Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „VIÐ munum einbeita okkur að því að auka að- gang fiskvinnslunnar að því hráefni sem hér kem- ur á land,“ segir Gunnar Bragi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Nýfisks í Sandgerði og ný- kjörinn formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda, en samtökin héldu nýlega aðalfund sinn. „Við erum búnir að ná fram helstu baráttumálum okkur og samskiptin við fiskmarkaðina eru í góðum farvegi,“ segir Gunnar Bragi um stöðu mála. Vísar hann til þess að nýleg reglugerð sjávarútvegsráð- herra um vigtun sjávarafla geri starfsskilyrði fiskvinnsl- unnar sanngjarnari en áður var. Þá hafi náðst ágæt sátt við fisk- markaðina um starfsreglur þótt áfram verði unn- ið að þeim málum. Útvíkkun og nýtt nafn Aðalviðfangsefni aðalfundarins var að leita leiða til að fiskvinnslan geti boðið í þann fisk sem fluttur er óunninn á erlenda markaði, svonefndan gámafisk. Fiskframleiðendum svíður það hversu mikið er flutt úr landi af óunnum fiski á meðan ís- lensk fiskvinnslufyrirtæki búa við alvarlegan hrá- efnisskort. Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda er nýtt nafn á félagi sem starfað hefur frá árinu 1994 undir heitinu Samtök fiskvinnslu án útgerðar. Óskar Þór Karlsson var helsti frumkvöðull fé- lagsins og hefur verið formaður frá upphafi en hann gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Gunnar Bragi segir að aðstæður hafi verið að breytast hjá fyrirtækjunum sem aðild eiga að samtökunum. Mörg þeirra hafi keypt kvóta og báta og hafið útgerð, það hafi verið eina leið þeirra til að ná sér í hráefni. Nefnir hann sitt fyr- irtæki, Nýfisk, sem dæmi um það. Því hafi verið ákveðið að breyta heiti samtakanna og um leið hafi starfssvið þeirra verið fært út. Eins og fram kemur í heitinu er ætlunin að höfða einnig til út- flytjenda þess fisks sem fyrirtækin framleiða og bjóða þeim þátttöku í samtökunum. Vonast Gunnar til að með því verði hægt að gera sam- tökin öflugri. Fjölgað var í stjórn og skipa hana nú sjö fé- lagsmenn. Með Gunnari í stjórn eru Aðalsteinn Finsen hjá Tor, Albert Svavarsson Ísfiski, Birgir Kristinsson Nýfiski, Grétar Finnbogason Haf- gæðum, Jón Steinn Elíasson Toppfiski og Stein- grímur Leifsson Frostfiski. Vilja fá að bjóða í gámafisk Ljósmynd/Sigurður Bogi Samþykkt Óskar Karlsson, fráfarandi formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda, ásamt Björgvini Kjartanssyni. Í HNOTSKURN »Samtök fiskframleiðenda og útflytj-enda skora á sjávarútvegsráðherra að hann beiti sér nú þegar fyrir því að allur óunnin afli úr íslenskum fiskiskipum, sem ætlað er að ráðstafa til sölu á fiskmarkaði, verði boðinn til sölu á innlendum fiskmörk- uðum. »Telja samtökin þetta réttmæta kröfuþar sem hún sé eina leiðin til þess að jafna möguleika íslenskra fiskkaupenda í samkeppni við erlenda aðila um kaup á ís- lenskum fiski til vinnslu. »Samtökin ítreka nauðsyn þess að áskil-inn verði með lögum fjárhagslegur að- skilnaður í rekstri útgerðar og fiskvinnslu í landi til að jafna samkeppnisskilyrði. Gunnar Bragi Guðmundsson STOFNAÐ hefur verið félag ungs fólks í sjávarútvegi. Markmið þess er að vinna að almennri fræðslu í sjávarútvegsmálum og stuðla að opinni umræðu um málefnin. Það er von fyrstu stjórnar fé- lagsins að rödd þess unga fólks, sem starfar í