Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FORSETI Alþingis, Sturla Böðvars- son, opnar Skólaþing, kennsluver Alþingis fyrir efstu bekki grunn- skóla, 23. nóvember nk. kl. 10. Á Skólaþingi fara nemendur í hlut- verkaleik og fylgja í stórum drátt- um reglum um starfshætti Alþingis. Nemendur úr 9. bekk Lindaskóla í Kópavogi hefja leikinn. Öllum grunnskólum í landinu verður sent bréf til kynningar á starfsemi Skólaþings. Miðað er við að einn bekkur komi í Skólaþing í einu og heimsóknin taki um tvær og hálfa klukkustund. Á þeim tíma fá nemendur tækifæri til að setja sig í spor þingmanna með því að leiða ákveðin mál til lykta á þingflokksfundum, nefnda- fundum og þingfundum. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Alþingi Nemendur setjast á þing. Skólaþing í dag LÁRUS Blöndal, vinnumarkaðs- fræðingur og deildarstjóri hjá Hag- stofu Íslands, heldur fyrirlestur undir heitinu „Erlent vinnuafl á Ís- landi – þróun undanfarinna ára“, sem Rannsóknastofa í vinnuvernd býður upp á í dag kl. 12.15-13.15. Fyrirlesturinn verður í Háskóla Ís- lands, stofu 201 í Lögbergi. Á örskömmum tíma hefur er- lendum starfsmönnum stórfjölgað og þeir valdið umbyltingu á íslensk- um vinnumarkaði. Hvaðan koma erlendu starfsmennirnir og við hvað vinna þeir? Í fyrirlestrinum verður fjallað um þessa þróun og hún sett í samhengi við sambæri- lega þróun í nágrannalöndunum. Fyrirlestur um erlent vinnuafl UNIFEM á Ís- landi mun í dag standa fyrir ár- legum morg- unverðarfundi sínum á Hótel Loftleiðum kl. 8.15-9.30. Heið- ursgestur fund- arins verður Lin- dora Howard- Diawara, fram- kvæmdastjóri WIPNET í Líberíu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra ávarpar fundinn og nýútkomið tímarit UNIFEM verður kynnt. Women in Peacebuilding Net- work (WIPNET) eru líberísk kven- réttinda- og friðarsamtök sem tekið hafa virkan þátt í friðar- og endur- reisnarferlinu í Líberíu undanfarin ár. Stofnendur WIPNET voru tíu konur, sem fengið höfðu sig full- saddar á ofbeldinu sem gegnsýrt hafði líberískt samfélag alltof lengi og fannst vera kominn tími til láta til sín taka: „Áður sögðum við ekki neitt en núna, þegar búið er að drepa, nauðga, niðurlægja og smita okkur með sjúkdómum, og við höf- um glatað börnum og fjölskyldum okkar, hefur stríðið kennt okkur að framtíðin liggur í því að segja NEI við ofbeldi og JÁ við friði.“ Morgunverðarfundurinn markar upphaf 16 daga átaks gegn kyn- bundnu ofbeldi sem hefst næsta sunnudag, en sá dagur er alþjóð- legur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum. Fundur hjá UNIFEM Lindora Howard- Diawara Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is RÆKTUN repju hér á landi hefur lítið verið reynd, að sögn Jónatans Hermannssonar, tilraunastjóra á til- raunastöð Landbúnaðarháskóla Ís- lands. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að hægt væri að kolefnisjafna allan koltvísýring (CO2) frá íslenska skipaflotanum, alls um eina milljón tonna, með því að rækta repju og framleiða úr henni jurtaolíu sem notuð yrði sem eldsneyti í stað dísil- olíu sem nú er notuð. Jónatan segir að nóg landrými sé fyrir hendi á Íslandi til ræktunar repju. Ætla megi að um fimmtungur mögulegs ræktarlands hér á landi sé nýttur í dag. Mest sé af ónýttu rækt- arlandi í Rangárvallasýslu. Tvær tilraunir gerðar Hann hefur gert tvær smáar til- raunir með ræktun á repju af sænskum stofni á Korpu, tilrauna- stöð Landbúnaðarháskólans, en veit ekki til þess að fleiri slíkar tilraunir hafi verið gerðar. Önnur tilraunin var gerð árið 1999 og uppskorið var 2000. Hin var gerð 2006 og upp- skorið í ár. Jónatan segir að báðar tilraun- irnar hafi skilað repjuuppskeru. Þrisvar sáði hann mismunandi af- brigðum vorrepju, en hún er skorin upp sama ár og til hennar er sáð. „Það hefur reynst erfitt því hún þarf ívið lengra sumar en við höfum hér.