Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞAÐ ER EKKERT SLÆMT AÐ VERA FEITUR... ÞAÐ ÞÝÐIR BARA AÐ ÞAÐ ER NÓG TIL AF MÉR... NÓG HANDA MJÖG MIKIÐ AF FÓLKI ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ HANN NÁI EKKI AÐ HITTA NÚNA! ÉG HELD AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ KASTA TIL HANS „ÞRUMUBOLTA“ EN „ÞRUMUBOLTAR“ ERU VÍST BANNAÐIR ÞANNIG AÐ ÞÚ GETUR BARA GLEYMT ÞESSU ÞAÐ ER ÓTRÚLEGT HVAÐ ÞAÐ ER MIKIÐ AF SKRÍTNU FÓLKI Í ÞESSUM HEIMI EF ÞÚ DREKKUR ÖFUGT ÚR GLASINU ÞÁ LÆKNAST HIKSTINN ÞINN HVERNIG (HIKK) Á ÉG EIGINLEGA (HIKK) AÐ FARA AÐ ÞESSU (HIKK) ÞÚ VERÐUR AÐ FARA MEÐ HAUSINN Á HVOLF (HIKK) ÉG SKIL (HIKK) NÚNA ER ÉG MEÐ HIKSTA OG VATN UPPI Í NEFINU Á MÉR (HIKK) ÉG HELD AÐ MJÖG STRÍÐIÐ FÓLK HAFI FUNDIÐ UPP LEIÐIRNAR TIL AÐ LOSNA VIÐ HIKSTA ÞEGAR ÉG VAR UNGUR VILDI ÉG VERÐA RÍKUR OG FRÆGUR! EN ÞEGAR ÉG ÞROSKAÐIST MEÐ ALDRINUM ÁTTAÐI ÉG MIG Á ÞVÍ AÐ... ÉG ÞARF EKKI AÐ VERÐA FRÆGUR... BARA RÍKUR ÉG ÁBYRGIST AÐ EFTIR ÞETTA NÁMSKEIÐ EIGIÐ ÞIÐ EFTIR AÐ GETA PANTAÐ YKKUR KAFFI HVAR SEM ER Á ÍTALÍU ÞAÐ VÆRI FRÁBÆRT AÐ HITTA VIN ÞINN Á CHEZ LA LA EN VIÐ ÞYRFTUM AÐ BORGA TUGI ÞÚSUNDA FYRIR MATINN! VIÐ ERUM NÚ EKKERT SÉRSTAKLEGA FÁTÆK, ER ÞAÐ? EN ÉG HÉLT AÐ VIÐ ÆTLUÐUM AÐ REYNA AÐ SPARA! VIÐ ÞURFUM EKKI AÐ FÓRNA NEINU FYRIR ÞETTA EINA SKIPTI NEI, BARA FRÍINU OKKAR! ÉG ÆTLA AÐ SEGJA HONUM AÐ VIÐ HITTUM HANN ÞAR SJÁÐU, HUGO... ÞETTA ER ÉG Í PRUFUNNI FYRIR HLUTVERK MARVELLU ÉG VAR MIKLU BETRI EN ÞESSI STELPU- KJÁNI SEM ÞEIR RÉÐU Æ, NEI! HÚN ER ÖFUND- SJÚK ÚT Í M.J. dagbók|velvakandi Týndi skórinn ÞETTA eru ekki skilaboð frá Ösku- busku heldur erum við að leita að viðskiptavini sem fékk sendan rang- an skó úr viðgerð í póstkröfu. Þessi viðskiptavinur hafði samband við okkur og ætlaði að senda skóinn til baka en ekkert bólar á honum. Okkur er farið að lengja eftir skónum og biðjum Velvakanda um aðstoð. Viltu, kæri viðskiptavinur, senda skóinn sem allra fyrst eða hafa samband við okkur. Skóvinnustofa Hafþórs Garðastræti 13A, sími 552-7403. Torrent og höfundarréttarsamtök SMÁÍS, Stef og fleiri höfundarrétt- arsamtök leggja svokallað aukagjald á vörur sem tengjast músík eða myndböndum á einn eða annan máta. Þar má nefna Ipod, alla mp3- spilara, harða diska, minnislykla, tóma geisladiska, tóma DVD-diska, brennara o.fl. Þetta aukagjald renn- ur í það sem kallast ólögleg dreifing á tónlist eða kvikmyndum sem dreift er án höfundarsamþykkis. Þetta gjald þurfa allir að borga, skiptir ekki máli hvort maður stundar lög- legt eða ólöglegt athæfi. Ég gæti t.d. verið að semja mína eigin tónlist, brennt hana á disk, þá er ég samt að