sjávarútvegi, sinnir þjónustu við greinina eða hefur áhuga á málefnum hennar, muni finna sér stað innan félagsins. Kemur þetta fram í fréttatilkynn- ingu. Að mati stjórnar hefur um- ræða undanfarið verið einsleit og neikvæð í garð sjávarútvegs og standa vonir til þess að opnari um- ræða og bætt fræðsla muni færa umræðuna til betri vegar. Stjórn félagsins telur að traust og öruggt kerfi við stjórn fiskveiða skipti miklu máli til að þeir sem í grein- inni starfa geti nýtt sóknarfæri sem gefast, líkt og í öðrum at- vinnugreinum. Friðbjörn Orri Ketilsson er for- maður félagsins og með honum í stjórn eru Einar Sigurðsson, Fann- ar Hjálmarsson, Gísli Freyr Val- dórsson, Geir Ágústsson, Héðinn Karl Magnússon og Magnús Sig- urðsson. Stofna félag ungs fólks í sjávarútvegi ÚR VERINU Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@ mbl.is FLEST afbrot á höfuðborgarsvæð- inu eru framin í miðborg Reykjavík- ur en 18% hegningarlagabrota í lög- regluumdæminu voru framin þar árið 2006. Miðborgin var þá vett- vangur nærri 45% ofbeldisbrota á höfuðborgarsvæðinu og 24% fíkni- efnabrota. Í Breiðholti áttu sér hinsvegar stað hlutfallslega flestir nytjastuldir eða 15%. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu LRH um afbrot á höfuð- borgarsvæðinu þar sem fjallað er um hvernig tilkynnt afbrot dreifast eftir svæðum og hvaða reynslu íbúar hafa af lögreglu og eigin öryggi. Einnig var kannað hvaða reynslu fólk hefur af afbrotum. Flest hegningarlagabrot, að mið- borginni frátalinni, voru framin í Kópavogi í fyrra, eða 11,6%. Næst kemur Breiðholt með 11%. Minnst er hinsvegar um afbrot á Álftanesi, Kjalarnesi, í Grafarholti og á Sel- tjarnarnesi, 0,2%-1,3%. Sterk tengsl eru á milli dreifingar brota og íbúafjölda á svæðum, að miðborginni frátalinni. Þannig kem- ur fram að hátt hlutfall brota í Kópa- vogi skýrist að hluta af því að bær- inn er fjölmennasta svæði lögreglu- umdæmisins. En hverskonar brot er þar um að ræða? Í skýrslunni segir að fyrirferðarmest séu eignaspjöll og auðgunarbrot, sem samanlagt mynda þriðjung brota á svæðinu. Af- brotum í báðum þessum flokkum fækkaði milli áranna 2005 og 2006 og einnig fækkaði kynferðisbrotum töluvert, úr 13% í 5%. Hinsvegar fjölgaði nytjastuldum úr 9% í 13,5%. Í skýrslunni segir að miðborgin og Breiðholt séu þau hverfi þar sem meðalatvinnutekjur hafi verið hvað lægstar árið 2005, en sem að framan gat eru þau með þeim svæðum um- dæmisins þar sem afbrotatíðni er hæst. Um þriðjungur allra afbrota á höfuðborgarsvæðinu var framinn á þessum svæðum. Þessu til viðbótar má nefna að hlutfallslega flestir íbú- ar í Breiðholti þáðu félagslega að- stoð árið 2005 og þar er hæst hlutfall félagslegra íbúða, tæp 7%. Hverfið hefur því sína sérstöðu eins og fram- angreindar tölur bera með sér. Lög- reglan vinnur talsvert af frumkvæð- isvinnu í Breiðholti og þvertekur fyrir að þar séu klíkur í afbrotum eða að þar séu að myndast afbrotak- líkur. Kópavogur er álíka efnamikið svæði og Álftanes en þó er afbrota- tíðnin í Kópavogi álíka og í Breið- holti. Þar kemur þó hinn mikli íbúa- fjöldi til eins og áður segir. Efnamesta svæðið í öllu umdæminu er Seltjarnarnes og næst kemur Garðabær, en á þessum svæðum var fátt um afbrot. Þegar þolendarannsókn skýrsl- unnar er skoðuð kemur fram að flestir íbúar alls umdæmisins sögðu innbrot mesta vandamálið