdimar vin minn í Kjörís til að
dreifa. Fyrirtækið er hér í bænum og þeir keyra
ísinn sinn út um alla Íslandsbyggð þannig að
platan kemst víða. Annar sveitungi minn, Mýr-
mann, sá þá um málverkin sem skreyta texta-
bókina. Þannig að það var svona nettrómantísk
þorpsstemning í kringum vinnslu plötunnar.“
„Jæja … komdu þá …“
Magnús Þór Sigmundsson sendir um þessar mundir frá sér plötuna Sea Son
MorgunblaðiðRAX
Rómantískur „Það var svona nett rómantísk þorpsstemning í kringum vinnslu plötunnar,“ segir Magnús Þór Sigmundsson.
www.myspace.com/magnusthormusic