Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is ÁGREININGUR um verð er ástæða þess að Reykjavík Energy Invest (REI) og Geysir Green Energy (GGE) hafa ákveðið vera ekki aðilar að kauptilboði ásamt First Gen undir merkjum Red Vulkan á 60% hlut í fil- ippseyska orkufélaginu PNOC-EDC. Hvorki forsvarsmenn REI né GGE vildu tjá sig um málið í gær þegar eft- ir því var leitað og báru því við að samstarfssamningur væri enn í gildi milli REI, GGE og First Gen og því væru aðilar bundnir trúnaði. Eftir því sem blaðamaður kemst næst gildir sá samningur út nóvember og tjái menn sig um málið fyrir þann tíma gæti það bakað þeim skaðabótaskyldu. Eins og greint var frá í gær reynd- ist tilboð Red Vulkan hæst eða 58,5 milljarðar pesóa, sem jafngildir 84 milljörðum íslenskra króna, en lág- marksverð ríkisins var rúmir 45 millj- arðar pesóa. Stjórnvöld á Filippseyj- um ákváðu í gær að ganga til samninga við Red Vulkan á grund- velli tilboðsins. Segja First Gen sætta sig við lægri ávöxtunarkröfu Samkvæmt upplýsingum blaða- manns var í samstarfssamningi REI, GGE og First Gen að finna ákvæði þess efnis að væru aðilar ekki sam- mála um verð mætti það fyrirtæki sem hæst vildi bjóða fara út í kaupin eitt og sér undir merkjum Red Vulk- an. Þetta ákvæði hafi verið sett inn til þess að enginn yrði neyddur til að greiða meira fyrir hlutinn en hann væri reiðubúinn að gera. Eftir því sem blaðamaður kemst næst má ætla að forsendurnar sem First Gen gaf sér hafi verið aðrar en forsendur for- svarsmanna íslensku fyrirtækjanna tveggja, þar sem First Gen sætti sig við lægri ávöxtunarkröfu, sem end- urspeglar að þeir telji áhættuna af rekstrinum ekki eins mikla og sam- starfsfélagar þeirra. Viðmælendur blaðamanns benda á að þau önnur til- boð sem hafi borist í hlutinn hafi reynst nokkru lægri en hæsta boð, sem staðfesti að verðmat forsvars- manna REI og GGE hafi verið raun- hæfara, enda er tilboð First Gen 10 milljörðum pesóa, eða 14 milljörðum íslenskra króna, hærra en næsthæsta boðið. Enginn viðmælenda vildi hins veg- ar nefna upphæðir við blaðamann sem endurspegluðu hvað forsvars- menn REI og GGE hefðu verið reiðu- búnir að greiða fyrir hlutinn. Bent hefur verið á að samkvæmt sam- starfssamningi REI og GGE við First Gen geti íslensku fyrirtækin komið inn í kaup Red Vulkan á PNOC-EDC á síðari stigum ef þau kjósi það. Eftir því sem blaðamaður kemst næst telja menn ekki líklegt að af því verði nema forsendur breytist, því eftir standi að menn séu ósáttir við of hátt verð á hlutnum. Í kvöldfréttum Sjónvarpsins sl. miðvikudag kom fram að óvissa um framtíð REI og sú staðreynd að fyr- irtækið verði ekki sameinað GGE væru meðal helstu ástæðna þess að hvorki REI né GGE vildu vera með í kauptilboði Red Vulkan. Enginn þeirra sem blaðamaður talaði við tók undir þessa skýringu og ítrekuðu allir að ósætti um kaupverðið sjálft hefði verið aðalástæðan. Allir voru þó sam- mála um að mikilvægt væri að fá nið- urstöðu um framtíð REI sem fyrst, enda ætti fyrirtækið erfitt með að at- hafna sig meðan hlutirnir væru jafnó- ljósir og raun bæri vitni. REI og GGE ekki aðilar að kauptilboðinu á Filippseyjum Morgunblaðið/G.Rúnar Of hátt REI og GGE finnst tilboð Red Vulkan of hátt í hlut í orkufélaginu PNOC-EDC og hyggjast því ekki standa að baki tilboðinu með First Gen. Í HNOTSKURN »Boðuðum framhaldseig-endafundi Orkuveitu Reykjavíkur, sem halda átti í dag, hefur verið frestað um viku. » Sökum þessa var boð-uðum framhaldseigenda- fundi REI, sem halda átti í beinu framhaldi af fundi OR, einnig frestað um viku. GISINN ís var næst landi um 18 sjó- mílur norður af Straumnesi í gær. Þetta kom í ljós í ísflugi Landhelg- isgæslunnar. Miðað við árstíma er ísinn óvenjunálægt landi. Hann gæti færst eitthvað nær landinu en ætti þó að fjarlægjast það aftur í dag þar sem von er á austlægum áttum samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Ís