í sínu hverfi eða tæplega 33%. Þá nefndu næstflestir umferðarlagabrot, 25%, og eignaspjöll nefndu 20%. Þátttakendur voru almennt ánægðir með störf lögreglu í sínu hverfi. Árbæingar og Grafarholts- búar voru einna ánægðastir, sem lögreglunni þykir áhugavert í ljósi þess að afbrot eru ekki fátíðari á þessum svæðum en öðrum miðað við íbúafjölda. Hinsvegar kom það lög- reglunni ekki á óvart að íbúar mið- borginnar voru líklegastir til að vera óánægðir með lögregluna, eða rúm 17%. Mosfellingar og Kjalnesingar voru samt óánægðari, en 30% íbúa þar töldu lögregluna skila frekar eða mjög slæmu starfi. 90% segjast mjög eða frekar örugg í sínu hverfi Þegar þátttakendur voru spurðir út í eigið öryggi þegar þeir eru einir á gangi að næturlagi og ótta við að verða fyrir afbroti voru svörin þann- ig að um 90% fólks eru mjög eða frekar örugg við þessar aðstæður. Íbúar Grafarvogs töldu sig örugg- asta en fólk í Breiðholti og í mið- borginni taldi sig einna óöruggast á gangi eftir myrkur. Töluverður munur var á upplifun fólks á öryggi í miðborg Reykjavík- ur eftir því í hvaða hverfi það býr. Garðbæingar töldu sig t.d. einna óöruggasta í miðborginni en mið- borgarbúar sjálfir voru hins vegar líklegastir til að segjast mjög eða frekar öruggir þar. Þá segir skýrslan að 18% þátttak- enda hafi lent í innbroti, ofbeldi eða eignaspjöllum. Flestir, um 12%, höfðu reynslu af eignaspjöllum. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri LRH, segir mest koma á óvart í skýrslunni að brotum hafi fjölgað milli ára um 25%. „Þetta er auðvitað umhugsunarefni, en að sumu leyti erum við í einkennilegri stöðu,“ seg- ir hann. „Markmiðið er að fækka af- brotum en um leið sjáum við að fjöldi ofbeldisbrota sem eru tilkynnt til okkar er 47%. Við viljum hækka þá tölu,“ segir hann en spyr þá hvort það feli í sér að dregið hafi verið úr örygginu vegna fjölgandi ofbeld- isbrota. „Það er erfitt að finna jafn- vægið þarna. Við viljum t.d. fjölga kærum vegna kynferðisbrota en hef- ur það í för með sér að öryggis- tilfinning fólks eykst ef tilkynntum kynferðisbrotum fjölgar? Eða bend- ir það til meiri öryggistilfinningar vegna meiri tiltrúar á lögreglunni?“ Nærri fimmtungur afbrotanna framinn í miðborg Reykjavíkur Morgunblaðið/Júlíus Skýrsluhöfundar Rannveig Þórisdóttir og Benjamín Gíslason hjá Upplýsinga- og áætlanadeild með Stefán Eiríks- son, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, á milli sín við kynningu skýrslunnar í höfuðstöðvum lögreglunnar í gær. Í HNOTSKURN »Í skýrslunni er byggt áupplýsingum um fjölda til- kynntra brota til lögreglu á ár- unum 2005 og 2006 og við- horfskönnun sem framkvæmd var af Félagsvísindastofnun og í samstarfi við Rannsóknar- stofu í afbrotafræðum í maí 2007. Rannsóknin náði til 2.400 manna tilviljanaúrtaks ein- staklinga á aldrinum 18 til 75 ára sem búsettir voru á höfuð- borgarsvæðinu. Svarhlutfall var 61%, sem er í lægri kant- inum en telst þó viðunandi að mati skýrsluhöfundanna. 9.666 hegningarlaga- brot voru tilkynnt til lögregluembættanna á höfuðborgarsvæðinu í fyrra, sem er tæp- lega 25% aukning frá árinu 2005.                     !"#  #  $ %   &"  " #  !#' ' '  '  '# " ''  '(# )' '  '    ' *'  '+'(  #, # '-../ 0-1/2 -3142 -.1.2 /102 3132 51.2 -142 4162 41.2 .102 .142

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.