Morgunblaðið - 17.11.2007, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 57
■ Í dag kl. 17
Kristallinn – kammertónleikaröð SÍ í Þjóðmenningar-
húsinu. Felix Mendelssohn: Oktett fyrir strengi.
Meistaraleg og sígræn tónsmíð sem undrabarnið
Mendelsohn lauk við aðeins sextán ára að aldri.
■ Fim. 22. nóvember kl. 19.30
Pétur Gautur. Tónlist Griegs við stórvirki Ibsens. Petri
Sakari stjórnar, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir syngur og
Gunnar Eyjólfsson segir söguna og flytur valda kafla.
■ Fim 29. nóvember kl. 19.30
Adés og Stravinskíj. Dáðasta tónskáld Breta af yngri
kynslóðinni, Thomas Adés, sækir okkur heim og stýrir
hljómsveitinni og Hamrahlíðarkórunum í verkum
Stravinskíjs og sínum eigin.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
„Mér er til efs að Íslendingar hafi nokkurn tíma
áður átt skemmtikraft sem jafnast á við Kristján.“
ÞT. Mbl, 2006
„Bráðfyndinn og undraverður látbragðsleikari.“
V.W. Berlinske Tidene
Frelsarinn
eftir Kristján Ingimarsson
Sýning í Þjóðleikhúsinu 22. nóvember.
Sýningar í Samkomuhúsinu á Akureyri
24. og 25. nóvember.
ÓPERUPERLUR
WWW.OPERA.IS
MIÐASALA 511 4200
FRUMSÝNING Í KVÖLD KL. 20
LEIKSTJÓRI: STEFÁN BALDURSSON
ÚTLIT SÝNINGAR: ÞÓRUNN S. ÞORGRÍMSDÓTTIR
LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON
BJARNI THOR DIDDÚ
ÁGÚST SIGRÍÐUR KURT
F
A
B
R
I
K
A
N
Sýningarnar eru opnar virka daga frá kl. 11 -17 og um helgar frá kl. 13 - 16
Gerðuberg • www.gerduberg.is • sími 575 7700
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Málverkasýning Togga
Alþýðulistamaðurinn Þorvaldur Kristmundsson
opnar sýningu í Boganum í dag kl. 14
Allir velkomnir!
Vissir þú að í Gerðubergi...
er góð aðstaða fyrir fundi, ráðstefnur og námskeið?
Ennþá eru lausir salir fyrir fermingarveislur! Nánari
upplýsingar um stærð sala, verð og veitingar á
www.gerduberg.is og í síma 575 7700
EF einhver saga er fullkomin fyrir
sérviskulegan stíl Tim Burton þá er
það ævintýri Lewis Carroll um Lísu
í Undralandi. Þess vegna hljóta að
teljast góðar fréttir að leikstjórinn
hafi nú verið ráðinn til þess að leik-
stýra nýrri kvikmyndagerð sög-
unnar, sem hingað til hefur átt sínar
bestu bíóstundir í Disney-mynd eftir
ævintýrinu og í mynd tékkneska
brúðugerðarsnillingsins Jan Svank-
majer, Neco z Alenky, sem kom út
árið 1988 og hefur því vafalítið átt
stóran þátt í falli kommúnismans
strax næsta ár.
Burton lét sér þó ekki nægja að
skrifa undir að leikstýra einnig
mynd, hann mun nefnilega fylgja
Lísu eftir með Frankenweener – eft-
ir samnefndri stuttmynd sem hann
gerði sjálfur snemma á ferlinum um
ungan dreng sem bregður sér í hlut-
verk Dr. Frankenstein til þess að
endurlífga hundinn sinn. Pylsustein
væri væntanlega kjörin þýðing.
Tim Burton Fetar í fótspor Svankmajer og Disney.
Lísa og aft-
urgengni
hundurinn
HANDRITSHÖFUNDAR í Holly-
wood standa nú í hatrammri kjara-
deilu og til þess að sýna smá sam-
kennd er rétt að gleðja ykkur með
smá handritshöfundafréttum, enda fá
þessir leikarar og leikstjórar allt of
mikla athygli. Nýlega var James
Vanderbilt ráðinn til þess að vefa
plottið fyrir fjórðu myndina um
Köngulóarmanninn, en Vanderbilt
skrifaði nýlega einn besta þriller árs-
ins, Zodiac, og hefur auk þess verið
að pússa handritið fyrir frumraun X-
mannsins Wolverine í sólóhlutverki.
Ekki er þó enn búið að semja við Sam
Raimi um að leikstýra á ný né Tobey
Maguire um að skella sér í spandex-
gallann aftur – en ef handritið lukkast
vel hlýtur það að vera auðsótt.
Þá hafa þeir félagar Steven Spiel-
berg og Peter Jackson fundið arftaka
Hergé til þess að skrifa handritin af
væntanlegum myndum um stjörnu-
blaðamanninn Tinna. Steven Moffat
heitir maðurinn og hefur hingað til
einbeitt sér að sjónvarpsskrifum,
meðal annars fyrir Doctor Who sem
hefur verið sýnt á RÚV undanfarið.
Handritshöf-
undafréttir