“ Tvisvar sinnum sáði Jónatan haust- afbrigði af repju, en því er sáð síðla sumars. „Upp koma plöntur sem minna á litlar gulrófuplöntur. Þær lifa af veturinn og geta byrjað að spretta snemma næsta vor. Þær hafa náð sæmilegum þroska hér,“ segir Jónatan. Hann segir að áhættuþáttur í ræktuninni sé hvort plantan lifi af veturinn. „Síðastliðinn vetur lifði hún vel hér á Korpu. Ég sáði sum- arið 2006 og uppskar núna í haust. Plantan lifði vel og skilaði ágætri uppskeru. En þetta er bara ein til- raun á einum stað og er því miður af- skaplega lítill grunnur til að byggja á. Ef þetta yrði alvara þyrftum við að gera miklu fleiri tilraunir á fleiri stöðum,“ segir Jónatan. Gera mætti ráð fyrir að slíkar tilraunir tækju nokkur ár. Hann segir að gera þyrfti þær víðar á landinu og myndu þær skera úr um hvort ræktunin skili fullnægjandi uppskeru sem og hvað slík ræktun myndi kosta. T.d. þurfi olíu til þess að plægja og til að búa til áburð til að nota við ræktunina. Aðild Íslands að EES skuldbindur Íslendinga til að uppfylla kröfur um að árið 2010 verði 6,5% af því elds- neyti sem eytt er á þjóðvegum og götum endurnýjanlegt eldsneyti, en í dag er þetta hlutfall 0%. Jónatan segir að sér finnist ekki líklegt að það næðist að rækta repju til að framleiða jurtaolíu fyrir þann tíma. „Ég held við verðum að leita ann- arra leiða. Nú eru menn að leita fyr- ir sér með því að nota lífmassa til þess að framleiða úr honum elds- neyti, t.d. með heyi,“ segir hann. Spurður hvort siðferðileg álitamál kunni að koma upp vegna ræktunar repju, þar sem mikið land þurfi und- ir hana, segir Jónatan það geta átt við þar sem ræktarland er takmark- að. „Í þeim löndum sem gott rækt- unarland er tekið úr matvælafram- leiðslu yfir í eldsneytisframleiðslu hlýtur það að hafa áhrif,“ segir hann. Það hljóti að koma fram í minnkandi framboði á landbúnaðarvörum og þar með hærra verði. Íslensk stjórnvöld skoði skattamál Að sögn Herberts Herbertssonar, tæknilegs ráðgjafa varðandi elds- neyti og smurolíur hjá N1, væri hugsanlegt að vera með tvo skika undir ræktun repju til að tryggja að uppskera fengist hvert ár. Þá væri sáð að hausti en ekki skorið upp fyrr en svo seint ári síðar að of seint yrði orðið að gróðursetja að nýju í þann reit. Herbert segist ekki sjá eins og staðan er núna, hvernig íslensk stjórnvöld ætli að fara að því að standa við skuldbindingar gagnvart EES um 6,5% endurnýjanlegt elds- neyti árið 2010. Hann telji þó að það ætti ekki að taka mörg ár að fá repjuuppskeru, hefjist ræktunin innan tíðar. Það sé í höndum ís- lenskra stjórnvalda að ákveða að taka ekki þunga skatta af endurnýj- anlegu eldsneyti eða lækka skatt- ana, enda eigi endurnýjanlegt elds- neyti ekki að verða dýrara í notkun fyrir neytendur. Fáar tilraunir verið gerðar með ræktun repju á Íslandi Ræktun repju hefur lít- ið verið reynd hér- lendis, en úr henni má vinna olíu til að nota í stað dísilolíu en nóg er af landi til ræktunar á jurtinni. Í HNOTSKURN »Repja er gult blóm með fræj-um, en þau innihalda jurta- olíu og eru notuð til framleiðslu á dísilolíu. »Við ræktun hennar í N-Evrópu er repjunni plantað að hausti. Hún hættir að vaxa yfir veturinn en vex að nýju þeg- ar vorar og kemst á legg. »Bandaríkjamenn eru komnirlengst í að framleiða dísilolíu úr