borga þetta gjald með því að kaupa tóman geisladisk til að brenna tón- listina á. Þetta gjald er löglegt sam- kvæmt reglugerðum Alþingis, en 100% siðlaust að mínu mati. Snúum okkur aftur að Torrent. Torrent er skráaskiptaforrit sem þarf vefþjón til að útbýta skrám til notenda. Þegar ég næ í bíómynd, tónlist eða eitthvað annað, er ég að ná í svo lítið frá hverjum notanda fyrir sig að ekki getur greinst þar að höfundarréttur hafi verið brotinn. Þar sem ég deili efninu á sama máta er hægt að segja það sama um það. Torrent-tæknin er lögleg, en hún er auðvitað 100% siðlaus. Á meðan ég greiði þetta gjald með því að kaupa geisladiska og annan tölvubúnað er þá ekki hægt að segja að ég hafi greitt fyrir það efni (sem er höfundarréttarvarið) sem ég hef náð í af netinu? Gunnar Diego. Öryrkinn og tekjuáætlun maka VÆNTANLEGIR kjarasamningar eða hvað? Samkvæmt leiðbeininga- bæklingi Tryggingastofnunar ríkis- ins kemur fram að stjórnvöld hafi áætlað hækkanir á tekjuflokkum fyrir árið 2008 sem hér segir. Launa- tekjur 9%, lífeyristekjur 11%, fjár- magnstekjur 9% og hagnaður af eig- in starfsemi 9%. Verða þetta ef til vill næstu kjarasamningar? Spyr sá sem ekki veit. Fyrir 10. desember þarf að vera búið að skila inn réttri tekjuáætlun til Tryggingastofnunar fyrir næsta ár og bera lífeyrisþegar alla ábyrgð á því að réttar upplýs- ingar liggi fyrir hverju sinni jafnvel þó kjarasamningar losni um áramót og eftir sé að semja um laun næsta árs. Er þetta hægt? Spyr sá sem ekki veit. Dagrún Sigurðardóttir. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is NÚ ÞEGAR farið er að kólna er erfiðara að verða sér út um æti við Tjörn- ina í Reykjavík. Henni var nokkuð brugðið, ungu stúlkunni, þegar þessi betlari vatt sér að henni í leit að brauðmola. Morgunblaðið/Frikki Barist um brauðmolana FRÉTTIR N E T S V A Rwww.saft.is Öruggt að versla á Netinu? NESKIRKJA og Vesturgarður, þjónustumiðstöð Vesturbæjar, bjóða til námskeiðsdags fyrir unglinga í 9. og 10. bekk og foreldra þeirra næst- komandi sunnudag, 25. nóvember, kl. 14-16.30. Í fréttatilkynningu segir að mark- mið dagsins sé að eiga samtal á já- kvæðum nótum um líðan og sam- skipti unglinga og foreldra. Að deg- inum koma prestar og starfsfólk Neskirkju og auk sérfræðinga frá Vesturgarði. Boðið verður upp á fjöl- breytta dagskrá með léttum veit- ingum og helgistund með altaris- göngu í lokin. Námskeiðsdagurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu en beðið er um skráningu í s. 511 1560 eða á neskirkja@nes- kirkja.is. Samtal við unglinga á jákvæðum nótum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.