norður af Straumnesi „VINNUBRÖGÐ meirihlutans í svo- kölluðum stýrihóp eru síður en svo í samræmi við það sem boðað var, að fram færi opin og lýðræðisleg um- ræða um stefnu- mörkun til fram- tíðar um hlutverk REI-OR í útrás- arverkefnum. Þegar kemur að þeim þætti í starfi stýrihópsins hef- ur meirihlutinn kosið að ræða þau mál í bakher- bergjum án nokk- urs samráðs við fulltrúa minnihlutans, enda hefur greinilega aldrei verið tilgangurinn að hafa slíkt samráð nema e.t.v. að forminu til,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, þegar leitað var við- bragða hans við fréttum Morg- unblaðsins í gær af sáttatillögu eða vinnuskjali sem meirihluti borg- arstjórnar í stýrihóp um málefni OR hefur lagt fram. „Meirihlutinn er augljóslega bú- inn að ákveða í hvaða farveg hann ætlar að setja þetta mál. Í ljósi þeirr- ar umræðu sem fram hefur farið um útrásarmálin að undanförnu og um hlutverk og stöðu REI-OR í því sam- bandi, ekki síst afstöðu fulltrúa Vinstri grænna, eru þessi vinnu- brögð hreint út sagt ótrúleg. Menn hljóta að spyrja sig hver stjórni ferð- inni í þessum málum hjá meirihlut- anum. Er það Dagur [B. Eggerts- son], Svandís [Svavarsdóttir], formaður stýrihópsins, eða er það Björn Ingi [Hrafnsson], sem reyndar á ekki sæti í hópnum?“ segir Vil- hjálmur. Eins og fram kom í blaðinu í gær hefur hann farið fram á það í borgarráði að borgarfulltrúar í stýrihópnum upplýsi um efni tillög- unnar í borgarráði. „Ég vænti þess enn að þessi tillaga verði gerð op- inber.“ Ekkert samráð við minnihluta Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson GERT er ráð fyrir því að verklok við endurbætur á nýrri Grímseyj- arferju verði 28. nóvember nk., að sögn Eiríks Orms Víglundssonar hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf. í Hafnarfirði. Ferjan verður þó ekki afhent Siglfirðingum fyrr en eftir áramót. „Það er unnið á fullu í öllum hornum þessa síðustu daga,“ segir Eiríkur Ormur en hann segir verk- lok samkvæmt áætlun, sé miðað við nýja áætlun sem samið var um eftir að farið var af stað á nýjan leik við endurbæturnar í vor. Vegagerðin fær skipið afhent í næstu viku, sem fyrr segir, en skip- ið verður þó ekki tilbúið til að sigla þá, enda á enn eftir að gera nokkr- ar minniháttar breytingar. Hjá G. Pétri Matthíassyni, upplýsingafull- trúa Vegagerðarinnar, fengust þær upplýsingar að ráðgert væri m.a. að byggja nýja innganga í skipið, bæði stjórnborðs- og bakborðsmegin. Það verk verði boðið út. Pétur sagði hins vegar að hér væri ekki um stór verk að ræða og gert væri ráð fyrir því að skipið yrði tekið í notkun upp úr áramótum. Pétur sagði að aðalinngangur skipsins yrði stjórnborðsmegin en dyr bak- borðsmegin væru til þess ætlaðar að auka öryggi um borð í skipinu, þ.e. þær yrðu neyðarútgangur, en auk þess myndu þær auðvelda að- gengi hreyfihamlaðra. Grímseyjarferja líklega í notkun eftir áramót Vegagerðin fær ferjuna væntanlega afhenta í næstu viku Morgunblaðið/Brynjar Gauti ♦♦♦ Girnileg nýjung með 2 í pakka. Fæst í næstu verslun. Meistara-flokkssúpur Masterklass        Nýjung ENGAN sakaði þegar eldur kom upp í húsnæði við Tangagötu í Vest- mannaeyjum um miðjan dag í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu bæjarins liggja eldsupptök ekki fyrir en líkegt er talið að mannshöndin hafi ver- ið nærri. Húsnæðið skiptist í þrennt; tvær geymslur og veitingastað. Eldsupptök eru talin hafa verið á lofti annarrar geymslunnar en þar voru kör með ein- angrun ásamt öðrum munum. Í sama rými voru tveir hópferðabílar sem sluppu án skemmda. Reykjarlykt lagði inn á veitingastaðinn án þess að það hefði merkjanleg áhrif á starfsemina. Að sögn lögreglu verður tekin ákvörðun um það í dag hvort fengin verði aðstoð frá slökkviliði höfuðborg- arsvæðisins. Eldur við Tangagötu Morgunblaðið/Sigurgeir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.