jurtum. VESTUR-ÍSLENDINGURINN dr. Baldur R. Stefansson plöntuerfða- fræðingur, sem lést árið 2002, hefur verið nefndur „faðir matarolíunnar“. Hann kom ásamt öðrum að rann- sóknum á repjufræi í Kanada en rannsóknirnar fóru fram við Mani- toba-háskóla á árunum 1970- 1975. Baldri og samstarfs- mönnum hans tókst að útiloka eiturefni úr repjufræi og búa til repjuolíu (canola-olíu) til manneldis. Emöke Szat- hmáry, rektor Manitoba-háskóla, sagði í samtali við Morgunblaðið árið 2000 að upp- götvunin hefði haft „gríðarmikla þýðingu“ fyrir efnahag Manitoba. Baldur fæddist í Vestfold í Mani- toba árið 1917. Hann hlaut heims- frægð sem vísindamaður. Baldur kenndi við Manitoba-háskóla í Winnipeg eftir að hann lauk þaðan doktorsnámi árið 1952. Hann var meðal annars sæmdur Kanadaorð- unni, Manitoba-orðunni og Fálka- orðunni. „Faðir matar- olíunnar“ Baldur R. Stefansson Ljósmynd/Jónatan Hermannsson Repjurækt Myndin var tekin við Korpu í júní s.l. en gul blóm repjunnar glöddu augað í sumar. Tvær tilraunir hafa verið gerðar með ræktunina. HUGMYNDIR munu vera uppi í stýrihóp meirihlutans í Reykjavík um að eign Orkuveitu Reykjavíkur í Hitaveitu Suður- nesja verði látin renna inn í Reykjavík Energy Invest og þaðan í Geysir Green Energy. Í staðinn fái REI hlutafé í GGE. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs, segir að hann vilji sem minnst tjá sig um hugmyndir sem séu á vinnslustigi. „Ég vil því ekki tjá mig um ein- stakar hugmyndir og vil hvorki stað- festa þetta né neita því, það er ekki mitt hlutverk,“ sagði Steingrímur. „Ég veit ekki hverjir ykkar heimild- armenn eru og hversu áreiðanlegar þessar fréttir eru. En ég get bara sagt að það er unnið að þessu af miklu kappi og við fylgjumst með þessari vinnu eins og eðlilegt er, höf- um gott samráð í flokknum. Það ríkir algert trúnaðartraust á milli okkar allra. En fyrst og fremst er þetta auðvitað á forræði okkar fólks hjá borginni, Svandís veitir þessu for- ystu.“ – En nú hefur VG mjög ákveðna stefnu varðandi eignarhald á orku- lindum. Hvernig horfir þetta við þér í ljósi þeirrar grundvallarstefnu, er þetta ekki í andstöðu við hana? „Við skulum nú ekki tala eins og þetta sé orðin niðurstaða og þetta er nú ekki endilega eitthvað sem snýr að auðlindunum sem slíkum þó að þarna sé verið að reyna að sortera upp þetta samkrull sem þetta var komið í. Menn tala eins og þessi nýi meirihluti hafi komið að hreinu borði en það er nú öðru nær. Ætli það sé nú ekki sönnu nær að flækjurnar sem voru búnar til í tíð fyrri meirihluta reynist býsna snúnar úrlausnar? Ég get algerlega lofað að við mun- um reyna frekar hið gagnstæða, að bjarga auðlindunum aftur í hendur opinberra aðila og sveitarfélaganna, eftir því sem það er í valdi OR og meirihlutans í Reykjavík.“ Aðeins hugmynd- ir á vinnslustigi Steingrímur J. Sigfússon OPNAÐUR hefur verið vefurinn www.netsvar.is þar sem finna má spurn- ingar og svör um jákvæða og örugga netnotkun. Vefurinn er samstarfs- verkefni SAFT-verkefnisins hjá Heimili og skóla, Póst- og fjarskiptastofn- unar og Barnaheilla. Við opnunina kynntu María Kristín Gylfadóttir, formaður Heimilis og skóla, Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri PFS, og Petrína Ásgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri Barnaheilla, vefinn og samstarfið. Síðan opnuðu tvö ungmenni úr Lækjarskóla í Hafnarfirði, þau Birgitta Björg Jónsdóttir og Alexander Arason, vefinn formlega fyrir almenna notkun. Hjálparvefur um örugga netnotkun Morgunblaðið/Brynjar Gauti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.