Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 9 FRÉTTIR FJÖLMENNT var á ráðstefnu Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH), Hjúkrun 2007, sem fram fór á Hótel Nordica í gær. Ráðstefnunni er ætlað að endurspegla það nýjasta í hjúkrunarfræði og rannsóknum á Íslandi í dag. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður FÍH, setti ráðstefnuna og Guð- laugur Þór Þórðarson heilbrigð- isráðherra ávarpaði ráðstefnugesti. Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir hjúkr- unarfræðingur, annar aðalfyrirles- ara ráðstefnunnar, fjallaði um rann- sókn sína á ofneyslu áfengis meðal unglinga á framhaldsskólastigi sem sýndi m.a. að tíðni ofneyslu áfengis var 59,4% meðal þátttak- enda. Ráðstefnunni er haldið áfram í dag. Frekari upplýsingar eru á hjukrun.is. Fjölbreytt erindi á ráðstefnu um hjúkrun Morgunblaðið/Frikki Áhugi Það nýjasta í rannsóknum og starfi hjúkrunarfræðinga kynnt. HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef- ur dæmt karlmann til 15 mánaða fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot. Manninum var jafnframt gert að greiða fórnarlambi sínu 800 þúsund krónur í miskabætur auk þess sem sakarkostnaður féll á hann. Maðurinn var ákærður fyrir að nauðga konu sem hann kannaðist vel við – frænku barnsmóður sinnar – þegar hún gat ekki spornað við verknaðinum vegna ölvunar. Við fyrstu skýrslutöku neitaði hann að hafa haft samfarir við konuna en hvarf síðar frá þeim framburði og sagði hana hafa átt upptökin að þeim. Hélt hann sig við þann fram- burð fyrir dómi. Málsatvik í stuttu máli eru þau að fólkið var með fleirum saman á skemmtistað þegar konan veiktist sökum áfengisneyslu. Maðurinn bauðst til að fara með konuna heim til frænku hennar og fékk hjá frænkunni lykla að íbúð hennar. Þegar þangað var komið bjó mað- urinn um konuna í sófa og lagðist í kjölfarið til atlögu. Eftir einhverjar mínútur varð hann frá að hverfa þegar dyrabjöllunni var hringt, en þar var frænkan komin heim. Konan sagðist hafa verið algjörlega mátt- laus vegna áfengisneyslu og ekkert getað sagt, hvorki á meðan samför- unum stóð né eftir að frænkan kom heim. Treysti ekki manninum Nokkur vitni voru leidd fyrir dóminn, m.a. vinkona fórnarlambs- ins, en þær ræddust saman í síma stuttu áður en nauðgunin átti sér stað. Sagði þá konan vinkonu sinni að hún treysti ekki manninum. Vin- konan ræddi einnig við manninn í síma og sagði hann þá m.a.: „láttu ekki svona, ég er ekki þannig mað- ur“. Héraðsdómararnir Hjörtur O. Aðalsteinsson, Ásgeir Magnússon og Ástríður Grímsdóttir kváðu upp dóminn. Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari sótti málið og Bjarni Lárusson hdl. varði manninn. Sagðist ekki vera „þannig“ maður Hlaut 15 mánaða fangelsi fyrir nauðgun HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest framlengingu gæsluvarðhalds yfir tveimur Litháum sem grunaðir eru um nauðgun sem átti sér stað í húsasundi við Laugaveg. Mennirn- ir munu sitja í varðhaldi til 21. des- ember nk. Í greinargerð lögreglunnar kem- ur fram að rætt hafi verið við vitni vegna málsins, m.a. starfsmenn skemmtistaðar sem fólkið kom út af áður en brotið var framið. Þeim ber saman um að mennirnir hafi verið með dónaskap og yfirgang inni á staðnum. Upptökur úr ör- yggismyndavélum sýna þá að mennirnir fóru út af staðnum nokkru fyrr en brotaþoli. Einnig kemur fram að mennirnir eiga báð- ir að baki sakaferil, s.s. þjófnað, rán og fjárkúgun. Annar mannanna ber við minn- isleysi sökum áfengisneyslu en hinn hefur viðurkennt að hafa haft mök við konuna, en segir það hafa verið með samþykki hennar. Eiga sakaferil að baki RANGLEGA var vitnað í kvöld- fréttir Stöðvar 2 frá sl. þriðjudegi í frétt Morgunblaðsins í gær um sölu Þróunarfélags Keflavík- urflugvallar til Háskólavalla á eignum á varnarsvæðinu. Sagt var að aðstoðarmaður fjármálaráð- herra ætti sæti í stjórn Þróun- arfélags Keflavíkurflugvallar, sem er rangt. Hið rétta er að hann sit- ur í bæjarstjórn Reykjanesbæjar ásamt Árna Sigfússyni, sem er stjórnarformaður Þróunarfélags- ins. Beðist er velvirðingar á þess- um leiðu mistökum. Eins og fram kom í frétt Morg- unblaðsins í gær er Þróun- arfélagið einkahlutafélag í 100% eigu ríkisins. Rétt er að ítreka, að, eins og fram kemur í 4. gr. laga nr. 176/2006, þá er það forsætis- ráðherra sem fer með hlutafé rík- isins í félaginu. LEIÐRÉTT Ranglega vitnað í frétt AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 H O S I E R Y Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 af öllum buxum, bolum og toppum 15% afsláttur Ný sending Sparibuxur í svörtu og brúnu 3 Síddir Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 M bl .9 29 34 3 Opið laugardag í Bæjarlind kl. 10-16 og í Eddufelli kl. 10-14 Kolefnisjöfnuð bók!! holar@simnet.is Íslenskar gamansögur 1 Stórskemmtileg bók.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.